Þjóðviljinn - 14.07.1953, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 14.07.1953, Qupperneq 8
8) ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 14. júlí 1953 OPIÐ BRÉF til E. B. Malmquisf Ærukæri E. B. Malmqvist! Ég held ég verði að verða við vonum þínum og skrifa þér fá- einar línur, svona til að þakka þór lítilsháttar fyrir öll skemmtilegheitin sem mér gafst kostur á að lesa í grein þeirri sem þú skrifar 10. þ.m. í Al- þýðublaðið og Þjóðviljann, auðvitað af velviija við háttvirt bæjarráð Reykjavíkur, sem fyr- ir þína hugulsemi kemst máski hjá að svara opnu bréfi sem við tveir óbreyttir garðyrkju- menn höfðum áræði til að skrifa því til að mótmæla að al- menningsgarðar bæjarbúa yrðu frá þeim teknir og stúaðir nið- ur í bása sem borgarar þessa bæjar yrðu að greiða aura fyrir að heimsækja. Eða hvað segðir þú um það, virðulegi æskulýðs- leiðtogi ef við Björn tækjum þig þótt ekki væri nema í þessu eina fordæmi til fyrirmyndar og fengjum okkur sinn blettinn hvor til reksturs eigin fyrir- tækis í Tjarnargarðinum ? Þetta er ljómandi staður, í sjálfu hjarta höfuðborgarinnar, á rennisléttum grasflötum, því eina sem miklast má af í þess- um garði. Já við eriun víst í engu lík- ir, Malmqvist góður, og þótt skömm sé kannski frá að segja er ég guði þakklátur fyrir það, að mig langar ekki til að svara bréfum sem mér er boðið að lesa, en ekki eru send mér, og það þótt bréfið snerti mig eða mina á einn eða annan hátt. Eg verð að undrast álit þitt á sjálfstæðri getu bæjarráðs ef þú telur þig fremri að svara fyrir yfirsjónir sem það lætur sig henda og venjulegir borgar- ar benda þeim á, á áhrifamikinn hátt. Skyldi það ekki þakka þér með tilhlýðilegri alúð? Þú gerir þór einkum far um að beina skeytum þínum að mér í þessari furðulegu grein þinni. Ef satt skal segja datt mér sízt í liug að þig langaði í hnútukast við mig, Hafliða nokkurn Jónsson frá Eyrum, en teldir þann kost vænlegri að iáta þögnina geyma ávirðing- ar þínar í vissum málum. Þú byrjar grein þína með því að minnast á 10 ára „misheppnuð" skrif mín sem gert liafi mig frægan, en láðist að geta þess að þú hefðir þá haft öðrum hnöppum að hneppa norður á Akureyri en lesa grein eftir 19 ára strákling í Reykjavík sem gerði tilraun til umbóta fyrir þá drengi er síðar gengju þær sömu menntabrautir og hann hafði lokið við að troða. Eg veit af afspurn um þá baráttu sem þú þurftir að heyja við borgara Akureyrar og það var kannski ósköp ónærgætið af mér að greiða ekki götu þína eftir mætti éftir að fjöl- skyldutengslin við Reykjavík leiddu þig hingað til „mikillar blessunar", ekki hvað sízt fyrir æskulýð þessa bæjar. Eg hefði eflaust átt að leita i púlti mínu að gömlum greinarsmíð- um eftir mig og senda þér með sendimanni þínum, og mér þykir leitt að vita til þess að þú skyldir nú þurfa að dæma þessar greinar óséðar, jafnvel þótt ég viti að dómurinn yrði hinn sami. Æ, þú fyrirgefur nú þetta góðurinn og ég skal nú bæta dálítið fyrir mér og hrósa þér