Þjóðviljinn - 22.12.1953, Side 3
Þriðjudagur 22. desember 1953 •— ÞJÓÐVIUINN — (3
tofnuS yemtlngarsamfök
FlféSsdelshés'cðs
Héraði í desember.
Fyrir skömmu var haldinn á Egilsstööum stofnfundur
Menningarsamtaka F1 j ótsdalshéraös.
Hugmyndin að félagsstofnun
þessari kom fram snemma á þessu
ári. Mun -Pétur Jónsson, bóndi á
Egilsstöðum,' hai'a verið einn
lielzti hvatamaðurinn. Á s.l. vetri
komu saman nokkrir menn til
þess að ræða undirbún:ng að
stofnun samtakanna og var Þá
kjörin undirbúningsnefnd. Á
stofnfundinum um daginn var
kosin bráðabirgðastjórn -samtak-
anna og er formaður hennar
Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri
á Eiðum.
Etcki hefur enn verið gengið frá
starfsreglum samtakanna. Hins
vegar hefur verð rætt um það.
að kjarna samtakanna mjmdaði
fulltrúaráð, sem samanstæði af
tveimur fulltrúum hinna 10
hreppa -Fljótsdalshéraðs og allir,
sem vildu, gætu orðið félags-
menn. Félagsgjöldin yrðu -ekki
bundin, heldur greiddu mcnn til
sam.takanna eftir eigin vild.
Eitt mikilvægasta málið, sem
menningarsamtökin munu beita
sér fyrir, er að vinna að því að
Sen]ór Pelikan
þrlvidd
koma upp á Egilsstöðum sameig-
inleg-u, myndarlegu félagsheimili
fyrir allt Héraðið. Húsnæði það,
sem hingað til hefur verið fvrir
hendi þar til fundahalda og sam-
komuhalds, eru hermannaskáiar.
Er slíkt vitaskuld méð öllu ó-
viðunandi. Egilsstaðir eru að
verða slík miðstöð Héraðsins, að
því verður ekki lengur unað, að
þar sé ekki fyrir hendi samkomu-
hús, sem fulinægi kröfum tím-
ans.
Þá er það ennfremur eiít af
verkefnum hinna nj’sto'fnuðu
samtaka að ýta á eftir almennum
framfaramálum Héraðsins, eins
og t. d. rafmagnsmáiinu, sem í
dag er cfst á baugi allra máta
hér um slóðir. Þykir Héraðsbú-
um þeir hafa orðið miög afskiptir
í þeim málum hingað til. Er það
því mjög mikiivæ-gt að hafa slík
almenn samtök til þess að fyigja
eftir kröfum til úrbóta.
Vesturíslenzk verkamannsbjón,
Hailur Hailsson og kona hans,
sem bæði eru fædd vestan hafs,
Jjafa sent , Styrktarfélagi lam-
aðra og fat’aðra að gjöf arðinn
af hlutabréfum sínum í Eim-
skipafélagi íslands.
Gjöfinni hafa bau komið á
framfæri fvrir milligöngu séra
Eiríks Brynjóifssonar frá Útskál-
um og segir í bréfi frá þeím að
auk beztu óská til félagsins vilji
þau á þennan hátt senda íslandi
og íslenzku þióðinni kveðju sína.
Hallssonhjónin búa í húsi nr.
4548 við Prince Alber.t Street í
Vancouver B. C. í Kanada.
KyitdiiS í myrkri aorbeimskunar -
NýS! helíi aí Tímasiti Káls og mesmmgar
Tvöfalt hefti, 2.-3. af Tímariti Máls og menningar er komið
út. Er þetta tvímælalaust bezta lesmál nokkurs íslenzlcs tíma-
rits á þessu ári.
etiist ári5 2098
NýS
Iielllaéska-
Það er tízka um þessar mundir
að skoða myndir gegnum mislit
gleraugu. Menn segja, að þær fái
dýpt, fjarvídd, þriðju vídd eða
hvað það nú heitir. En það ku
vera eitthvert taekniundur á bak
við s’.íka myndagerð, sem vér
kunnum ekki skil á. Oss hefur
nú borizt barnabók með slikum
myndum, með tilheyrandi gleraug-
um, og er oss fortalið (aftan á
kápu bókarinnar) að þær séu
teknar í Dýragarði Lundúnaborg-
ar af enskum þrividdarspesíalista
sem heitir Carl Sutton, og hafi
hann tekið þær sérstaklega fyrir
útgefendur bókarinnar, Bókaút-
gáfuna s f. Vér settum upp gler-
augun og sjá! -— þriðja viddir,
upplaukst fyrir augum vorum og
munaði minnstu að fjórða víddin
og afstæðiskenning Einsteins
fy’gdi með í kaupunum.
