Þjóðviljinn - 30.06.1954, Síða 8
8) — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 30. júní 1954
HféPttikm ícoísíb opp í Borgarfirði?
Framhald af 12. síðu.
verið veik. Þrátt fyrir þetta verð-
ur ekki hjá því'komizt að télja
mjög sterkar líkur fyrir þurra-
mæðisýkingu í gemlingnum frá
Lundtim. Er augljóst að haga
ber. öllum varnarráðstöfunum á
sama hátt eins og um örugglega
staðfesta sýkingu værí að ræða.
Sæmundur Friðriksson hefur
nú, fyrir hönd sauðfjársjúkdóma-
nefndar, fyrirskipað einangrun á
öllu fé á Lundum og Miðgarði og
er mi meðal annars áætlað að
fella allt fé á þessum bæjum
þegar í sumar. Líffærarannsókn
mun þá verða framkvæmd á
þessu fé, og er ekki ólíklegt, að
þá fáist nánari vitneskja um
sýkingu fjárins.
Bændurnir á Miðgarði og
Lundum hafa brugðizt afar vel
við í þessu máli og með því að
senda tafarlaust innyflin úr
sjúku kindinni hafa þeir dregið
mjög úr þeirri hættu, að sjúk-
dómurinn nái að dreifast víða.
Þó að öllum fjölda bænda á
fjárskiptasvæðunum sé án efa
fyliilega Ijós hin mikla hætta
sem hvarvetna vofir yfir nýja
fjárstofninum vegna þurramæði-
sýkingar, verður það seint um of
brýnt fyrir þeim, sem stunda
fjárbúskap, að láta aldrei bregð-
ast að tilkynna og senda líffæri
til rannsóknar úr veikum eða
grunsömum kindum, sem fram
kunna að koma.
Þurramæði er oft svo hægfara
og lítið áberandi í byrjun að lið-
ið geta 6—9 ár frá því að smitun
fór fram og þar til veikin er
■ . f
orðin sýnilega mögnuð í fépu.
Fái sjúkdómurinn frið til þess
að búa lengi um sig, er hætta á
því að hann breiðist aftur út í
fjárstofninum. Þetta má ekki
verða og því hljóta allir þeir,
sem hlúa vilja að sauðfjárrækt,
að vera samtaka í því að fylgj-
ást nákvæmlega með heilsufari
'járins. Það er mikils um vert
í stríðinu gegn fjárpestunum, að
nefja tafarlaust baráttu tii út-
rýrningar, hvar sem minnsti
grunur kemur fram um sýkingu
(í fénu). Þó að grunurinn reynd-
ist í sumum tilfellum ekki á rök-
um reistur, mundi það valda
mjög óverulegu tjóni móti því
ef sjúkdómarnir næðu að búa um
sig og ■ breiðast út að nýju.
Þurramæðin hefur þegar valdið
ísienzkum bændum óbærilegu
tjóni. Með niðurskurðinum tókst
vonum framar að útrýma veik-
inni og mikil reynsla hefur á-
unnizt í þeirri baráttu.
Ef byggt er á þeirri reynslu og
allir þeir, sem hlut eiga að máli,
sýna ýtrustu aðgæzlu og árvekni
er lítill efi á því, að þurramæð-
inni verður fyrr eða síðar útrýmt
úr iandinu að fullu og öllu“.
Tíminn reiðist
Framhald á 8. síðu.
bráðabirgðalög verði sett til
þess að færa Kristni endan-
legt vald, og bætír við:
,,En í sambandi við þetta
mál er rétt að geta þess, að
það hefur vakið undrun
margra, að fyrrverandi hæsta-
réttardómari skuli vera látinn
flytja mál fyrir réttinum.
Þetta sýnist óþarft, og væri
fróðlegt að vita, hvort það tíðk-
ast í öðrum löndum með svip-
uðu réttarfari og hér er“.
