Þjóðviljinn - 13.08.1953, Side 6

Þjóðviljinn - 13.08.1953, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 13. ágúst 1953 þlÓOVIUINN fftgeí&ndi: Bamelningarflokkur alþýOu — Bóslallstaflokkurlnn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Blgurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Biaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigíússon, Magnús Torfi Ólafsson. iiuglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritatjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig. 19. — Sími 7500 (3 línur). Áakrlítarverð kr. 20 á mánuðl í Reykjavík og nágrennl; kr. It annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljane h.f. I Efling viðskipta Islands út é við Hinn mikli viðskiptásamningur Islands við Sovétríkin opnar alveg ný viðhorf í viðskipta- og atvinnumálum landsins. Meira að segja málgögn Verzlunarráðs íslands viðurkenna nú að einmitt ,,dollaravörurnar“, sem við fáum frá Sovétríkjunum leysi að miklu levti vandann hvað ,,harðan“ gjaldeyri snertir. En hann hefur verið mikill allan ,,Marshall“-tímann og ekki hafði tekizt að leysa hann, er ,,Marshalláætluninni“ lauk, en það hafði þó einmitt verið hinn yfirlýsti tilgangur méð henni. ★ Það er því þegar auðséð, að sá viðskiptasamningur, sem rík- isstjórnin vegna Marshallstefnunnar hefur hindrað að gerður -væri i 6 ár, gerbreytir nú viðhorfum íslands í viðskipta- og at- vinnumálum, — svo framanlega sem hægt'er að nýta til fulls fyr- ir alþýðu manna afleiðingar hans. ★ I>ær ættu fyrst og fremst að vera tvennskonar: I fyrsta lagi að hægt væri að auka útflutning Islands stórum og efla þar með hina íslenzku atvinnuvegi og tryggja öllum Is- lendingum vinnu við þá. ★ I öðru lagi þarf að tryggja það að viðskiptin við útlönd verði, að svo miklu leyti sem ríkið ekki annast þau sjálft með hags- muni heildarinnar fyrr augum, gefin sem allra mest frjáls. Hvað hið fyrra snertir þá liggur í augum uppi að nú er brott fallinn — og hefur i rauninni aldrei verið sönn, — sú ástæða, sem mest hefur verið hampað á undanförnum árum sem orsök atvinnuleysis: að ekki væri hægt að fá nóga markaði fyrir af- urðir okkar. Freðfiskútflutningur Islands hefur undanfarin tvö ár verið 30—35 þúsund smálestir. Möguleikar okkar til þess að framleiða freðfisk með öllum okkar mikla togara- og bátaflota og hinna mörgu liraðfrystihúsa eru mjög miklir, þegar markað- ur er öruggur. Ef sú áætlun um hagnýtingu alls aflans í land- inu, sem Sósíalistaflokkurinn setti fram fyrir kosningar, væri framkvæmd, myndi framleiðslan í freðfiskinum einum verða um 65 þúsund smálestir. Og verðmæti þeirrar framleiðslu einnar væri um 390 milljónir krcna. Slík tvöföldun freðfiskframleiðsl- unnar myndi auka stórkostlega atvinnuna í landinu og hafa úr- slitaáhrif í því að gera íslendingum mögulegt, að sjá sér far- borða við eigin atvinnuvegi. ★ Nú hefur það komið í ljós að við getum á einu ári selt 21 þúsund smálestir af freðfiski til Sovétríkjanna. Við höfum á undanförnum árum selt allt að 30 þúsund smálesta til Bandarikj- anna og alþýðulýðveldanna í Evrópu og nokkurra annarra ríkja. Við vitum að einmitt verðið í alþýðuríkjunum hefur borgað tap- ið á sölunni til hinna landanna, hvað þorskinn snertir. Við þurf- v.m nú að kappkosta að halda þessum mörkuðum og efla þá. Þá er hægt að komast upp í um 60 þúsund smálestir freðfisks á ári. Þessvegna þarf að hindra að nú verði farið að draga úr framleiðslunni fyrir aðra markaði, eins og auðsjáanlega eru uppi hugmyndir um hjá valdhöfunum. Það þarf að nota alla markaði og auka þá. ★ En alþýðan veit hvað að er: Valdhafamir óttast mikla íslenzka atvinnu. Þeir vilja koma í veg fyrir hana. Þessvegna eru þeir nú að hugsa um að minnka markaðina, til þess að geta sagt, eins og þeir sögðu meðan þeir lokuðu rússneska markaðnum og bönn- nðu framleiðslu að vissu marki: það eru ekki til nógir markaðir. Þessvegna er það og krafa almennings að næst á eftir því að tryggja megi markaði og þar með næga íslenzka atvinnu þá verði að veita frelsi til útflutnings og innflutnings, en ekki að einoka hvortveggja í höndum nokkurra stofnana, sem ríkis- stjórnin hefur velþóknun á. Að svo miklu leyti sem ríkið sjálft annast slíkan innflutning