Þjóðviljinn - 06.02.1954, Page 6

Þjóðviljinn - 06.02.1954, Page 6
B) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagnr 6. febráar 1954 í þlÓOVIUINN Útgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — SósíalistaflokkurinB. Rltstjórar: Magnús Kjartansson (4b.), SigurSur Guðmundsaon. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónpson, Bjarnl Benediktsson, GuO- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Bltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: SkólavörðusU* 10. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði S Reykjavík og n&grennl; kr. IX nnnara staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja ÞJóðviljans h.f. í 6. febríar l: Þennan dag, fyrir réttu ári, 6. febrúar 1953, var Þjóðviljinn Etækkaður í tólf siður. Það var annar stóri áfanginn á ævi blaðsins. Frá stofnun 31. október 1936 til 17, nóvember 1943 var Þjóðviljinn fjórar siður, en þá stækkaður í átta. Var það raunar enn meira átak en stækkunin í 12 síður, blaðið átti þá undir högg að sækja með prentum og bjó að flestu leyti við örðug s'kiljTði. En sá stórhugur Sósialistaflokksins, er fram kom í þeirri stækkun aðalmálgagns hans, reyndist fyllilega á rökum fcyggður, útbreiðsla Þjóðviljans hefur aukizt ár frá ári, áhrif bans og vinsældir. Samt var það djarft spor að stækka blaðið S tólf síður í febrúar í fyrra. En einnig sú bjartsýni hefur reynzt raunsæ. Enda þótt ritstjórn blaðsins væri óbreytt, nema einum folaðamanni bætt við, munu lesendur sammála um að tólf síðna Þjóðviljinn er allt annað og betra blað en fyrir stækkunina, enda gefa hverjar fjórar síður í viðbót ótrúlega mikla möguleika á fjölbreyttara efni. Síðasta átakið fyrir stækkunina, söftiunin í stækkunarsjóðinn, var tengd nafni og afmæli Sigfúsar Sigurhjartarsonar. Og ís- JenZk aiþýða brást drengilega við því kalli. Annað stórt verkefni foefur verið tengt nafni Sigfúsar og minningu, bygging veglegs aiþýðuhúss í Reykjavík, verkefni sem leysa verður þegar á iiæstu árum. Einnig þannig er Sigfús með í baráttu reykvískrar alþýðu, og þennan dag, eins og svo marga aðra daga, er hans SKÍnnzt af sárum trega - en líka og e'kki síður - heitu þakklæti. NsfndakosRÍtigar í bæjarstjérn Pyrir bæjarstjórnarkosnlngarnar gerði Sósíalistaflokk- nrinn allt sem í hans valdi stóð til að sameina andstöðu- flokka íhaldsins um sameiginlegt framboð og samstillta kosningabaráttu þeirra allra gegn því auðstéttarvaldi sem ræður Reykjavík. Þetta strandaði á Alþýöuflokk, Þjóð- yöm og Framsókn. Þessir flokkar lögðu íhaldinu vopn glundroðakenningar í hendur. Það má telja fullvíst aö þessi afstaða forkólfa sundrungarflokkanna hafi fært íhaldinu þann varnarsigur sem því tókst aö vinna í kosn- ingunum, þrátt fyrir þann minnihluta sem það er í meöal reykvískra kjósenda. i Eftir kosningarnar fór það ekki dult að allir heiðarlegir íhaldsandstæðingar í hópi fylgjenda minnihlutaflokk- anna í bæjarstjórn ætluðust til þess að þeir tækju hönd- um saman í andstöðunni og tryggðu meirihluta kjósend- anna eins sterka aðstöðu viö val manna í áhrifastörf á vegum bæjarstjórnarinnar eins og kostur var framast á. Tilraunir Sósíalistaflokksins til þess aö koma þessari sam- vinnu á voru því hvorttveggja í senn, rökrétt framhald af fyrri sameiningarstefnu hans og í fullu samræmi við kröfur og vilja fólksins í bænum sem greitt hafði þessum flokkum atkvæði á kjördegi. Þessa samvinnu um nefndakosningarnar 1 bæjarstjórn hindruðu forkólfar Alþýðuflokksins, hið þrautreynda aö- stoöaríhald sem haft hefur meiri og minni samvinnu við íhaldið í bæjarstjórn á liðnum árum og hlotið í launa- skyni margan molann af boröum þess, sbr. forstjórastöö- una sern íhaldið rétti á sínum tíma að aðalforkólfi Al- þýðuflokksins, Jóni Axel og tryggöi sér með því óbrigö- ula fylgisspekt hans til pólitískra æviloka. Er af þessu ljóst að enn hafa foringjar Alþýðuflokksins ekkert lært og engu gleymt þrátt fyrir staðreyndir kosningaúrslit- anna og nauðsynina á samstarfi allra íhaldsandstæðinga. Bandalag Gils Guömundssonar við flokkinn sem hindr- aði vinstra samstarf í nefndakosningunum sviftir síðustu falsblæjunni af Þjóðvarnarflokknum. Hér eftir þarf eng- inn að efast um tilgang hans og markmið. En þessir at- burðir allir munu verða til þess að hvetja alla heiðarlega íhaldsandstæðinga til nýs og öflugs starfs fyrir því að ölí alþýða og vinstri menn 1 landinu hefji það samstarf sem eitt getur lagt íhaldið að velli. Þeir foringjar sem þar standa í vegi verða að víkja beygi þeir