Þjóðviljinn - 10.06.1954, Page 12

Þjóðviljinn - 10.06.1954, Page 12
17. Sjómannadagunnn er á sunnudaginn Um 4 milij. Urtmm heiur þegar rerið vt&r- ið til b&§ggingurinnar og 2/s hlutur hennar eru fohheldir Á sunnudaginn verður Sjómannadagurinn haldinn liá- tiölegur í 17. sinn. Hátíðahöldin í Reykjavik verða að þessu sinni með sérstökum myndarbrag, en forseti íslands ieggur þá hornstein að byggingu Dvalarheimilis aldraðra sjómanna í Laugarásnum. 13.30, er hópganga' sjómanna leggur af stað frá Borgartúni 7 áleiðis að byggingu Dvalar- heimilisins í Laugarási. I göng- unni verður m.a. skrautbúið ,,vikingaskip“, sem sérstaklega hefur verið smíðað vegna há- tíðahaldanna og komið verður fyrir á stórum flutningavagni. ,,Víkingaskipið“ verður mannað Rúmlega % hiutar Dvalar- heimilisbyggingarinnar eru nú lokheldir og heftir um 4 millj. lcróna Jtegar verið varið til hennar. Áætlað er að kosta muni annað eins að fullgera ]>ann hluta byggingarinnar sem kominn er undir þak, en er þeim áfanga er náð getur heim- ilið hafið starfsemi sína og tek ið á móti um 180 vistmönniini til dvalar. Iþróttir á laugardag — C'tvarpsdagskrá á sunnu- dag. Eins og venjulega hefjast Sjómannadagshátíðahöldin á laugardag. Kl. 15 hefst kapp- ráður í Reykjavíkurhöfn og róa þar bæði skipshafnir og kvennaflokkar. Einnig verður keppt í stakkasundi og björg- unarsundi. Á sunnudag verður dagskrá útvarpsins að mestu helguð sjómannadeginum: Útvarpað verður frá hátíðahöldunum í Reykjavík um miðjan dag, Jón Oddgeir annast um barna- tímann, og um kvöldið verður sérstök dagskrá með samtals- þætti, söng og leikþætti og óska lagaþætti skipshafna. Víkingaskip í skrúð- göngunni. Á sunnudag — Sjómannadag- inn — hefjast hátíðahöldin kl. Halldór Halldórs- son ver doktors- ritgerð sína Heimspekideild Háskóla fs- lands hefur tekið gilt til dokt- orsvarnar rit mag. art. Halldórs Halldórssonar dósents: íslenzk orðtök. Andmælendur verða pró- fessorarnir Alexander Jóhannes- son og Einar Ól. Sveinsson. At- höfnin fer fram í hátíðasal há- skólans laugardaginn hinn 12. júní kl. 2 e. h. eldri sjómönnum og nokkrum stafnbúum í fornmannabúning- um. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur fyrir göngunni. Hornsteinninn lagður. Kl. 14 hefst hátíðin við Dval- arheimilið með því að Guð- mundur Jónsson óperusöngvari syngur, Síðan minnist biskup íslands, herra Ásmundur Guð- mundsson, drukknaðra sjó- manna, en þá verður þögn í eina mínútu um leið og blóm- sveigur er lagður á leíði ó- Framhald á 3. siðu. MarkverS lilrauE með nýja ísiegund Togaiinn Geis íór út með svokallaðan feromycenís til að ísa í hiuta af aflanum í gær íór togarinn Geir á veiðar með 30 tonn af „ný-ís“ svo- kölluðum, eða öðru uafni foromyeen-ís, en ís blandaður foromy- cen er bakteríudrepandi og kvað Italda fiskinum lengur ó- skemmdum en venjulegur ís. I gær ræddi Ólafur Þórðar- son við blaðamenn um tilraunir Bidault ver stefnu sína Bidault utanríkisráðherra hóf í gær umræðtir á franska þing- inu um Indó Kína. Hann bað þingmenn að sýna þolinmæði og treysta stjórninni. Bidault sór og sárt við lagði að hann vildi semja frið í Indó Kína, orðrómur um að hann stefndi í raun og veru að því að fá Bandaríkin til að ganga í styrjöldina með Frökkum væri uppspuni frá rótum. Á eftir Bidault tók til máls Mendés-France úr róttæka flokknum, sem álitinn er líklegt forsætisráðherraefni