með hag alþjóðar fyrir augum, er það gott, en því miður er þess sjaldan að vænta, meðan ríkisvaldið er einokunarbæli auðmannaklíknanna. Þessvegna verður um fram allt að binda endi á þá einokun auðvaldsins, sem einokar bæði atvinnu og gróða alþýðunni til bölvunar. Eru ssskápar Malénkoils ægi- legri est skriðdrekar hans? Rœða forsœthráðherra Sovétrikjanna og bollaleggingar bandarisks blaðamanns ^he Keportcr nefnist banda- rískt tímarit, sem á fáum ár- um hefur unnið sér álit og út- breiðslu með því að taka ræk'- lega til meðferðar þýðingar- mikil efni, sem önnur blöð þar í landi hafa gengið fram hjá. Greinaflokkat þess um fjárburð kínversku Kuomin- tangklíkuunar á bandaríska þingmenn og um lii.nar víð- tæku símahleranir, sem opin- berir að:lar og einstakir menn reka í Bandaríkjunum hafa til dæmis vakið mikla athyg’i. 1 The Reporter sem út kom 26. maí síðastliðinn er aual- efnið greinar um mál, sem lítt hefur verið rætt i borgaraleg- um blöðum auðvaldslandanna; þýðingu hinnar geysilegu út- 'þenslu í atvinnulíf1 Sovétríkj- anna fyrir heimsþróunina næstu áratugiaa. B ^^ðalfréttaritari The R’part- er í Evrópu, Theodore White, var gerður út tii að rekja garnirnnr úr þeim'hagfræ'ðing- um í Vestur-Evrópu, sem hafa það fyrir sérgrein að fylgjast með hagþróun Sovétríkjanna. Ályktunin. sem hann dregur af upplýs'ngum þeirra er þessi: ,,Stórkost!egt áfall (fyrir Vesturveldin) virðist nú vera í uppsiglingu, áður en tveir áratugir líða getur það orðið ein af þeim staíreynd- um, sem úrslitum ráða um stjómmálaþróun heimsins.... Hernaðarmáttur iðnaðar Sov- étríkjanna er vissulega gíf- urlegur. ... að mirmsta kosti tvisvar sinnum meiri en á síðasta ári heimsstyrjaldarinn- ar, þegar Rússar framleiddu meðal annars fjörutíu þúsund flugvélar og þrjátíu þúsund skriðdreka, vélknúffar fall- byssur og brynvagna...... En það er ekki þessi hernaðarógn- u.n. scm mestu máli skiptir. . .. Pólitíska hættan, sem staf- ar af framleiðslugetu Sovét- ríkjanaa er þýðingarmeiri, varasamari og erfiðari við- fangs“. H’nn bandaríski blaðamað- ur rekur síðan, livernig Sovét- ríkin eru komin fram úr effa eru að fara fram úr öllum ríkjum Vestur-Evrópu til sam- ans í afköstum und'rstöðuat.- vinnuveganna. $em dæmi um það, hve mik'u hraöari þróun- in er í Sovétríkjunum nefnir hann það að Bretland, helzta kolanámuframleiðsluland Vest ur-Evrópu, hefur sett sér það mark að auka kolaframleiðsl- una um 20 milljónir tonna á tólf árum. Hinsvegar jókst kolaframleiffs'a Sovétríkjanna. á tveim ánun, 1951 og 1952, um 40 milljónir tonna. Síðan stríði lauk hafa hin miklu stá'framleiðslulönd V-Evrópu, Bret’and, Frakkland, Benelux og V-Þýzkaland, aukið stál- framleiðs’una um 12 milljóirr tonna. ,.Iskyggilegast af öllu í þessum samanburði", segir White, „er þó stöðnunin sem nú er að færast yfir iðnað Vestur-Evróp\i.... Ef sama útþensla heldur áfram í at- vinnulífi Sovétríkjanna og sama stöffaun’n í Vestur-Evr- ópu, hafa Sovétrík’n næstum hundrað prósent tryggingu fyrir úrslitayfirburðum þegar frá líður. . . . Pó’itíska hættu- markinu verður náð þegar vaxandi fram’eiðsla undir- stöðuatvinnuvtganna kemur fram á sviði neyziuvarnings- ins“. H S^Siðurstaða he’mildarmanna White er sú, að Sövétríkin eigi um margar leiðir að velja og allar geti þær gert stjórn- um Vesturveldan.ua lífið leitt. Til dæmis gætu Kremlverjar aukið vopnafram’eiðsluna svo að Vesturveldin sprengdu s'g á því að hafa við Sovétríkjun- um í vígibúnaðarkapphlaup- Jaiu. Annar möguleiki er sá að sovétstjórnin taki að selja þjóðunum í Asiu og Afríku, sem dregizt hafa afturúr í tæk.niþróuninni, fra.mleiðslu- tæki í stórum stil og ráði þær Framhald á 9. slðu. * © Vöxtur iðnaðarframlejðslu (Sovétríkjanna síðan liemistyrjöldinni síðari lauk sést Iá þessu linuriti. Miffað er við framleiðslu síðasta fyrirstríðsársins, 1940, sem 100. I sovétlýðveidinu Karelíu eru fiskveiðar miklar, enda liggur þaff að hinu fiskauðuga /Hvíta Ciafi. Myndin er úr niffursuðudeild fiskiðnaðarstöðvarinnar í Bel- omor. Starfsstúlkurnar Lidia Matasova (til vinstri) og Julia Rugasjeva hafa báðar komizt í fiokk stakh- anoffverkafólks fyrir niikil afköst og vandaða vinnu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.