Þjóðviljinn - 29.11.1953, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.11.1953, Blaðsíða 1
VILIINN Suunudagur 28. nóvember 1953 — 18. árgangur — 270. tölublað Sovétorðseiidingin vekur fögnuð í París og London, en vonbrigði vestan hofs Malénkoff rœSir viS sendiherra Brefa i Moskva Stjórnmálamenn og blöö í Bretlandi og Frakklandi fara ekki dult meö fögnuö sinn yfir síöustu orðsendingu Sovét- ríkjanna, og telja engan vafa á, að afleiðing hennar veröi ráöstefna utanríkisráðherra fjórveldanna og aukin von um samkomulag. í Bandaríkjunum hefur orösendingunni hins vegar veriö tekiö mjög fálega, og er ekki reynt aö dylja þau vonbrigöi, sem hin aukna von um samkomu- lagsumleitanir hefur vakiö í Washington. — Malénkoff, forsætisráöherra Sovétríkjanna, ræddi í gær viö sendi- hen-a Breta í Moskva. Talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær, að brezka stjórnin heíði þegar sent stjómum Frakklands og Banda- ríkjanna bráðabirgða álitsgerð rm orðsendingu sovétstjórnarinn- ar, þar sem íallizt var á, að utanríkisráðherrar stórveldanna fjögurra kæmu saman á fund til að ræða um deilumál í F.vrópu og þá fyrst og fremst Þýzkaland. Aður hafði brezka utanríkisráðu- neytið lýst yfir, að orðsending sovétstjórnarinnar hefði vakið fögnuð brezku stjórnarinnar. Malénkoff ræðir við Hayter Malénkofí hefur rætt við sendiherra Breta í Moskva, sir William Hayter. Er það í fyrsta sinni sem forsætisráðherra Sov- étrikjanna ræðir við e'nn af sendiherrum Vesturveldanna. síð- an Stalín lézt. í London var því haldið fram, að hér hefði ein- ungis verið um að ræða kurt- eisisheimsókn og sir Wii’iam hefði ekki verið falið að ræða nein sérstök mál við Malénkofí. Reuter segist þó hafa cftir góðurn heimildum, að umræð- urnar hafi snúizt um orðsend- ingu sovétstjórnarinnar og þau mál, sem hún fjallar um. Bæði í London og París er það talið fullvíst, að úr utanríkisráð- herrafundinum verði. Það virð- N Ú E R U é I) A G A K I'AR TIL DKEGIÖ VEKÐUK I ÍIAPPDKÆTTI ÞJÓDVIUJANS ist ljóst af þeim viðtökum sem sovétorðsendingin hefur fengið í Washington, að Bandarikjastjórn sé þvert um geð að utanríkisráð- herrafundur verði haldinn, en í París er talið, að fulltrúar Bret- lands og Frakklands muni leggja mjög fast að þeim Eisenhower og Dulles á Bennúdafundinum að láta af andstöðu sinni við fundinn. í París er enginn vafi talinn á, að á væntanlegum ut- anríkisráðherrafundi muni full trúar Frakka Jeggja höfuðá- herzlu á Jndó Kína til að finna leiðir til að binda endi á stríðið þar. Franska stiómin ér_ sögð meira en fús til að utanrikis- ráðherra Kína ræði við hina ut- anríkisráðherrana, þegar og ef fjallað verður um Kóreu, Indó Kina og önnur As.'u-málefni. Skíptar skoðar.ir í blöðum austan hafs og vestan Hin ólíku viðhorf til sovétorð- send:ngarinnar, sem fr.am hafa •komið í ummælum stjórnarfull- trúa austan hafs og vestan, end- urspeglast í ritstjómargreinum heimsblaðanna í gær. Nær öll blöð Vesur-Evrópu fagna orð- sendingimni, en bandarísku b'.öð- in telja rnikinn vafa á, að nokk- uð gott geti hlotizt af henni. Sum brezku blöðin, eins og t.d. Neivs Chroaicle láta í Ijós vonbrigði hvernig viðtökur orð- hefur íengið í Was- yfir því, sendingin hington. Hlt að friðarvonir giæðist New York Times segir orðsend- inguna vera herbragð gert í þeim tilgangi einum að hindra hervæð- ingu Vestur-Þýzkatands, og illt Syngman eg Sjang viSja bandalag frjálsra þjéða! Sjxigman Rhee og Sjang Kajsék gáfu út sameiginlega yfirlýsingu þegar viðræðum þeirra lauk í gær. 1 yfirlýsing- unni er talað um knýjandi nauð syn þess, að öll lrin frjálsu lönd Asíu myndi með sér banda lag til baráttu gegn kommún- ismanum. Þetta bandalag ætti að eiga vísan siðferðilegan og efnahagslegan stuðning allra frjálsra ríkja, einkum þeirra sem liggja að Kyrrahafi, s.s. Bandaríkjanna. Farið var hörð- um orðum um arðrán Rússa af þjóðum Asíu sem þeir beitttu fyrir sig í tilraunum sínum til að leggja undir sig hciminn. Líklegt talið að Herriot verði kosinn forseti Hefur vísan stuðning kommúnista, sósíaldemókrata og Róttækra Taliö er líklegt, aö hinn aldni forseti franska þjóöþings- ins. Edouard Herriot, mun veröa kosinn forseti landsins, ef hann gefur kost á sér. Það er vitað, að þingmenn kommúaista munu grciða Herriot at- f kvæði, ef hann gefur kost á sér og hann á einn- ig vísan stuðning þingmanna f