En Senjór Pe’íkan ílytur líka
nýstárlegan og skemmtilegan
skáldskap. Hverri mynd fylgir
þuia. Höfundur þeirra kallar sig
Stóra-Brand og mun það skálda-
nafn ekki hafa sézt á prenti fyrr,
en eyrnamark dylst sjaldan glögg-
um fjármanni, og svo er um höf-
undareinkennin á þessum þuium,
vér þykjumst þekkja þau, þó að
vér af 'meðfæddri þagmælsku og
háttvísi látum ekkert uppi um
það. En kannski hefðu fleiri gaman
af að spreyta sig. Plérna er þuian
um mörgæsina:
Er hér kominn einn á ról
undrafugl með skrýtið gól,
sem fyrirmaður í fínum kjól,
er finnst það voða gaman
að reigja sig í ræðustól
með riddarakross að framan;
heldur en ekki hreykinn af öllu
saman.
Hann á líka höfuðból
hugprúður við Suðurpól,
þar sem aldrei sést nein sól
né sætabrauð um heilög jól
og yfirleitt er ekkert skjól
á ísnum hægt að finna.
Og ýmsir hafa montað sig af
minna!
Senjór Pelíkan er prentaður i
Prentsmiðjunni Hólar, en mynda-
mótin gerði Prentmyndastofa
Helga Guðmundssonar og er hvort
tveggja til fyrirmyndar.
Axel Schiöth bakarameist.ari a
Akureyri hefur gefið Lystigarði
Akureyrar 20 þús. frímerki og
sku’u þau seld til ágóða fyrir
garðinn, en ekki fyrr en árið
2000.
Fyrir andvirði frímei'kjanna.
en 17 þús. þeirra eru íslenzk,
skal stofna sióð tii minningar
um Onnu Schiöth, móður gef-
andans. Sjóðinn skal nota í þágu
Lystigarðsins á 100 ára afmæl:
gefandans, árið 2010.
Landssími lslands hefur gefiíi iit
þrjár nýjar gerðlr af eýðublööum
fyrir heillaóskaskej’ti.
Er eitt þeirra sérstaklega gert
fyrir jólaskeyti, en hin tvö fyrir
aimenn heillaóskaskeyti Eyðublöð-
in cru myndskreytt og litprcntuð.
Útgerðarráð
Framhald af 1. síðu.
■son, Skúii Magnússon og Hall-
ve!g Fróðadóttlr á ísfiskveðum
og koma því ekki inn fyrr en að
afstöðnum jólum.
Fleiri en áður
Eins og á.ður hefur verið skýrt
frá munu ýmis útgerðarfélög
ekki senda skip sín á veiðar
aftur fyrir iól. Er þetta tví-
mælalaust árangur af samþykkt
bæjarstjómarinnar þvf hingað til
hefur það margoft komið fyrir
að skipunum hefur beinlinis ve-rið
ýtt úr höfn rétt fyrir jólin og
jafnvel send út á aðfangadag.
Ottinn við kosningarnar
Það er nú komið á daginn að
það eru ekki nein sinnaskipti hjá
ínaldinu sem ollu því að tillaga
sósíalista, um að sjómönnum yrði
gert fært að dvelja nieð fjöl-
skyldum sínum um jólin, var
samþykkt mótatkvæða’.aust í
bæjarstjórn. Óttinn við nálægð
kosninganna svifti íhaldið hug-
rekki til að drepa tillöguna. Hitt
te'.u.r það sjáanlega hættuminna
að láta fulltrúa sína i útgerðar-
ráíi bregða fæti fyrir rhálið, þe’r
eru hvort sem er ekki í' kjöri við
kosningarnar!! En íhaldinuskjátl-
ast ef það heldur að sjómenn og
fjölskyldur þeirra skilji ekki
skrípaleik þess og blekkingatil-
burði. eftir að Kjartan ThOrs &
Co. hefur svipt af því grímunni
með afstöðunni i útgerðarráði.