Tíminn virðist þannig beina
reiði sinni að dr. Einar Arn-
órssyni sem sótti málið og
virðist telia að hann hafi sann-
fært Hæstarétt! Sýnist þó
meiri ástæía fyrir Framsókn
að reiðast réttum aðila, Bjarna
Benediktssvni, fyrrverandi. pró-
fessor í lögum og sérfræðingi
í stjórnlagafræði. Hann gekk
frá hinni lögfræðilegu hlið
stjórnarsamningsins og vann
þá það drengskaparbragð að
setja Framsókn í þennan gapa-
stokk, ef á þyrfti að halda síð-
ar. Mætti Tíminn þakka Hæsta-
rétti og dr. Einari fyrir að
koma í veg fyrir lögleysuna
áður e« Bjarni Benediktsson
fékk tækifæri til að hagnýta
sjálfur drengskaparbragð sitt.
glýsing
nr. 7/1954
M ImdlutmngsslmfsSðfmmi
Samkvæmt heimild í 22. gr. reglugerðar frá 28. des-
ember 1953 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála,
fjárfestingarmála o.fl. hefur verið ákveðið að úthluta
skuli nýjum skömmtunarseðlum er gildi frá 1. júlí til og
■%}
með 30. september 1954. Nefnist hann „Þriðji skömmt-
unarseðiil 1954“, prentaður á hvítan pappír með græn-
um og brúnum lit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér
segir:
ííeitirnir: Smjörlíki 11—15 (báðir meðtaldir) gildi fyr-
ir 500 grömmum af smjörlíki, hver reitur.
Rciíirnir: SMJÖR hvor fyrir sig fyrir aðeins 250
grömmum af smjöri (einnig bögglasmjöri)
en ekki fyrir 500 grömmum, eins og prentað
er á þá. Þarf því nú báða þessa reiti til
kaupa á hálfu kg. af smjöri.
Verðið á bögglasmjöri er greitt niður jafnt og mjólk-
ur- og rjómabússmjör, eins og verið hefur.
„Þriðji skömmtunarseðill 1954“ afhendist aðeins gegn
því, að úthlutunarstjóra sé samtímis skilað stofni af
„Annar skðmmtunarseðill 1954“ með árituðu nafni og
heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári, eins og form
hatís segir til um.
Reykjavík, 30. júní 1954
InníliiiBmgsskzifstðfan
RfTSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON
Dórraarirtn varð að fá Íögregl
una fil að ryðfa leikvöBlinn
Minn sögulegi ieikmr ntilii
og
Eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær varð leikur
Ungverja og Brasilíumanna á heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu á sunnudaginn allsögulegur. Hér fer á eftir
frásögn af leiknum.
Ungverjarnir léku undan i Brasilíumanna meðal áhorfenda
/
allsnörpum vindi í fyrri hálf-
leik, en annars var veður frem-
ur kalt og hráslagalegt og
gekk á með rigningaskúrum
öðru hverju. Áhorfendasvæðlh
voru af þeim sökum ekki full-
setin.
Strax í byrjun leiksins hófu
Ungverjar sókn og gerðust nær
göngulir við mark Brasilíu-
manna. En Suður-Ameríku-
mennirnir voru harðir í horn
að taka, liðin skiptust á um
sóknaraðgerir og á fyrstu mín-
útum munaði mjög litlu að
brasilska miðframherjanum
Indip tækist að skora. Það var
þó Ungverjinn Hidegkúti, sem
setti fyrsta markið á 3. mín.
leiksins með skoti af 15 m
færi. Sóknarþungi Ungverjanna
jókst enn og á 8. mín. kom
annað mark þeirra: Hidegkúti
sendi knöttinn þvert yfir völl-
inn í átt að marki og Kocsis
skallaði í netið.
Brasilíumenn juku nú hrað-
ann í leik sínum og á 10. mín.
skoruðu þeir fyrra markið, er
Buzansky hrinti Indio ólög-
lega innan vitateigs. Hægri
bakvörður Brasilíumanna, Sant
os, skoraði örugglega úr víta-
spyrnunni. Nokkrum mínútum
síðar varð dómarinn Arthur
Ellis að ganga á milli nokkurra
leikmanna og skilja þá, þegar
leit út fyrir að þeir ætluðu í
slagsmál. Bæðin liðin léku fast
og markmöguleikar voru á
báða bóga, en hálfleiknum lauk
þó án þess að fleiri mörk væru
skoruð.
