Þjóðviljinn - 05.11.1953, Síða 1

Þjóðviljinn - 05.11.1953, Síða 1
Fimmtuilagur 5. nóvember 1953 — 18. árgangur — 249. tölublað HRAKLEG ARAS RÍKISSTJÓRNARINNAR A BÁGSTÖDDUSTIJ ÞEGNA ÞJÓÐFELAGSINS Tryggingasfofnunin látin draga skatta frá lífeyri gamalmenna og öryrkja Rikisstjórnin hefur nú gert ótrúlega svívirðilega árás á gamalmenni og öryrkja. Hún hefur mælt svo fyrir aö vangoldin þinggjöld skuli dregin frá elli- og örorkulífeyri þessa fólks. Er hér um að ræða mjög smávægilegar upp- hæðir fyrir ríkissjóð, en þessi fruntalega innheimta þeirra getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir afkomu margra þeirra sem erfiðast eru settir í þjóðfélaginu og veröa aö gæta sín vandlega áður en hver króna er hagnýtt. Það var tollstjórinn í Reykja- .vík sem bar fram þá 'kröfu við Tryggingastofnun rikisins að tekjur þeirra bótaþega sem ættu vangoldin þinggjöld skyldu skert sem skuldinni svarar. Trygging- arstofnunin áfrýjaði kröfunni til félagsmálaráðherrans, Steingríms Steinþórsson- ar, og það stóð ekki á svarinu hjá honum: Sjálf- sagt að iganga á þennan hátt að því fólki sem býr margt _ við eriiðastar aðstaeður í þjóðfélaginu. Er vart hægt að hugsa sér hraklegri framkomu — og hefði flestum þótt sjálfsögð afgreiðsla að þing- gjöld yrðu felld niður hjá þessu fólki. Elli- og örorkulífeyrir er rúm- ar 500 kr. á mánuði á einstakl- ing, og mega menn hafa jafn-, háar tekjur annars staðar frá án þess að lífeyririnn skerðist. Mætti öllum vera ljóst hvernig ganga muni að lifa á slíkum upphæðum í Reykjavík eins og er komið dýrtíð og verðlagi. Hefði sannarlega ekki verið úr vegi að hátekjumaðurinn Stein- grímur Steinþórsson hefði hugs- að um hvernig honum myndi ganga að lifa af slíkri upphæð áður en hann ákvað að láta ganga að þessu fólki. Til frekari skýringar fer hér á eftir bréf Tryggingastofnunar- innar um þetta mál: „Reykjavík, 9. október 1953. Tollstjórinn í Reykjavík hefir gert þá kröfu til Tryggingastoín- uriar ríkisins, að haldið verði eftir af elli- og örorkulífeyri þeirra bótaþega í Reykjavík, sem eiga vangoldin þinggjöld, þannig að nægðj til lúkningar hinum vangreiddu gjöldum. Tryggingastofnunin hefir bor- ið undir félagsmálaráðuneytið hvort stoínuninni væri skylt að verða við þessari kröfu toll- stjóra, og telur ráðuneytið áð svo sé. Samkvæmt framanrituðu hefir Tryggingastofnunin greitt þau vangreidd þinggjöid fyrir yður, er hér um ræðir, til tollstjórans í Reykjavík. Tryggingastofnuninni er ljóst, að mánaðariegur lífeyrir gamal- menna og öryrkja er ekki hærri en svo, að það hlýtur að valda bótaþegum erfiðleikum ef gjöld þessi eru dregin frá einni mán- Framhald á 8. síðu. 