Gerðabúar sigruðu
íbúar við Skógargerði og Litla-
gerði hafa nú farið með sigur af
hólmi. Á fundi byggingarnefndar
17. þ. m. var samþykkt að verða
við óskum íbúanna um að
göíur þessar. fai að halda íyrr-
nefndum nöfnum, sem þ.eim voru
í upphafi gefnar en átti síðar
að breyta.
100 ára saga
Bæ.jarst.iórn Akureyrar sam
bvkkti í síðustu \iku að láta
rita 100 ára söau Akureyrar.
Skal hún koma- út á 100 ára
afmæli bæ.iarins. 1962.
Bæ.iarstjórnin kaus fiögurra
manna nef.nd til að undirbúa
framkvæmd bessa verks, m.a.
að safna myndirm af mönnum,
stöðum og sögulegum atbui-ð-
um. í nefndina voru kosnir:
Áskell Snorrason. Brynleifur
Tobiasson. Steindór Steindórs-
son oe; Biami M. Jónsson.
Aldrei hefur eins mikill fjöldi
forheimskandi dellutímarita kom-
ið út á íslandi eins og nú, og
einmitt þess vegna finnur maður
það betur en nokkru slnni fyrr
hvers virði *það er að eiga tíma-
rit sem ekki slakar á menningar-
kröfum sínum, tímarlt sem ekki
aðeins býður leshæft efni heldur
hverja greinina annarri betri.
Það r.'t er Tímarit Máls og
menningar.
Efni síðasta heftis Timarits
Máls og menningar er í st'uttu
máli þetta: í. riístjórnargrein um
verkefni félagsins skýrir Kristinn
E. Andrésson frá því hvern'g
vinir Máls. og menningar fylktu
liði á s. 1. sumri þegar bókabúð
félagsins var hent út á götuna
þaðan sem hún hafð: frá upphafi
verið og söfnuðu á skömmum
tíma fé til þess að kaupa lóð
fyrir húg þar sem félagið gæt'
haft starfsemi sína og bókabúð.
Næsta verkéfnið er nú að safna
fé til að bygg.ia hús félagsins, og
efti.r byrjuninrii að dæma verður
það framkvæmt.
Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur skrifar um Efnishyggju og
húmanisma Stephans G. Step-
hanssonar. Þórbergur Þórðarson
á þarna ræðu sem hann nef'n'r:
Guð hjálpi íslendingum, Allir
sem ekki heyrðu þessa ræðu
þurfa að lesa bana, — og hinir
hafa gott af að rifja hana upp!
Peter Hallberg skrifar: Úr vinnu-
stofu sagnaská’.ds, ræðir hann
*
þar um hvernig Atomstöðin varð
til. Gunnar Bened ktsson skrif-
ar frá Rúmeníuför sinni í sumar:
Heyrði ég i hamrinum. Ferða-
pistlar eru eftir Magnús Á.
Árnason og Asíubændur í upp-
reisn er grein þýdd aí Sverri
Kristjánssyni.
Loks er að geta Þess -að í heft-
inu er að finna Sögur úr' sildinni
eftir Jónas Ámason, ásamt
nokkrum mvndum frá síldveið-
um sumarsins. Einnig er þarna
ritgerðin Þjóðir og tungumál eft-
ir Áma Böðvarsson, — skemmti-
lestur, jafnvel fyrir þá sem ann-
ars flökrar við málfræði!
Kvæði eru e'ftir Þors-tein Valdi-
marsson, Hannes Pétursson, W.
Mueller, og írskt kvæði. Söguv
eru eftir Thor Vilhjálmsson og
Ástu Sigurðardóttur. Loks eru
ritíregnir o. fl.
Islenámgavmaféiag
stoinað í Gautabosg
Sic-astliðið haust tók Fer'ða-
skrifstofa rikisins, af íslands
hálfu, þátt í „Svenska Mássan“,
en það var alþjóðleg haustsýn-
ing, sem fyrirtæki og stofnanir
frá 20 þjóðum tóku þátt í.
