Þjóðviljinn - 13.03.1953, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 13.03.1953, Blaðsíða 6
6) — ÞJÖÐVILJINN — Föstudagur 13. marz 1953 pjófiwiUitm Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja ÞjóðviljaríE h.f. 3 Með hverju ári fjölgar þeim Islendingum sem skilja hve ömur- lega hag íslenzku þjóðarinnar er komið vegna tangarhalds Bandaríkjanna á landinu. Með tilstyrk þingmanna sem íslenzkir xnenn hafa fengið áhrif og völd hefur ríkisstjórn Bandaríkjanna tekizt að koma í framkvæmd þeirri áætlun um hérstöðvar á íslandi á friðartímum, sem fyrst var sýnd opinberlega 1945 meðan bandaríská hernámsliðið frá stríðsárunum var enn ófarið héðan. Þá krafðist Bandaríkjastjórn þriggja staða á íslandi fyrir varanlegar herstöðvar á friðartímum. Því tókst að afstýra að undan væri látið í það sinn, vegna þess — og vegna þess eins — að Sósíalistaflokkurinn átti þá tvo ráðherra í ríkisstjórn Islands. Þá ákvað Bandaríkjastjárn að ná ætlun sinni í áföng- um, og með þaulræktun leppakerfis á íslandi er náði til helztu valdamanna í þremur íslenzkum stjórnmálaflokkum, tókst að r.á tangarhaldi á íslenzkri jörð, íslenzku atvinnulífi, fjármálum og stjórnmálum, svo að Island sekkur nú dýpra og dýpra í ný- lenduafstöðu gagnvart Bandaríkjunum. Fólkið sem fylgt hefur Sjálfstæðisflokknum, Framsókn og Alþýðuflokknum hefur látið blekkjast, hefur enn ekki risið upp og svipt þá menn umboði og valdi sem svo geypilega brugð- ust trúnaði þjóðarinnar, brugðust íslenzkum málstað. Þó fjölgar þeim sem skilja hvert stefnir ef haldið er áfram á undanhaldsbrautinni, ef ekki tekst að margfalda þegar á næstu árum afl þeirrar nýju sjálfstæðishreyfingar sem barizt liefvjr gegn bandarísku ásælninni á öllum stigum hennar. Og hvorki nútimamenn né sagaa kemst fram hjá þeirri staðreynd að einungis eifln þeirra stjórnmálaflokka sem nú starfa á Islandi hafi óskiptur og heils hugar barizt gegn erlendu ásælninni, hvaðan sem hún hefur komið. Sá flokkur er SósíalÍ3taflokkurian. Þeim flokki gaf fimmtungur þjóðarinnar fylgi sitt í síðustu kosningum, enda leikur ekki á tveim tungum að hann er sterkasta skipulagða aflið í hinai nýju sjálfstæðsbaráttu Islendinga enn sem kemið er, að sú barátta er óhugsandi án Sósíalistaflokksins. Jafakunn er sú staðreynd að Sósíalistaflokkurinn hefur ávallt rétt hönd hverjum þeim^ sem leggja vill lið hinni örlagaríku sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Ávarp miðstjórnar flokksins um þjóðfylkingu Islenainga í. kosningunum í sumar mun vekja al- þjóðarathygli. Sósíalistaflokkurinn er reyndur að því í samstarfi ''ið stjórnmálaandstæðinga um tiltekin mál að standa að fram- kvæmd gerðs samkomulags af fullum heilindum. Sú staðreynd stingur mjög í stúf við staðreyndimar um framkomu Alþýðu- flokksins, Sjálfstæðisfl. og Framsóknar í slíku samstarfi. Fólk úr öðrum stjórnmálaflokkum, sem vinna vill gegn því að ísland verði bandarísk nýlenda með betlarasvip, veit að það getur vætizt fullra heilinda af samstarfi við Sósíalistaflokkinn’. Eiamitt með ávarpinu um þjóðfylkingu Islendinga réttir Sósíalistaflokkurinn hönd hverjum þeim sem vill leggja lið sjálfstæðisbaráttu ís- lenzku þjóðar.'nnar, með þungri • áherzlu á allt það sem sam- einar á sameiginlegan málstað allra góðra íslendinga. f Hver er sá góður Islendingur að hann vilji neita, á örlaga- stundu þjóðar sinnar, að vinna að þessum verkefnum: 1. AÐ lierverndarsamningnum verði sagt npp og allur erlendur her fluttur burt af íslandi. 2. AD þjó.ðin endurheimti sjálfsforræði sitt að fullu í stjórn- arháttum og efnahagsmálum. 3. AÐ staðið verði fast gegn öllum tilraunum til að koma upp íslenzkum her í hvaða mynd sem er. 4. AÐ stáðið \erði gegn öilum tilraunum erlends áuðvaMs til að sölsa undir sig íslenzkar auðlindir. 5. AÐ þjóðin einbeiti orkn sinni að því að koma upp stóriðju á grundveJIi auðlinda sinna af eigin rammleik. G. AÐ nýtt verði til full^ atvinnutæki þjóðarinnar í sjávarút- vegi, landbúnaði og iðnaði og hafin að nýju stefna nýsköpun- ar og framfara í þessum greinum. 