ef núver- andi stjórn fellur. Hann kvað ríkisstjórnina hafa sýnt ein- stakt ráðleysi i öllu sem Indó Kína varðar en þó mætti þingið þrví aðeins afsegja hana að tryggt væri að við myndu taka nýir menn með nýja stefnu bæði útávið og innávið. Samvmnumenn í Englandi hafna þýzkri hervæðingu Þing sambands brezkra samvinnufélaga lýsti í gær yfir andstöðu við ráðageröir um hervæðingu Vestur- Þýzkalands. hersveita í Vestur-Evrópuher. Á þingi Samvinnuflokksins, stjórnmálasamtaka samvinnu- Þingið, sem haldið er í Scar- borough, samþykkti með 6355 atkvæðum gegn 5388 ályktun þar sem því er mótmælt að Bret- ar gefi samþykki sitt til þess manna, í vor var einnig lýst yfir andstöðu við þýzka hervæðingu. dl {JCU ðfliupj v** ---|--------- ‘ “ að Þýzkaland sé hervætt á ný. Samvinnuflokkurinn hefur nána Sambandsstjórnin lagðist gegn samvinnu við Verkamannaflokk- * inn og á 18 menn á brezka þing- ályktuninni en beið lægra hlut. Höfnuðu fulltrúarnir vöm henn-’ inu. Félagar í brezku samvinnu-[_til að fá betri vöru í land eftir ar fyrir innlimun vesturþýzkra, félögunum eru 11 milljónir. er hann hefur gert með foromy- cen-ís. Hann kveðst telja að fiskur sem settur er í ís í tog- urunum sé mun verri vara þeg- ar að landi kemur, en hún þurfi að vera. Sé hluti af aflanum slepjaður og fari því í herzlu eða jafnvel fiskimjöl, i stað þess að vera sú gæðavara sem hann er nýveiddur. Ólafur kvaðst hafa kynnzt svonefndum ný-ís eða foromy- cenís í Danmörk, en þýzkur efnafræðingur, dr. C.P. Otters- bach, hefði tekizt það 1948 að framleiða bakteríudrepandi efni er hann kallar foromycen. Ólafur komst síðan í s'am- band við framleiðendur þessa efnis og hefur síðan gert til- raunir í smáum stíl með foro- mycenís. Hafa tilraunir þessar farið fram í rannsóknarstofu Fiskifélagsins og víðar, og telur hann fisk geymast mun lengur óskemmdan í slíkum ís, en venjulegum ís. En tilraunum Fiskifélagsins er ekki lokið. Hann kvað Bergstein Berg- hafa fylgzt með tilraunum þessum og dr. Jakob Sigurðs- son forstjóri Fiskiðjuvers rík- isins kvað hann hafa hjálpað sér við framleiðslu íssins. Til stóð að togarinn Fylkir gerði tilraun með ís þenna, en þar sem hann fer ekki aftur á veiðar að sinni verður tilraunin gerð á togaranum Geir, og átti hann að fara út í gær með 30 tomi af foromycen-ís og 50 tonn af venjulegum ís. Verður sá fiskur er fyrst veiðist látinn í foromycenísinn. Verður fróð- legt að sjá hvernig tilraun þessi tekst, þvi mikilvægt er ef hægt væri að fá betri fisk og ó- skemmdan. Ólafur lagði áherzlu á að úthaldsdögun togarans yrði ekki fjölgað að sinni þótt „ný-ísinn“ væri notaður heldur venjulega veiðiför. Fimmtudagur 10. júni 1G54 — 19. árgangur — 127. tölublað £ Sk ®P liiur ágcSi öi syninguimi rcrmur iil hjálpar nauðsiöddum börnuin bér á landi og criendis í gær var opnuð í Listamannaskálanum fjölbreyttasta sýning á barnateikningum, sem nokkru sinni hefur verið’ haldin hér á landi. Er hér um að ræða nokkur hundruð mynda, teiknaðra og málaðra, eftir börn í fjölmörgum löndurn heims. Ilandíða- og mvndlistarskólinn efnir til sýningarinnar í sam- J vinnu við fræðslumálastjóra og sendiherra Dana hér á landi, en forsaga hennar er i stuttu máli þessi: 10 valin ævintýri H. C. Andersens Fyrir þremur árum efndi danslca hjálparstofnunin „Red barnet“ („Bjargið börnunum“), til alþjóðlegrar teiknisamkeppni barna urn myndir