Þjóðviljinn - 09.08.1953, Síða 12
Brúin yfir Jökulsá á Lóni gerbreytir sam-
göngumálum Aiisturskaftfellinga
Rœff viS Ásmund SigurSsson um sögu þessa
mikla mannvirkis
í nóvember í fyrra hófst umferð yfir nýja brú yfir
Jökulsá í Lóni í Austurskaftafellssýslu, og fyrir nokkru
var brúin vígð með athöfn-. Brúin er mikið mannvirki,
’sú næstlengsta í landinu, og -stórfelld samgöngubót fyrir
héraöið.
Fréttamaður Þjóðviljans hitti
nýlega að máli Ásmund Sigurðs-
son og bað hann að segja les
endum Þjóðviljans nokkuð frá
aðdraganda þessa mikla verks,
en Ásmundur hefur unnið að
því öllum öðrum einstaklingum
fremur að hrinda því í frarn-
kvæmd.
Ásmundi sagðist þannig frá:
Jö'kulsá í Lóni er mesta vatns-
fall á leiðinni frá Hornafirði til
Austurlands. Hún hefur klofið
Lónssveit í tvennt og verið mjög
mikill farartálmi, torveldað stór-
um samgöngur frá Homafirði til
Austurlands. Það hefur verið
draumur Skaftfellinga um langa
tíð að ná fullkomnu vegarsam-
. bandi við Austurland, vegna þess
að á vesturleið eru enn stærri
og erfiðari farartálmar, eins og
Skeiðará.
t Rætt hefur verið um brú þarna
í mæstum því tvo áratugi. Þegar
1938 voru gerðar mælingar, en
þær voru gerðar á öðrum stað
en þar sem brúin er nú, og ekk-
ert varð úr frekari framkvæmd-
um.
Páll Þorsteinsson flutti frum-
varp haustið 1945 um að veitt
yrði fé úr brúasjóði til þess að
gera brú, en það frumvarp náði
ekki samþykki. Árið 1948 urðu
töluverð átök um málið í efri
deild í sambandi við benzin-
skattinn. Flutti ég þá tililögu um
að honum yrði varið til stórra
brúa og sú - fyrsta yrði Jökulsá
í Lóni. Þeirri tillögu fylgdu
sósíalistar einir, al'lir aðrir flokk-
ar greiddu atkvæði á móti
brúnni. Og alla tíð síðan Sósíal-
istaflokkurinn komst til áhrifa
á Alþingi hefur hann ævinlega
istaðið með þessu máli óskiptur.
Þegar fjárlög ársins 1951 voru
afgreidd, var búið að samþykkja
í fjárveitinganefnd að hluta af
fé brúasjóðs skyldi varið til
Jökulsár í Lóni, og var það
Démnefnd feg-
urðarsamkeppn-
innar
Dómnefnd vegna fegurðarsam-
keppninnar, sem fram fer um
næstu helgi í Tivoli, hefur nú
verið skipuð. I. nefndinni eiga
sæti: Tómas Jónsson borgarrit-
■ ari^Einar Arnalds borgardómari,
Eggert Guðmundsson listmálari,
Guðmunda Magnúsdóttir fegrun-
arfræðingur,' Thorolf Smith
blaðamaður, Þóra Hafstein verzl-
unarmær, tilnefnd af Feldi h.f.,
og Guðni Jónsson forstjóri, til-
nefndur af Belgjagerðinni.
'Nú fara að verða síðustu for-
t vöð að tilkynna þátttöku i
•keppninni eða koma fram tillög-
um um þátttakendur, en þeir
sem óska þess getá hringt í síma
6610 eftir klukkan 5 eða sent
bréf r pósthólf nr. 13.
í samræmi við áætlanir vega-
málastjóra. Eftir að sú •samþykkt
lá fyrir lýsti samgöngumálaráð-
herra yfir því að verkið skyldi
nú loks hafið og verulegum hluta
af fé brúasjóðs varið til brúar-
gerðarinnar.
Hófust framkvæmdir síðan
vorið 1951. Það sumar voru
stöplar steyptir og sumarið 1952
var lokið við brúarsmíðina. Hef-
ur brúin síðan verið í notkun
frá því í nóvember um haustið.