7. AÐ stefnt sé að því, að öllum Islendingum, sem vilja vinna, sé tryggð atvinna. 8. AÐ unnlð sé markvisst að bætt’um launakjörum og auknu félagslegu öryggi í náinni samvinnu við verkalýðssamtökin. 9. AÐ ekiki sé hvikað í landhelgismálunum. 10. AÐ íslendingar kappkosti að lifa í friði og vináttu við allar þjóðir, lýsi yfir ævarandi hlutleysi í ófriði og leggi fram sinn skerf tl þess að stuðla að sáttum og frtði í heiminum. Miðað við íslenzka hagsmuni var stofn- un Framkvæmdabankans alveg óþörf. Benjamín Eiríksson skrifar nú feiknarlegan langhund í Morgunblaðið um Framkvæmda banka sinn. Af því tilefni hafa ýmsir mælzt til þess að Þjóð- viljinn birti í heild álit Jóns Árnasonar bankastjóra um Framkvæmdábankann, og er Þjóðviljanum ljúft að verða við því. Álit Jóns Árnasonar var birt í nefndaráliti Brynjólfs Bjarnasonar um málið og þar var einnig birt sameiginlegt á- lit bankastjóranna, en her- námsflokkarnir neituðu að koma þessum álitsgerðum á framfæri. Síðar hefur Tíminn einnig neitað að birta álit Jóns, þrátt fyrir beiðni hans og sýn- ir það glöggt málfrelsið innan Framsóknarflokksins. Sameiginlegt álit bankastjór- anna er mjög peikvætt fyrir á- form ríkisstjórnannnar. M. a. komast þeir svo að orði um 9. grein frumvarpsins: „Samkvæmt þessari grein er fjármálaráðherra gefin heimild til þess áð’ ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs erlend lán og erlend- ar skuldbindingar bankans fyr- ir allt að 100 millj. kr. á hverj- um tíma. Þar sem hér er um löng lán að ræða, virðist þessi heimild mjög vafasöm, enda brýtur þetta í bága við þæ: venjur, sem tíðkazt hafa, að Álþingi ákveði hverju sinni um erlendar lántökur til langb tíma, bæði fyrir ríkissjóð sjálf- an og lán með ríkisábyrgð .... Niðurlag .2. málsgreinar virðist ekki n.ógu ljóst orðað, en sé þáð meiningin, að bankinn taka bráðabirgffalán erlendis, þá viljum vér benda á, að það samrýmist ekki hlutverki bank- ans sem fjárfestingarstofnunar og getur auk þess spillt fyrir útvegun erlendra viðskiptalána annarra banka, sem er lífs- nauðsyn fyrir atvinnulífið.“ Álit Jóns Árnasonar er hins vegar veigamesta gagnrýnin, en það hljóðar svo í heild: „Hæstvirtur viðskiptamála- ráðherra hefur sent Lands- banka íslands til umsagnar frumvarp til laga um Fram- kvæmdabanka Islands. Þótt ég sé samþykkur atlíugasemdum bankastjómar Landsbanka ís- lands viff' frumvarp þetta, eins og það liggur fyrir og það sem þær ná, læt ég fylgja sérstaka umsögn um stofnun fyrirhug- aðs Framkvæmdabanka, eins og það mál lítur út frá mínu sjónarmiði. Þegar á mál þetta er litið frá almennu sjónarmiði, verð- ur að vekja athygli á þvi, að hér á landi eru nú starfandi 3 bankar, sem allir eru eign ríkisins. Vaknar þá eðlilega sú spurning, hvort þörf sé á að stofna nýjan banka. Við athugun frumvarpsins ber þá fyrst á það að lítá, hvaða hlutverk hinum nýja banka er ætlað að inna af hendi. Er því lýst með al- mennum orðum í 2. grein frum- varpsins. Eftir orðalagi þeirr- ar greinar verður ekki séð, að hér sé nein nýjung á ferð- inni. Öllum bönkum landsins er ætlað að efla atvinnulíf og vel- megun þjóðarinnar og beita sér fyrir framkvæmdum. I 1. máls- grein nefndrar greinar er sagt, aff bankinn skuli beita sér fyr- ir „auknum afköstum fram- leiðslunnar". Ef einhver mein- ing felst í þessum orðum, hlýt- ur öllum bönkum að vera skylt að gera það sama, og er þá heldur ekki um neina nýjung aff ræða. I 7. gr. er hlutverk bankans skýrt nánar í tíu liðum. Eng- inn dómur- skal lagður á efni 1. liðs þessarar greinar, en ekki virðist þörf á að stofna nýjan banka, til þess að ríkisstjórnin geti öðlazt ráðunaut í fjárfest- ingarmálum. Á meðan fjárhags ráð starfar, er ekki óefflilegt, JÓN ARNASON að það inni þetta hlutverk af hendi hér eftir sem hingað til. I 2. lið greinarinnar er á~ kvæði um, að bankinn veiti löng lán til .