Þjóðviljinn - 29.05.1953, Blaðsíða 3
2) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 29. maí 1953
ASfengin átylla fyrir kvœSi
Viðvíkjandi „Björgu á Bjargi“.
]>egar einveldið og bændaánauðin
komst á í Danmörku, voru leigu-
liðar keyptir og sadir með jörð-
nnum, eins og á Rússlandi frarn
á mína daga. Á íslandi lá nærri
að þetta kæmist á, á Suður-
nesjum, kring um Bessastaði,
þar sem Danastjórn átti aðsetur.
Náði aldrei til Norðurlands sök-
um ógreiðrar aðstöðu. Á Nesj-
unum voru bændur skyldir að
vinna lénsdrotni, hvenær og
hvað sem kallað var til, og án
endurgjalds. Landstjórar oft
danskir, eða léigðu fsiendingum
va«ldi5. Oft voru þessir herrar
alþýðunni illir, ísl. líka, og ó-
þokkaðir af almenningi. Munn-
unælasaga var til héima, sem ég
heyrði: að eitt sinn hefðu tveir
synir sömu konu druknað i á,
með einum þessum landsdrotni,
en liún svaraði til, þegar hún
var aumkvuð, að glöð legði hún
þá í sölur, fyrst hirðstjórinn
hcfíi farist. Ekki veit ég hvort,
nokkur rituð rök eru ti', fyrir
þessu, og séu þau til, kann sú
saga að vera a t öðruvísi. En
þarna er öll aðfengna átyllan
*nín, fyrir kvæðinu. Alt annað í
því eru mínar eigin smíðar, enda
er ég enginn sögu-maður. og ís-
landssaga engin til, nema ágrip,
en óðum dregur nú að henni,
með rar.nsókninni á æfi merkra
manna. Annað gekk mér líka til,
auk munnmælanna — séu þetta
munnmæli. í grun mínum lá, og
ég held þai satt, þó ekki verði
sannað, að íslenzka kvenþjóðin
hafi átt meiri hlut í þjóðarvið-
haHdi fslendinga, en fram getur
komið í sögunni. Mér finst það
á allan hátt svo eðlilegt, að mér
sýnist það óyggjandi. Ég var að
reyna að segja þai í „Björgu á
Bjargi“. Og þá er nú alt sagt.
Ég á hegningu skilið fyrir að
hafa skrifað syona langt, en ég
ætla að vara mig, og korna ekki
þangað sem þú nær í mig, fyr en
ég held að þér sé runnin reiðin
— en lestu í málið, ef þú getur!
Ég skrifa aldrei nú orðið annað
en handaskömm. Prentvillur
blaðanna kendu mér það: Ekki
tit neins, að vanda sig! — Vin-
samlega Steplian G. (Niðurlag
bréfs er Stephan G. Stephansson
ritaði Jakobínu Johnson í júlí
1924. Bréf þetta er prentað í 33.
árgawgi Tímarits Þjóðræknisfé-
lags fslendinga í Vesturheimi,
1951. og hefur ekki verið prent-
að áður).
1 dag er föstudagurinn 29.
maí. 149. dagur ársins.
Dýrfirðingaféiagið biður félags-
menn sina að fiölmé’nna við gróð-
ursetningu trjáplantna í reit fé-
lagsins n.k. sunnudag. Farið verð-
ur frá Ferðaskrifstofunni kl. 1 e.h.
ÆiSKlLEGT er að þeir, sem
«kki hafa gild vegabréf, afli sér
þeirra sem fyrst. Viðvíkjandi
myndatöku er nauðsynlegt að at-
huga að undirbúningsnefndin þarf
að fá fjórar myndir, en ekki að-
eins tvær eins og áður hefur ver-
ið sagt.
La traviata verður sýnd í Þjóð-
leikhúsinu í kvöld.
Lngbariiavernd I.íknar
Templafasundi 3 er opin þriðju-
daga kl. 3,c—4 og fimmtudaga kl.
1”—230.. — Á föstudögum er opið
fyrir kvefuð börn kl. 3’5—i.
I.aiknavarðstofan Austurbæjarskól-
anum. Sími 5030.
Næturvarzla í Lyfjabúðinni
Iðunni. Simi 7911.
Stökur
Sæll í moldarsæng ég kem,
sviptur lífsins krásum;
gef mér lykil, Guð minn, sem
gengur að dauðans lásdm.
