Þjóðviljinn - 22.04.1953, Page 6
€) —. ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 22. apríl 1953
þJÓÐVIUlNN
Ötgefandi: SameinSngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson,
Guðmundur Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriítarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljane h.f.
Hvar stóð flokkur þina í landvörn Islendmga?
með^st Sjáifslœðisflokkyrimig Fremsákn ©g
AB-blaöið hefur löngum verið volað og vansælt, en
aldrei eins og nú. í gær heitir forustugrein blaðsins ,,Þú
skuldar....“ og upphaf hennar er á þessa leið:
„Ekki er þetfa aðlaðandi fyrirsögn. Þann metnað eig-
um við Alþýðuflokksmennirnir flestir, að við reynum í
leng-stu lög að skulda ekki neinum neitt. Við þökkum
fvrir. ef okkur stendur opin þessi gamla leið erfiðismann
anna, að vinna baki; brotnu, neita okkur um allt, sem
hugurinn þráir, ganga alls á mis, ef því er aö skipta. Þó
komumst við sjaldan hjá að skulda. Skuldareigendur
geta verið misjafnlega aðgangsfrekir og kröfuharðir um
greiðslu, en fyrr eða síðar minna flestar skuldir á sig
og heimta sitt. Einn er sá aðili, sem við öll skuldum og
á rétt á greiðslu. Hann beitir reyndar hvorki fógetavaldi
né lögtaksmönnum; þó á hann sinn kröfurétt".
Eins og sjá má er þetta mjög forvitnislegt upphaf að
forustugrein. Lesendum mun fljótlega spurn. hver sá sé
sem allir skuldi, þótt þeir þræli til aö losna við skuldir
sínar, vinni baki brotnu, neiti sér um allt sem hug-
urinn þráir, gangi alls á mis, ef því er að skipta. Og
svarið er ekki síður nýstárlegt: Þetta er AB-flokkui-inn!!
Skyldi vera hægt að hugsa sér öllu hjákátlegra öfug-
mæli. Alþýðuflokkurinn var í upphafi stofnaður sem
vopn fátækrar alþýðu til þess að knýja fram kjarabætur
og vinna að stofnun sósíalisma. Um sinn vann flokkurinn
í samradmi við tilgang sinn, en fljótt fór þó að béra á því
að þar hreiöruðu sérgæðingar um sig í fyrirrúmi, og þar
kom aö þeir réðu einir öllu. Þeir li.tu á flokkinn sem tæki
til þess að lyfta sér upp í valdastöður, tiyggja sér gróða
og metorð. Varð þeim brátt mikið ágengt í því istarfi, því
eins og kunnugt er eru ekki jafn margar bitlingahetjur í
n.einum flokki — miöað við kjósendafjölda.
Bitlingana urðu ráðamennirnir svo að borga meö því að
níðast á þeirri ai,þýðu sem stofnað hefði flokkinn til bar-
áttu sinnar. Er það orðin löng saga og ófögur: gerðar-
dómslög, vísitölubinding, tollaálögur, sífelld samvinna við
auðmannastéttina gegn verklýðsfélögunum, herfileg svik
í sjálfstæðismálunum; — vörðurnar á svikaferlinum eru
svo margar að þær verða ekki raktar hér, og á allra
vitorði. Enda hefur sú alþýða sem flokkurinn átti að þjóna
fyrir löngu snúið við honum baki með fyrirlitningu.
AB-mennirnir eiga nú enn framtíð sína undir kjósend-
unum. Þau andlit sem þeir hafa sýnt til framboðs eru
þessi m.a.: Emil Jónsson vitamálastjóri, Guðmundur í.
GuÖmundsson sýslumaður, Erlendur Þorsteinsson kaup-
sýslumaður, Benedikt Gröndal áróðursstjóri Vilhjálms
Þórs og Kristinn Gunnarsson framkvæmdastjóri sama
manns. Þetta eru mennirnir sem Menzkt alþýðufólk á að
standa í svo geysilegri þalckarskuld við að hún verðj ekki
bætt, þótt það striti myrkrana á milli; þess vegna verði
nú að standa skil á brýnni afborgun með því að kjósa
þá á þing!! Hvílíkur viðbjóður.
Annars er þessi rökfærsla mjög sérkennandi fyrir hugar-
far AB-leiðtoganna. Þeir þykjast hafa stuðlaö að ýmsum
góðum verkum, flutt góð mál og fylgt öðrurn; en síðan
er ályktunin sú aö alþýðan skuldi þeim! Það er sannar-
lega ekki hugsjón, vilji til réttlætis eða manndómur sem
stjórnar geröum þeirra, heldur grímulausar atkvæðaveið-
ar. Þeir eru eins og kramari sem réttir fram vöru gegn
staðgi’eiðslu í reiðufé með ríflegri álagningu. Þá sjaldan
þeir rétta upp hendur til góðra verka á þingí. skrifa þeir
í huganum reikning á íslenzka alþýöu: þetta verðið þið
að borga með rentum og renturentum.