sig ekki fyrir yilja fjöldans. Bandaríska herstjómin litur á Island sem itvarSsföí í kjarnorkustríói HerfrceSingur lýsir hversu flugstöSvar og radarstöSvar auka árásarhœftu I^Tefndir frá Bandaríkjastjórn ’ og ríkisstjóm íslands sitja þessa dagana á fundum hér í Reykjavík og ræða breytingar á hemámssamningnum frá 1951. Þegar hemámið var frairu kvæmt í maí þaðár, staðhæfðu ábvrgir, íslenzkir aðiiar að það væri hrein ncyðarráðstöfun sem ekkí hefði þótt fært ann- að en gera vegna yfirvofandi hættu á stórstyrjöld, sem hefj- ast myndi með innrás Rússa í ísland. Var bent á Kóreustríð- ið því til sönnunar að tímam- ir væru svo viðsjárverðir að ó- afsakanlegt væri fið hafa hér engan hemaðarundirbúning. Eins og allir vita hefur hægt en stöðugt dregið úr viðsjám í heiminum á síðustu árum. Vopnin hafa verið slíðruð í Kóreu, allt tal um yfirvofandi styrjöld í Evrópu er löngu þagnáð og flestöll lönd með Sovétríkin og Bandar.kin í broddi fylkingar hafa dregið nokkuð úr hemaðarútgjöldum sínum. Hefðu íslenzkir ráða- menn írúað sínum eig'n rök- vun fyrir hernáminu ættu þeir nú að vera búnir að segja upp hernámssamningnum, þar sem foxsendumar sem þeir færðu fyrir honum eru úr sögunni. |7n það er öðru nær en að rætt sé um að við losnum við bandaríska hemámið. Ljóst er af skrífum íslenzku stjórn- ArthongeUb Kroniladl ’RITISH ISLES London ,>CttAND] tOSWAP.D FIOMTífe JHAN« BASÍS lASkADOR iNÍWIOJND. CANADA Quebwc MoaIm Ollciwo • Detroit Pittsburgh Woshinqton • POSSIBIE GUIDEO MISSIIE r- ATTACK FROM RED SUBS Þetta kort af fyrirhuguðu lofívamakerfi Bandaríkjanna birtist í bandaríslut tímarilinu Life löugu áður en ísland var hernunjið í síðara skiptið. Samt er þar gert rkt l'yrir að Island verði hluti af „yzta radaraðvöruna rkerfmu" cíils og það er kallað á kortinu og radarstöðvabyggingarnar sem nxi standa J'fir eru framkvæmd á þeirri fyrirætlun. Þetta og margt annað sýnir að hemám Islands stafaði ekki af skyndilegri „árásarluettu" heldur er það fram- kvæmd á löngxi ákveðinni stefnu bandarísku herstjórnariimar að tryggja sér stöðvar á íslandi til frambúðar. arblaðanna og ræðum forystu- manna stjómarflokkanna að í viðræðunum við Bandaríkja- menn vakir bað eitt fyrir þeim að íá fram smábreytingar á hemámsfyrirkomulaginu ef það mætti verða til að draga úr óvinsældum hemámsins meðal íslendinga. Tilefni hernámsins er því, eins og öllum mætti vera ljóst frá upphafi, allt annað en látið var í veðri vaka vorið 1951. Hemámssamningur- inn þá var nefnilega hlekkur í atburðakeðju sem hófst þegar Bandarikjamenn neituðu að efna gefin loforð um að hverfa héðan með her sinn *í lok heimsstyrjaldarinnar síðari og kröfðust herstöðva til 99 ára. Sú beiðni spratt af því að þeg- ar leið undir lok styrjaidar- innar tók band:aríska herstjórn- in að semja áætlun um það, hvaða stöðvar víða um heun hún ætti að leggja til að Bandarikin tryggðu sér til frambúðar til hemaðarafnota. Fyrir valinu urðu eyjar í Kyrra- hafi allt að ströndum Japans og Kiná og Grænland, fsland og Azoreyjar í Atlanzhafi. Hér á fslandi féll tréð ekki við fyrsta högg, bandaríska her- stjómin tók þann kost að ná marlci sínu í áföngum. Fyrst kom KefLavíkursamningurinn, síðan var ísland gert fjárhags- lega háð Bandaríkjunum með Marshallsamningnum, á eftir fylgdi .inngangan í Atlanzhafs- bandalagið og loks hernámið sjálff. A f skrifum bandarískra hem- ■**• aðarsérfræðinga um her- nám íslands má nokkum veginn ráða, hvað bandaríska her- stjómin hvggst fyrir hér á landi. Engum þeirra kemur til hugar að bera fram þá fjar- stæðu að bandarískur her sé hér til að verja landið gegn innrásarhættu, enda þarf ekki annað en lita á framkvæmdir hernámsliðsins til að samrfær- ast úm .að svo er ekki. Hinsveg- ar hafa bandarískii- hemaðar- sérfræðingar hvað eftír annað !agt áherzlu á hve þýðingar- m’klar stöðvar á íslandi gætu verið tU sóknar og vamar íyr- ár Bsndaríkin í kjarnörkustyrj- öld. Til dæmis segir Hanson Baldwin, hinn kunni hemaðar- sérfræðingur New York Times: „Á íslandi ... ev þýðiugarmikil veðurathugana- og radarstöð og gæti ef til stríðs kæmi orð- ið tnikilvæg flugstöð til sAknar og varnar og flotastöð". Um- mæli þessi em í grem um hern- aðarþýðingu Norðurheims- skautslandanna, sem birtist 22. marz í fy'rra. Oaldwin, sem nýtur mikils trúnaðar bandarísku her- stjórnarinnar og er þvi oft fyrstur með ýmsar fréttir af hermálum, vék aftur að fyrir- ætlunum herstjómarinnar varð- andi ísland í grein um þær Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.