Þjóðviljinn - 30.06.1954, Qupperneq 1
Safinagnslausl
í gærkvöld og fyrnnóit
Rafmagnslaust varo um all-
an bæ tæpan hálftíma í gær-
kvöld. Stafaði stöðvunin frá Á-
burðarverksmiðjunni, og varð
einnig hliðstæð bilun í fyrri-
nótt af sömu ástæðum.
B(mdarík|@menn hcmicsst gegn
griðasáttmála Hsíuríkjanna
Þingnefnd fordcemir hugmynd Edens vegna
þess oð hún myndi hindra árás á Kina
Utanríkismálanefnd fuiltrúadeildar Bandaríkj aþings
samþykkti í gær að binda dollaraaðstoð tíl landa í Asíu
því skilyrði að þau gerist ekki aðilar að griðasáttmála
allra Asíuríkja, sem brezka stjórnin hefur stungið upp á.
Nefndin ákvað að setja það
ákvæði inn í lögin um banda-
ríska aðstoð við önnur riki, að
elckert ríki sem gerist aðili að
almeniium griðasáttmála Asiu-
ríkja fái hlutdeild í þeim 800
milljónum dollara, sem sam-
kvæmt lögunum eru ætlaðar
ríkjum í Austur-Asíu.
Brugðu liart við
Samþykkt þessi er gerð til
að fylgja eftir bréfi, sem 12 af
nefndarmönnum sendu Eisen-
hower forseta strax og fréttist
af ræðu Edens utanrikisráð-
lierra í brezka þinginu í síðustu
viku. Þar gerði Eden það að til-
lögu sinni að öll Asíuríki geri
með sér griðasáttmála, þar sem
þau heiti því að ráðast ekki
hvert á annað.
Siík skuldbinding er að
dómi bandarisiui þingmann-
anna hinn mesti voði, því að
hún myndi kom fyrir kattar-
nef öllum fyrirætlunum um
herferð gegn Kína til að
koina Sjang Kaisék þar aft-
ur til valda. Sést það af
þesm orðum í bréfinu íil for-
sstans, að griðasáttmáli væri
ekki aðeins „viðurkenning á
landvinnisigum kommúnista
heldur hefði einnig það í för
Framh. á 5. síðu
\
Staðfesfy vináttu
Burma og Kína
Forsætisráöherrar Kína og Burma lýstu yfir í gær aö
lönd þeirra aðhylltust sömu meginreglur um skipti ríkja
í milli.
Sjú Enlæ, forsætis- og ut-
anríkisráðherra Kína, hefur
rætt í tvo daga við U Nu, for-
sætisráðherra Burma, í Ran-
eoon.
Nýtt valdarán í Guatemala
Herforingjaklíka tekur upp samninga
við innrásarherinn
Ný herforingjaklíka hrifsaði í gær völdin í Guatemala
eftir aö sú sem hrakti Arbenz forseta frá völdum hafði
enzt í þrjú dægur.
t útvarpi frá Guatemalaborg
í gærmorgun var skýrt frá
því að Diaz ofursti, er tók sér
forsetanafn eftir að hann á-
samt öðrum herforingjum hafði
knúð Arbenz til að segja af
sér, hefði látið af völdum og
við þeim hefðu tekið þrír of-
urstar, sem allir stóðu með
Diaz að því að hrekja Arbenz
úr embætti.
Lroftárás á höíuðborgina
Tilkynningin um nýju stjórn-
arskiptin var birt skömmu eft-
ir að tólf flugvélar innrásar-
hersins, sem hafa bækistöð sína
á einkaflugvöllum bandaríska
auðfélagsins United Fruit í
Honduras, höfðu gert sprengju-
árás á Guatemalaborg. Armas,
foringi innrásarhers:ns, hafði
hótað að árásin yrði gerð ef
Diaz gæfist ekki upp fyrir sér.
Diaz handtekinn
stuðningi hans við stjórn Ar-
benz.
Þingið leyst upp
Herforingjaklíkan hefur leyst
þingið upp og tilkynnt að öll-
um þeim sem uppvísir voru
að því að vera í vitorði með
innrásarmönnum og hnepptir
höfðu verið í varðhald hafi
verið gefnar -upp sakir og
þeir látnir lausir.
Arbenz forseti er kominn til
E1 Salvador, nágrannaríkis
Guatemala. Stjórnin i Mexíkó
hefur boðið honum landvist.
I tilkynningu í gærkvöld
segjast þeir vera sammála um
að Asíuríki eigi í skiptum sín-
um að fylgja þeim reglum, sem
Sjú og Nehru, forsætisráðherra
Indlands, settu fram eftir fund
sinn um síðustu helgi, og
þeirra verði gætt í skiptum
Burma og Kína.
Reglur þessar fjalla um það
að ríkin skuli virða sjálfstæði
og fullveldi hvers annars, forð-
ast að skipta sér hvert af
annars innanlandsmálum og
hafa með' sér friðsamlega sam-
búð þar sem hagur allra er
tryggður.
Meðan Sjú dvaldi í Rangoon
heimsótti hann Gullnu pagóð-
una, helzta guðshús búddatrú-
armanna í Burma.
