Þjóðviljinn - 24.03.1953, Blaðsíða 8
8) _ ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 24. marz 1953
“—gUÓÐVILIIttN-----------1
Undirrit. .. . óska að gerast áskrifandi að Þjóðviijanum
Nafn.............................
Heimili ........................
---------- Skólavörðustíg 19 — Sími 7500
ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON
pólitiskf bifbein?
íþróttahreyfingin hefur átt
því láni að fagna að hafa ekki
vafizt í pólitískar viðjar.
Innan þeirra vébaada er full-
komlega ríkjandi sú skoðún að
afrek íþróttámanns á leikvelli
eða störf í þágu hreyfingarinnar
séu jafngóð, hvaða pólitískum
flokki sá fylgir er verkið vinn-
ur. Enda er það svo að í stjórn-
um félaga, bandalaga og sam-
banda sitja menn með misjafn-
ar pólitískar skoðanir. Þeir
standa þar hlið við hlið sam-
einaðir um iþróttamálin eftir
beztu getu og aðeins af áhuga
að leysa þaú mál er til fram-
fara horfa þessu hugðarefni
þeirra. Þetta er lífsnauðsyn
meðan íþróttafélögin telja sig
uppalendur sem hafa tekið að
sér það hlutverk að gefa æsku-
mönnum þessa lands holl verk-
efni í tómstundum þeirra. Inn-
an íþróttahreyfingarinnar hefur
sú skoðun verið ríkjandi að þar
yrði að ríkja algjört pólitiskt
hlutleysi, og ekki mætti vega
og meta manngildi þar eftir
pólitískum lit.
Það má því telja öruggt að
tilvera íþróttanna byggist á því
að þessi skoðun lifi. Þetta er eitt
af því dásamlega við íþróttirn-
ar að þar fá menn að njóta
trausts, njóta saunmælis manna
með ólíkustu pólitískar skoðan-
ir. 1 hlutlausu áhugastarfi
hafa þessir menn unnið margt
þrekvirkið með byggingu mann-
virkja til að auka æsku Islands
möguleika til líkamsræktar. Til
þessa starfs hafa félög notið
styrks frá opinberum aðilum.
Það er haft fyrir satt að þeg-
ar rætt er um veitingar til í-
þróttamála séu „pólitikusarnir"
sammála, aldrei þessu vant, að
veita til íþrótta eftir því sem
föcig eru á. Hinn almenni skiln-
ingur hefur verið sá að þar væri
ekki fjárveiting til framdráttar
pólitískum flokkum og er það
vel.
Nú hefur svo við brugðið að
tvö dagblöð bæjarins sitt úr
hvorum stjórnmálaflokki hafa
farið í hár saman útaf því að
skip’t var um formann í íþrótta-
nefnd rikisins. í þessum skrif-
um kemur beinlínis fram að um
Heiðursviðurkenning
Nýlega hefur framkvæmda-
nefnd XV. Ólympíuleikanna sent
til Ólympíunefndar íslands tvö
heiðursskjöl til handa Ásgeiri
Bjarnþórssyni listmálara og Guð
mundi Einarssyni myndhöggvara
frá Miðdal fyrir þátttöku þeirra
í listsýningu Ólympíuleikanna í
Helsinki 1952.
íleiðursskjöl þessi afhenti full-
trúi íslands í Alþjóða-Ólympíu-
nefndinni, Ben. G. Wauge, lista-
mönnunum nýlega með þakklæti
fyrír þann heiður og sóma, sem
þeir hefðu sýnt jslandi með hinni
myndarlegu þátttöku þeirra í
listsýningu XV. Ólympí-uleik-
anna. En þátttaka þeirra vakti
mjög mikla a'thygli og eftirtekt
í Helsinki s. I. sumar.
nefnd þessa sem úthlutar fé til
íþróttamannvirkja og félags-
heimila eru að verða átök um
pólitísk yfirráð, eða ítök. Full-
yrðir annað Irlaðið (Tíminn) að
formanni og varaformanni sé
„vikið til hliðar af pólitísku of-
stæki“, og þetta tiltæki mennta-
málaráðherra kallað „pólitísk
bolabrögð". Hitt blaðið (Vísir)
telur þetta „sjálfsagða leiðrétt-
ingu“. Þykir svo mikið við
liggja hjá blöðum þessum að
Tíminn birtir feitletraða all-
langa grein um þetta og Visir
tekur málið í leiðara.
