Þjóðviljinn - 01.05.1954, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 1. maí 1954
S KÁK
Ritatjóri: Guðmundur Arnlaugsson
Frá skákmóíi stúdenta i Osló
Nú eru nýkomnir hingað heim
tveir stúdentar, er tóku þátt í al-
þjóðaskákmóti stúdenta í Osló.
íslenzka sveitin var, skipuð fjór-
um stúdentum, auk þeirra
tveggja er nefndir voru, kom
einn frá Stokkhólmi en annar
frá París. íslenzku stúdentarnir
stóðu sig vel, þeir urðu fimmtu
í röðinni og komu fyrstir Norð-
urlandaþjóðanna.
Alþjóðaskákmót eru gamal-
kunn, en alþjóðaskákmót stúd-
enta þekktust ekki fyrr en eftir
síðustu heimsstyrjöld. Hið fyrsta
fór fram í Liverpool, þar var
keppnin milli einstaklinga en
ekki sveita og varð Bronstein
efstur. Næsta mót fór fram í
Brússel. Þar vann norska stúd-
,entasveitin sigur, næstir komu
Bretar, þá Finnar og fslendingar
með jafna vinninga. Mótið í
Osló er hið þriðja í röðinni, og
var samkeppnin þar miklu harð-
ari og strangari en í Brússel.
Stúdentasambandið Internati-
onal Union of Students, I. U. S.,
stendur fyrir þessum mótum. Á
mótinu í Osló sáu þessi samtök
um fæðispeninga handa kepp-
endum meðan á mótinu stóð,
norsku stúdentasamtökin sáu
þeim fyrir húsnæði, en norska
skáksambandið sá um sjálft
mótið.
Taflfélagið í Osló, Oslo Sjakk-
selskap, býr betur en Taflfélag
Reykjavíkur. Mótið fór fram í
húsakynnum þess, tveimur sölum
með rúmgóðu anddyri, sem ætl-
að er til veitinga. Þessi salar-
kynni voru nógu rúmgóð fyrir
hina 40 keppendur og áhorfend-
ur.
Norsku stúdentarnir höfðu rutt
einn af stúdentagörðum sínum
handa keppendum. Þessir stúd-
entagarðar eru með nokkuð öðru
sniði en þeir islenzku. Þeim er
skipt í eins konar íbúðir, stúd-
entarnir búa saman fimm og
fimm, hafa sitt herbergið hver,
en sameiginlegt anddyri og eld-
hús, og geta þá verið í fæði hjá
sjálfum sér að svo miklu leyti
sem þeir kæra sig um. íslenzku
stúdentarnir fengu eina þessara
íbúða til umráða meðan á mót-
inu stóð. Á þessum stúdenta-
görðum búa annars 10 íslenzkir
síúdentar, sem nám stunda í
Osló.
Það vakti furðu manna hér
heima, að meðal keppenda í
Osló var sjálfur skákmeistari
Tékka, Filip, sem er doktor að
nafnbót. Skýringin á þessu er
sú, að í reglum þessara móta eru
þátttökuskilyrði þau, að kepp-
andinn stundi háskólanám eða
hafi stundað það og séu ekki
liðin'meira en tvö ár frá því að
námi var lokið, og á þessari
viðbóí flaut Filip. Hann er dokt-
or í lögfræði.
Annars voru langflestir kepp-
endanna stúdentar við háskóla-
nám. Sé skipt eftir námsgreinum
munu flestir hafa verið úr lög-
fræðinni, hvort sem það nú
stafar af því að lögfræðingar
séu öðrum fremur náttúraðir
fyrir skák, eða þá hitt að lög-
fræðinámið veiti öðru námi
fremur tóm til taflmennsku.
Tékkar höfðu sigur á mótinu
eftir tvísýna baráttu við Sovét-
ríkin. Þessar sveitir áttust við í
síðustu umferð og voru þá jafn-
ar að vinningum, en Tékkum
tókst að vinna með 2V2 gegn IV2.
Fleiri lönd en Tékkóslóvakía
sendu kunna taflmeistara til
keppninnar. Fyrsta borðs maður
Sovétríkjanna, Kortnoj, hlaut
önnur til þriðju verðlaun á síð-
asta skákþingi Sovétríkjanna á-
samt Tajmanoff. Kortnoj leggur
stund á sagnfræði og er hrað-
skákmaður mikill, enda svo leift-
urfljótur við analýsur að sögn,
að varla má auga á festa.’
Búlgarar hafa lítið komið við
skáksögur fram til þessa, en í
Osló komu þeir öllum á óvart
með því að vinna þriðju verð-
laun. Þar syðra hefur sýnilega
risið skákalda og er svo ný að
stúdentarnir er þaðan mættu til
leiks eru meistarar lands síns.
Fyrsta boxðs maður þeirra, Mín-
eff, var skákmeistari Búlgara i
fyrra, en skákmeistari þeirra í
ár, Mileff, tefldi á öðru borði.
Röðinni réði úrtökukeppni. Bú-
ast má við að nöfn þessara
stúdenta eigi eftir að heyrast
nefnd í sambandi við skákmót
ÞAU koma sarnan í einni
fylgd, vorið og hann. I öll-
um skilningi er hann vordag-
ur. Síðar verður hið mikla
vor alls mapnkyns tengt við
hugsjón hans, því það fæðist
af þeim fórnum sem færðar
eru í krafti hennar. Hann er
dagur fyrirheitsins, því af
sameiningu og samtökum
fjöldans rís það, mannríkið
mikla.