Ferðaskrifstofa ríkisins lagðí
áherzlu á að kynna Island sem
feröamaivnaland svo og heimilis
iðnað. Aðsókn að sýningarsal
Islands var mjög góð og vöktu
myndir og munir mikla athygli
sýningargesta; sérstaklega dáð-
ist fólk að prjónavarningi og
víravirkinu.
I sambandi við sýninguna var
sýnd kynningarmy.nd Ferða-
skrifstofunnar, „Jewel of the
Noríh“, og ennfremur ákveðið
að stofna sænskt íslendingafé-
lag. Nú fyrir stuttu var form-
lega gengið frá stofnun þessa
félags eða 1. desember s. 1. I
stjórn voru kjcrnir:
Ordförande Docent Peter
Hallbsrg, v. ordförande Arki-
tckt Bjarni Sigurðsson, sekre-
terare Direktör Eric Borg-
ström, öv. styrelseled Redaktör
Björn Lagerström, Konsul A.
M. Gabrielsson, Proffessor Ture
Johannisso.n, Frú Sigrún Emils-
son, Kamrer HaiTy Larsson,
Suppleantcr Ingeniör Nils Bill-
gren. Teknolog Ragnar Emils-
son. Flaggstyrman Torgny
Luadquist.
SalIeStism
Fjárskaði á Kéraði:
28'kindur frá Hafursá í Skóg>
um fórust í tjérn
Héraði í desember.
Nýlega vildi það til á bænum Hafursá í Skógum, að’
28 kindur fórust í tjörn skammt frá bænum.
Atyik voru þau, að is var á
tjörn þessari og lá íöl yfir ísnum.
Hafði svo kindahópurinn ætt út
á ísinn, sem rejmdist of þunnur
og brast undan. Þegar bóndinn
á Ilafursá, Sigurbjöm Pétursson,
fór að huga að fé sínu um
kvöldið, fann hann hvergi um-
ræddar 28 kindur. Honum varð
á leit sinni seinna um kvöldið
gegnið framhjá. tjörn þessari og
og sá hann þá hvers kyns var.
Líkur eru til, að kindurnar hafi
dreplst mjög fljót og enga björg
getað veitt sér. því að allmikið
frost vaý úti( og raunar ekki
sennilegt, að neit hefði fengizt
að gert, þótt menn hefðu komið
að strax, þv; að ómögulegt
reyndist að komast útá ísinn fyr-
ir menn vegna þess, hve þunnur
hann var.
Þetta mun vera mesti fjár-
skaði af þessu tagi, sem orðið
hefur lengi hér um slóðir. Er
það ekki neitt smáræð’stjón fyr-
ir eitt heimiþ að rrrssa í einu
vetfangi svona stóran. hluta bú-
stofnsins.
tekmn upp á ný
í’fy-rra hóf Þjóðleikhúsið sýn-
ingar á ballettinum Eg bið að
hellsa er danski ballettmeistar-
inn Erik Bidsted hafði gert við
músik Tíarls O. Runólfssonar er
aftur byggði á lagi Inga T. .Lá.r-;
ussonar. Á þriðju sýrrngu ball-
ettsins vildi það slys til að Bid-
,sted er dansaði aðalhlutverkið
háslnarslitnaði, og varð Þá að
hætta sýningum. Eins og kunn-
ugt er hefur hann og kona hans
verið hér á landi siðan snemma í
haust, og hafa Þau hjónin kennt
í ballettskóla Þjóðleikhússins.
Hefui- nú verið ákveðið að taka
ballettinn til sýnir.gar á ný, enda
mun Bidsted vera orðinn jafn-
góður. Verður fyrsta sýningin
sunnudag'nn 27. þ. m. kl. 3
síðdegis.
Dansarar eru hmir sömu og í
fyrra, nema Edda Scheving kem-
ur i stað Irmv Toft.
Þá munu nemcndur ballett-
skó’ans sýna, og auk boss dansa
Bidstedhjönin hluta úr ballett-
inum Þyrnirósu eftir hljómlist
Tjækofskís.
IÐJÁ, Lœkjargötu 10 — Margar gerðir aí rafmagnsvöfflujárnum
og strau}árnum - IÐJA, Lœkjargötu 10