Þjóðviljinn - 20.05.1953, Blaðsíða 2
2) — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikndagur 20. maí 1953
i . í dag er mlðvikudagtirinn 20.
^ maí. 140. dagur ársins. —
Háfióð eru í dag kl. 10,25 og
22.55.
=sss==
Enskunámskeiðið hefst næstu
daga. Væntanlegir þátttakendur
sem ekki hafa þegar látið inn-
rita sig, þurfa að láta nefndina
vita sem fyrst.
Tekið.er á móti greiðslum í ferða-
sjóð daglega á Skólavörðustíg 19.
Þátttakendur verða að hafa greitt
minnst 1300 krónur fyrir 20. maí
eða i ailra síðasta lagi fyrir
næstu mánaðamót. ,Þeim sem ein-
hverra hluta vegna kynnu að
verða að hætta við ferðina skal
bent á að vegna áfallins kostnaðar
verður f^sta 300 króna greiðslan
óendurkræf frá 1. júni að telja.
„Festival", btaðið sem gefið er út
vegna mótsins kemur út einu
sinni í viku. Fyrstu 4 tbl. eru
komin hingað og geta menn vitjað
þeirra endurgjaldslaust á Skóla-
vörðustíg 19. Þátttakendur utan
af landi geta fengið blaðið sent ef
þeir óska.
Frá Ijósinu i hvamminum
Geirmundr bjó á Geirmundar-
stöðum til elli 'ævi sinnar. — En
sá var einn hvammr í Iandi Geir-
mundar, at liann kvaðst vildu
kjósa brott ór fandinu, ef hann
mætíi ráða, ok mest fyrir því,
— „at sá er einn staðr í hvamm-
inum, at ávallt, er ek lít þangat,
þá skrámir þat Ijós fyrir augu
mór, at mér verðr ekki at skapi.
Ok þat Ijós er ávallt yfir reyni-
lundi þeim, er Þar er vaxinn
einn samt undir brekkunni". —
Ok þat fýígdi, ef nökkuru sinni
varð búfé hans statt í hvammin-
um, þá lét hann ónýta nyt undan
á því dægri. — Ok eitt sinn er
frá því sagt, at húsmali hans
liafði þar komit niðr um nótt
einá. Ok er smalamaðr reis upp
ok sá féit í hvamminum, varð
hann ákafliga hræddur ok hleypr
sem hann má ok eltir féit ór
hvamminum ok rífr ór reyni-
runninum vönd einn ok keyrir
féit með ok rekr féit heim til
Geirmundarstaða. En Geirmundr
var út gcnginn ór livílu sinni
um morgininn ok sér, hvar
smalamaðrinn eltir féit ofan ór
hvamminum. Ok verðr honum
eigi vel at skapi, er féit hefir
þar verit, ok snýr á móti smala-
manninum ok þekkir brátt, at
hann hefir reynivöndinn i hendi
ok keyrir féit með. Ok hér verðr
honum svá ills kalt við hvárt-
tveggja saman, at hann hleypr
at smalamanninum ok hýðir á-
kafliga mjök ok biðr Iiann aídr-
igi gera oftar at herja fé hans
með þeim viði, er í þeim hvanuni
er vaxinn, en þó einna sízt ór
reynirunninum. En Geirmundr
mátti því auðveldliga kenna við-
inn, at Þar ateins var þá reyni-
viðr vaxinn í hans landeign, —
í þeim sama stað, er nú stendr
kirkja at Skarði, at því er vér
liöfum heyrt sannfróða menn frá
segja. Geirmundr lét taka vönd-
inn ok brenna í eldi, en húfé
sitt lét hann reka í haga ok
ónýta nyt undan á þeim degi.
(Úr Geirmundar þætti he'jar-
skinns).
18.30 Barnatími a)
Útvarpssaga barn-
anna: Vistaskipti
eftir Eipar H.
Kvaran; sögulok
(Baldur Pálmas).
— b) Tómstundaþátturinn (Jón
Pálsson). 19.30 Tónleikar: Óperu-
lög. ■ 20.30 Útvárpssagan: Sturla í
Vogum eftir Guðm.. G. Hagalm;
(Andrés Björnsson). 21.00 Tónleik-
ar pl.: Fjögur fiðlulög op. 17 eft-
ir Suk (Ginette og Jean Neveu
leika). 21.20 Vettvangur kvenna.
— Upplestur: Signýjarhárið grein
eftir séra.' Magnús Helgason (frú
Védís JónsdóttJr). 21.50 Meririf
samtíðarmenn; VII. Tove Detlev-
sen (Ólafur Gunnarsson). 22.10
Braziliuþættir; Frumstæðar físk-
veiðar (Árni Friðriksson fiskifræð-
ingur). 22.35 Dans- og dægurlög:
George Shearing kvartettinn leik-
ur pl. 23.00 Dagskrárlok.