örlítið. Þú ert harðduglegur, það máttu eiga og ekki hvað sízt í tómstundum þinum, eftir að þú hefur frá morgni til kvölds notað búfræðimenntun þína frá Hólaskóla til að ráðleggja skattgreiðendum í Reykjavík hvernig bezt sé fyrir þá að rækta kartöflur eða reka kúa- bú á Korpúlfstöðum. Þú átt nefnilega háleitar hugsjónir, hugsjónir sem þér finnst þér illa þakkaðar, og þó hefur þú fengið tækifæri til að vinna að þínum háleitu hugsjónum, og er það meira en margir aðnr hugsjónamenn hafa fengið tæki færi til. Þú verður að gæta hófs í þakklætiskröfum þínum, elskan mín góða. Eg skal ekk- ert efast um að borgarar þessa bæjar, feður og mæður og ekki hvað sízt æskaci, er þér ákaf- lega þakklátir fyrir hinar hollu og mannbætandi skemmtanir sem þú hefur staðið fyrir á köldum skammdegiskvöldum undanfarandi vetra í Vetrar- garðjnum, þótt þú viljir ekki leiða æskulýð þessa bæjar í Tívoli-garðinn og flytja þangað hin dásamlegu iþróttatæki þín sem ,,örfa bæði hug og hönd á sólríkum sumardögum'*. En viltu að ég ræði æsku- lýðsleiðtogastarf þitt nokkuð nánar að sinni? Er þetta ekki nægilegt hrós í bráð? Eg helri að það sé heppilegra fyrir þig að ræða ekki um „rúntráp' og ölstofú'setu unglinga ef þú skyldir kæra þig um að senda mér tóninn öðru sjnni. Og nú skulum við bera niður í Tjarnargarðinum aftur, því þú virðist bera hag hans mjög fyrir brjósti og verða fyrstur manna til þess að draga þar fána að hún til að fagna bæjar- búum sem heimsækja garðinn, og skýtur okkur Birni Kristó- fersyni báoum aftur fyrir þig í því að beita ræktunarþekkingu þinni á þann veg að setja „leikvang, sem hér um ræðir" „til eflingar gróðursæld Tjarn- argarðsins" og efast ég ekki urn að hjá þér „fylgi hugur verki“, þótt við Bjöm teldum heppi- legra af tvennu illu að leik- vangur sá er hér um ræðir væri settur upp til gróðasældar fyrir eflingu gróðursældar Tjarnargarðsins, og við höfum þá trú báðir tveir að þá gróð- ursæld væri hægt að skapa. Skoðanir mínar um raunhæfar úrbætur í ræktunarmálum Tjarnargarðsins setti ég fram í grein sem ég skrifaði í Garð- yrkjuritið 1946, og þér er í lófa lagið að kynna þér, til þess að ganga úr skugga um hinn litla áhuga minn í skrúðgarðamálum höfuðstaðarins. Hinsvegar skil ég ekki í því að þú skulir senda þetta skeyti um „lítinn áhuga" til okkar Bjöms þar sem þú veizt að við erum ekki sjálf- ráðir gerða okkar i ræktunar- málum garðsins, heldur lútum stjórn trúasta vinar þíns og einnig garðyrkjuráðunauts Reykjavíkurbæjar sem er nán- asti samstarfsmaður þinn. Þeir bera því einir ábyrgð á þeim framkvæmdum sem fram fara í Tjaraargarðinum, sem öðrum þeim görðum er við Bjöm /t ÍÞRÓTTiR RlTSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON Gísii Sigurðsson Hsfnarflrði fimmtíu ára I s.l. viku gekkst Iþrótta- bandalag Hafnarfjarðar fyrir samsæti til heiðurs Gisla Sig- urðssyni, í tilefni af 50 ára af- mæli hans. Voru margir vina Gísla mættir þar bæði eldri sem yngri. Var hóf þetta hið skemmti- legasta og voru fluttar ræður en á milli sungu gestir fullum hálsi. Jón Egilsson sem og stjórnaði hófinu flutti ávarp til afmælisbarnsins, þakkaði því öþ óeigingjömu störfin fyrir í- þróttalíf Hafnarfjarðar. Þá tal- áði Hallsteinn Hinriksson og rninntist liðinna góðra stunda í starfi með Gísla. Hermann Guðmundsson flutti honum per- sónulegt þakklæti fyrir langt samstarf; þá bar hann Gísla kveðju frá frkvstj. Í.S.