Þjóðviljinn - 22.08.1953, Qupperneq 8
aiflteí&'Sasjðtfi-jg.
&) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 22. ágúst 1953
JOSEPH STAROBIN:
Viet-Nam sækir fram til
ís og frelsis
Lao tók þátt í ágústbyltingunni 1945 og það var ekki fyrr en í
marz næsta ár, að franski r.ýlenduherinn gat brotizt aftur til Luang
Prabang og þá með aðstoð hermanna Kúomintangs.
Ógurlegt blóðbað hófst eftir að frönsku hersveitirnar komu aftur
til höfuðborgarinnar. Franskar herflugvélar vörpuðu sprengjum á
tugþúsundir óbreytíra borgara, sem voru á leið yfir Mekong, hið
mikla fljót sem rennur gegnum landið endilangt, þaðan um Kom-
bodsju út í hafið við Saigon. Byltingarstjórnin var neydd í útlegð
til Thailands, sem þá laut tiltölulega frjálslyndri stjórn. Sömu
ieppirnir, sem höfðu þjónað Frökkum fyrir stríð og Japönum á
stríðsárunum, voru settir aftur í embætti sín.
-
Dokku blettirnir á kortinu eru þau héruð Viet-Nams sem nú eru
frjáls. Þverstrikuðu reitimir eru þau héruð í Viet-Nam, Pathet
Lao og Khmer, sem skæruliðar hafa á valdi sínu.
En skæruhernaðurinn hætti aldrei og í ágúst 1950 var þjóðfrels-
isnefndin Neo Itsala stofnuð á þingi, þar sem um 100 fulltrúar
úr öllum hlutum landsins voru staddir. Formaður nefndarinnar
er Souphanouvong fursti, mjög athyglisverður maður, sem lauk
prófi í verkfræði við háskólann í París fyrir stríð. Það var hann
sem undirritaði sáttmálann um bandlag við Viet-Nam.
Keomeas er sannur fuiltrúi þjóðar sinnar. Hárið biksvart, and-
litið brúnt og brosið sem leiðir í ljós röð skjannhvítra tanna. Kam-
bodsja hét áður Khmer og andspyrnuhreyfingin hefur tekið upp
þetta gamla heiti. Fjórar milljónir manna búa í þessu auðuga
landi, sem liggur milli suðurhluta Viet-Nams og Thailands og
liggur í norðri að Pathet Lao. íbúarnir eru afkomendur monkhmer-
þióðanna, sem réðu ríkjum í víðlendu keisaradæmi á 11. og 12 öld.
Hinir yfirgefnu bæir þeirra í Ankgor eru heimsfrægir. Þetta fólk
«r skylt malajum; það talar pali, sem má rekja til sanskrítur og
menning þeirra ber mikinn svip af búddatrú. Leifar chamþjóðar-
innar, sem eitt sinn bjó í landi Viet-Nams og átti sér nýlendur
viða, búa þar einnig.
Afkoma Khmerbúa byggist nær eingöngu á landbúnaði og landið
er mesta nautgripaútflutningsland Suðaustur-Asíu. Fílarnir í
Khmer eru frægir. Hin frönsku verzlunarfélög hafa um langan
aidur rakað saman gróða á sölu fisks frá hinni stóru Tonlesapeyju,
og gróðinn hefur ekki verið minni af hrísgrjónum og svo náttúrlega
gúmmíinu. Eitt þessara félaga Combodia Company, hefur hvorki
meira né minna en 22.366 hektara lands til umráða.
Náttúrlega er hið svonefnda sjálfstæði þessarar þjóðar hreinasta
firra og blekking, því að fulltrúi frönsku stjórnarinnar í landinu
fer með öll völdin og franski herinn í Khmer er nú fjölmennari
en allur franski herinn var í Indókína fyrir strið. Það er gamalt
berbragð nýlenduherranna að egna Khmerana uppámóti Viet-
nömum og beita eaodoisttrúarflokknum í Suður-Viet-Nam gegn
Fimmtugui í dag:
Stefón Runóifsson
Hálf öld er alltaf merkistíma-
mót í æfi manns það hefur oít-
ast rað:zt hvað í manninum
býr, hvað hann hefur afrekað
og hvers má af honum vænta.