í tíu valin ævintýri eftir H. C. Arídersen. Þátttaka varð geysimikil og lögðu mörg hundruð þúsund barna á ýmsum aldri fram getu sina í þessari samkeppni. Frá hverju landi voru siðan valdar 100 beztu myndirnar eða alls 4500 myndir frá 45 þjóð- löndum. Úrval þetta var síðan sent dönsku félagsdeildinnij „Red barnet". — í fyrrasumar var opnuð sýning á myndum þessum í Ti- voli í Kaupmannahöfn. Sýning þessi stóð alllengi og var að- sóknin allan tímann mjög mikil, enda hlaut hún hvarvetna frá- bæra dóma. Að lokinni þessari heildarsýn- ingu var myndasafninu skipt í 3 farandsýningar, sem nú eru á ferð frá einu þátttökulandinu til annars. Sýningin, sem nú er hér var síðast í Finnlandi, en þar áður var hún í Svíþjóð og víðar. Héðan heldur hún svo áfram för sinni um heiminn. Ágóðinn rennur til hjálpar nauðstöddum börnum Sýningin var opnuð kl. 17,30 í Listamannaskálanum að við- stöddum mörgum gestum, m. a. forsetahjónunum. Framkvæmda- stjóri sýningarinnar, Lúðvíg Guðmundsson skólastjóri, mælti fyrst nokkur orð. Gat hann þess m. a. að helmingur hreinna tekna sýningarinnar skyldi ganga til styrktar hjálparstarfsemi „Red barnet“ víðsvegar um heim, en hinum helmingnum yrði varið til aðstoðar þurfandi börnum hér á landi og yrði Rauða kross- inum afhent féð til ráðstöfunar. Forseti íslands ávarpaði sýn- ingargesti nokkrum orðum og einnig Jón Auðuns form. Reykja- víkurdeildar Rauða krossins. Lárus Pálsson leikari las upp ævintýri Andersens um nýju föt- in keisarans, en síðan afhenti Bodil Begtrup, sendiherra Dana, nokkrum íslenzkum börnum sem þátt tóku í sýningunni viður- kenningarskjöl frá „Red barnet“. Loks talaði Helgi Elíasson fræðslumálastjóri og lýsti sýn- inguna opnaða. Lítil atvinna í Höfðakaupstað Höfðakaupstað. Frá fréttar. Þjóðviljans. Atvinna hefur verið frekar lítil undanfarið. Byrjað er þó á lagningu rafleiðslu frá Blöndu- ósi til Skagastrandar og einnig er unnið nokkuð að hafnar- framkvæmdum á báðum fyrr- nefndum stöðum. Bátar frá Höfðakaupstað eru hættir veiðum fyrir hálfum mánuði og aðeins 1 bátur af 4 mun fara á síldveiðar í sumar. Aflahæsti báturinn í Höfða- kaupstað var Auðbjörg með 12 600 kr. hásetahlut yfir vetr- arvertíðina. Stúdentaráð Háskólans gefur út HátíðablaS 17. júní Aherzla lögð á baráttu íslenzkra stúdenta gegn hernáminu Fyrir nokkru ákvaö Stúdentaráö Háskóla íslands að minnast þess að tíu ár eru liðin frá stofnun lýðveldisins 17. júní með útgáfu hátíðablaös. Efni 17. júní blaðsins verðurj f jölbreytt og vandað og hefur. verið leitað til margra þjóð- kunnra manna úr hópi eldri og j yngri stúdenta um skrif í það. í blaðinu koma m. a. fram skoð- anir mikils meiri hluta háskóla- stúdenta í herstöðvamálinu, en þeir eru eins og kunnugt er and- vígir hinni erlendu hersetu og vilja að bundinn sé endi á hana hið fyrsta. Vökumenn í Stúdenta- ráði hafa verið með nokkra til- burði til að spilla efni blaðsins og hindra útkomu þess, en þeim hefur gjörsamlega mistekizt. Enda er það nú að verða æ ljós- ara, að formælendur ameriskra herstöðva eru engir meðal há- skólastúdenta, nema fámenn og einangruð klíka ihaldspilta sem enn stjórnar Vöku. Ætlunin mun vera að hátíða- blaðið komi út nokkrum dögum fyrir 17. júní og verði dreift um allt land. Standa vonir til að blaðið verði vel úr garði gert og stúdentum til mikils sóma.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.