Öllu skýrarí grein hefur sjaldan birzt í íslenzku blaði;
fáir stjómmálamenn hafa afhjúpað sig öllu eftirminnileg-
ar. Og þaö er athyglisvert að þessu sjónarmiði er einmitt
hampað nú, eftir að Hannibal Valdimarsson er tekínn
til að skrifa, maöurinn sem sumir vonuðu að myndi
hreinsa til í kramarabúðinni. Hann er sannarlega gegn-
sýrður af hugarfari vina sinna maðurinn sá og kann að
skrifa reikninga öllum öðrum fremur.
Eftir því sem á stríðsárin leið
óx bjartsýni manna um þann
lieim, er risi (upp úr ragnarök-
um ófriðarins. Það þurfti
skarpa sjón og alhliða þekk-
ingu á alþjóðamáium til að sjá
hætturnar, sem Islands blðu í
ölduróti eftirstríðsáranna,
jafnskýrt og fram kom í grein
sem birt var í Andvara árið
1943, fyrir réttum tíu árum.
Fjórir stjómmálaleiðtogar rit-
uðu þá í tímarit Þjóðviiiafé-
lagsins um afstöðu flokka
sinna til Iýðveldisstofnunar á
íslandi. Eftir tíu ára reyuslu
er fróðlegt að lesa þessar
greinar, en eklú þarf lengi að
lesa til iað sjá, að sá þeirra
fjórmenninganna sem skýrast
sá og skildi staðreyndir lands-
mála og heinismála \ar for-
maður Sósíalistaflokiksins.
Einar Olgeirsson. Einn þeirra
allra varar hann við þeirr:
hættu, sem á umliðum árat'ug
hefur reynzt þjóð og Iandi ör-
lagaríkust, ásælni Bandaríkj-
anna. flér fara á eftir nokkr-
ar tilvitnanir í þá grein:
SétiKr vor Sil þjéðfrdsis
„Það er skýlaus réttur vor
íslendinga sem þjóðar, hve-
nær sem vér viljum, að taka
öll mál vor í eigin hendur og
verða algerlega sjálfstæð
þjóð. Slíkt er helgur, óafselj-
anlegur réttur hverrar þjóð-
ar, sem engrar stoðar þarfn-
ast í frelsisskrám eða sátt-
málum. Það getur enginn
svipt oss þeim rétti, engin
kynslóð Islendinga svipt kom-
andi kynslóðir honum. Sá
rcttur er öllum sáttmálum
æðri og verður aldrei af oss
saminn, hve slæma sáttmála
sem valdhafar Islands á und-
anförnum árum hafa gert eða
á komandi árum kynnu áð
gera.
Þessu megum vér aldrei
gleyma, þótt vér kjósum oft
frekar að byggja frelsiskröfur
vorar á gamla sáttmála, eias
og Jón Sigurðs3ca gerði, eða á
sarrfbandslagasáttmálanum
frá 1918, svo sem gert hefur
verið upp á síðkastið. Ilefði
gamli sáttmálinn aldrei verið
gerður, heldur eins konar
Kópavogshylling farið þá
fram, þá var réttur vor hinn
sami, — og Jón Sigurðsson
mundi þá vafalaust hafa
byggt þjóðfrelsiskröfur vorar
á mannréttindunum sjáifum, í
stað þeirra ákvæða gamla
sáttmála, sem hinir erlendu
drottnar höfðu rofið.
Grundvöllurinn fyrír þjóð-
frelsiskröfum vorum er fyrst
og fremst vilji þjóðar vorrar.
til fulls frelsis. Þá einföldu
og sjálfsögðu staðreynd er
nauðsynlegt* að leggja áherzlu
á einmitt þegar hætta er á, að
flækt verði skilnaðarmálið við
Dani með lögfræðilegum út-
skýringum eða kröfum um
ýmis liónar samninga uin mál,
sem vér einir höfum rétt til
að ákveða um“. — Og síðar
segir svo:
„Saga vor sannar það, ekki
síður en saga annarra þjóða,
að það er einmitt alþýðan, sem
verður harðast úti, ef þjóð er
ófrjáls. Hönd erlenda lcúgar-
ans hvíldi þyngst á herðum
islenzkrar alþýð'u allar þær
aldii-, sem ísland var nýlenda.
Mikill hluti innlendu yfirstétt-
arinnar, allt frá höfðingjum
Sturlungaaldar til vetrar-
prangara einokunartímabils-
ins og embættismanna 19. ald-
arinnar, kom sér vel við hinn
n -r.
erlenda drottnara og aðstoð-
aði hann oft við kúgun lands-
lýðsins, gegn því að hljóta
nokkra mola af nægtarborðum
hans. Þær glæsilegu undir-
antekningar um uppreisnar-
sinnaða yfirstéttannenn, sem
saga vor greinir frá, sanna
aðeins regluna.