Bandarísk blöð láta í ljós
þiungar áhyggjur yfir því, hver
áhrif ferðalag Sjú til Indiands
og Burma hafi haft á þjóðir
Suður-Asíu.
Hörmulegt slys í fyrradag:
9 ára drengur stingur sig til
bana með skeiðahníf
Það hörmulega siys varð hér í bænum í fyrrakvökl að 9 ára
drengur, Stefán Hinrik Þórarinsson Grettisgötu 45, stakk sig
óviljandi með skeiðahníf í nárann og beið bana.
Fréttaritarar segja að Diaz
sé í varðhaldi og herforinngj-
arnir sem tóku við af honum
hafi lagt drög að því að taka
upp samninga við Armas inn-
rásarforingja. Þeir eru einnig
sagðir hafa fyrirskipað hand-
tökur allra fylgismanna Verka-
lýðsflokks Guatemala en
Bandaríkjastjóm byggði ásak-
anir sínar um kommúnistískt
stjórnarfar í Guatemala. á
Drengurinn hafði fengið skeiða-
hnífinn að gjöf fyrr um daginn.
Var hann úti við um kvöldið, en
kom allt í einu grátandi inn til
sin. Blæddi mjög úr nára hans,
og var þegar gengið úr skugga
um hvað komið hafði fyrir. Var
drengnum ekið í Landspitalann
af mikilli skyndingu, en hann
lézt áf sárinu um það bil sem
hann var borinn inn í sjúkra-
húsið.
Drengurinn mun hafa verið
einn er slysið bar að höndum,
og er því ekki vitað hvernig það
hefur borið til. En líklegt er
talið að hann hafi ætlað að stinga
hnífnum í skeiðina, en fatazt
handtakið með þeim afleiðingum
sem að ofan greinir. Rannsóknar-
lögreglan sagði blaðinu í gær að.
starfsmenn þar hefðu sjaldanj
eða aldrei séð svo hvassan hníf.j
Strætisvagnar stangast illilega
Þrjár konur meiddust — Vagnarnir siórskemmdusi
í gærmorgun varð harkalegur árekstur milli tveggja strætis-
vagna á horni Óðinsgötu og Skólavörðustígs. Þrjár konur meidd-
ust nokltuð ríð áreksturinn.
Báðir strætisvagnarnlr voru
á leiðinni Skólavörðustígur —
Gengur saman
Á fundi formanna sendinefnda
í gær á ráðstefnunni í Genf um
frið í Indó Kína sagði fulltrúi
sjálfstæðishreyfingarinnar þar að
nýjar tillögur Frakka um eftir-
lit með vopnahléi væru vel sam-
ræmanlegar tillögum, sem Molo-
toff, fulltrúi Sovétríkjanna, bar
fram á sínum tíma. Lagði hann
til að sérfræðinganefnd yrði fal-
ið að samræma tillögurnar.
Gunnarsbraut. Kom annar upp
Skólavörðustig en hinn norður
Óðinsgötu. Líktu vegfarendur
árekstri þessum við þegar reið-
ir hrútar stangast. Urðu stræt-
isvagnarnir fastir saman og
voru dregnir í sundur með
kranabílum.
Tvær konur skárust á enni
en ein meiddist á fæti og þrír
aðrir farþegar meiddust öriítið.
Myndirnar sýna bílana eftir
áreksturinn þegar búið er að
draga þá hvorn frá öðrum. Báð-
ir vagnarnir skemmdust mjög
mikið.
rekinn frá störfum
Kjarnorkunefnd Bandankjasijórnat
treyslir yiirsmið kjarnorkusprcngjunnar
Kjarnorkunefnd Bandaríkjastjórnar hefur ákveðið að
útiloka dr. Robert Oppenheimer frá þátttöku í banda-
rískum kjarnorkurannsóknum.
Með fjórum atkvæðum gegn
einu féllst nefndin á niðurstöðu
nefndar, sem Eisenhower forseti
skipaði i fyrravetur til að rann-
saka „þjóðhollustu“ Oppenheim-
ers. Tveir nefndarmenn a£ þrem
lögðu tii að Oppenheimer yrði
meinaður aðgangur _að öllum
kjarnorkuleyndarmáium, vegna
þess að öryggisáhætta væri fólg-
in i því framferði hans að um-
gangast fólk sem hefði komm-
únistiskar’ tilhneigingar. Kona
Oppenheimers var í Kommúnista-
flokki Bandaríkjanna skamma
hríð fyrir 17 árum. Nefndar-
mennirnir tóku það fram að þeir
teldu Oppenheimer þjóðhollan
og þagmælskan en hann hefði
ekki sýnt nóga hrifningu þeglar
sú ákvörðun var tekin að hefja
smíði vetnissprengju.
Vísindamenn mótmæla
Oppenheimer stjórnaði á stríðs-
árunum smíði fyrstu kjarnorku-
sprengjanna í rannsóknarstöðinni
Los Alamos og siðan hefur hann
lengst af verið formaður ráðgjaf-
arnefndar Bandaríkjastjórnar
um vísindahlið kjarnorkumál-
anna.
Starfsbræður Oppenheimers,
bandarískir visindamenn, haía
næstum sem einn maður mót-
mælt meðferð stjórnarvaldanna á
honum.