Þjóðviljinn - 22.05.1954, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 22.05.1954, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Laafardagur 22. ma, 1954 INNAN VII) MÚRVEGGINN EFTIR A. J. CRONIN 8. hennar — sem var frábrugðinn smekk hans — og lék venjulega lög eftir Hándel eða Elgar til að geðjast henni. En í dag var honum það um megn. Hann hafði litla löngun til að ganga með henni, en hann fann að hún r.afði meðfram stungið upp á þessu hans vegna, og því hafði hann ekkert á móti því. Hún tók undir handlegg hans, það mátti sjá að hún eignaði sér hann, og bann gekk við hlið hennar í áttina til Ormeau skemmtigarðsins. Þau voru snemma á ferli, en þó var talsvert fólk á ferli, konurnar stássklæddar, karlarnir virðulegir og sjálfumglaðir í sunnudagaföt- um sínum, og aldrei slíku vant gerði þetta Páli gramt í geði. Meðan þau róltu um garðinn sagði hann hálf- kæfðri röddu: „Ég er ekki í skapi fyrir þessa skrautsýningu." Hún varð dálítið gremjuleg, en sagði ekkert. Þótt hún væri ekki sérlega tilfinningarík, hafði hugur hennar iengi snúizt um hann. Siðsemi hennar leyfði hénni ekki að láta það uppi og þótt Páll teldi hana ágæta vinkonu og móðir hans gæfi stundum ýmislegt í skyn um sam- band þeirra, hafði hann tekið vináttu hennar með jafn- iyndi og kæruleysi, án þess að gera sér ljósan þann reg- jnmun sem var á þeim, frjálslyndi og léttlyndi hans sjálfs og siðvendni og þröngsýni hennar. Samt sem áöur leit Ella á þetta sem ákveðið mál- — framtíðaráætlanir hennar byggðust á væntanlegu hjónabandi þeirra. Hún var mjög metnaðargjörn bæði fyrir sína hönd og hans og taldi víst gáfur hans og reglusemi hennar færu vel saman. Hún sá í anda hvernig hún gæti mgð áhrifum sínum þokað honum áfram á framabrautinni, unz hann væri kominn í glæsilega lærdómsstööu og þau umgengj- ust frægt og mikils metið fólk. Vegna alls þessa höfðu upplýsingar síöustu daga sært stolt hennar djúpu sári. Hún sá líka, hve Páll hafði orðið fyrir miklu áfalli. En ef hún væri fús til að gleyma því öllu, því skyldi hann þá ekki vera það? Þetta var ekki banahögg, þetta lá allt grafið í fortíðinni og með dálit- jlli aðgæzlu var hægt að koma í veg fyrir að nokkurn þyrfti að gruna hið minnsta. Þannig var afstaða hennar. Og þegar hún fann að hann var enn eins og lamaður, fann hún til nokkurrar gremju í hans garð, sem þokaði samúðinni til hliðar. Hún var skapmikil, þótt hún færi vel með það, — hún var ekki ofsafengin en nöldursöm og þessa stundina meöan hann var að tala, kostaði það hana mikla áreynslu að dylja gremju .sína. „Mér finnst eins og ég hafi siglt undir fölsku flaggi í öll þessi ár.“ Hikandi og vancþ’æðalegur reyndi hann að finna ömurlegum hugsunum sínum orð. ,,Ég get ekki einu sinni kallað mig Burgess lengur — ég heiti Mathry, Páll Mathry .... ef ég nota ekki það nafn er ég lygari og svikari. Ef ég nota það má ég búast við að fólk bendi á mig, hvíslist á um mig .... þetta er Mathry, sonur mannsins sem ......“ „Vertu ekki að þessu, Páll,“ greip hún fram í. „Þú gerir þetta svo erfitt. Enginn þarf að komast að þessu.“ „En ég veit þaö, þótt enginn annar viti það.“ Hann hélt áfram göngunni og starði þjáðum augum fram fyrir sig. „Já hvað um mig, sjálfan mig ...... hvað á ég að gera?“ ,,Þú verður að reyna að gleyma þessu öllu“. „Gleyma?“ endurtók hann agndofa. „Já.“ Hún var aö missa þolinmæðina. „Það er ofur- einfalt. Þú verður að hætta að hugsa um .... þennan Mathry.“ Hann leit á hana með ofsa í augum. „Afneita föður mínum?“ „Hefurðu ástæðu til að vera hreykin af honum?“ „Hvað svo sem hann hefur gert, þá hefur hann greitt lyrir það meö fangelsisvist .... mannfjandinn.“ „Ég var aðeins að hugsa um þig,“ svaraði hún snögg- -ega. „Og ég verð að biðja þig að bölva ekki í návist minni.“ „Ég sagðí ekkert ljótt.“ „Víst gerðirðu þaö.“ Hún gat ekki stillt sig lengur. Blóðið þaut fram í kinnar hennar. Hún tók andköf. „Þú notaðir ljótt orð sem engin siðsöm stúlka getur þolað. Framkoma þín er óþolandi.“ „Hvernig ætlastu til að ég hagi mér?“ „Dálítið kurteislega. Þú virðist ekki skilja, að þetta snertir mig alveg eins mikið og þig.“ „Ó, Ella, í guðs bænum reynum að haga okkur eins og fullorðið fólk.