Þjóðviljinn - 22.08.1953, Page 4
1); — í>JÓÐVILJINN — Laugardagur 22. ágús^l953
Þjóðviljanum barst í gasr eft-
irfarandi athugasemd frá freð-
fisksútflytje.ndum:
„1 blaði yðar í gær er birt
rammgrein með fyrirsögn
„Hversu mikið er af óseldum
íslenzkum freðfiski í ©andaríkj
unum?“.
Eru það vinsanileg tilmæli
vor að þér birtið eftirfarandi
leiðréttingu í blaði yðar:
1 sambandi við skrif „Þjóð-
viljans“ undanfarandi daga, og
þá sérstaklega grein blaðsins
íþann 20. ágúst, með fyrirsögn-
inni „Hversu mikið er af ó-
seldum islenzkum freðfiski í
IBandaríkjunum“, þá leyfum
vér oss að taka eftirfarandi
fram:
1. Ríkisstjórn Islands sér
ekki um útflutning, né fram-
hvæmir neinar sölur á íslenzk-
um freðfiski til Bandaríkjanna.
Þessi mál eru eingöngu í hönd
um þriggja útflytjenda S.H.,
S.l.S. og Fiskiðjuvers Ríkisins.
2. Heildarútflutningur af
íreðfiski til Bandaríkjanna á
sl. ári nam um 17.000 smá-
lestir, og var hér ekki um
neinn óeðlilegan útflutning að
fæða.
i 3. Með því sölufyrirkomu-
lagi, sem talið er heppilegast
í Bandaríkjunum, verður ekki
Ihjá því komizt að hafa nokk-
urt magn óselt af freðfiski á
hverjum tima. Er þessi fiskur
seldur úr geymslum víða um
IBandaríkin.
4. Birgðir af íslenzkum fiski
í Bandaríkjunum í dag eru
með minna móti. 1 því sam-
ibandi má benda á að m/s
,,Lagarfoss“ er nú að lesta um
'1.500 smálestir af allskonar
ifiski fyrir þann markað.
5. Getgátur Þjóðviljans um
fyrirætlanir að ráðstafa fiski
til Evrópu, sem þegar er flutt-
Ur til Bandaríkjanna, eru al-
gjör fjarstæða.
6. Vér höfum reynslu fyrir
að skrif í blöðin, sem byggð
eru á vanþekkingu og misskiln-
ingi um afurðasölumálin, hafa
orsakað verðfall og aðra erfið-
leika, sem óhjákvæmilega geta
skaðað sjómenn, verkafólk,
framleiðendur og þjóðina í
heild.
Reykjavík, 21. ágúst 1953,
pr.pr. Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna
The Icelandic freezing plants
corp
Björn Halldórsson.
pr.pr. Samband ísl. samvinnu-
félaga
Helgi Pétursson
pr.pr. Fiskiðjuver ríkisins
J. Sigurðsson“.
Þjóðviljinn þakkar svörin við
fyrirspumum sínum, en bendir
á að tiokkuð skortir á að þau
séu tæmandi.. Sagt er að
„nokkurt magn“ sé æfinlega ó-
selt í Bandaríkjunum en það sé
nú ,,með minna móti.“ Væri
æskilegt að fá að vita hversu
mikið þetta magn er, hversu
lengi það hefur verið geymt,
hversu mikill geymslukostnað-
urinn hefur verið og hvort lík-
ur eru á því að það seljist,
þegar nýjar birgðir eru nú.flutt
ar til landsins, þótt í litlum
mæli sé. Einnig væri fróðlegt
að fá að vita hversu mikið af
því magni sem sent hefur verið
til Bandaríkjanna á undanförn-
um árum hefur ekki selzt á
neinu viðunanlegu verði.
Anægjulegt er að heyra að
þremenningarnir telja það „al-
gjöra fjarstæðu“ að flytja
gamlan freðfisk frá Bandaríkj-
unum til Evrópu á sama hátt
og tveggja ára gamalt kjöt var
flutt þá leið fyrir skemmstu.
Verðfall og erfiðleikar í af-
urðasölumálum stafa vissulega
ekki af blaðaskrifum heldur
af rangri stefnu, sem m.a. birt-
ist í því að Bandaríkjamönnum
er seldur fiskur langt undir
framleiðsluverði.
SKipAUTGERfl
RIKISINS .
Þorstelim
fer til Patreksfjarðar, Gjögra,
Hvalskers og Bíldudals á mánu
dag. Vörumóttaka árdegis í
dag.
Leiðin
liggur um
Bankastræíi
í bókabúð
K r o n
liggur um
Bankastræti
í Bpkabúð
K-r o ;n
Ferðamenn!
ÞEGAR ÞIÐ takið til ferðaútbúnaðinn,
þá munið eftir að taka eitthvað
skemmtilegt, með til að lesa.