ENN Á NÝ er hann kominn,
stríðsdagurinn, friðardagur-
inn. Líklega hefur alþýða
heimsins aldrei verið fjöl-
mennari á götum sínum en í
dag. Áreiðanlega hefur hún
aldrei verið sigurvissari.
Aldrei voru samtök hennar
voldugri. Aldrei voru fjendur
hennar, hinir dauðadæmdu,
hræddari um völd sín, dollar
sinn. Og aldrei var sá ótti
réttmætari — né verðskuld-
aðri. Áður en öldin er liðin
verður auðvaldinu stökkt á
hinn síðasta flótta, grótta-
kvörn þess möiuð mjölinu
smærra. Það hlikar af þeim
sigri í auga aiþýðumannsins
í dag. Hvorki vetnissprengj-,
«r né milljarðar mega sín
nokkurs gegn þessu rólega
stolta bliki í bíáu auga. Slík-
ur er boðskaour þessa eilífa
vordags, s'í'xt er fyrirheit
hans.
' ' ['.]
EN ÞAÐ ER líka eftir mörg
raun óháðrar baráttu, marg-
ur harmur óbeðinn, þótt við
vitum að við lifum það af.
Og sú alþýða sem fylkir liði
í framtíðinni, en hsétt er við að
þeim verði einhvern tíma ruglað
saman.
Ýmsir urðu hissa þegar talað
var um ítalsk-skozku sveitina,
menn höfðu ekki haldið þessi
lönd svo nákomin hvort öðru að
þau færu að senda sameiginlega
sveit á skákmót. En þannig
stóð á þessu að tveir stúdentar
mættu til keppninnar frá hvoru
landi og var þeim því slegið sam-
an í eina sveit. Hins vegar komu
einir átta Frakkar til mótsins
og var einn þeirra tekinn að
láni og gerður að varamanni
skozk-ítölsku sveitarinnar sem
þar með var orðin sannkölluð
útlendingaherdeild.
Röðin á mótinu var annars
þessi: 1. Tékkóslóvakía 29*6
vinn., 2. Sovétríkin 2814, 3.
Búlgaría 26, 4. Bretland 23, 5. ís-
land 19, 6. Svíþjóð 17, 7. Noreg-
ur 14, 8. Finnland 13, 9. ítalía-
Skotland 8]/2, 10. Frakkland 1VA
íslenzka sveitin stóð sig mis-
vel, vann stundum glæsilega en
tapaði líka stundum stórt. Þeg-
. ar gerður er upp hlutur hvers
manns kemur í ijós að keppend-
urnir hafa lagt nokkuð jafnt til
vinningana. Guðm. Bálmason
Framhald á 11. síðu
í dag, íslenzk og alþjóðleg,
hún ber aila sorg heimsins á
herðum sér. Það er hún sem
syrgir þá sem féllu í auð-
valdsstyrjöldum aldarinnar,
enda voru þeir hennar synir.
Það eru smábörnin hennar,
eins þeirrar alþýðu sem ekki
nær að fylkja liði í ár, sem
þrælkuð eru undir sól Afríku,
sýelt í hel á frjójörð Asíu,
fyrirlitin til glötunar á baðm-
ullarekrum Bandaríkjanna.
Fyrsta maí tilkynnir alþýða
auðvaldsríkjanna kúgurum
sínum að glæpa þeirra verði
hefnt, að glataðir draumar
hennar verði unnir upp í
dýrri framkvæmd — þótt
síðar verði. Hafið þið veitt
því athygli hve auðvaldið
hérna hefur hljótt um sig
þennan dag? Það kæmtir rétt
aðeins í Morgunblaðinu.
□
HVERT ER ÞAÐ afl sem
tengir saman verkamanninn
á Raufarhöfn, í Peking, á
Gullströndinni ? Sósíalisminn
er það afl, fyrst og fremst
hann. Meðal annarra krafna
berum við á íslandi fram sós-
íalískar kröfur í dag. í ár er
það fagnaðarefni að samein-
ing alþýðunnar er enn öflugri
en um langa hríð. Óvinir
liennar hafa óviijandi þokað
henni saman, engin klíka hef-
ur fengið þar rönd við reist.
Og fær það vonandi aldrei
framar. Því eining allrar al-
þýðu er hinn hvíti draumur
mannkynsins. Sósíalisminn —
það er nafnið á von heimsins.
Og hvortveggja mun það ræt-
ast.
1. maí
• r
eruð það pér sem segið
fyrir verkum.
Bara hringja svo kemur það.
/—
r
I
tilefni
dagsins
sendum við íslenzkum verkalýð
okkar beztu heillaóskir
SkipaafgreiSsIa
Jes Zimsen
.y r
iOshvam hafnfirzhuml
verkalýð
og allri alþýðu
tii hamingju með daginn
fann vantar unglinga
til að bera blaðið til kaupenda á
Grímsstáðaholt og við
Blönduhlíð
HÖÐVIUINK, Skólavörðustíg 19, sími 7500