Síðari hálfleikur hófst með
því að v. framverði Brasiliu-
manna Bauer og h. framverði
Ungverja Bozsik lenti harka-
lega saman og það var fyrir-
boði enn harðari og fastari
leiks. Á 16. mín. hálfleiksins
skoraði Lantos þriðja mark
Ungverja úr vítaspymu og þá
skeði það að ákafir fylgjendur
þyrptust inn á leikvöllinn. Var
dómarinn að fá lögreglulið til
að ryðja völlinn áður en leikur
gæti hafizt að nýju.
Þegar 20 mín. voru liðnar
af síðari hálfleik skoraði Julin-
ho síðara mark Brasilíumanna
3-2 með glásilégu skoti af 30
m færi. Skömmu síðar vísaði
dómarinn þeim Santos og Bozs-
ik út af vellinum. Brasilíumenn
reyndu mjög að jafna matin
en þeir voru óheppnir, t.d.
áttu þeir Didi v. innherji og
Indio miðframherji báðir hörlcu
skot í markstöng. AðeinS 3
mín. f.yrir leikslok bætti Koesis
enn marki við með skalla. Rétt
í sama rnund var h. innherji
Brasilíumanna -Umberto vísað af
leikvelli fvrir háskaleik.
I lok fyrri hálfleiks meidd-
ist h. útherji Ung/erja Toth
og var óvirkur það sem eftir
var íeiksins. Þegar dómarinn
hafði vísað Bozsik út af vegna
rifriklis hans við brasilska bak-
vörðinn voru því aðeins 9 virk-
ir leikmenn eftir í ungverska
liðinu. En þeir sigruðu samt og
sigur þeirra var verðskuldaður.
imt sia 5®
Næsta heimsmeistarakeppnin
í knáttspyrnu verður haldin í
Svíþjóð að fjórura árum liðn-
um — 1958.
« jr
:: :
Sovézki hjólreiöamaðurinn Versjinín, sem varð þriðji á
öðrum spretti keppninnar Varsjá-Berlín-Praha, skrifar
nafn sitt fyrir rithandasafnara.
Verður efnt tii lijólra&feeppni milli
og
OsfevH?
Búizt vi að
áhorfendur verli
10
Forstöðumenn heimsmeistára
k^ppninnar í knattspyrnu í
Sviss gera ráð fyrir að alls
sjái um hálf önntír milljón á-
horfenda keppnina, en það er
tæpur þriðjungur íbúa Alpa-
landsins.
Fx-anska íþróttablaðið rEquipe
kom nýlega fram með þá hug-
mynd, að efnt verði til mikillar
hjólreiðakeppni *um Evrópu,
þar sem lagt verði upp frá
París og síðan haldið austur
álfuna allt til Moskvu. Vega-
lengdin yrði rúmlega 6 þús.
kílómetrar.
Hugmynd þessi um hjólreiða-
keppni milli Parísar og Moskva
hefur þegar verið rædd á fundi
alþjóðasambands hjólreiða-
manna í Zúrich og hlaut þá
m.a. stuðning Frakkans Jacqu-
es Goddet, en hann er einn
af forstöðumönnum hinnar
miklu hjólreiðakeppni umhverf-
is Frakkland. Hugmyndin um
hjólreiðakeppni um Evrópu
hefur áður komið fram, en þá
jafnan miðað við að hjólað yrði
um ítalíu, Frakkiand, Þýzka-
land og Niðurlöndin.
Skv. tillögu rEquijxe um Evr-
ópukeppnina á rásmarkið að
vera á Champs Elýsées í París.
Síðan verða keppendurnir að
hjóla um Frakkiand, Vestur-
Þýzkaland, Sviss, ítalíu, Aust-
ríki, Ungverjaland, Tékkóslóv-
akíu, Austui’-Þýzkaland, Pól-
land og Sovétríkin. 'Endamark-
ið yrði á Rauða torginu í
Moskvu.