■ Við mér blasir villugjörn
veröld, full af hörmum;
sálarinnar salta tjör.n
suilast mér af hvörmum.
Hæpinn þróttur hjá mér býr,
hjarað þótt ég geti.
Eg er á fiótta eins og dýr
undan nótt og hreti.
Bæði ég, himinn bratti, þig
birtu og yl að skapa,
helltirðu ætið yfir mig
ölium þinum krapa.
G. H. E.
★ Kosningaskrifstofa Sósíalista-
flokksins gefur allar uþpiýsing-
ar varðandl kosningarnar.
Nýlega voru
gefin saman í
• hjónaband af
séra Sigurjóni
Guðjónssyni í
* Saurbæ Elín Sig
urjónsdóttir kennari og Gisli
Bjarnason frá Uppsölum Skaga-
firði. — S. 1. laugardag voru gef-
in saman í hjónaband af séra Jóni
Thorarensen Björg Ingþórsdóttir
Hverfisgötu 70 og Stefán Ilannes-
son Hringbraut 37.
Eg sagði þér,
jú, að þú maett-
ir ekki skella
dyrunum harka-
lega.
Eg fékk svo miklar gjafir á
afmæl isdaginn minn að ég gat
ekki borið nema helminginn af
þeim í einu.
Og hvað fékkstu þá?
Tvo hálsklúta.
ncr
* Kosnlngar erlendis fara fram í
skrifstofum sendiráða, eða út-
sends aðalræðismanns, útsends
ræðismanns eða vararæðis-
manns Islands.
Systir Carrie.
Tjarnarbió sýndi nýlega kvik-
mynd eftir Bandarískri harmsögu
Dreisers. Nú um þessar mundir
sýnir bíóið aðra mynd eftir sögu
Dreisers Systir Carrie, en það var
ein fyrsta saga þessa mikla höf-
undar. Það ætti einnig að vekja
athygli á þessari mynd að aðal-
hlutverkin leika engir aðrir en
þau Laurenze Olivier og Jennifer
Jones.
■ff Gefið kosningaskrifstofu Sósí-
alistaflokksins upplýsingar um
aila þá kjósendur flokkslns,
sem eru á förum úr bænum
eða dvelja utanbæjar eða er-
lendls og þá hvar.
Hendrilc Ottósson hefur flutt I
útvarpið mörg skemmtileg og
fræðandi erindi, ekki sízt af fram
andi slóðum og um fjarlæg efnl.
1 kvöld flytur hann erindi um
Konstantinópel árið 1453, í tilefni
þess að fjórar aldir eru liðnar
fi-á því Tyrkir hernámu hana. en
það var einn af höfuðatburðum
evrópskrar sögu um langan aid-
ur.
Eskfirðingar- og Reyðfirðlnga-
félagið hefur ákveðið að fara upp
í Heiðmörk næstkomandi laugar-
dag til að gróðursetja trjáplönt-
úr.
Farið verður frá Iðnskólanum
kl. 1.30 stundvíslega og verða
ferðirnar greiddar af félaginu.
Þátttaka tilkynnist í síma 81819
til Margrétar Vigfúsdóttur.
19.30 Tónleikar:
Harmonikulög. pl.
20.30 Útvarpssag-
an: Sturla i Vog-
um eftir Guðm; G.
Hagalín; (Andrés
Björnsson). 2100 Tónleikar: Jtrjú
píanólög eftir Jörgen Jersild (F.
Jensen leikur). 21.15 Erindi: Fall
Miklagarðs árið 1453 (Hendrik
Ottósson fréttamaður). 21.45 Tón-
leikar: Þríhyrndi hatturinn, ball-
ettmúsik eftir de Falla (Hljómsv.
undir stjórn A. Galliera leikur).
22.10 Heima og heiman. 22.20 1-
þróttaþáttur (Sig. Sig.). 22.35
Dans- og dægurlög: Dinah Shore
og Frank Sinatra syngja. 23.00
Dagskrárlok.
Afhending trjáplantna sem
pantaðar' hafa verið hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur og Skóg
rækt ríkisins er ’hafin. Fer hún
fram a.cr' Grettisgötu 8. Þar er einn
ig hægt að fá keyptar plöntur.
Mæðrafélagskonur. ^__________
Farið verður að setja í Fé-
lagsgarði á morgun (laugar-
dag) farið frá Lækjartorgi kl.
