Þjóðviljinn - 18.03.1953, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 18.03.1953, Qupperneq 12
inniswan hirb snemma a næsta .ari Minnismerki Skúla Magnússonar, gert af. Guðmumdi Einarssyni frá Miðdal, er nú fullgert i frummynd og verður minnisvarðinn, steyptur í eir, tilbúinn upp úr næstu áramótum. Sjálfsagt er talið að minnis- merkið verði sett upp við Að- alstræti, en Við Aðalstræti stóðu Innréttingarnar, eins og flestum mun kunnugt. Blaðamenn skoðuðu minnis- merkið í gær í vinnustofu Guð- mundar Einarssonar frá Miðdal og skýrði ,,Skúlanefndin“ er Verzlunarmannafélag Reykja- víkur kaus til að hrinda minn- ismerkismálinu í framkvæmd, nokkuð frá undirbúningi máls- ins. Upphaflega var leitað til þeirra Einars Jónssonar og Gjaímr til Hnífsdals- söíimnannnar Þessar peningagjafir hafa söfnunarnefndinni borizt: Frá Aðalsteini Pálssyni, skipstjóra 2000 krónur, Júpiter h.f. 5000 krónur og Tómasi Helgasyni búfræðiagi 1000 krónur. Bækur hafa borizt frá Valdi- mar D. Valdimarssyni, Kristni Halldórssyni, Hverfisgötu 67, iSigurborgu Kristjánsdóttur frá Múla, Herdási Ásgeirsdóttur; og iStefán H. Stefánsson, bókaút- gefandi, hefur tilkynnt að hann gefi útgáfubækur sínar að and- virði 1000 krónur. „Samherjar“ „Samherjar“, félag þeirra, er styðja vilja starfsemi Háteigs- safnaðar, var stofnað í gær. Rúmlega 50 manns gengu í fé- lagið á stofnfundinum. Félagar geta órðið allir karlar 16 ára iog eldri. Formaður var kosinn Lúðvig Guðmundsson skólastjóri en meðstjórnendur Axel Sigur- geirsson kaupmaður, Eggert P. (Briem fltr.; Jónas Jósteinsson yfirkennari, séra Jón Guðnasoo skjalavörður, Stefán A. Pálsson kaupm. og Þórður Jasonarson ibyggingameistari. Endurskoðendur voru kosnir Bernhard B. Amar kaupm. og Hannes Jónsson endurskoðamdi. Tilgangur félagsins er, að vinna að heill Háteigssafnaðar í hvívetna og f.o.fr. að vinna að því, að kirkjumál safnaðarins verði leyst hið fyrsta. í ■ ! J dagar eru ,nú liðnir síðan Guðmundur í. Guðmunds- Gaðmanéer S? son sýslu- maður í GuHbrlngu- og Kjósar. sýslu ætlaði að senda blöðunum tilkynnfngu nm það til- tæki bandaríska hers'ins að loka Keflavíkurflugvelli fyr- irvaralaust og hóta að skjóta íslenzkan bílstjóra og lög- ragluþjón. Tilkýnningin er ókomin <! enn. Hví þegir Guðmund’ur I ? Guðmundar frá Miðdal um gerð minnismerkisins og treystist Eitnar Jónsson ekki til að gera það, vegna lieilsubrests og tók þá Guðmundur frá Miðdal að sér verkið, og nú er þvi lokið. Verður minnismerkið steypt í eir í Kaupmannahöfn. Er það 2,80 m á hæð. Áætlað verð 125 þús. kr. og verður höfð söfnun meðal verzlunarmanna og ann- arra til að kosta gerð mynda- styttunnar, og býst Skúlaneftad- in við góðum undirtektum. Vænst kvað hún sér myndu þykja um það ef svo mikið fé safnaðist að hægt væri að gefa Norðlendingum afsteypu, en Skúli var Norðlendingur. Samið við Dani Hinn 14. þ. m. var undirritað í Reykjavík samkomulag um við- skipti milli íslands og Danmerk- ur, er gildir fyrir tímabilið frá 15. marz 1953 til 14. marz 1954. Samkomulagið var undirritað fyrir liönd íslands af Bjarna Benediktssyni, utanríkisráðlierra, og fyrir hönd Danmerkur af danska sendiherranum í Reykja- vík, frú Bodil -Bergtrup. Samkvæmt siamkomulagi þessu munu dönsk stjórn.arvöld veita innflutningsleyfi fyrir íslenzkum vörum á svipaðan hátt og