Hér hafa átt sér stað ill tíð-
indi. Þó skipt hafi verið um for-
menn í Iþróttanefnd og það hafi
gert ráðherrar með mismunandi
pólitískar skoðanir, og þá valið
menn eftir sínu höfði, þá hefur
raunverulega sama gilt um
þessa menn og úti í félögunum:
Þeim hefur verið treyst sem í-
þróttamönnum fyrst og fremst
og að þeir sýndu fullkomið
hlutleysi. Þessi skrif gefa full-
komlega tilefni, til að álíta að
mönnum þessum sé ætlað að
Meistaramót íslands í frjáls-
um íþróttum innanhúss fór
fram s.l. sunnudag í íþróttahúsi
KR. Keppt var í 4 greinum.
Þátttaka var sæmileg og árang-
Ur einnig, en undirbúningur
mótsins slæmur, svo mótið byrj-
aði óstuadvíslega og gekk seint,
enda hafði formaður mótsnefnd.
ar ekki sézt á staðnum
Kúluvarp.
Bragi Friðriksson KR 13.98
Guðmundur Hermanns KR 13.91
Hallgrímur Jónsson Á 13.62
Ármann Lárusson UMFR 13.13
Handknott-
leiksméfið
Orslit í leikjum landsmótsins
í handknattleik ’á sunnudags-
kvöldið urðu þessi:
Kvennaflpkkur
Valur — IA 1:0
Fram — KR 2:2
III. flokkur karla
IR — KR 5:3
Ármann —— Víkingur 9:1
Valur — Þróttur 7:6
I. flokkur karla
Ármann — Valur 7:6
KR — Fram 9:2
Til
I liggurleiðin
reka fíokkspólitísk erindi í I-
þróttanefnd. Væri þetta tilfell-
ið myndi traust almennings á
nefnd þessari ininmka alvarlegá.
Þessi skrif eru líka alvarleg að-
dróttun til þeirra manna sem í
nefndinni hafa setið á undan-
förnum árum.
íþróttamálunum í heild er því
mikill skaði að þessum skrifum.
Þau eru aðeins til að veikja
traust á þeim mönnum sem fal-
ið er að úthluta fé hlutlaust og
samvizkusamlega til mann-
virkja. Hugsanleg misnotkun á
því væri hreinn voði. Hvert yrði
svo áftamhaldið ef einhver
pólitísk yfirráð ættu að vera til
í íþróttanefndinni ? Eðlilega
færu félögin að athuga að hafa
stjórnir sínar í ,,réttum lit“! í
von um greiðari fyrirgreiðslu.
Slíkt ástand í íþróttahreyf-
ingunni er óhugsandi. Þess-
vegna er það yítavert framferði
að hafa komið af stað umræðum
sem liér hafa átt sér stað um
Iþróttanefndina. Ágæti manna
er óftast matsatriði, og í í-
þróttamálunum má aldrei skoða
það gegnum pólitísk gleraugu.
Það er boðorð sem þessir menn
þyrftu að læra.
Langstökk.
Svavar, Helgason KR 3.14
Jóhannes Egilsson Sigluf. 3.09
Grétar Hinriksson Á 2.94
Guðjón Ólafsson KR 2.93
Hástökk án atrcnnu.
Guðmundur Lárusson Á 1.48
Hörður Haraldsson Á 1.40-
Torfi Bryngeirsson KR 1.40
Jóhannes Egilsson Sigluf. 1.40
Þrístökk án atrennu.
Torfi Bryngeirsson KR 9.46
Jóhannes Egilsson Sigluf. 9.38
Svavar Helgason KR 9.37
Daniel Halldórsson IR 9.25
Mun árangur Daniels vera
nýtt drengjamet.
1125 kr. fyrir lö rétta », i
Síðan á áramótum hefur
þátttakan í getraununum aukizt
jafnt og þétt og að sama skapi
hefur þeim fjölgað, sem hafa
vikulega fyrir dægradvöl að
fylla út ágizkun sína. Hefur
aukningin verið vikulega frá
6 til 50 af hundraði.
Á laugardag féll einn leikj-
anna niður, svo að bezti mögu-
legi árangur var 11 réttir
leikir. Engum tókst þó að ná.
nema 10 néttum sem tveimur
þátttakendum tókst. Er annar
ungur drengur, sem gizkaði
fyrir 75 aura, en fær 597 kr.
í vinning, en hæsti vinningur-
inn varð kr. 1125 fyrir 10
rétta leiki í kerfi. Vinningar
skiptast þannig: 1. vinningur
kr. 597 fyrir 10 rétta (2 raðir).
2. vinningur kr. 88 fyrir 9
rétta (27).