Þjóðviljinn - 01.05.1954, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVTLJINN — Laugardagur 1. maí 1954
illÐfillíiUINN
Útgefandl: Samelningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurlnn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
P’réttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjóns3on, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig
19. — Síml 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mónuðl í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
t. maí
í 65 ár hefur verkalýður heimsins safna'ð liði þennan
dag undir kjörorðinu mikla: Öreigar allra landa sam-
einist. í 65 ár hefur verkalýður veraldarinnar fylkt sér
saman á þessum degi, til þess að finna mátt sinn í sam-
einingunni og sýna auðvaldinu hann.
í krafti einingarinnar, sökum máttar samtaka sinna
og sókndirfsku stefnu sinnar hefur verkalýður heimsins
stigið risaskref fram á við. Þriðji hluti veraldar er þegar
á valdi verkalýösins. Sósíalisminn sem þjóðfélag og sós-
íalisminn sem hrevfing er þegar orðið langsterkasta afiið,
sem til er í veröldinni í dag.
íslenzkúr verkalýður hefur á undanförnum áratugum
sótt fram, unnið stórsigra þótt nokkur undanfarin ár
hafi staðiö í tákni varnar og versnandi kjara. Þeir stór-
sigrar voru unnir, er allur verkalýðurinn stóð samein-
aður og lét auövaldinu ekki takast að sundra sér.
fslenzkur verkalýður krefst einingar alls verkalýðs
heimsins í dag. Hann veit að alþjóðleg eining aiþýðunnar
er það vald, sem getur tryggt mannkyninu frið — og
skapaö þannig skilyrðin til velfarnaðar öllum mönnum.
íslenzkur verkalýður krefst algers banns á allri notkun
kjarnorkuvopna. Hann veit að með þeirri tækni, sem vís-
indi mannkynsins nú hafa náð, væri hægt á skömmum
tíma að útrýma allri fátækt, öllum sjúkdómum af jarö-
ríki, ef allri þekkingu, öllu valdi mannanna væri til þess
heitt. En síngjörn klíka nokkurra voldugra auðhringa
heimsins, sem sjá það eitt takmark í lífinu aö græöa fé
eg græða aldrei rneir en á styrjöld, stendur í vegi þess að
hið vinnandi mannkyn fái notiö þeifra gæða, sem jörðin
býður, og þeirrar tækni, sem til er nú.
En framar öllu ööru er 1. maí í dag einingardagur ís-
lenzks verkalýös: helgaöur því takmarki að öll alþýða ís-
lands geti tekið höndum saman um lausn þýðingarmestu
vandamála þjóðfélagsins.
Alþýðan krefst þess að atvinnutæki þjóðarinnar séu
rekin af fullum krafti — og þá fyrst og fremst þau af-
kastamestu og öruggustu: nýsköpunartogararnir og að
svo vel sé að sjómönnum flotans búið, að sífellt fáist nóg
fólk á þá. Gefist ríkisstjórn auðvaldsins upp við að
tryggja þjóðinni stöðugan rekstur þeirra, þá er bezt fyrir
þá ríkisstjórn að pakka saman og snáfa úr ráðherra-
stólunum með smán. Verkalýðshreyfingin sá um það aö
þessir togarar fengjust til landsins. Hún getur líka séð
um að þeir ver'ði reknir, með því að lyfta oki einokunar-
valdsins af rekstri þeirra, — ef hún aðeins fær að ráða.
Alþýðan krefst í dag tafarlausra, stórvirkra aðgeröa til
þess að útrýma öllu heilsuspillandi húsnæði og byggja
mannsæmandi bústaði yfir álla þá, sem nú skortir þá.
Alþýöan stendur í dag vörö um hagsmuni sína og mun
sýna auðvaldinu aö hún þolir engar árásir á þá, — því
hún veit aö kaupgjald þarf að hœkka en ekki lœkka frá
því sem nú er.
Alþýöan krefst þess í dag aö ameríski herinn hverfi
ourt af íslandi, — aö þjóðin fái sjálf aö kveða upp þann
úrskurð, ef þess þarf'með. Alþýða íslands býr sig undir
sitt mikla sögulega hlutverk: aö taka forustuna í þeirri
frelsisbaráttu, sem þjóöin heyr í dag.
Verkaiýöur og millistétiir Reykjavíkur! Allir þiö,
sem viljið standa meö alþýöunni í baráttu hennar
fyrir réttlœti og þjóðfrelsi! Út á götuna í dag!
Gerum þennan 1. maí aö sigurdegi alþýöunnar,
\$M sigurdegi íslands!
ViSfal viS Vo Nguyen Giap, yfirhers- j
höfSingja sjálfsfœÖishers Indó Kina
Undanfarnar vikur hefur at-
hygli manna um allan heim
beinzt að fjallaþorpinu Ðien-
bienphu norðarlega í Indó Kína.