sósialdemó. | krata og Rót j tæka flokks-^_ ins, síns eig- Herriot in floklcs. Forsetakjörið mun fara fram á sameiginlegum fundi be^ja þiugdeilda í Ver- sailles 17 n.m. Ástæðan til þess, að þing- menn kommúnista munu styðja Herriot, er sú, að hann hefur tckið mjög eindregna afstöðu gcgn fyrirætlununum lun stofn- un Vestur-Evrópuhers cg her- væðingu Vestur-Þýzkalaads. Gefi liann kost á sér og verði hann kosinn, mun það talinn mikill sigur fyrir andstæðinga V-Evrópuhersins og verða til að efla enn baráttuna gegn hon ur.i. IfiakkunnnS Deildarfundir verða í öllum* deildum annað kvöld k'ukk-- au 8.30 á venjulegum s.töðum. Mjög áríðandi mál á dagskrá. STJÓRNINÁ væri, ef hún vekti nýjar vonir um að samkomulag gæti tekizt. Þó væri enn verra ef hún yrð: til að auka sundrungu milli Vest- urveldanna. O'Neill látinn Bandariska leikskáldið Eugene O'Neiil lézt í fyrrinótt á sjúkra- húsi í Boston, 65 ára gamall Banamem hans var, lungnabólga O'Neill var tvímælalaust eitt mesta skáld, sem Bandaríkin hafa eignazt og meðal beztu leikskálda heimsbókmenntanna. Hann samd’ m.'kinn fjölda ieikrita og voru meira en 40 þeirra sýnd; mörg þeirra í flestum menningarlönd- um heims. Að loknu háskóla- námi gerðist O'NeilI sjómaður og sigldi víða um höf. Viðaði hann þá að sér efni í mörg fyrstu leikritin. Happdrættið Kom að því sem Krukkur spáði. Njarðardeild var ekki lengi ein að gaufa við markið. Tvær deildir auk hennar hafa farið fram úr því og munar minnstu að Boliadeild og Skerj- arfjarðardeild hafi alveg náð henni. En það hafa líka fleiri deildir getið sér góðan orð- stír. í síðustu viku hefur t-d. Hlíðadeild sveiflað sér úr 25 I 83% Barónsdeild úr 46 í 72, Valladeild úr 42 í 62, Langliolts deild úr 22 í 55 o.s.frv. — Yfir- leitt sýnir skýrslan á öftustu síðu í dag að skriður er kominn á deildarsamkeppnina, enda ekki seinna vænna, því nú er aðeins vika til stefnu. —- Þá er að duga vel fyrir þær deildir, sem til þessa hafa farið sér hægt, og ekki er að efa dug- þeirra þegar þær taka á honum. stóra sínum. En þetta fáum við- einmitt að sjá næstu dagana, því hér eftir verður daglega birtur árangur deildanaa og' sömuleiðis daglega tekið á móti peningum fyrir selda happ- drættismiða þar til dregið verð- ur. — Tökum vel á þessa viku — og þá er markinu náð. Fundl Helmsfriðar- róðsins lauk í gær Krefst þess að alþýðustjórn Kína verði viðurkennd og hindruð verði her- væðing Þýzkalands Fundi Heimsfriöarráösins í Vín lauk í gær. Ráöið sam- þykkti ályktun, þar sem þess er krafizt, aö alþýöustjórn Kína fái aöild aö utanríkisráöherrafundi stórveldanna og hætt veröi viö fyrirætlanir um aö endurhervæöa Þýzka- land. í ræðu sem rússneski rithöí- undurlnn Ilja Ehrenburg flutti á íundinum komst hann þannig að orði, ,a.ð margir stjórnmála- menn riotuðu nú slíkt orðaval í ræðum sínum zað hægt væri að halda, að þeir hefðu kynnt sér ræki- lega áskorun- ina, sem sam- þykkt var á fund; Fr.'ðar- ráðsins i Búda- pest, eða jafn- utan að. Kröf- ur friðarhreyfingarinnar hafa fengið slíkan hljómgrunn meðal a’mennings í heiminum, að stjórn- málamenn á Vesturlöndum hafa neyðzt til að taka þær upp í orði. Hinsvegar skorlir mik:ð á, að þeir fylgi þeim eftir í verki. Ehrenburg sagði: Þjóðir heims bíða eftir ákvörðunum okkar. Þær vita, ,að stjórnmálamenn í öllum löndum verða að reikna með okkur. Við höfum þegar neytt marga þeirfa U1 að skipta Ilja Ehrenburg vel lært hana um orðaval, til að tala um írið- inn. Nú verðum við að neyða þá il að sýna sinnaskiptin í verki, til að semja frið. Allir ræðumenn á fundinuni lögðu áherzlu á, að fr'ðarvilji þjóðanna hefði aldrei komið glöggar í ljós en á síðustu mán- uðum. Hins vegar hefði cnn ekki dregið úr ófriðarhættunni, öll mikilvægustu deilumálin væru enn óleyst, enn hefði ekki cinu sinni tekizt að skapa varanlegan írið í Kóreu. Þv; meiri ástæða væri til þess, að stórveidin fimm kæmu saman á fund t:l samn- inga. ElaiifSfökur í Aþenu Gríska lögreglan tilkynríti í gær, að fjórir af leiðtogum hias “bannaða kommúnistaflokka- landsins hefðu verið handtekn- ir í Aþenu í gær. Einn þeirra handteknu var sagður fulltrúi í miðstjórn flokksins, sem starf- ar á laun. AfgreiSsla happdrœffisins er opin ailan daginn i dag á SkólavörSusfig 19, neSsfu hœ5 (Afgr. ÞjóSvHjans). - Ger/ð skil. DregiS 5. desember

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.