Það er því eðlilegt að staldrað
sé við og örlítið litið til baka
yfir farna leið.
I dag, 2. ágúst, fer einn af
okkar áhugasömustu íþrótta-
mönnum fram hjá þessum ,mílu
steini', en það er Stefám Run-
ólfsson sem oft kennir sig við
Hólm, fæðingarbæ sinn í Land-
broti. Stefán getur litið til baka
yfir langan íþróttaferil. Hann
var ágætur glímumaður, og
ennfremur ágætur frjálsíþrótta
maður, sérsaklega hlaupari.
Um langt skeið starfaði hann
í Glímufélaginu Ármanni. En
iþað sem hefur mest haldið
nafni Stefáns á lofti eru af-
skipti hans af Ungmennafélagi
Reykjavíkur. Hann hefur verið
svo að segja frá byrjun lífið
og sálin í þeim félagsskap. Þó
félagið sé ekki nema rösklega
10 ára gamalt þá hefur það
náð iþvílíkum árangri að fá eða
engin félög hafa á fyrstu 10
árum afrekað slíkt bæði íþrótta
lega og félagslega. Stefán hef-
ur verið bjartsýnn og það er
einn af kostum hins góða for-
ustumanns. Og Stefán hefur
verið djarfur í framsókn sinni
fyrir þau málefiai sem hann
hefur beitt sér fyrir.
Stefán er oft raunsær í at-
hugunum, og ályktunum og
e.t.v. er það ástæðan fyrir því
hve liðtækur han hefur orðið
sem forustumaður og félagi.
Stefán er óvenju hreinskilinn.
Hefur það oft skapað honum
stundaróvinsældir. Menn eiga
oft svo erfitt með að heyra
sannleikann og viðurkenna
hann og grípa þá til þess sem
sízt skyldi. En þetta er einn
af hinum mörgu kostum Stef-
áns sem íþróttaforustumanns.
Um langt skeið var Stefán for-
maður Frjálsíþróttaráðs
Reykjavíkur, og leysti það vel
af hendi. Hann hefur gegnt
ýmsum nefndar- og ábyrgðar-
störfum fyrir íþróttamálin, og
nú síðast var hann kjörinn
fyrsti varamaður í fram-
kvæmdastjórn l.S.Í.
Stefán hefur alla tíð verið
trúr hugsjón og starfsanda
ungmennafélagshreyfingar-
innar.
Hann hefur kunnað að meta
það þjóðlega og félagslega sem
hún hefur boðið æsku lands-
ins uppá. Hann hefur liaft trú
á að þessa hugsjón mætti
bjóða reykvískri æsku, og að
því er bezt verður séð með
góðum árangri. Má þar nefna
það djarfa tiltæki hans að
sanna höfuðstaðarbúum að það
er hægt að halda uppi vinlaus-
um skemmtunum ef vilji ráða-
manna og stjórn skemmtananna
er örugg. Á þessum tímamót-
um getur Stefán því litið ti!
■ baka og sannfært sjálfan sig
um að allt þetta fórnfúsa á-
hugastarf -liei'ur borio árangurL
að það hefur stuðlað að því
að fá fleiri með í íþrótta- og
ungmerinastarfið. Góðum í-
þróttaforustumanni eru það
beztu launin. Beztu þakkirnar.
íþróttasíðan árnar Stefáni
allra heilla í tilefni af
afmælinu, og vonar að íþróita-
hreyfingin megi njóta sem
lengst starfskrafta þessa fimm-
tuga unglings.
Haínarstræti 11.
Hollenzka leikkonan
Charon
Bruse
syngur og dansar í
G.T.-húsinu í kvöld.
Ennfremur syngja
þau satman Charon
Bruse og Haukur . .
Morthens
Hljómsveit Carls Billich leikur
Aðgöngumiðar frá kl. 6.30. S.K.T.
Skrifstofnstálka
Æfður vélritari með góðri menntun óskast til
opinberrar stofnunar. Umsóknir merktar „1. nóv-
ember“ leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 26.
þ. m.
ÞJÓÐVEUANN vantar krakka
til að bera blaðið til kaupenda í
SKIÓLIN
ÞIÓÐVIUINN. sirai 7500