“ Hún rétti allt í einu úr sér, henni var stórlega mis- boðið og hún fann hjá sér ómótstæöilega hvöt til að beita áhrifum sínum á hann. Það var grænleitur fölvi á andliti hennar, augu hennar voru rök og galopin. „Ég er hrædd um .... fyrst þú ert í svona skapi . . . að það sé tilgangslaust að við göngum lengur saman.“ Það varð þögn. Hann einblíndi á hana. Hugur hans var langt burtu. „Alveg eins og þú vilt.“ Það kom henni á óvart aö hann skyldi taka orö henn- ar bókstaflega, og hún beit á vörina og reyndi að bæla niður reiðitár. Og fyrst hann gerði enga tilraun til að halda í hana, brosti hún dauflega til hans, brosi blöndnu ásökun og réttlátri reiði — píslarvættisbrosi kristinnar meyjar frá fyrri öldum sem klipin var glóandi töngum. „Jæja, ég sný þá við og fer heim. Vertu sæll. Ég vona þú verðir 1 betra skapi þegar við hittumst næst.“ Hún sneri sér við og gekk af staö háleit og tíguleg stúlka sem hafði verið særð holundarsári. Andartak stóð hann og horfði á eftir henni, harmaði þennan ."urðulega misskilning, en um leið fagnaði hann því aö vera orðinn einn. Þegar hún var horfin sýnum, gekk hann hægt af stað í aðra átt. r r 'C^eiwiiiisþáÉÉiir \ V y !/V r/ :iAJ-s/s- rrss's. «• /////.' /sr/ /»/>// ////v*//> / 'S/sSS, ý V ’ . S.' S-S ? ////,% ■~S ' / s /.'yj-s/ss S '■< 'V>>V/V S’/ -/S/sS-r S S/ ■■//■// - //■/ // /S/ rs ■'//./■//'/.<■ /-.//■/■+:;£ '■/ ■/ s S/ - / /s S - ' : t- r / ■/ r/r/r//'/■> '.y *■/■/■ / / -*ý ;í • *s-/.//■?/ /•/ •/ ■+x%ý$sjjí/Á '////. f S' s * ■. • s.. '// /sSSSS/S/Z - /,*//ý>/>>;i /;/S//.rs. \./ss/ /////. ■■: /S-, \/ s-r-'^s/s s /: 's/////<?//:. {.«!&/SSS/S' ^rsssss//- V///////* '/■//■S /■/.//y t'/ss.-ssr'/: /■/>///■/ ' - jr .. ■■//■// Vý'/V/:/; "■/>/'// . '■/> .';//■ y/.ssrr [/*•> ■>’//■/ y,.,, ..... \s;/:/SS',./ '■/ .:\/>///■/ . «■ W&& : \ r-sr r/ , 'sr/ - > JSA'.■/ ._._>/ss/:s ■/■s-ss-s^ ;/srs/s\ með viðum ermum og vidd ■■:. .... i bakið. . Hin kápan er einnig ætluð ungri stúlku. Hún er hentug og stílhrein, tvíhneppt með kraga og hornum og risastórum Vös- um. Þessari kápu verður mað ur síður leiður á en hinni, en ungu stúlkurnar eru nú ekki allt- af fyrst og fremst að hugsa um það. Skrýtin kápa og falleg kápa Kápur þurfa ekki að vera leiðinlegar og einkum geta'ungu stúlkurnar valið um skemmtileg I kápusnið. Kápan með munka- kraganum er skemmtileg kápa á unga stúlku. Líka er hægt að bretta kragann niður. Kápan er úr þykku ullarefni og kragirn er ekki einungis skringilegur, heldur einnig hiýr. Kápan er Þa3 sem mestu skipti í Suður-Afríku voru fyrir skömmu haldin réttarhöld yfir ungri stúlku sem ákærð var fyrir að hafa stungið mann með hníf. Nánari lýsingar á máis- atvikum eru ekki fyrir hendi, því að eftir símskeytum við- staddra blaðamanna að dæma hafa þeir haft áhuga á allt öðru — sem sé að fullyrða að viðliomandi stúlka hafi verið glæsilegasti kvenmaður sem nokkru sinni hafi stigið fæti í réttarsal í Suður-Afríku. AcCall's '783 Tveir kjólar fyrir einn! Athugið að með því að nota MC CALL'S ' sniðim og sauma sjálfar, get- ið þér fengið tvo kjóla fyrir andvirði eins tilbúins Ný sending af Mc Call's sniðum og fcönskum sumackjólaefnum Vogue Bergstaðastræti 28. GCfJLT OC CAMÞN Hann var frægur rithöfundur, en var mjög andvígur h!jóm- list og bar heldur ekkcrt skyn á hana. Eitt sinn iánaðist dóttur hans að teyma hann með sér á hljómieika; en áður en fyráéi vérkið hófst, laut harin að henni og hvís'aði: Þú ættir að skýra, þetta verá: út fyrir mér, svo að ég ’átj x ljós þá réttu geðshi-æringu yfir því. í aluminíumkötlum og pottum myndast oft dökkleit húð. Hún er óskaðleg, en ef maður vill ná henni burt er bezt að sjóða í katlinum eða pottinum vatn með álúni í. Upplausnin á að vera ca. 10%, með öðrum orð- um 10 hlutar vatn og 1 hluti álún. Það var eitt sinn verið að sýna óperuna Fá&t í erlendri sönghöl. Sýnt var það atiáði er Mefistófeles og Fást taka að síga niður til Vítis, en. höfuðin á þeim stóðu enn upp lyrir sviðsgólfið er pallurinn sem þeir stóðu á staðnæmdist snögglega, þannig að þeir konx- ust ekki lengra. Þar stóðu þeir og máttu sig ekki hræra. Eftir nokkurt þóf kallaði Iri nokkur meða'. áihoi-fcnda upp yfir sig í fögnuði: Þá er ég hó’pinn — helvíti er fullt! * * -x- x- Fabia Dollabe'Ja sagðist vera þritug að a'dri, og varð þá S'seró að orði: Það hlýtur að vera satt, því ég er búinn að heyra það svo Jengi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.