Fyrsta sumar-
dag voru gefin
saman í hjóna-
band á Isafirði
a.f sóknarprest-
- — — inum þar ung-
rú Hulda Pálmadóttir og Jón
>áll Hálldórsson skrifstofumaður
já Isfirðingi h.f.
g'ær Voru gefin saman í hjóna-
.and í Kaupmannahöfn ungfrú
,ilja Kristjánsdóttir og Már Ár-
ælsson (Sigurðssonar) stud. mag.
\V'V
Hjónin Laufey Sæ-
N , mundsdóttir og
Sh--’ J? Guðjón Guðjónsson
\ V' trésmíðameistari
r B t Sogaveg 146 eign-
uðst 16 marka
dóttir síðastliðinn sunnud. 17. maí
y ^ ý* /jjv
EKT ÞÚ ÞAKNA, Gottfreð?
Næstsíðasta einn
1 kvöld eru VESALINGARNIR
sýndir í næstsíðasta sinn í Iðnó.
Ástæðan nr þó ekki sú að leikur-
inn hafi fallið, því þar hefur ver-
ið full.t hús á hverri sýningu,
heidur er starfsári Leikféiagsins
senn lokið, og menn þurfa að
fara að hreyfa sig úr bænum, af-
neita vetrinum og heilsa sumr-
inu með breyttum lífsháttum (fyr-
irgefið hátíðleikann). En sem
sagt: nú eru að verða síðustu
forvöð að sjá þetta mikla leikrit
og guð fná vit-a . hvenær við sjá-
um annað slíkt.
-fc Kosningar erlendis fara fram í
skrifstofum sendiráða, eða út-
sends aoalræðismanns, útsends
ræðismanns eða vararæðis-
manns íslands.
ix Þeir félagar og samlierjar sem
hafa Könnunarblokkir eru beðn-
ir að skila þeim sem fyrst, og
heízt ekki síöar en 25. maí.
Happdrætti Vals
Dregið hefur verið í happdrætti
Knattspyrnufélagsins Vals, og
komu eftirtalin númer upþ':' Nr.
4114 flugferð til Spánar fyrir tvo.
14044 flugferð til Lundúna fram
og til baka. 12683 og 18496 flug-
ferð til Ákureyrar fram og tii
baka. 13536 og, 4144 flugferð t.il
Egiisstaða fram og til. baká, 3393
og 1772. flugf.erð til Isafjarðar
frarh óg tií 'feáKsú 19"2é og 19565
flugfehð • til Veát'manúáéyja fram
og til baka: —. VinningFanna. má
vitja ' til Sigui'ðar Ó)af.ssonar í
Málningarverksmiðjunni Hörpu.
í nýtt tbl. Faxa
ritar Guðni Magn-
ússon um Faxafióa
fyrr og nú. Grein
er um Árna Helga-
son organista i
Grindavík. Minningarkvæði um
Bergheiði Jórunni Ragnarsdóttur.
Frásögn af Afmælissundmóti K.
F. K. með myndum, Aflaskýrsla
frá Keflavík. Þátturinn Úr flæð-
armálinu. Kvennasíðan, Frá skól
unum, skrá yfir fermingarbörn á
Suðurnesjum í vor. Forustugrein
blaðsins nefnist Öryggi eða ör
yggisleysi, um nauðsyn sterkrar
lögreglu í Keflavík vegna óspekt-
armanna af fl.ugvellinum.
Kosningaskrifstofa Sósíaiista-
flokksins gefnr allar uppiýsing-
ar varðandi kosningamar.
ÞAÐ SEM ÞEIR STEEA.
Amerískt auðvald græðir því
1,21 dollar um klukkutímann á
hverjum íslenzkum verkamanni,
sem það hefur í þjónustu éinni,
móts við ameríska verkamenn.
Nú eru í þjónustu amerísks auð-
valds, — hersins og atvinnurek-
enda, beint og óbeint, — 2500 ís-
lenzkir verkamenn. Ef miðað er
við 8 tíma vinnu 300 daga ársins,
þá nemur þessi gróði ameríska
auðvaldsins 2904 dollurum eða
47,393 kr. á ári á hvern verka-
mann. Það gerir á 2500 verkamenn
118 milijónir króna á ári. Og þessi
upphæð eykst að sama skapi, því
meira sem unnið er og því fleiri
verkamenn sém þarna eru. (Ein-
ar Olgeirsson í nýjasta Réttar-
hefti),,,
iir Aílir þeir sem vilja lijálpa til í
fjársöfnuninni £ kosningasjóð
eru beðnir að taka söfnunar-
gögn í kosningaskrif stofunni.
Krossgáta nr. 82.
Lárétt: 1 skjólfat 7 byrðl 8 sví-
virt 9 skemmd 11 beri 12 hljóð
14 tveir eins 15 margt 17 sltamm-
st. 18 seiði 20 hundinn.
Lóðrétt: 1 As 2 kúga 3 kaupfel.