1.15, ef veður leyfir. Annars á
sama tíma á sunnudag, ef ve’ð-
ur leyfir. Skorað er á félags-
konur að fjölmenna
Að vísu bauð Al-
þýðuflokkurinn
ekki fram í öllum
kjördæmum, en
hinsvegar bauð
hann þrjá menn
fram „í sumum þar sem aðeins.
einn skyldi þó koslnn, væntaniega
í trausti þess að þrír menn hefðu
melri iíkur en elnn. Geta þeir nú
sagt á AB-blaðinu að tala fram-
bjóðeuda sé með þessari aðferð
þvínær .full, og sést enn að fara
má margar leiðir að einu marki.
Bólusetning gegn barnaveiki.
Pöntunúm veitt móttaka þriðju-
daginn 2. júni kl. 10—12 f.h.
síma 2781.
•Uá hófntnní*
EIMSKIP:
Brúarfoss fór frá N.Y. 21. þm.
áleiðis til Rvíkur.Dettifoss er í
Rvik. Goðafoss kom til Rvíkur í
gærmorgún,. Gullfoss fer frá Kaup
mannahöfn á morgun til Leith
og Rvíkur. Lagarfoss kom til
Antverpen i fyrradag, fer þaðan
til Rotterdam og Rvíkur. Reykja-
foss fór frá Kotka 22. þm. áleiðis
til Austfj, Selfoss fór frá Vest-
mannaeyjum 26. þm. áleiðis til
hafna í Suðursvíþjóð. Tröllafoss
er í Rvík. Straumey fór frá
Hvammstanga í fyrradag til.Rvík-
ur. Vatnajökull kom til Grímsby
í fyrradag, fer þaðan til Hull og
Rvíkur.
Bíkisskip:
Hekla er i Rvik. Esja er á Aust
fjörðum á norðurl. Herðubreið er
í Rvii- Skjaldbreið er á Breiða-
firði. Þylill er í Rvík. Skaftfell-
ingur fór frá Rvík i gærkvöld til
Vestmannaeyja.
Skipadetld S.Í.S.:
Hvassafell er á Vopnafirði. Arn-
arfell er væntanlegt til Fáskrúðs-
fjarðar á morgun frá Hamina.
JÖkulfell er á Hvammstanga.
GENGISSKBÁNING (Sölugengi):
1 bandarískur dollar kr. 16,41
1 kanadiskur dollar kr. 16,79
1 enskt pund kr. 45,70
100 danskar kr. kr. 236,30
100 norskar kr. kr. 228,50
100 sænskar kr. kr. 315,50
L00 finsk mörk kr. 7,09
100 belgískir frankar kr. 32,67
10000 franskir frankar kr. 46,63
100 svissn. frankar kr. 373,70
100 tékkn. kcs. kr. 32,64
100 gyllini kr. 429,90
1000 lírur kr. 26,12
Krossgáta nr. 88.
1. X. i. 1. s. <0.
Lárétt: 1 mannsnafn 7 tveir eins
8 snæfa 9 mjúk 11 hvíldist 12
tveir eins 14 frumefni 15 striða
17 band 18 upplag 20 blandar.
Lóðrétt: 1 bæjarnafn 2 gælunafn
3 tveir eins 4 strit 5 lengra 6
bjánar 10 lík 13 aflraun 15 ofsótt
16 blað 17 endi 19 ending.
Lausn á krossgátu nr. 87.
Lárétt: 1 fjall 4 dá 5 la 7 egg
9 óar 10 æra 11 rás 13 in 15
si 16 krass.
Lóðrétt: 1 fá 2 arg 3 11 4 Drómi
í 6 ataði 7 err 8 gæs 12 Ása 14 NK
15 ss.
f
Þann Sunnudaginn höfðu drengirnir ekki
skoi-ið á reipið. Uglusþegill sagði: Gefið mér
hver annan skóinn af fæti sinum, og ég
veðja um að ég skál dánsá jafnvel með þá
á iÖpþumim, hvórt sem þéir eru mér.of stór-
ir eðá litlir.
50. dagur
Hvað borgarðu ef þú tapar? spurðu Þe‘r
heldur en ekki uppvægir. — 40 könnur aí
brúnum býflugum, svaraði Ugluspegill —
og þið börgið mér 30 dali ef ég vinn. —:
Gott og veí, svöruðú þeir, bg nú gat ballið
bvrjað.
