Þjóðviljinn - 30.06.1954, Blaðsíða 7
— Miðvikudagur 30. júní 1954 — ÞJÖÐVILJINN — (7
Guatemala er eitt af frum-
stæðustu landbúnaðarlöndum
Mið- og Suður-Ameríku. Það
er eitt af sex ríkjum Mið-Ame-
ríku og strendur þess liggja
öðrumegin að Kyrrahafi en
binumegin að Karabíska haf-
inu. Stærð þess er 108.9 þýs.
íerkílómetra og íbúafjöldinn
um 3 milljónir. Af þeim eru
meira en 70% indíánar, og eiga
þeir við bás kjör að búa. Flest-
ir eru þeir verkamenn á plant-
ekrunum eða í trjávöruiðnaði
og annars staðar þar sem ekki
þarf sérkunnáttu til. Einungis
óverulegur hluti indiána lifir
af búfjárrækt, nokkrir þeirra
hokra þó á hrjóstrugum land-
skæklum í fjallahéruðum. Aðr-
ir íbúar Guatemala eru mest-
ísar sem mynda borgarastétt
bæjanna, kaupmannalýð og
handiðnaðarmenn; yfirstétt
landsins, aðall, landeigendur
og skriffinnar á ríkisskrifstof-
um eru kreólar af spænskum
ættum cg eru þeir um 1%
íbúánna.
Guatemala varð sjálfstætt
ríki ásamt öðrum ríkjum Mið-
Ameríku á þriðja tug 19. ald-
ar að loknu frelsisstríoi hinná
spænsku nýlendna í Vesturálfu.
En frelsið féll ekki þjóðinni í
hlut heldur varð aðail og land-
eigendur hin ríkjandi stétt í
landinu.
A valdatímabili einræðisherr-
ans Estrad Kabrer í upphafi
20. aldar féll landið undir efna-
hagsleg og stjórnmálaleg yfir-
ráð Bandaríkjanna. Bandariskt
fjármagn náði tökum á mikil-
vægustu atvinnuvegum Guate-
mala. Heildarhlutafjáreign
Bandaríkjanna í Guatemala í
lok árs 1940 nam 74 millj. doll-
ara (1). Hlutafjáreign annarrá
ríkja heimsauðvaldsins var 49
millj. dollara, Bretland átti 25
millj. dollara, Þýzkaland 20
millj. og Holland^ 4 millj. doll-
ara.
I heimsstyrjöldinni síðari óx
fjárfesting Bandaríkjanna í
Guatemala þvínær. 4 sinnum.
1950 nam hlutafjáreign þeirra
þar 250 millj. dollara, en Breta
0.8 millj. sterlingspunda (2).
Þannig höfðu Bandaríkin rekið
þvínær alla keppinauta sína úr
Guatemala og gert það að yfir-
ráðasvæði sínu.
Mikill meirihluti fjármagns
Bandaríkjanna i Guatemaja er
í eigu þriggja auðfélaga: United
Fruit, International Railways of
Central America (IKCA) og
F.mpresa Electrica de Guate-
mala sem er dótturfyrirtæki
bandaríska hringsins Electric
Bond and Share Co. tlringar
þer.sir hafa haft óskoruð völd
yfir efnahagslífi Guatemala og
hafa í krafti þeirra farið með
landið eins og nýlendu Banda-
ríkianna.
Heita má að auðhringurinn
United Fruit Co. hafi orðið
ríki í ríkinu, og farið að eigin
lögum og geðþótta. Hann hefur
með höndum alla framleiðslu
og útflutning banana, kaffis og
reyrsykurs landsins. Hringur
þessi hefur og tekið í sínar
hendur mestan hluta siglinga
og útgerðar landsins, innan-
landsverzlun og járnbrautir.