4 hrella 5 mannsnafn 6 viðkom-
andi 10 hneigi 13 áburður 15
hljóma 16 fugl 17 sk.st. 19 sam-
hljóðar.
Lausn á krossgátu nr. 81.
Lárétt: 1 kolla 4 Pá 5 LS 7 ami
9 nef 10 nía 11 lön 13 ar 15 ba
16 endar.
Lóðrétt: 1 ká 2 lem 3 al 4 panna
6 skata 7 afl 8 inn 12 önd 14 RE
15 br.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla fór frá Rvík í gærkvöldi
vestur um land í hringferð. Herðu-
breið var væntanleg til Rvíkur í
morgun að austan. Skjaldbreið er
á Eyjafirði. Þyrill er í Faxaflóa.
Skaftfellingur fór til Vestmanna-
eyja í gærkvöldi.
Sltipadelld S.I.S.:
Hvassafell er í Rvík. Arnarfell
er í Hamina. Jökulfell fór frá
Kaupmannahöfn í dag, áleiðis til
Áiaborgar.
EIMSKIP:
Brúarfoss kom til New York 17.
þm. frá Reykjaví-k. Dettifoss fer
frá Hull um hádegi í dag áleiðis
til Reykjavíkur. Goðafoss fór frá
New York í fyrradag áleiðis til
Halifax og Reykjavíkur. Gullfoss
fór frá Reykjavík í gær til Leith
og Kaupmannahafnar. Lagarfoss
fór frá Rotterdam í fyrradag til
Bremen, Hamborgar, Antverpen
og Hull, Reykjafoss lestar í Kot-
ka. Selfoss fór frá Flateyri í
gær á leið til Reykjavikur. Trölla-
foss er á l;eið til New York frá
Reykjavík. Straumey er fyrir
norðan land. Drangajökull kom til
Reykjavíkur í gærmorgun frá
New Yorlc. Aun fór frá Antverp-
en 17. þní. áleiðis til Rvíkur.
Erambjóðandi AB-
flokkshis í Barða-
strandarsýslu hefur
að undanförnu ver-
ið á ferð um kjör-
dæmið og drukkið
kaffi í eldhúsum
eins og góðra
frambjóðenda er siðnr, þó enginn
viti - aJla biygðan húsmæðranna
yfir því að mega ekki bjóða svo
fínum gestum til stofu. Hefur
frambjóðandinn verið'hinn- altiileg-
asti, og segir hér af því er hann
kom í hús eitt á Bíidudal og
hitti fyrir gamlan mann er ekki
taldi sig of vel heima í lands-
málunum. „Ég er dr. Gunnlaugur
Þórðarson, frambjóðandi Alþýðu-
flokksins hérna í sýslunni, sonur
hans Þórðar á Kleppi“, sagði
frambjóðandinn. „Og bjóðið þið nú
víða fram?“ spurði þá gamli mað-
urinn. Kvaðst doktorínn ekki vita
betur en þeir byðu fram í flest-
um ef ekki öilum kjördæmum —
og var hinn kampakátasti. „Og
oruð þiö margir, þarna frá þess.um
Kleppi?“ spurði þá öldungurinn
enn.
■fc 6. júní nk. er útrunninn kæra-
frestur vegna kjörskrár. Það er
einlium áríðandi fyrir alla, sem
flutt hafa í bæinn frá síðasta
manntali eða frá því í nóv,-
des. sL að athuga hvort nöfn
þeirra standa á kjörskrá.
Æfing i kvöld kl. 7 á
venjulegum stað.
Læknavarðstofan
Austurbæjarskólanum. Sími 5030.
Einn daginn kom tii hans feitur. munkur
að sjá andlit sitt í nútíð og framtíð.
Ugluspegill sagði: Þú ért söltuð skinka,
síðan verðurðu ölkjallari þvi salt útheimtir
drykk. Láttu mig hafa vænan skilding fyr-
ir að ljúga ekki að þér.
Eftic sfcáidsofu Charlee de Costers * Teiknímgar- cStir fieljre%jk'ii(Sh-iNiefsen
Sonur minn, sagði munk-urinn: við bér-
um a’drei á okkur peninga. — Það er þá
af því að peningarnir bera þig, þvi ég
veit að þú hefur peninga í skónum. —
Munkurinn sagði: Það eru peningar klaust-
ursins, én tvo skiidinga goturðu kannski
fengið.
Ugluspegill tók við peningunum og þakk-
-aði. Og þannig hélt hann áfram að sýna
-íbúunu-m í Dammi, Bryggju og Blánku-
bergi, já meira að segja í Austurenda, í
spegii. Og þess vegna var hann kallaður
Ugluspegill.
Eftir þvi sem Ugluspegill eltist og þros„-
aðist fékk hann æ meiri Jöngun til að
flakka um og sækja markaði og mannfagn-
að. Hann unni hljómlist, og hitti hann
mann sem lék á fiðlu eða sekkjapípu hugs-
aði hann sig ekki tvisvar um, en lét hann
kenna sér á hljóðfærið.