A meöan hann synti í áttina til bakkans
hrópuðu litlu strákormarnir: Ætlarðu
ekki að fara niður á botninn á tjörn-
inni og reyna að kenna fiskunum að
dansa, þú þarna óviðjafnanlegi dans-
meistari?
Er Ugluspegiú kom upp úr vatninu og
hristi sig hlupu þeir brott, því þeir voru
hræddir um að hann mundi berja sig, en
hann kallaði: Komið aftur á sunnudaginn,
og þá skuluð þið fá ykkai- hUita af tfekj-
unum.
Föstudagur 29. mai 1953 — ÞJÖÐVILJINN — (3
A innlendum slóðum „Security Guard North District"
„Við fáum kanziske bráðum byssur"!
Innlendi herinn þeirra Hermanns Jónassonar og Bjarna
Ben, cr ekki ,’engur hugarfóstur þeirra kumpánii. Fyrir um
þrem vikum var fyrsta vísinum aS honum laumað inn í
lieiminn bak við birgðaskemmur á Keflavíkurflugvelli. Kylf-
ur hefur hann þegar fengið — og verður sennilega ekki
fengið annað í hendumar fyrir kosningar. Verið er að
sauma einkennLsbúningana. Unz því er lokið er lialin lát-
inn notast við rauðan borða um handlegg, sem á er letrað
Iivítum stöfum: S G N D.
Þjóðviljinn hefur alllengi haft
þann sið að geta um fæðingar,
og hann gat líka um fæðingu
hersins, sem Guðmundi Guð-
mundssyni hernámsstjóra hefur
verið falið að fóstra og leiða
fyrstu sporin. Það hafði verið
ákveðið að fæðingu hans skyldi
bera upp á t'veggja ára afmæli
þess er ísland var gert að her-
numinni bandarískri nýlendu.
Nóltina milli 6. og 7. maí ár
hvert læsir sig dularfull óhugnan
um taugar mannanna sem
hleyptu erlendum her inn í
landið meðan íslenzka þjóðin
svaf. Þá þurfa þeir alltaf að
stramma sig af með nýjum ó-
þokkaskap. En margt fer öðru
vísi en ætlað er. Búningarnir
urðu ekki tilbúnir á réttum tíma.
En ekki dugði annað en minnast
svikaafmælisins með viðeigandi
hætti. Mannagreyin voru J>ví
reknir út einkennisbúningslausir.
S G N D
íslendingar hafa lengstum í
meir en þusund ára sögu sinni
borið litla virðingu fyrir valds-
mönnum. Þegar því óeinkennis-
klæddir íslendingar höfðu verið
settir í Pattersonhliðið á Kefla-
víkurflugvelli og tóku að banna
samlöndum sínum, er vinna á
flugvellinum, umferð um þennan
ómerkilega asfaltblett þá tóku
verkamennirnir því hreint ekki
með yes sir og djúpri beygin.gu.
Mönnum þessum var því í skyndi
gerður rauður borði til að bera
á handlegg og á borðann letrað
hvítum stöfum: S G N D.
SÝSLUMANNS-GARMSINS
NORP-DRENGIR
Þessir borðalögðu íslendingar
skýrðu samlöndum sínum svo frá
að þeir mættu hleypa íslending-
um inn á flugvöllinn, en hefðu
fyrirskipun um að hleypa engum
út af honum aftur — nema að
sjálfsögðu herraþjóðarmönnum,
því hvar þekkist það að hús-
bæhdurnir megi ekki ganga ó-
hindraðir um á sínu eigin heim-
ili! Enga skýringu gátu þeir
gefið á þessum fáránlegu fyrir-
mælum, aðra en þá að þau væru
frá Guðmundi Guðmundssyni
hernámssíjóra og Bandaríkja-
mönnum. Sjálfum fannst þeim
þetta heimskulegt, — en þetta
voru fyrirmæli og þeirra var
■ ekki að hugsa heldur hlýða. Að
fenginni þessari vitneskju leið
ekki á löngu þar til verkamenn-
irnir höfðu fundið þeim borða-
lögðu starfsheiti: Sýslumanns-
Garmsins Norp-Drengir.
FYRSTA ÐAGSKIPUNIN
AFTURKÖLLUÐ!