áður. Verði innfiutninigur á íslenzkri saltsíld (þar með talin krydd- síld og sykursöltuð síld) og salt- fiski, sem nú er frjáls í Dan- mörku, háður innflutningstak- mörkunum á ný, mun danska rík.isstjómin leyfa innflutning á sama magni og á siíðasta samn- ingstímabili, eða 20 þús. tunnum laf saltsíld og '500 smál. af salt- fiski. íslenzk istjórnarvöld munu heimila innflutning frá Dan- mörku á sama hátt og áður hef- ur tíðkazt, að svo miklu leyti sem gjaldeyrisástand landsins leyfir. Auk þess munu íslenzk stjórnarvöld leyfa útflutning til Danmerkur á ákveðnum hundr- aðshluta af síldarlýsis- og síldar- mjölsframleiðslu fslands á samn ingstímabilinu. mi Miðvikudagur 18. marz 1953 — 18. árgangur — 64. tölublað Sungið verðuí í ítalíu, Airiku, Frakk- íandi, Spáni og Portúgal Karlakór Reykjavíkur siglir héðan 25. þ.m. í söngföt sína til Suðurlanda, og er það fjórða utanlandsför kórsins. Verður kór- inn réttan mánuð í för sinni. Minnismerkið um Skúla Magn- ússon. — Listmaðurinn stend'ur lijá því. Kórinn sighr á hinum glæsi- ■lega farkosti Eimskipafélagsins, 'Gullfossi. Er Gullfoss þegar full- skipaður söngmönnum og far- þegum eða .207, þar .af eru sönigmenn 38 og konur þeirra 29. Söngstjóri er vitanlega Sigurð- ur Þórðarson, fararstjóri kórs- ,ins verður Þóhallur Þorgilsson bókavörður og einnig verður Ás- Ætlar að œfa íslenzka íþrótta menn I áhaldaleikfimi Sýnir íþrótt sína á sunnudaginn kemur Hiogað til landsins er korninn sænskur fimleikamaður, Arne Lind að nafni. Kemur hann hingað á vegum fimleikadeildar KR og mun dvelja hér um þriggja vikna skeið og æfa íslenzka íþrótta- menn í ýmiskonar áhaldaleikfimi, auk þess sem hann kemur fram á fimleikasýningum, sem í ráði er að haldnar verði. liaifuttdur gullsmiða Aðalfundur Sveinafélags gull- smiða var haldinn mánudaginn 16. marz s. 1 Fráfarandi for- miaður, Þorstieinn F.innbj'arn.ar- son, baðst undan endurkosningu og var Sverrir Halldórsson kos- inn foémaður. Aðrir í stjórn fé- lagsins voru kosnir: Ásmundur Jónsson, irítari, og Ásdis Thor- oddsen, gjaldkeri. í varastjórn voru kosnir: Bjarni Bjamason, varaformaður, Björn Halldórsson og iSigurður Bjarnason. Mikill áhugi og einhugur ríkti á fundinum um félagsmálin og hagsmunamál félagsmanna. Lelksi sanian Mia®§í®ik verk á pfané eg ffélit Þjóðverjarnir Detleí Kraus ogliuth Her- manns halda tónleika á föstudag í fyrrinótt kom hingað til latads þýzki píanóleikarinn Detlef Kraus. Mun hann halda hér tónleika n.k. föstudag klukkan 19 i Gamla Bíói ásamt fiðluleikaranum Ruth Hermanns, sem stend- ur fyrir komu hans hingað að þessu sinni. Detlef Kraus er 33 ára iað aldri og vel þekktur í heim-a- landi sínu, Þýzkalandi, en þar hefur hann haldið marga tón- leika og jafnan hlotið hina beztu dóma fyrir leik sinn. Auk þess hefur Detlef Kraus leikið á Spáni og fyrir dyrum stendur hljómleikaferð til Suður-Amer- íku. Kraus dvelst hér á landi að- eins í vikutíma, en hann fer ut- an .aftur hinn 24. marz n. k. og er enn óráðið hvort hann. efnir til sjálfstæðra tónleika hér að þessu sinni. Á tónleikum þeirr.a Detlefs Kraus og Ruth Hermanns á föstudaginn leika þau fyrst ,sam- an Vorsónötuna eftir Beethoven. Þá leikur Ruth Hermanns Cha- conne eftir Bach, Detlef Kraus leikur þessu næst sinfónískar etýður eftir Schuman og loks leika þau aftur saman D-moll