Þjóðviljinn - 06.12.1953, Blaðsíða 11
Sunnudagur 6; desember 1953 —■ ÞJÓÐVILJINN (lt
ISLENZKA ÞJOÐVELDIÐ
Framhald af 7. síðu.
manska ættsveitarskipulagi,
merkilegustu staðreynd ger-
manskrar forsögu, bann sess, er
því ber í tilveru germanskra
þjóða og sýnir fram á, hvernig
þetta ættsveitarskipulag festir
rætur í breyttri mynd á Islandi,
hvernig molnar úr því við að
flytjast yfir íslandsála. Þá lýs-
ir hann gróðursetningu ætt-
sveitarskipulagsins á íslandi, ó-
hjákvæmilegri þróun þess og
séreinkennum, en hefur jafnan
til samanburðar þjóðfélagsfram-
vindu nágrannalandanna, rekur
bæði það, sem sameiginlegt er
og sundurleitt í þróun hins ís-
lenzka þjóðfélags og grannland-
anna. Höfundurinn hefur svo
fullkomin tök á efni sínu, er-
lendu og innlendu, að margir
kaflarnir eru hin lostætasta
lesning, má þar t. d. benda á
kaflann Sigur siðmenningarinn-
ar.
Það hefur löngum verið kyn-
fylgja íslenzkrar sagnaritunar,
að hún hefur verið bundin svo
mannfræðinni, að heilir kaflar
íslandssögunnar hafa fremur
virzt vera sundurleitir ævisögu-
þættir en þjóðarsaga. Birni Þor-
steinssyni hefur tekizt undar-
lega vel að skrifa sögu íslenzku
þjóðarimiar, svo að hún birtist
lesandanum sem lífræn heild,
hver þáttur íslenzks mannfé-
lagslífs fléttaður við annan í
lifandi samhengi. Biörn Þor-
steinsson bútar ekki í sundur
hinn sögulega veruleika tíma-
bilsins og hleður síðan kubb-
unum hverjum á annan ofan,
miklu fremur væri hægt að
líkia bók hans við listofna voð,
þar sem hver þráður er öðrum
tengdui'.
En því fer þó fjarri, að ís-
Ienzka þjóðveldið sé ópersónu-
leg saga þjóðfélagshátta og
stofnana. Höfundurinn dregur
síður en svo úr hlut éinstakl-
inganna, athöfnum þeirra og
gerðum. Bókin er full af skarp-
legum persónuathugunum og
mannlýsingum. Og þegar hann
gerir upp reikningsskilin í lok
bókarinnar og kannar orsakir
þess harmleiks er lauk með upp-
gjöf þjóðveldisins, þá metur
hann ekki aðeins hlut hinnar
ópersónulegu þróunar íslenzka
þjóðveldisins, heldur sýnir hann
fram á, að íslenzka yfirstéttin,
hofðingjar Sturlungaaldar brugð
ust sögulegu hlutverki sínu: að
skapa innlent ríkisvald þegar
það var prðip- ’óufnflýjanleg
nauðsyn vegna breyttra þjóð-
(élagshátta., Höfunduiýnn lýkur
bókinni með þessum orðum og
niðurstöðum: ,,Hér var þjóðfé-
lagsþróunin komin á það stig,
að yfirstétt hafði vaxið upp í
landinu, en hún hafði hvorki
manndóm né metnað til þess að
skapa innlent ríkisvald og leit-
aði erlendrar ■ aðstoðar til þess
að koma stofnuninni á fót. Á
þennan hátt lítillækkaði hún
sjálfa sig og gróf völdum sín-
um og virðingu gröf og ofurseldi
þjóð sína, því að sjálfan sig
getur enginn selt nema með
tapi.“ Björn Þorsteinsson reyn-
ir ekk; að afsaka verk höfð-
ingjakynslóðar 13. aldar með
því að kenna ópersónulegum
öflum um glötun stjálfstæðis-
ins. Hann leitar orsakanna í
sögulegum athöfnum og at-
hafnaleysí þeirra, er sköpuðu
íslenzka sögu.