Auk þess sem Hafnamenn
höfðu farið um hlið’ð a heimleið
frá Vinnu sinni, en þurftu nú
að fara fyrst til Keflavíkur, það-
an til Njarðvíkur og síðan yfir
heiðina heim, kom þetta sér illa
fyrir fleiri.
Sameinaðir verktakar, er voru
með ýmis verk fyrir Kanann
suður í heiðinni reiddust því á-
kaflega að geta ekki látið starfs-
menn sína fara óhindraða bein-
ustu leið. Þeir reiddust því svo
mjög að Bandaríkjamenn og
Guðmundur hemámsstjóri þeirra
neyddust til að afturkalla sína
fyrstu dagskipun og leyfa íslenzk
um verkamönnum umferð um
þetta þriðja frægasta hlið Kefla-
víkurflugvallar-
TALINN VIÐEIGANDI
STARJFI
Með sama hætfi og herraþjóðin
hefur sótzt eftir íslendingum til
sópunar og uppþvottastarfa vai’
þessari nýju „öryggissveit" Guð-
mundar hernámsstióra valinn
viðeigandi starfi í þágu land-
varnanna: gæzla birgðaskemma
fyrir élsku Kanann. Bæði var að
elsku Kaninn kunni því betur að
skreþpa í kokkteilpartí og kenna
íslenzkum stúlkubörnum banda-
ríska nætursiði en að standa vörð
um geymsluskemmur, og þó engu
síður hitt að á Suðurnesjum er
það haft fyrir satt að herraþjóð-
ardrengirnir hafi myndað ofur-
litla vasaútgáfu af bandarískum
gróðabrallshring. Nokkrir hafi
því flutt út um bakdymar varn-
inginn meðan verðirnir gættu
þess vandlega að þeir væru ekki
ónáðaðir! Og þar sem íslending-
arnir eru svo ótrúlega miklu
skemmra á veg komnir í banda-
rísku siðgæði en guðseiginþjóðar
drengirnir var reynandi að freista
þess hvort þeir mættu ekki duga
til birgðageymslu fyrir herra-
þjóðina.
V-IÐ HERNÁMSVEGINN
TIL GRINDAVÍKUR
Þar sem hinn nýi, breiði her-
námsliðsvegur er liggur frá
Keflavíkurflugvelli suður undir
Grindavík sker veginn til Hafn-
anna er lítill skúr. Daginn sem
bandarísku lögreglunni var boðið
út í gegn þeirri íslenzku í flug-
vallarhliðinu hjá Keflavík (og
sagt var frá í gær) átti ég leið
fram liiá þessum skúr. Við vega-
mótin er aðvörunarskilíi. Við
hægðum ‘ því ferðina á bílnum.
Það lágu tveir menn á gægjum
fyrir innan gluggann á skúrnum.
Annar þeirra lyfti handleggnum
svo við blöstu hvítir stafir á
rauðum grunni: SGND. Svo
teygðu þeir álkurnar fast að rúð-
unni eins og þeir ættu erfitt með
að sjá inn i bilinn til okkar.
— Þetta er skrýtið, sagði bíl-
stjórínn, hann mun ekki hafa séð
þessa göfugu áletrun fyrr.
Sá borðalagði kom út og gaf
sig á tal við bílstjórann. Mynd-
arlegur hraustlega vaxinn pjltur
á herskyldualdri. Mér sýndist
hann ætla að geyspa um leið og
hann kíkti inn í bílinn. Það var
misskilningur: hann var bara að
jórtra bandarískt tyggigúmmí.
Félagi hans, sem einnig kom út
fyrir dyrnar, var auðsjáanlega
lægra settur, því hann var borða-
laus.
JÁ, VIÐ ATHUGUM *
ÝMISLEGT
— Eruð þið að leika ykkur?
spurði sá borðalagði. Það var
ekki laust við að í röddinni gætti
vandlætingar þess manns sem
veit sig strita við þjóðnýt fram-
leiðslustörf og blöskrar að horfa
á aðra sólunda tímanum.
— Onei, við þurftum að skreppa
í Hafnirnar. En hvað gerið þið
þama? Eruð þið einhverskonar
verðir?
— Já, sagði pilturinn.
Suður á skaganum er lítið
„fjall“ er Stapafell nefnist.
Bandaríkjamenn kváðu ætla að
jafna það við jörðu. Þaðan er
látlaus straumur stórra flutninga-
bifreiða á leið til flugvallarins.