Ok alþýðustéttar er tvöfalt
þyngra, ef þjóðin, sem hún
tilheyrir, er undir erlent vald
gefin. Sjálfstæðismálið • hefur
því frá upphafi verið sjálf-
.. sagt stefnumál sósíalistísku
verkalýðshreyfingarinnar á ís-
landi, og Sósíalistaflokkurinn
hefur alltaf skoðað það sem
skyldu sína að vera á verði
um það, að ekki væri vikið
frá réttri stefnu í máli þvi. —
Irlesd ásæki aðal-
hætfan
„Áður fjTr var land vort
aðeins eftirsótt af útlendu
valdi, til þess að nokkrir hátt-
settir aðals- og embættismenn
og einokuaarkaupmenn gætu
arðræut fátæka alþýðu þess.
En nú telja sum sterkustu
heiveldi jarðarinar, svo sem
t.d. Bandaríki Norður-Ame-
ríkú, Island nauðsynlegan
hlekk í varnarkeðju sinni. Á-
sælni eftir flugvöllum og
flotahöfnum á íslandi er þeg-
ar í algleymingi. Frá því að
vera afskekkt útsker, þraut-
pínt, svo að við landauðn lá,
er nú Island orðið áfangastöð
í alfaraleið að áliti stórveld-
anna Og viss öfl þegar tekin
að ásælast það. Það er þvi
auðséð, að meðan j’firdrottn-
unarstefna og ásælni gagnvart
öðrum þjóðum ríkir hjá þeim
mönnum og stéttum, er for-
ustu hafa með stórþjóðum
þeim, sem nærri oss búa, í
Ameríku og Evrópu, þá er
sjálfstæði íslands hættara en
nokkru sinni fyrr. Það þarf
hver Isletidingur að gera sér
ljóst.
Sósíalistaflokkurinn hefur
frá upphafi vega varað þjóð-
ina við þeirri hættu, sem
stafaði af ásælni erlendra
auðhringa, bankavalds og her-
valds.
Sósíalistaflokkurinn sýndi
fram á tilraunir þýzka naz-
ismans til að ná tökum á landi
v.oru og þjóð fyrir stríð — af-
hjúpaði „rannsókair“ þýzkra
nazista á hugsanlegum flug-
stöðvum og flotalægjum á Is-
landi undir yfirskyni vísinda-
leiðangra. Sósíalistaflokkur-
inn átti upptök að því, að al-
þjóo varð kunnugt,' þegar
þýzlt yfirvöld kröfðust flug-
vallar hér 6 mánuðum fyrir
stríðsbyrjun, og flokkurinn sá
til þess/ að sú fregn bærist út
um liéim. —En allar þessar
aðvaranir voru þá brenni-
merktar sem landráð af þeim
sem eigi sáu eða vildu láta
bera á hættunni, sem sjálf-
stæði íslands stafaði f rá
þýzku yfirdrottnunarstefn-
unni.
Sósíalistaflokkurinn barðist
gegn þeim ríku áhrifum, sem
enskir bankar og auðhringar
höfðu á fjármálalíf lands
vors fyrir stríð, og stóð í
broddi fylkingar í andstöðu
íslenzku þjóðarinnar gegn her
tökunni af hálfu brezka her-
valdsins og afskiptum þess af
innaaríkismálum vorum.
Og Sósíalistaflokkurinn hef-
ur heldur ekki sparað að
vekja athygli þjóðarinnar á
yfirdrottnunarhættunni frá
Ameríku. Einn allra flokka
greiddi hann atkvæði gegn því
að æskja herverndar Banda-
ríkjanna, þegar vitað var, að
þau voru að knýja Bretland
til þess að afhenda sér hern-
aðaryfirráðin á Islandi, — en
reiðubúinn var flokkurinn
hins vegar til þess að vera með
í því, að íslendingar léðu
Bandamönnum laad sitt til af-
nota í frelsisstríði, ef tryggt
var, að engu einstöku stór-
veldi væri léð tangarhald á
landinu. Sósíalistaflok'kurinn
óttaðist vaxandi áhrif og jafn
vel bein afskipti Bandaríkja-
auðvalds af málum Islendinga,
og það sýadi sig líka árið eft-
ir, að Bandaríkjastjórn bann-
að svo að segja Islendingum
að gera landið að lýðveldi
'1942, — og nú er áróðurs
farið að gæta í íslenzkum
blöðum („Degi“ og ,,Vísi“)
fvrir því að festa þessi áhrif
hins ameríska stórveldis í
Framhald á 11. siðu.