Þar hefur geisað harðasta or-
usta, sem háð hefur verið til
þessa í naerri átta ára stríði
milli nýlenduhers Frakka og
hers sjálfstæðishreyfingarinnar
Viet Minh. í þessum bardaga
hefur það sýnt sig, að sjálfstæð-
isherinn hefur breyzt úr skæru-
her í þjálfað lið, sem er fært
um að beita öllum landhers-
vopnum. Hernaðaráætlun
frönsku herstjórnarinnar í Indó
Kína byggðist á þeirri skoð-
un að ef hægt væri að knýja
sjálfstæðisherinn til stórorustu
á afmörkuðum vígvelli væri
hann búinn að vera, alger yfir-
ráð Frakka í lofti og yfirburð-
ir þeirra í stórskotaliði myndu
gera þeim fært að tæta fylk-
ingar sjálfsstæðishersins í sund-
ur. Bardaginn við Dienbienphu
hefur fært Frökkum heim sann-
inn um að þeim hefur skjátlazt
alvarlega. Þar hösluðu þeir
sjálfstæðishernum vöil og
fengu stórorustúna sem þeir
þráðu en horfur eru á að leiks-
lokin verði á annan veg en
ætlunin var. Einvalalið Frakka
í Dienbienphu er i úlfakreppu
og ekki annað fyrirsjáanlegt en
að sjálfstæðisherinn geti gjör-
sigrað það hvenær sem hann
lystir. Öllum flugflota Frakka
hefur verið einbeitt að orust-
unni um virkið og liðsauki
sendur þangað frá öðrum
landshlutum svo að . allur
franski herinn um norðanvert
Indó Kína er berskjaldaður.
Fréttaritarar þarna austur frá
spá því að borgirnar Hanoi og
Haiphong á Rauðársléttunni
muni fara sömu leiðina og
Dienbienphu ef stríðið heldur
áfram.
FJorfurnar hafa þvi aldrei ver-
ið verri fyrir Frakka síðan
styrjöldin í Indó Kína hófst.
Svo er nú líka komið heima
fyrir að enginn stjórnmálamað-
ur fæst lengur til að mæia
því bót að barizt verði þl þraut-
ar. Meira að segja Georges Bi-
dault utanrikisráðherra kvað
vera að manna sig upp í það
að setjast við samningaborð
með fulltrúum ríkisstjórnar
sjálfstæðishreyfingarínnar og
semja við þá um vopnahlé í
trássi við Bandaríkjastjórn. Yf-
irburðirnar sem sjálfstæðisher-
inn hefur sýnt í orustunni um
Dienbienphu hafa orðið þess
valdandi að í fyrsta skipti síð-
an striðið í Indó Kína hófst eru
verulegar horfur á að endir
verði bundinn á vopnaviðskipt-
in.
CJjálfstæðisherinn hefur frá
^ upphafi verið undir stjórn
manns að nafni Vo Nguyen
Giap. Hann hefur unnið eitt
mesta herstjórnaraírek síðari
Vo Nguyen Giap
yfirhershöfðingi
Erlend
tíðindl |
tíma með þvi að breyta sund-
urlausum skærusveitúm í her-
afla sem liefur í fullu tré við
einvalalið atvinnuhermanna úr
útlendingahersveit og nýlendu-
her Frakka. Vo er af bændaætt-
um, fæddur árið 1909 í þorpinu
An Xa í landshlutanum Ann-
am. í skóla tók hann þegar
virkan þátt í sjálfstæðisbarátt-
unni gegn Frökkum, gaf út
blað um tíma og stjórnaði
námsmannaverkfalli gegn ný-
lenduyfirvöldunum. Nítján ára
gamall fékk hann að kynnast
fangelsum Frakka og sat í haldi
í þrjú ár samfleytt. Síðan las
hann lög við háskólann í Hanoi,
en varð að flýja land til Kína
árið 1939. Eftir að Japanir her-
námu Indó Kína kom hann til
landsins á laun og varð brátt
einn af forystumönnum skæru-
hernaðar landa sinna gegn
þeim. Eftir Ó3igur Japana.lét
sjálfstæðishreytíhgitý fara fram
fyrstu og einu jalménnu kosn-
ingarnar í sögu Indó Kína og
Vo var innanríkisráðhcrra í
fyrstu ríkisstjórn Ho Chi Minh
forseta. Þegar Frakkar rufu
grið á sjálfstæðishreyfingunni
og styrjöldin i Indó Kina hófst
skipaði Ho hann yíir herinn.
Kona Vo lét lífið í fangelsi
Frakka.
yrsti blaðamaðurinn frá
Vestur Evrópu sem haft
hefur tal af Vo Nguyen Giap
er Franco Calamandrei frá
ítalska blaðinu Unita. Viðtal
haris birtist í siðustu viku og
fer hluti af því hér á eftir.
„Ég spurði Giap hershöfðingja
um álit hans á orustunni um
Dienbienphu'1, segir Calamand-
rei. „Hann svaraði: „Þegar ó-
vinirnir settust að í Dienbien-
Framhald á 11. síðu
Kort aí lndO Ktna. Skyggðu svæðin voru á valdi sjálfstæðishers-
rits fyrir ári, á strikuou svæðunum börðust skæruliðar við
Frakka. Síðan hefur sjálfstæðisherinn náð mesíöilu svæðinu
norðan og ausían Lnang Prabang. Dienbienpiiu, sem mest er nú
barizt um, er merkt nieð krossi ofarlega á kortið. Rauðáróshúlin-
arnir, som rætt er um í greininni, ná frá Hanoi til sjávar. Há-
sléttan sem einnig er nefnd er sunnarlega í landinu við Dalat.
/