— Lítið þið kannske eftir vöru-
bíhmum, teljið þið grjótbílana?
— Já, við lítum eftir. Já við
athugum ýmislegt, sagði piltur-
inn og horfði nú þýðingarmiklum
augum aftur í bilinn. Það hefði
mátt vera hálfviti er ekki • gat
skilið hve þetta var þýðingar-
mikið starf. Hann kvað þá vera
hjá Hamilton og Guðmundi
sýslumanni.
KosningaskrIfstofa Sósíalista
flokksins vill minna alla
stnðningsmenn C-listans á
eftinfarandi:
KOSNINGAS JÓÐUR: Söfn-
un í kosningasjóðinn er nú
hafin fyrir nokkru og hafa
skil borizt nú þegar fTá
nokkrum deildum. Innan
skamnis hefjum við opinber-
lega samkeppni milli deild-
anna og verður röð deild-
anna b’.rt þá. Þá þurfa all-
ar deildir að vera komnar
á blað og framlag þeirra
orðið sem mest. Slnladag
höfimi við n. k. mámidag,
og eru allir félagar og aðr-
ir stuðningsmenn hvattir til
þess að gera þá skil. Þær
þrjár deildir sem efstar
verða að Iokum fá hver um
sig til ráðstöfunar ferð á
æskulýðsmótið í Búkarest í
sumar fyrir einn mann. Þær
ferðir geta hi’erjir sem eru
öðlast hvort sem þeir eru í
flokknum eða utan lians svo
framarlega sem hann verður
efstur í sinni deild. Félagar
o'g aðrir stuðningsmenn C-
lisíans hefjið starfið strax.
Komið í skrifstofu Sósíal-
istaflokksins Þórsgölu 1 og
skilið og takið blokkir til
söfnunar. Athugið hver
króna fyllir mælinn og ekk-
ert er það smátt að ekki
komi að notum fyrir lista
alþýðunnar C-listann.
ÞESSIR MENN ERU
AÐEINS NÚMER
Hann var klæddur vinnubux-
um, girtur gráu strigabelti og við
það á hægri hupp mannsins fest
hvítt spjald með áletruninni
Hamilton o. s. frv., ásamt hinu
ófrávíkjanlega núrneri, því þessir
menn eru aðeiíis íiúmér. Auk þess
hafði hánn á beltinu málmstaf-
ina U S, samskonar og' stríðs-
menn bandarískir bera 'á ’ein-
kennisbúningum þeim er þeir
leggja af iér áður en þeir fara
til telpnaveiða í Reykjavík. Á
vinstri handlegg bar pilturinn
rauða borðann með hvítu stöf-
unum: S G N D, þ. t. sýsluxnanns-
garmsins norp-drengir.
Jæja, þannig leit þá bastarður
bandarisks varðliðs og íslenzks
hers út.
„VIÐ FÁUM KANNSKE
BRÁÐUM BYSSUR“
— Já, við höfum lögregluvald;
sagði pilturinn. Við megum leita
í bílum. Og til frekari áherzlu
kikti hann enn aftur í bílinn. Við
skrúfuðum niður afturrúðuna svo
hann gæti gefið sem nákvæmasta
skýrslu um rykið á skónum okk-
ar, litinn á buxunum og hve
gólfdúkurinn í bilnum væri mik-
ið slitinn.
— Þá hljótið þið að fá ein-
kennisbúning, og kannske kylfur?
— Já, kylfurnar erum við bún-
ir að fá, en við erum bara ekki
farnir að nota þær ennþá.
um mánaðamótin. Þeir kjós-
endur sem eru á förum úr
Reykjavík til útlanda eða út
á landi mega ekki gleyma
að kjósa áður en þeir fara.
Þeir kjósendur sem dvelja
fjaj-ri lögheimilum sínum
geta kosið hjá næsta lirepp-
stjóra, bæjarfógeta eða sýslu
manni ef þeir dvelja á Is-
landi en hjá aðalræðis-
manni, ræðismanni eða vara-
ræðismanni ef þeir di’elja
utanlaiuls. — Kosningaskrif-
stofa Sósíalistaflokksins veit
ir allar nauðsynlegar upp-
Iýsingar x’arðandj utankjör-
staðaatkvæðagreiðsluna. Haf
ið samband við hana og gef-
ið upplýsingar um kjóscnd-
ur flokksins er dvelja. fjarri
lögheimilum sínum. KJÖR-
SKRÁ: Allir þurfa að at-
huga hvort þeir eru á kjör-
skrá og einkum þó þeir sem
flutt hafa nýlega. Eftir 6.
júní er það um seinan því þá
rennur kærufrestur inn á
kjöskrá út. Kosningaskrifst.