'ÆFIt Andstæðingar Eisenhow- ers sigursælir í kosningum Stjórnarandstöðuflokkur Bandaríkjanna, demókratar, sigraöi hvarvetna í kosningum í fyrradag. í tveim fylkium fóru fr.am reglulegar fylkiastjórakosningar, víða voru kosnir borgarstjórar, dómarar og aðrir embættismenn og í einu kjördæmi fór fram aukakosning til fulltrúadeildar sambandsþingsins í Washington. Demókr.atar unnu þær fernar kosningar, sem helzt voru taldar myndu gefa bendingu um hvert straumur kjósenda liggur. Fram- bjóðendur þeirra voru kjömir fylkisstjórarNew Jersey og Virginia. í yNew Jersey hafa republikanar haft fylkisstjóm- ina siðan 1940. Robert Wagner yngri, sonur eins kunnasta samstarfsmanns Roosevelts heitins forseta, vann borgarstjórakosninguna í New York. Hann bauð sig fram fyrir demokrata. I sjötta fulltrúadeildarkjör- dæmi New Jersey vann demo- krati aukakosningu. Republikan- ar höfðu haldið kjördæminu í 21 ár. Lennart Hall, forseti mið- stjórnar republikana, sagði í Washington í gær að ekki þyrfti neinum blöðum um það að fletta að flokkurinn væri illa á veg'i staddur. Þingmenn republikana kenna ósigurinn því að Eisen- hower heíur ekki staðið við kosningaloforð sín um að læklca skatta. Loks kennir MacCarthy öldungadeildarmaður því um að flokkurinn hafi ekkj gert nóg úr afrekum sínum í baráttunni gegn kommúnismanum. Mossade»h Mossadegh fyrir rétt Talsmaður Iransstjórnar skýrði frá því í Teheran í gær að réttarhöld yfir Múhameð Mossadegh, t’yrrverandi forsætisráð- herra, myndu hefjast á þriðjudag eða miðvikudag i næstu viku. Saksóknari núverandi stjórnar hefur krafizt þess áð Mossadegh, sem er hátt á átt- ræíisaldri, verði dæmdur til dauða fyrir svik við keisarann. fUÓÐVIUINK Flokksfélagar og vinir Pjóðviljans. I dag er aðeins niánuður þangað til dregið verður í happdrættinu. Áhugamenn, notið vel þennan tíma tU að selja happdrættis- mlða, notið þessa elnu viku, sem hin glæsilega happdrættisútstiU- ing stendur yfir í glugga Mál- arans við Bankastræti og bjóðið vegfarendum liappdrættismiða. Deildarstjórnir, skipuleggið starf deildarfélaganna fyrlr Þjóðvilja- happdrættið sem bezt þið getið, og sjáið mn að enginn félagi sé óvirkur. Sjáið enn fremur um að við útstUIingargluggann séu eln- hverjir deildarfélagar daglega ein- hverja stund til að selja happ- drættismiða. Setjið ykkur í sam- band við skrifstofuna á Þórsgötu 1 og Skólavörðustíg 19, símar 7500, 7510, 81077. Stjóm Æ F K YJ r W skorar á alla t’á félaga, sem hafa undir höndum innheimtublokkir fyrir L,andnem,ann að leggja gig alla fram rfð að heimta inn í kvöld kl. 7—8.30 og gera síðan skil á skrifstofunni strax á eftir. Félagar, sem ekki Iiafa blokkir, sækl þær á skrifstof- una fyrir kl. 7. Versnandi söln- horíur í Þýzkal Þýzkir toqarar alia vel við Nosður-Noreg Enda þótt ísfiskmarkaður hafi verið góður í Þýzkalandi að und- anfömu er llíclegt að hann verði mun lélegrj á næstunni þar sem þýzkir togarar afla nú mjög vel við Norður-Noreg og mikið aE fiski berst því á markaðinn. Þýzku togararnir sem eru á veiðum v:ð Norður-Noreg fiska aðallega karfa og svo nokkuð af ufsa. Er afli á þessum slóð- um með allra bezta móti. Sölutímabil íslenzku togar- anna í Þýzkalandi er útrunnið um m'ðjan nóvember en nokkr- ar horfur munu á að það íaist fram'.engt til 15. des. n. k. Nf fraivthalds- saga 1 dag hefst í Þjóðviljan- um ný framhaldssaga „Er hrossum ekki