Bók Björns Þorstéinssonar er
með þeim hætti, að hún hlýtur
að vekja miklar umræður í
hópi kunnáttumanna. Hún er
svo nýstárleg um margt, eggj-
ar án efa marga til andmæla
um ýmig atriði, svo sem vænta
má um5 tímabil, þar'sem heim-
ildir allar eru á strjálingi og
vafaatriðin liggja við hvert fót-
mál rannsóknarans. En þetta
frumverk hins ung.a sagnfræð-
ings er skrifað af svo mikilli
leikni í aðferðum rannsóknar
og framsetningar, að íslenzkum
fræðimönnum á þessu sviði
ætti að vera það bæði Ijúft og
skylt að meta það að verð-
leikum, eh sleppa honum ekki
með gagnrýni þagnarinnar einn-
ar. íslenzk sagnfræði kemst ald-
rei á neinn rekspöl fyrr en frjó
gagnrýni verði tekin upp í
vinnubrögð sagnfræðinga.
Um leið og ég þakka Bimi
Þorsteinssyni fyrir bókina vil
ég láta í Ijós von mína, að biðin
verði ekki alltof löng eftir
framhaldinu. Honum treysti ég
manna bezt til að skrá þá heild-
arsögu íslands, sem alþýða
þessa lands hefur beðið eftir
svo langa stund.
Sverrir Kristjánsson.'
'------------------------—,
Iðja.
Lækjargötu 10 B
Vöuduð. ódýr þýzk
rafmagnstæki
Iðja,
, LæSrjá-rgötu 10.B Stí
V__;_____" ’______ ' * V
Alþjóðasamstarf
vísindamanna
Framhald af 5. síðu.
fessor Nesmejanoff. Er þetta
blað úr skáldsögu um framtíð-
ina? Já — um framtíðina ef við
hugsum okkur heiminn sem
heild. En þetta er sá veruleiki
sem vísindamenn Sovétríkjanna
beitá orku sinni til að skapa.
Þetta eru meginlínur vinnuáætl-
unar Vísindaakademíu Sovétríkj-
anna og hinna tólf vísindaaka-
demía hinna einstöku sovétríkja.
Vísindamenn Sovétríkjanna teldu
sig lánsama ef þeir gætu s'am-
einað krafta sína kröftum allra
þeirra' vísindamanna, hvar sem
er í heiminum, sem vinna vilja
að sama markmiði, sagði pró-
fessor Nesmejanoff.
-N
Iðja.
Lækjargötu 10 B
Lampar og Ijósakrónur
Iðja,
Lækjargötu 10 B
Hinar margeftirspurðu
Helena Rubinslein
hársnyrtivörur komnar:
Champo, 4 gerðir; hárskol, 8 litir.
Munið hársnyrtikremið.
MARKAÐURINN
Haínarstræti 11
Vörubílstjórafélagið Þróttur
FUNDUR
verður haldinn í húsi félagsins í dag kl. 1. 30. e.h.
DAGSKRÁ:
Ýms félagsmál.
Félagsmenn sýni skírteini við innganginn.
Stjórnin.
MÍR
MÍR
í Stjörnubíó í dag klukkan 2 e.h.
FUNDAREFNI:
1. Pétur Pétursson, útvarpsþulur, og Eberg Ell-
efsen frá Siglufirði segja frá ferð -sinni til
Sovétríkjanna.
2. Kvikmyndasýning: Fréttamynd frá sendi-
nefndum í Sovétríkjunum s.l. vor, m.a. íslend-
ingum, og konsert úkrainskra listarúanna
(Ballet, tánleikar o.flj. — Gullfalleg mynd.
'jr- 'ii/:
í ';í:£,v ‘ -'hi' r ' ».•"> gi. ,-i/morI rujqqö'
Gestir velkomnir — Félagar íjölmenni stund'víslega.
:*Iiöv-
Stjórnin
1«
, i/nmLi::
Frl \r\
r)
Máls og mennmgar
Skólavörðnstíg21 - Sími 5055