Sósíalistaflokksins veitir all-
ar upplýsingar viðvíkjandi
kjörskrá og kærum. Stuðn-
ingsmenn C-listans vinnið að
sigrj flokksins. Hafið sam-
band við kosningaskrifstofu
Sósíalistaílokksins. Þórsgötu
1. Sími 7510 (þrjár línur).
opin frá- kl. 10 f.h, tii 10
eftir hádegi.
Frá kosrangaskriístofu Sósíalistaflokksins:
31 dagur er til kjördugs
Kæmfrestur rennur út 6. j'úní n. k.
UTANKJÖRSTAÐAAT-
KVÆÐAGREIÐSLA hefst
— En einkennisbúning?
— Jú, við íáum búning, svar-
aði hann og leit niður á vinnu-
buxurnar sínar.
— Þeir eru bara ekki búnir
ennþá, hélt _ hann álram. Við
fáum líka kannske bi-áðum byss-
ur.
—Verðið þið þá ekki settir i
lögreglubúning?
— Nei, hann verður öðruvísi.
Nei, þá væri ekkert varið í það;
þá væri eins gott að ganga
bara í íslenzku lögregluna.
„ÞAÐ ERU EKKI ALLIR
TEKNIR í. ÞETTA, STARF“ ,. .
j— Heldurðu að ykkur. verði .
trúað fyrir by^sum. Er þetta
annars ekki gott starf?
— Jú, þetta er voðarólegt starf,
en maður verður bara að tusku
af að húka svona inni.
— Það er ekki amalegt að
komast í svona rólegt starf.
— Það eru ekki allir teknir í
þetta starf, sagði pilturinn og nú
varð augnaráðið enn þýðingar-
mikið. — Það eru ekki teknir í
það nema þeir sem kunna ensku.
Þeir verða að kunna vel ensku.
— Hvað þýðir þetta merki á
handleggnum á þér? Á þetta SG
kannske að tákna sýslumaðurinn
í Gullbringusýslu?
— Nei, það þýðir Security
Guard Nortli District.
*
Eftir nokkur frekari orða-
skipti kvöddumst við með virkt-
um, og pilturinn í Security Guard
North District fór aftur inn í
skúrinn Sinn.
Það var þá misskilningur hjá
verkamönnunum að N stafimir S
G N D þýddu sýslumanns-garms-
ins noi-p-drengir heldur ber að
lesa úr þeim Security Guard
North District eða öryggisvörður
norðursvæðisins.
Slíkt starfsheiti kemur íslend-
ingum undarlega fyrir sjónir á
suðvesturkjálka lands síns. En
þeir verða bara að athuga að
þessi frumleiki kviknaði ekki í
kolli Guðmundar Guðmundssonar
hernámsstjóra heldur ber hann
' með sér að vera hugsaður fyrir
„westan“ þar sem ísland er kall-
að tilheyra „norðursvæðinu" . ..
Þetta er sem sagt fyrsti veik-
byggði anginn af hernum er þeir
Hermann og Bjarni boðuðu um
áramótin, hernum sem herraþjóð-
in ætlar að narra kúgaða ný-
lenduþjóð til að stofna gegn
sjálfri sér.
J.B.
Hver á R-1400?
1 aðför hinnar vopnuðu
bandarísku lögreglu gegn ts-
l'endingum við hlið Keflavík.
urflugvallar, en frá henni
var skýrt í blaðinu í gær,
var einn bilanna sem þeir
bandarísku leitu'ðu í bílliein
R-1400, sem mun vera eign
rannsóknarlögreglunnar hér
í Reykjavík. Ráku þeir ís-
lenzka rannsóknar’ögreglu-
mannina sem í henni var út
með harðri hendi og fram-
kvæmda nákvæma leit. —
Hann huggar sig sennilega
við að sér sé ekkj vandara
um en Guámundi sýslumanni
þegar leitað var „í skottinu“
hjá honum á sinum tíma!
Kjörskrá fyrir Reykjavík ligg-
ur frammi í kosuingaskrif-
stofu Sósíaiistaflokksins, Þórs-
götu 1. j ,l||