Þjóðviljinn - 01.07.1954, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 01.07.1954, Qupperneq 1
Fimmtudagur 1. júlí 1954 — 19. árgangur — 144. töhiblað Allir þeir sera haia gjalddaga í Sigíúsarsjóð 1. júlí eru minníir á a3 skriístofan á Þórsgötu li er onin kl. 10—12 og 2—7. ar rikissiiorm GjaldeyristapiS cf fogarastöBvuninni nem ur 70 miiljónum króna á þremur mánuBum Enn liggja yfir 30 togarar bundnir og virðast nú allar líkur á því að ríkisstjórnin ætli að láta þá liggja aogerðarlausa þar til í haust, í júní, júlí og agúst. Gjaldeyristapið af stöðvuninni nemur % milljón á dag, eða um 70 milljónum króna á þremur mánuðum. Á sama tíma og þetta er að gerast heldur ríkis- stjórnin áfram að jagast um úthluhm á lúxusbílum sem hún er búin að ákveða að flytja inn í stórum stíl — og um það hvernig gróoanum af hernaðar- vinnunni skuli skipt á milli stjórnarflokkanna. Er það síðasta afrek stjórnarinnar að stöðva störf tog- aranefndarinnar á meoan! Stöívun togaraflotans er að sjálfsogðu fullltomin gjaldj:irota- yfirlýsing ríkisstjórnarinnar; þeir flokkar sem geta ekki haidið atvinnutækjum þjóðar- innar í gangi -— á sama tíma og markaðirnir eru betri og traustari en nokkru sinni fyrr — hafa í rauninni gefizt upp á þeim störfum sem þjóð og þing hafa falið þeim. ^ Alþingi aðgerðarlaust Þegar fyrir sl. áramót var Ijóst að togaraflotinn myndi stöðvast sökum vaxandi tap- reksturs og ekki síður' vegna hins að vanir sjómenn fóru í land í stórum stíl vegna þess að kaup þeirra og kjör voru í fullu ósamræmi við aðstöðu annarra landsmanna. Hvað eft- ir annað var vakið máls á þessu va.ndamáli á Alþingi af sósíalistum og spurt hvað rík- isstjórnin ætlaði sér að gera til að leysa þennan vanda. Voru bornar fram gagngerar tillögur —■ en allt þetta frum- kvæði var í höndum stjórnar- andstöðunnar; stjórnarflokk- arnir gerðu ekki neitt. Ölaíur Thors leikur fífl Sérstaklega mun mönnum í minni framkoma forsætisráð- herrans, Ólafs Thors, í þessu sambandi. Honum e.r oft lýst sem sérstokum fulltrúa út- gerðarinnar, en þegar þessi mál voru rædd á þingi í vetur lét hann sér sæma að leika fífl. Hann þóttist ekkert vita um vandamál togaraútgerðarinnar, hann lýsti yfir þvi að sér væri ekki kunnugt um að nein liætta væri á stöðvun, og með slíkum bjálfalátum átti hann manna ríkastan þátt í því að Alþingi lét þessi mikilvægu vandamál afskiptalaus. E:ni ár- angurinn sem fékkst var sá að Alþingi lét það verða sitt Framhald á 8. síðu. ASsí®S með Ungverjar unnu Uruguaymenn eftir tvíframlengdan leik Keppa til úrslita við Þjóoveria Það verða Ungverjar og Þjóðverjar, sem keppa til úr- slita um heimsmeistaratignina í knattspyrnu. í undanúrslitaleikjunum í gær! í fyrri háifleik en Austurríkis-* kepptu Ungverjar og Uruguay- menn, heimsmcistararnir frá 3952, í Lausanne og Þjóoverjar við Austurríkismenn í Bern. Ungverjar, Uruguaymcnn 4:2 Efíir fyrri hálfleik í Lausanne stóðu leikar þannig að Ungverj- ar höfðu gert eitt mark en Uru- guaymenn ekkert. í síðari hálf- leik settu Uruguaymenn tvö mörk en Ungverjar eitt og var jaíníefli þegar leiktíminn var úti. Var þá leíkurinn framlengdur í kortér og tókst hvorugu liði að skora mark. Enn var framlengt í kortér og skoruðu Ungverjarn- ir þá tvö mörk. Þjóðverjar, Austuríkis- menn. 6:1 Þjóðverjar skoruðu eitt mark menn ekkert. í síðari hálfleik sýndu Þjóðverjarnir frábæran leik og skoruðu fimm mörk en Austurríkismenn eitt. Þjóðverj- arnir eru