Undir yfirráðum hans hafa og
verið þrjár hafnir landsins:
Puerto Barrios (á strönd Kara-
bískahafs) og San Jose og
Champerico (báðar á Kyrra-
hafs^tröndl. Gróði fyrirtækja
félagsins í Guatemala hcfur
iiÉlllStel
'• i. 4< A
verið samkvæmt skýrslum þess
allt að 109 millj. dollara á ári
en það er mun hærri upphæð
en niðurstöðutölur fjárlaga rík-
isins.
Annar hringurinn, IRCA, er
einnig umfangsmikill í efna-
hagslífi landsins. í hans eigu
eru allar jámbrautir landsins,
nema þær sem eru í eigu hinna
tveggja hringanna. Samaniögð
lengd jámbrauta félagsins er
um 1300 km. Farm- og far-
gjöld félagsins eru þau hæstu
er þekkjast nokkurs staðar, en
einokun þess á járnbrautum
landsins gerir þvi okrið kleift.
Gjald undir farm frá Puerto
Barrios til höfuðborgarinnar,
300 km leið, er hærra en gjald
undir.sama farm frá Evrópu
til Guatemala. íbúar Guate-
mala tapa á hverju ári tugum
milljóna dollara ekki einungis
vegna okurs á farmgjöldum
með járnbrautum heldur og
með skipum hringsins United
Fruit. Loftsamgöngur alíar að
og frá landinu hafa og verið
undir yfirráðum hinna banda-
rísku hringja.
Þriðji hringurinn, Empresa
Electrica, framleiðir þvínær
alla raforku landsins. Okur
hams á framleiðslu sinni er fá-
--------------------------\
Grein þessi er eftir G Tík-
honoff og birtist í tinia-
ritinu Voprosi Ekonomiki,
4. hefti þessa árs.
heyrt og liklega í engu landi
eins.
Allir þessir þrír hringir hafa
með sér nána samvinnu og
koma fram út á við seni einn.
Þeir fara sinu fram hvað sem
innlend stjórnarvöld landsins
segja og hundsa algerlega lög
þess. Óþarft er því að geta
þess að um áratugi hafa þeir
enga skatta greitt til ríkisins.
Vegna landeigendaaðalsskipu-
lagsins hefur landbúnaður
Guatemala þróazt litt eða ekki,
en þvínær alH ræktað land
tekið undir plantekrur United
Fruit. En framleiðsla þeirra er
ekki miðuð við þarfir íbúa
landsins heldur við útflutning
og gróða. Höfuðframleiðslu-
vörurnar eru bananar, kaffi og
sykurreyr. Árið 1951 voru ban-
anar og kaffi 84.7% af heildar-
útflútningnum en á síðustu ár-
um hefur sú íala hækkað í
95%. Ár>ð 1348 náðu kaffi- og
bananaekrur landsins yfir
165.4 þús. ha. eða 31% alls
ræktaðs lands (3). í Guatemala
eru taldar vera 12 þús. kaffi-
ekrur með 138 millj. trjáa.
Vegna hinnar einhæfu rækt-
unar landsins er ekkert korn
ræktað í landinu né margar
aðrar undirstöðutegundir mat-
væla. Þau verður því að flytja
inn. Árið 1949 nam verðgildi
innfluttra matvæla 7.6 millj.
dollara eða 11% alls innflutn-
ings landsins. Ástand landbún-
aðarins einkennist af rikum
laiideigendaaðli öðrumegin en
láiidlausum eða landlitlúm
bændamúg á hina hliðina. Ár-
ið 1950 var 70% ræktaðs lands
í höndum 2% bændanna, hinna
ríkustu, yfir 20% lands réðu
22% þeirra, sjálfeignarbændur,
en einungis 10% ræktaðs lands
féil í hlut fátækustu bændanna,
76% allrar stéttarinnar (4). —
Meirihluti allra bænda lands-
ins eru leiguliðar. Yfirráð
hinna bandarísku einokunar-
hringja valda því að æ fleiri
sjálfseignarbændur verða að
leiguliðum, og leiguliðar að
vinnumönnum og daglauna-
mönnum.