BÓKABÚÐ vor hefur ávallt á boðsiól-
um mikið úrval innlendra og er-
lendra bóka, blaða og tímarita.
Góð h6k. blað eða tímarit eyltar áiægju ferðalagsins.
1
Á
jr
' • i'.
Hémðsntóf UMSK
i >
•• fer fram á íþróttavelli Aftureldingar á Leirvogstungubökkum laugardaginn ,,
" 22. ágúst kl. 16.00: Keppt verður í frjálsum íþróttum. Sunnudaginn 23. ágúst ..
kl. 14.00: Guðsþjónusta, séra Hálfdán Helgason, prófastur, frjálsar íþróttir,
” handknattleikur kvenna, starfshlaup, traktorsakstur. Mótinu lýkur í Hlégaröi "
kl 20.30 með keppnz í að leggja á borð.
Verðlaunaafhending og dans. .. AFTUítELDING
Kaupandi blaðsins skrifar:
ÞEGAR ég tók mér Þjóðviljann
í hönd í morgun (fimmtudag),
leit ég yfir Bæjarpóstinn með
nokkurri eftirvæntingu til að
sjá, hvort ekki kæmi einhver
athugasemd við greinarstúf, er
birtist þar í gær af því tilefni,
að verið er að brjóta niður múr-
ana umhverfis lóðirnar austan
j megin Tjarnarinnar og opna þær
til umferðar og unaðsauka fyrir
almenning. Greinarhöfundi þyk-
ir þetta átakanleg spjöll á mann-
virkjum, en hann sér þó fram á
enn átakanlegri spjöll á ung-
meyjum framtíðarinnar sökum
aukins samneytis við glæpa-
imenn, er sigla muni í kjölfar
þessara ráðstafana. Frá blaðsins
hálfu var engin athugasemd
gerð, og virðist því liggja beint
við að álykta, að ritstjórnin telji
meiningar bréfritarans athygl-
isverðar, ef ekki beinlínis talað-
ar út úr sínu hjarta.
Eg átti leið um Fríkirkjuveg-
inn í morgun, og þá notaði ég
tækifærið og skoðaði verksum-
merkin. Mér sýnist svæðið
fríkka til stórra muna við það að
þessar leiðinlegu girðingar fara.
Eg hélt lika, að það væri eitt af
þvi fáa, seir, allir A. jæja nærri
allir — væru sammála um, að
það sé einungis gleðiefni þegar
umgengnismenning bæjarbúa er
orðin svo þroskuð, að óþarft er
að bægja þeim með járngrindum
og múrveggjum ‘frá fallegustu
blettum bæjarins. Eg leit sem
sagt á nýbreytnina með velþókn
un og gat með engu móti eygt
neitt siðferðishrun yngismeyja
í falli þessara múra.
Astæðan til þess, að ég tek
mér penna í hönd nú, enda þótt
ég geri lítið að því að skrifa í
blöð, er þó ekki sú, að mér þyki
brýn nauðsyn að svara hinni fá-
víslegu grein — hún þarfnast
varla svars — heldur langar
mig að minna hlutaðeigendur á
það í fullri vinsemd, að sumt
það, sem á pappír er fest, á ekki
erindi lengra en í bréfakörfuna.
Einn af kaupendum
Þjóðviljans.
Reykjavík 20. 8. — 53.
Kæri Bæjarpóstur.
NÝLEGA var auglýstur þýzkur
varalitur fljótandi, sem sagður
var kossekta og átti að endast
allan daginn. Við glöptumst á
að kaupa þennan andskota fyrir
kr. 40.00. Það 'ér skemmst frá
að segja, að hann entist ekki
stundinni lengur á manni og
var alls ekki kossekta og hafði
enga þá kosti til að bera, sem
auglýstir voru.
Tvær bálillar.
í DAG er 20. ágúst og ég heyri
alla vera að tala um það að
þetta sé merkilegasti dagur í
sögu íslendinga, nú eigi íslend-
ingar að snúa heimsmálunum
til betri vegar, koma þjóðunum
til hjálpar, píramídinn hafði
spáð því, og þá er ekki að sökum
að spyrja, úr því píramídinn
segir það, sem sé dagurinn er
upp runninn. En hvað er það
sem gerist? Allir eru að spyrja
um það. Mér skilst að eitthvað
hafi átt að ,gerast í lífi íslend-
inga, en allar fréttir koma utan
úr heimi. Og það er sannarlega
nóg um að vera, ekki vantar það.
En efíir er aðeins að vita
hvernig við íslendingar grípurn
inn í þetta allt saman og snúum
öllu til betri vegar. í dag er
stundin upp runnin, eða hvað?
Við höfum okkar píramídaspá-
mann, og veit hvernig þetta ber
að skýra. Nú bíðum við með
öndina í hálsinum. En það er þó
verst ef við horfum of fast á
píramídann að við sjáum ekki
hvar við stöndum, íslendingar.