Óveður á síSd-
armiðunum
Reknetaveiði Norðmanna
hér við land hefur verið
mjög treg í sumar
Siglufirði í gær. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Veður er nú orðið slæmt á
síldarmiðunum og fer heldur
versnandi. Bátar eru almennt
iað leita í landvar. Frétzt hefur
um tvo báta sem eru á leið
uppundir land frá Kolbeinsey
með bátana á hvolfi.
Tveir bátar komu hér með
smáslatta, Hugrún og Einar
Hálfdáns með 30 og 50 tunnur
uppsaltaðar. Um iaðra veiði er
ekki vitað.
Reknetaveiði hjá Norðmönnum
fyrir norðurlandi 4 sumar hefur
verið mjög treg. Allflestir eru
með 150—250 tunnur. Sama
gildir um aðra reknetabáta, sem
til hefur frétzt. Engir bátar eru á
reknetum frá Siglufirði.
Togarinn Hafliðj er farinn af
stað aftur á saltfiskveiðar. Elliði
býst á ísfisk, en er ófarinn enn.
Ásmundur Sigurðsson
Eg vil að lokum, segir Ás-
mundur, bera fram þakkir til
allra sem að þessu verki hafa
unnið, Alþingis, vegamálastjóra,
starfsmanna hans og allra ann-
arra sem þokað hafa þessu mikla
nauðsynjamáli áleiðis. Eg veit að
ég tala hér fyrir munn allra
Skaftfellinga,
Sunnudagur 9, ágúst 1953 — 18. árgangur -— 176. tölublað
Samgöngáætur Islendmga bíða
meðan kervegurinn er lagður
Stórframkvæmdir Bandaríkjahers í Homafirði hafa
orðið til þess að sennilega verður ekki hægt aö hag-;
nýta fé það, sem Alþingi hefur veitt til samgöngubóta x
héraðinu á þessu ári! Eru vélar og verkstjórar vegagarð-
arinnar bundnar við að leggja herveg handa Banda-
ríkjamönnum.
Hervegur bessi liggur frá
suðurlandsveginum undir Al-
mannaskarði og út á Stokks-
nes. Er þetta mesti vegur sem
lagður hefur verið í Austur-
skaftafelissýslu, breiður og
vandaður. Síðar mun ætlunin
að breikka á sama hátt veginn
frá Höfn að þessum nýja vegi.
Á Stokksnesi á svo að rísa
radarstöð iBandaríkjamanna, og
munu þar verða mikil mann-
virki eins og sjá má af þessari
miklu vegalagningu. Vegagerð
ríkisins annast verkið og er
svo bundin af því að samgöngu
mál héraðsbúa sjálfra eru lát-
in sitja algerlega á hakanum.
Líflótsdómar vegna landróða
í Norður-Kóreu
Samsæii til að kollvaipa stjóininni í
samiáði við bandaiíska heiinn
Útvarpið 1 Pjongjang skýrði frá því í gær, að 10 nátt-
settir embættismenn hafi veriö dæmdir til dauða fyrir
landráð, en þrír aðrir dæmdir til 5-10 ára fangelsisvistar.
Þeir, sem dæmdir voru til
dauða, voru sakaðir um og ját-
uðu að hafa gert samsæri gegn
stjórninni í því skyni áð koll-
varpa henni í samvinnu við
bandaríska herinn. Þá voru þeir
líka bornir þeim sökum að hafa
njósnað fyrir Bandaríkin.
Meðal hinna ákærðu var Lin
Sun Jof, fyrrum einn af ritur-
um miðstjórnar kommúnista-
flokksins. Pak Hen Jen, fyrrum
Bandaríkin halda fanga-
morðunum áfram
Síðan vopnahléð hófst hafa 14 fangai
veiið myitii, en á 3. hnndiað sæiðii
Útvarpið í Peking skýrði frá því í gær, aö komið hefði
fimm sinnum til óeirða í fangabúðum S. Þ., síðan vopna-
hléssamningarnir voru undirritaðir. Hafa 14 fangar verið
drepnir, en yfir 200 særðir.
fangabúða S. Þ., undir eins og
vopnahléið hófst.
utanríkisráðherra, var sagður
hafa haft forystu fyrir sam-
særismönnunum, þótt hann sé
ekki meðal hinna dæmdu.