Samdrátíur yfirráða lands-
íns i henöur bandarískra auð-
félaga og .innlcndxa stórjsrðeig-
enda er höfuðorsök hins frum-
stæða ástands land-búnaðarins
í Guatemala. Einungis um
þriðjungur ræktanlegs lands
hefur fram til þessa tíma verið
tekinn til ræktunar. Hversii
mjög sem bændalýður landsins
hefði viljað reisa bú á hinum
óræktuðíi landsvæðum þá var
þeim það ókleift þar sem þeir
hafa ekki haft ofan í sig að
eta hvað þá meir.
Hið frumstæða ástand land-
búnaðarins í Guatemala má
m. a. marka af því að 750
dráttarvélar sem til voru í
landinu, og 535 sáðvélar, voru
allar á búgörðúm hinna ríku
bænda. Einungis 1.5% bænda
höfðu eignazt plóg úr járni.
Hinir betur stæðari bændur
höfðu einir efni á að kaupa
tilbúinn áburð.
Kjör verkamanna á plantekr-
unum eru hörð og arðránið á
þeim skefjalaust. Á 1300 stærstu
kaffiekrunum vinna 426 þús.
verkamenn og hver þeirra hef-
ur 15 sent í daglaun (5). Oft
og tíðum hafa plantekrueigend-
urnir ekki fyrir því að borga
verkamönnunum kaup og mega
þeir þá þakka fyrir meðan þeir
fá næringu til að draga fram
lífið á.
Eigi er síður þungbært lif
verkamanna á ekrum hinna
bandarísku hringa. United Fruit
hefur um 30000 verkamenn á
plantekrum sínum. Vinnutími
er frá kl. 6 á morgnana til 6.
á kvöldin og verða þeir að
vinna hvernig.sem viðrar, undir
glóðheitum geislum hitabeltis-
sólarinnar eða undir þungu
hitabeltisregni, ásottir af mos-
kítóflugum. Launin eru ein-
ungis einn áttundi hluti launa
bandarískra verkamanna. Um
50000 konum og börnum er
þrælkað út á plantekrum lands-
ins fyrir enn lægra kaup en
karla.
Iðnaður Guatemala er mjög
lítill. Fjármálamenn einokunar-
hringanna hafa ekki talið hann
borga sig, enda leggja þeir ein-
ungis fé í fyrirtæki sem þeir
geta vænzt ríflegs gróða af.
Helzt kveður að iðnaði úr hrá-
efnum er til falla í landbúnað-
inum. Þróun þess iðnaðar er
mjög hæg. 1948 var þáttur iðn-
aðarins í framleiðslu landsins
einungis 13.8%(6). í öllum iðn-
aði landsins unnvi á því ári
30 þús. menn, eða um 3%
verkalýðs landsins (7). þeir
skiptast þannig milli iðngreina:
34.6% í matvælaiðnaði, 18.9% í
vefnaðariðnaði, i trjávöruiðnaði
9%, námugrefti 14.5% og 23
% í ýmiskonar handiðnaði (8).
Eitt af helztu ráðum hinna
bandarísku auðhringa til að
ieggja undir sig efnahagslíf
Mið- og Suður-Ameríkuríkiþ
anna er að ná í sínar hendur
innanríkisverziun iandanna.
Gildir þetta einnig um Guate-
mala. Fyrir heimsstyrjöldina
síðust.u höfðu Bandaríkin með
höndum um helming innanríkis-
verzlunar Guatemala, en önnur
auðvaldsriki, meðal þeirrá
Þýzkaland o« Bretland, hinn
heiminginn (9). En þegar á
árinu 1941 höfðu Bandaríkin
92.3% útflutnings og 78.5% inn-
fiutnings (10).
Eins og áður er sagt eru laun
aiþýðu mjög iág, meiri hluti
vinnandi fóiks hefur 400 doli-
ara meðaltekjur á ári, en. ,.t(j
ibúanna hefur minni árstekjur
Framh. á 11. síðu.