Í. Þor- steinn Einarsson ávarpaði og þennan fimmtuga ungling og færði ho.num þakkir fyrir ágætt forustustarf um íþróttamá'l og þá sérstaklega í Hafnarfirði. Kristján Andrésson úr Hafnar- firði flutti einnig gott ávarp til Gísla. Að lokum flutti svo Gisli langt erindi, og kom víða við og var ræða hans bráð- skemmtileg og margt vel sagt. Hann kvaðst fæddur 23. júní 1903 á Sólheimum i Hreppum. — Til Hafnarfjarðar fluttist hamr 1911. Eg hafði fljótt gam- an af glimu og áflogum og hvers kyns íþróttum" sagði Gísli, „og ég æfði þær af kappi“. Það var skemmtilegt að heyra Gísla lýsa dagdraumum sínum áður hann fór í fyrsta mótið. Hann var sigurvegarinn, reifur og glaður og bar höfuðið hátt. — „Auðvitað varð ég síðastur er í keppnina kom, og ég hef alltaf verið síðastur, en mér datt ekki í hug að hætta, ég vildi vera með ef það gæti fengið aðra til áð vera með.“ — „Eftir þetta fyrsta mót, sem haldið var i Revkjavik gekk ég suður í Hafnarfjörð. Þegar ég kom upp á Öskjuhlíðina steytti ég hnefann í áttina að vellinum og sagði: ,,Eg skal koma aft- störfum við á vegum Reykja- víkurbæjar. Þetta er nú orðið öllu lengra bréf en ég ætlaðist til, en það er nú svona þegar af nógu er að taka, þá ræður maður ekki við sig og allra sízt þegar mað- ur fær tækifæri til að ræða við þig um áhugamál. En meðal annarra orða, ef þér er það al- vara að vilja ræða eitthvað nán ar við mig á opinberum vett- vangi, þá skal ekki standa á mér að rabba við þig í fullri alvöru, þér er guðvelkomið að ráða sjálfur umræðuefninu. Svo veit ég þú heldur áfram að blómstra og dafna fyrir til- stilli okkar borgaranna, enda þótt ég sé að erta þig örlítið svona mér til gamans, eftir átta stunda vinnudag. Reykjavík, 10. júlí 1953. Hafliði Jónsson frá Eyrum. ur“! Og Gísli kom aftur og aftur, og hann kom með marga með sér. Gísli hefur staðið að mörgum framfaramálum um í- þróttir í Hafnarfiröi í öll þessi ár, og þar hafði hann sínar skoðanir og hafði þrek ti: að halda þeim fram Um þetta at- riði sagði Gísli á þessa leið: „Það hafa oft orðið átök og þau hörð og það er bara gott. Hvað er það ef allir eru æln- lega sammála, það er sætsúpa," og hver er ekki sammála Gísla, þar sem átök eru þar er oftast eitthvað að gerast, og Gisli vildi átök og hann vildi að ei‘;t- hvað gerðist, deyfð var honum dauði. Tveir menn voru það á vegi Gísla sem höfðu djúptæk áhrif á hann og urðu tii að móta hans líf og lífsskoðanir, en það voru þsir séra Friðrik Friðriksson og Jón Þorstems- son íþróttakennari. Um fyrri helgi kepptu Norð- menn og Danir í frjálsum íþrótt- um og fór keppnin fram á Bislet í Osló, og er þetta í 10. sinn sem Norðmenn vinna Dani. Úrslit í einstökum greinum keppninnar urðu þessi: 100 m hlaup: 1. Halldór Hansen N. 10.7. 