sónötuna fyrir fiðlu og píanó ,eítir Brahms. Þau Ruth Hermanns og Detlef Kraus hafa áðiur ieókið saman á tónleikum í Þýzkalandi snemma á stríðsárumum. * Arne Lind er 27 ára gamall Stokkhólmsbúi og hefur stundað reglubundna keppnisfimleika um sjö ára skeið. Hann hefur getið sér igóðan orðstír sem fimleika- maður í Svíþjóð o-g m. a. fimm sinni.un orðið Stokkhólmsmeist- ari. Áhaldaleikfimi hefur ákfalega lítið verið iðkuð frarn að þessu hér á landi og stafar það bæði af -skorti á nægum áhöldum og færum þjálfurum. ÍR-ingar tóku fyrstir að æfa áhaldaleikfimi hér á landi, en KR-ingar hafa lagt stund á hana um nokkurra ára skeið og Ármenningar tóku upp æfingar í vetur. Utan Reykjavíkur hefur aðeins verið lítillega lögð stund á á- haldaleikfimi á Seyðisfirði og Siglufirði. ' Eins og áður var sagt er í ráði að Arne Lind sýni hér fimleika á ýmis konar áhöldum Oig eru ráðgerðar 2—3 sýningar hér í bæ í íþróttahúsi Háskólans. — Verður fyrsta sýningin sennilega á sunnudaginn kemur og mun hún einkum ætluð skólafólki, en næsta sunnudag þar á eftir verð- ur sýning haldin fyrir almenn' ing. Á sýningum þessum munu auk Arne Lind koma fram 8 piltar úr KR, sem æft hafa áh.alda- leikfimi um nokkurt skeið, en segj.a má að séu þó byrjendur í þessari erfiðu íþróttagrein. ■björn Magnússon framkvæmda- stjóri Orlofs með .1 förinni, en hann hefur skipulagt ahar ferð- ir kórsins og annarra farþega í þeim löndum sem komið verður í. Stjórn kórsins, Eggert Briem og Ásbjörn Magnússon skýi'ðu fréttamönnum í gær frá söng- förinni. Áður hefur Þjóðviljinn sagt frá undirbúning'i fararinn- ar. Á þessum stöðum sungið. Ákveðið er að fyrsti samsöng- ur kórsins verði í. Algeirsborg 1. apríl, verður þar einnig sungið í útvarp. Þaðan verður farið til Sikileyjar og sungið þar á veg- um Ragnars i Smára þeirra Sikileyinga. Þaðan verður farið til Napolí, en ekki er fullráðið enn hvort þar verður sungið, vegn.a páskahelgarinnar. Síðan verður farið til Róm og sungið þar. Kórinn mun hafa í hyggju að ganga á fund páfa og sýngja fyrir hinn heilaga föður ka- þólskra. Frá Róm verður aftur Framhald á 9. síðu Aðalfundur Yerka- marmafélagsins Þói's á Selfossi Verkamannafélagið Þór á Sel- fossi hélt aðalfiund sinn s. 1. laugardag. í stjóm félagsins voru kosnir: Einar Sigurjónsson, for- roaður, Skúli Guðnason, varafor- maður, Sigurður Grimsson, rit- ari, Ólafur Friðriksson, . gjald- keri, Ármann Einarsson, með- stjórnandi. Sökum lasleilca rannsóknar- dómarans í árásamiálinu, Al- freðs Gíslasonar bæjarfógeta i Keflávík, var enn frestað í gær yfirheyrslunum yfir mönnunuia þrem, sem grunaðir eru um á- rásina. Líðan mannsins sem fyrir á- rásinni varð var óbreytt í gær- kvöld, er blaðið átti tal við Landspítalann. GuðmuAdsson sigraði í brfcige- keppei Þrottar Á sunnudaginn v,ar spiluð síð- asta umferð í bridgekeppni Knattspyrnufélagsins Þróttar, og fór hún þannig að iGuðnmndur R. vann Ingólf og Jón Guðnason vann Jón B. Úrslit á 'keppninni airðu þau að sveit Guðmundar R. sigraði með 5 stigum, önnur varð sveit Jóns Guðnasonar með 3 stig, og 3.—4. sveitir Jóns'B. Elíassönar og Ingólfs Ólafssonar með 2 - stig hvor. Verðlaun voru veitt: Bridge- bókin nýja. — Keppni þessi hef-. uý farið mjög vel fr,am oig verið hin, ánægjulegasta.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.