það lið, sem mest hefur komið mönnum á óvart í þessari heimsmeistarakeppni. mimo Flóð í áhni Rio Grande, sem rennur á lanöamærum Banda- ríkjanna og Mexíkó, liefur vald- ið miklu fjóni Mexíkómegin við landamærin. — Öttast er að liundruð manna hafi drukknað og tugir þúsunda í borginni Piedras Negras og héraðinu umhverfis hafa m.isst heimili sín. js, ^ Þessi mynd er tekin hér í Reykjavík skömmu fyrir kl. 12 á hádegi í gœr SÓLMYRKViMN I GÆH Fulltrúadeild Bandaríkjaþings sendi í gær frá sér lög um 3.400.000 milljón dollara aðstoð við önnur ríki á fjárhagsárinu sem hefst í öag. Lögin mæ’a svo fyrir að Frakkland og ítalía skuli enga aðstoð fá fyrr en þau fullgilda samningana um stofnun Vest- ur-Evrópuhers. Annað ákvæði mælir svo fyr'r að engu riki, sem gerir griðasáttmála við Kína megi veita aðstoð. Eisen- hower forseti hefur lýst yfir samþyliki við bæði þessi á- kvæði. VSfe &yrg#sa Ilundruð milljóna manna frá Eandaríkjunum til Indlands fylgdust með sólmyrkvanum í gær en víða var loft svo skýjað að ekki ,sá til sólar. Bjart var í Bandaríkjunum þar sem myrkvinn fór yíir en dimmrdðri í Kanada. í Noregi og Svíþjóð var töluvert skýjafar þangað til kom til Gotlands. í Sovétríkjun- um vestanverðum var þykkt loít en heiðékírt í Kákasus. í Indlandi steyptu 250.000 pílagrímar; sér í heilagt vatn um leið og myrkvinn skall á en aðrir báðu fyrir því að sólin losnaði aftur úr gini hins iíla anda, sem gleypti hana. Veður var bjart og heioskírt — Geysilegur mannfjöldi fór á sólmyrkva svæðið í gær héðan úr bænum og víðar að. Veður var bjart og heiðsldrt i gær og sást sólmyrkyínn því mjög vel. Austur í Landeyjum var athuganastöð innlendra og erlendra vísindamanna og sagði Þorbjörn Sigurgeirsson fonn. Rannóknarráðs í útvarpinu í gær að athuganir þeirra hefðu tek- izt mjög vel. Geýsilegur mannfjöldi fór í gær á sólmyrkvasvæðið frá Land- eeyjum austur í Vík í Mýrdal. Það er ekki á hverjum degi undanfarna daga, og var því nú almennt fagnað að norðanáttin hafði verið fljót í förum! Frá því myrkvans fór fyrst að gæta þvarr birtan jafnt og hægt með- an tunglskugginn færðist yfir sól- að menn sjá sólmyrkva hér á landi. ' Almyrkvi á sólu hafði ekki orðið hér síðan 17. júlí 1833 þar til i gær, og alls verið 11 frá upphafi íslandsbyggðar. Það var því mjög mikill fjöldi manna sem fór í gær austur í Landeyjar og allt austur í Vík í Mýrdal, en á þvi svæði var sólmyrkvinn alger. Nokkrir fóru austur í fyrradag, flestir í bíl- um, og Flugfélag íslands sendi 2 flugvélar fullsetnar austur á Skógasand og með annarri þeirra voru fréttamenn Reykjavíkur- blaðanna. Sólmyrkvinn hófst um 10.40 og lauk um stundarfjórðungi yf- ir kl. 1. Lengst stóð almyrkvinn í Vestmannaeyjum og hjá Dyr- hólaey, rúml. hálfa aðra mínútu. „Sól tér sortna“ Veður var hér bjart og létt- skýjað í gærmorgun, en skýjað ina og hún varð brátt eins og máni, er minnkaði stöðugt,.,þar til tunglskugginn huldi sólíná’ alveg og „kórónan", hinn geisl- andi Ijóshringur umhverfis sól- ina, kom í Ijós. Mun sú sjón verða flestum er sáu minnisstæð. Meðan myrkvinn færðist yfir virtist mönnum austur á Skóga- sandi sem skuggarnir hrönnuð- ust og meðan almyrkvinn stóð varð allí annarlegt, kalt, rökkv- að, þögult og dauðalegt. En svo gægðist rönd af sóliuni undan skugganum, „sólmáninn“ hélt Framhald á 3. síðu. Þessi mynd er tekin af sólmyrkvanum austur á Skcga- söndum í gœr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.