Bandaríkjamenn ætla að
verða seinþreyttir við fanga-
morðin í Kóreu. Fram að
vopnahléssamningunum höfðu
þeir drepið yfir 300 fanga í á-
tökum í fangabúðunum. En
þeir létu ekki staðar numið
við vopnahléssamningana. Nú
hafa borizt fréttir um það, að
fimm sinnum hafi komið til
átaka miíli fangatina og fanga-
varðanna, síðan vopnahléið
hófst. Beittu fangaverðirnir í
öll skiptin skotvopnum gegn ó-
vopnuðum föngunum. Á þenn-
an hátt voru 14 fangar myrtir
en yfir 200 særðir, að íþvi er
útvarpið í Peking hefur eftir
■kínverska Rauða krossinum,
sem sendi eftirlitsmenn sína til
Dulles ræðir vii
John Foster Dulles, ut-anríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, fór
gær frá Seúl, þar sem bann hef-
ur samið um hemaðarbandalag
Bandaríkjanna og Suður-Kóreu
við Syngmian Rhee, einræðis-
herra, af stað til Tokyo, þar sem
hansi mun eiga viðræður við
Jóshída, forsætisráðherra Jap-
ans. Stjóm Jóshída er minni-
hlutastjóm og hefur átt í vök
að verjast.
Kvikmynd frá
stöðvum heiða-
gæsarinnar
talin bezta mynd, sem
tekin hefui veiið á há-
lendi íslands
Peter Scott, enski fuglafræð-
ingurinn, foringi leiðangurs
þess, sem nú í sumar hefur ver-
ið upp við Hofsjökul til merk-
inga og at'hugana á heiðagæs-
um, átti í gær viðtal við blaða-
menn í húsakynnum Náttúru-
gripasafnsins í Þjóðminjasafns-
húsinu. Skýrði hann þar frá
því, að leiðangur þessi hefði
gefið ágætan érangur. Verður
nánar sagt frá viðtalinu síðar.
í dag ætlar Peter Scott að
sýna kvikmynd frá leiða.ngri
þeim, sem farnn var á þessar
sömu sló'ðir sumarið 1951 undir
hans forustu. Verður sýningin
í Tjamarbíói kl. 1. Myndin
verður einnig sýnd á morgun
1 kl. 3 á sama stað. Aðgangseyr-
ir er 10 krónur. Mynd þessi
hefur verið sýnd víðsvegar um
England og hlotið mjög góða
dóma. Er hún talin bezta kvik-
mynd, sem tekin hefxir verið á
hálendi Islands. Scott mun
flytja erindi með myndinni
henni til skýringar og teikna
um leið myndir á töflu. Hefur
Framhald á 3. síðu.
Hollenzk söng-
kona vænfanleg
CHARON BRUSE
I
1 næstu vilru er væntanleg
hingað til lands höllenzk leik-
kona, Cháron Bruse að nafni,
Hún er 25 ára gömul kabar-
ettsöngkona og dansmær og
hefur komið á fjölda skemmti-
staða í Evrópu og lilotið ágæt-
ar undirtektir.
Charon Bruse er fædd í Haag
í Hollandi. en foreldrar hennar
eru enskir. Hún hefur ágæta
„coloratur sópran“ rödd og
syngur á fimm tungumálum.
Charon hefur komið fram í
sjónvarp og auk þess leikið í
kvikmyndum í Hollandi.
Undanfarið hefur Charon
Bruse starfað við „Club Pan-
ama“ i London og hefur tiú
lokið sýningum þar, en þær
stóðu í 37 vikur og er það met
í sögu klúbbsins.
Hér mun Charon Bruce dvelj-
ast nokkra daga og koma fram
á skemmtunum hjá S. K. T. í
Góðtemplarahúsinu á Jaðri og
e. t. v. víðar.
Attlee og Títé
vinmælast
Clement Attlee, leiðtogi
brezka verkamamxaflokksins,
dvelst nú í Júgóslavíu í boði
Tító.
Við komu Attlees tók Pijade,
vara-forseti Júgóslavíu, við
honum og sagðist vona að
iheimsókn Attlees yrði til að
tengja brezka Verkamanna-
flokkinn og Júgóslavíu traust-
ari böndum. Attlee svaraði á
þá leið, að sér væri mikil gleði
að sjá þá sósíalistísku uppbygg-
ingu, sem fram færi í Júgó-
slaviu.