ýmissa fram- kvæmda, og er það1 vitanlega aðalefni frumvarpsins, og mun nánar vikið aff því síðar. I 3. lið er gert ráð fyrir, að bank- inn kaupi hlutabréf í fyrirtækj- um. Þetta ákvæði er nýjung, en ólíklegt verður að telja, að Alþingi vilji afhenda peninga- stofnun í landinu fullt og óskor að umboð til þess að kaupa hlutabréf á ábyrgð bankans í hvaða nýju fyrirtæki sem bankastjórnin ákveour. 1 7. lið er gert ráð fyrir, að bankinn afli lánsfjár erlendis til fram- kvæmda, sem eru í samræmi við ti’gang bankans. 1 9. gr. frumvarpsins er hámark þess- ara lánsheimilda ákveðið 100 millj. kr. á hverjum tíma, og þarf ekki annáð en samþykki fjármíálaráðherra, til þess að bankinn geti tekið slíkt lán. Verður að telja það með ólík- indum, að Alþingi afsali sér af- skintiim^f slíku stórmáli, enda brýtur þetta í bága við þær venjur, sem hingað til hafa gilt, að Aiþingi taki hverju sinni ákvörðun um erlendar ’ántökur til langs tíma, bæði um lán ríkissjóðs sjálfs og um lán með ríkisábyrgð. Á það skal einnig bent, að í niður- lagi 2. málsgreinar 9. grein- ar frumvarpsins virðist' gert ráð fyrir, að bankanum sé heimilt að taka bráðabirgða- lán erlendis. En það samræm- ist ekki htutverki bankans sem \ fjárfestingarstofnunar og getur auk þess spillt fyrir útvegun venjulegra erlendra viðskipta- lána, sem eru lifsnauðsyn fyr-.. ir atvinnulíf landsmanna. Um önnur atriði 7. gr. frum- „ varpsins þarf ekki áð fjölyrða en aðeins geta þess, að 8., 9. og 10. 'liðir virðast lítt fram- kvæmanlegir, nema bankinn hafi í þjónustu sinni marga sérfræðinga, en það verður ekki séð af öðrum greinum frumvarpsins, að til þess sé ætlazt, enda mundi það verða örðugt, bæði vegna kostnaðar og vegna þess, að vandfundnir væru sérfræðingar, sem ekki væru þá bundnir við önnur st-örf. Samkv. 11. gr. frumvarpsins á bankinn enn fremur að annast innheimtu vaxta og afborgana af lánum, sem ríkið hefur veitt, ef fiármálaráðherra óskar þess. í 20. gr. frumvarpsins er svo ákveöið, að Landsbanki Is- lands skuli annast dagleg af- greiðslustörf fyrir Framkv,- bankann. Afleiðingin af þessu ákvæði ei* vitanlega sú, að Framkvæmdabankinn yrði að afhenda Landsbankanum öll* skuldabréf, sem um er rætt í 11. gr., til útborgunar og inn- heimtu og enn fremur öll skuldabréf fyrir þeim lánum, sem bankinn kann að veita. Þetta ákvæð'í er út af f7/rir sig mjög eðlilegt. Það mundi ekki kosta I-iandsbankann veru- lega aukið mannahald að ann- ast þetta og yrði því ódýrt í framkvæmd. Ef Framkvæmda- bankinn ætti liins vegar að framkvæma. þetta, þyrfti hann marga starfsmenn umfram það, sem frv. virðist gera ráð fyrir, en þá leiðir þaff líka af sjálfu sér, að stofnun Framkvæmda- • banka vegna þessa máls er þarflaus, því að ríkisstjórnin getur falið Landsbanka Islands áð inna þessi störf af hendi milliliðalaust. Þótt hér sé stiklað á stóru og ekki fleiri atriði í frumvarp- inu tekin til athugunar, þá er það augljóst, að hlutverk Fram kvæmdabankans verffúr einung- is það að taka á móti Mótvirð- issjóði og nokkrum hlutabréf- um, sem ríkið á og kann að eignast, og taka ákvörðun um lánveitingar, að svo miklu leyti sem Alþingi ákveður það ekki fyrir fram. En samkvæmt þingsályktunartillögu 17. jan- úar 1952 er ákveffið að helm- ingi Mótvirðissjóðs skuli varið til framkvæmda í þágu land- búnaðarins. Að þessu athuguðu virðist því starfssvið Framkvæmda- bankans vera orðið næsta lítið, þar sem stjórn hans þarf ekki að ákveða um útlán á öðru en helming Mótvirðissjóðs og því fé, sem ríkisstjórnin kann að leggja lionum að auki. En ó- líklegt er, eins og ástandið er nú í peningamá’um þjóíárinn- ar, að úm mikil fjárfra.m'ög frá ríkinu geti orðið að ræða í því skyni að minnsta kosti fyrst um sinn. Til viðbótar má minna á það, að ríkið hefur hleypt sér í skuldir viff Landsbanka Islands vegna fiárfestingar og rekstrar- halla rikissjóðs undanfarin ár. Nema, lausaskuldir nú um 100 millj. kr. auk fastra lána. Það er því með öllu ófúllnægjandi Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.