lógað", eftir bandaríska rithöfundiim Horace McCoy. Sagan ger- ist í Hdllywood, háborg baadarískrar kvikmynda- menningar, og lýsir á kald- hæðinn og áhi'ifamikinn liátt ástandinu þar og því sérstæða, bandaríska fyrir brigði sem nefnist mara- þondans. Þjóðviljinn hefur áður birt sögu eftir Horace McCoy, sem naut mikUla vinsalda. Þessl nýja saga er stutt, en húu er ekki síður spennandl en hin fyrri var. Fylgist með þessari „harðsoðini" sögu frá byrj- un. Víðurkenning á hinu nýja Kinafrum- ilyrði þess að dragi ur vi Faðlr plastefnanna fékk N óbels ver ðlaun Vísindamaöur sá, sem nefndur hefur veriö faðir plast- efnaiðnaðarins, hefur fengiö Nóbelsverðlaunin fyrir efna- fræðiafrek. 7/7 einskis aS rœSa Þýzkctlahd ef Vesfur veldin halda fast viS V-Evrópuherinn í orðsendingu sinni til Vesturveldanna segir Sovét- stjórnin aö frumskilyröi þess að unnt reynist að draga úr viðsjám á alþjóðavettvangi sé aö hinu nýja Kína sé ekki lengur meinað að taka það sæt-i meöal þjóðanna sem því ber. Sænska vís'ndaakademían veitti í gær þýzka prófessornum Herman Staudinger verðlaunin. Hann er nú hættur störfum en var við háskólann í Freiburg. Verðlaunia fær Staud nger. sem er 72 ára gamall, fyrir rannsókuir sínar á samsetningu efna með stórvim same'ndum. hessar rannsóknir liggja til grundvallar hinum mikla og ört vaxandi plastefnaiðnaði síðustu ára. Krabbameinssmásjá. Vísindaakademípa veitt; hol- lenzka prófessorniun Fritz Zern- ike í Groenligen . Nóbslsverð- launin í eðlisfræði fyrlr að finna upp smásjá, þar sem Ijós- öldur en ekici l'tarefni eru not- aðar til að gera frumur sýuí- legar. Smásjá þessi er einkum notuð við krabbameinsranti- sóknir. . Plver Nóbelsverðlaun nema í ár 172.000 sænskum krónum eða meira en hálfri millj. ísl. kr. Orðsendingin hefur ekki enn ver'ð birt í heild en skýrt var í gær frá efni hennar í höfuðborg. um Vesturveldanna. •Fimniveldafundur og fjór- voldafundur. Sovétstjórnln ítrekar tillögu siaa um að haidnir verði tveir stórveldafundir. Annar verði fimmveldafundur með þátttöku Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands og Kína. Umræðu- eí'ui á þeim fundi verði helms- málin i lieild og ráðstafanir til að draga úr viðsjám milli stór- yeldanna. Lagt er t'.l að hinn fundurlun, sem sömu ríki að Kina undan- sk'ldu sitji, fjalll um friðar- samninga við Þýzkaland og sameiningu landsins. Saniirngur Frakklands <>g Sovétríkjanna. í orðsendÁigu sinni biður Sovétstjórnin Vesturveld'n að skýra afdráttarlaust frá því, hvað þau ætlist fyrir með samn- ing sinn við stjórn Vestur- Þýzkalands um stofnun Vestur- Evtópuhers með þýzkri þátt- töku. Segir hún að ef ætlun þeirra sé að reyna að fá þann samning staðfestan sé þýðingar- laust að halda ráðstefnu um Þýzkaland. Stofnun Vestur- Evrópuhers myndi endanlega koma í veg fyrir sameiningu þess. 1 þessu sambandi er vikið að samn'ngi Sovétríkjanna og Frakklands frá 1844 um sam- stöðu gegn hættu af endurvák- inni þýzkri hernaðarstefnu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.