2. Jörgen Fengel D. 10.9. 3. Hans Pedersen N. 11.0 4. H. Brodal Rasmusen D. 11.6. 3000 m hindrunarhlaup 1. Hallger Brenden N- 9.08.8. 2. Fredrik Hauge D. 9.32.8. 3. Endre Gásemyr N. 9.34.8. 4. Helge Knudsen D. 9.53-6. Langstökk 1. Roar Bertelsen N. 7.03. 2. Lars Gásemyr N. 6.93. 3. Ove Thomassen D. 6.68. 4. Helge Haag- en Olsen D. 6.40. 800 m hlaup 1. Gunnar Nielsen D. 1.53.4. 2. Audun Boysen N. 1.53-7. 3. Kjeld Roholm D. 1.54.7. 4. Erik Sarto N. 1.55.1. 400 m grindahlaup 1. Torben Johannessen D. 55.4. 2. Thor Volle N. 55.5. 3. Arne Engelbretsen N. 56.0. 4. Sven Risager N. 56.1. Kúluvarp 1. Sverre Östby N. 14.20. 2. Verner Hurtigkarl D. 13.89. 3. Bjærne Engen N. 13.29. 4. Egil Jensen D. 12.69. 5000 m hlaup 1. Ib. Planck 14.25.0, nýtt danskt hefur Gísli jafnvel mest allra þeirra sem til keppni hafa komið hér á landi keppt í anda íþróttanna, keppt ár eftir ár þó „auðvitað yrði ég síðastur er til lceppninnar kom“, og hvílíkt fordæmi að segja og hafa sýnt í verki, „en mér datt ekki í hug að hætta, ég vildi vera með.“ Gísli hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir iþrótta- menn í Hafnarfirði og heildar- samtökin, og enn situr hann í stjóm íþróttabandalags Hafn- arf jarðar. En Gísli hefur brugð- ið fleiru fyrir sig en .þrótta- mennsku, Um margra ára skeið hefur hann unnið að söfnun íþróttasögu Hafnarfjarðar og Garðahrepps og munu rannsóku ir hans og söfnun ná yfir nær hálfa aðra öld. Er þetta orðið mikið og merkilegt safn sem á eftir áð skrá nafn Gísl.i emi feitara í minnisblöð þjóðarinn- ar. Íþróttasíðan óskar svo Gísla til hamingju með þennan merk- isáfa.nga á ævi og óskar hoium alls góðs um ókomna langa framtíð. met. 2. Qistein Saksvik N. 14.42.4. 3. Ragnar Maglund N- 14.55.0. 4. Rikard Greenfort D. 15.20.0. Spjótkast 1. Egil Danielsson N. 64.93. 2. John Hansen D. 61.44. 3. Einar Röberg N. 61.17. 4. Thomas Bloch D. 61.08. Stangarstökk 1. Richard Larsen D. 4.00. 2. Axel Viberg D. 3.90. 3. Erik Riis N. 3.70. 4. Alf Thomassen N. 2.60. 4x100 m boðhlaup Noregur 43.0. Danmörk 43.2. Eftir fyrri daginn höfðu Norð- menn 58 stig gegn 48. 110 m grind 1. Erik Cristensen D. 15.4. 2. Tor Olsen N. 15.5. 3. Jan Borger- sen N. 15.7. 4. Erik Nissen D. 15.9. 400 m hlaup 1. Andun Boysen N. 48.0. 2. Kjeld Roholm D. 49.3. 3. Erik Bjölseth N. 49.9. 4. Eivind W. Petersen D. 50.1. 1500 m hlaup 1. Gunnar Nielsen D. 3.53.6. 2. Terje Lilleseth N. 3.55.8. 3. Svend Gregersen D. 3.56.2. 4. Hallger Brenden N. 3.56.4. 200 m hlaup 1. Erik Hansen D. 22.4. 2. Jör- gen Fingel D. 22.6. 3. Hans P. Pedersen N. 22.8. 4. Henry Jo- hansen N. 23.0. Sleggjukast 1. Sverre Strandli N. 57.79. 2. Framh. á 11. síðu. Meö þátttöku sinni í íþrótcum Noregur vann Danmörk með 111 stig- ym gegn 34 í frjáisum ífsréttiim

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.