Þjóðviljinn - 01.07.1954, Síða 5
Fimmtudagur 1. júlí 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5
suridir lögregiumanna í
daínum gerasf fjósamenri
Tugþúsundir naufgripa að hrynja niður
eftir 3 vikna verkfall 120,000 manna
Tvö þúsund lögreglumenn voru sendir út af örkinni á
sunnudaginn í Ferrarafylki á Ítalíu til að mjólka kýr og
gefa þeim.
120.000 landbúnaðarverkamenn
i fylkinu, sem nær yfir Pódalinn,
hafa lagt niður vinnu og allar
tilraunir til að miðla málum
hafa komið íyrir ekki. Ríkis-
stjórnin athugar nú leiðir til að
leysa deiluna.
Kúm slátrað
Um hundrað kýr hafa þegar
dáið úr sulti og mörg) hundruð
hafa horazt svo, að þeim verður
að slátra. Auk þess hefur allt
hey, sem þegar hefur verið slegið
eyðilagzt, og það hefur þær af-
leiðingar, að ekki verður nægi-
legt fóður handa þeim skepnum,
sem lifa af verkfallið, svo að
þeim verður sennilega einnig að
slátra flestum.
Verzlunum lokað.
Verzlunum og krám í bæjum og
þorpum fylkisins hefur verið
lokað, af því að eigendur þeirra
telja sér ekki óhætt að veita
meiri lán. Fjölmennt lögreglulið
er á verði til að koma í veg
fyrir að verkfallsmenn haldi
fundi til að bera fram kröfur
sínar.
Orsök verkfallsins er geigvæn-
legt atvinnuleysi í landbúnaðin-
um í fylkinu. Síðustu tölur um
atvinnuleysið eru frá 1950. Þá
voru 55% allra karla og 65%
allra kvenna, sem vinna að land-
búnaði í fylkinu, atvinnulaus. Af
þeim sem vinnu höfðu voru mjög
ChyrehilS
svaeðabandalög
Churchill kom til Ottawa í
Kanada í gær ásamt Eden. Sagði
hann blaðamönnum að aldrei
mætti missa sjónar á draumn-
um um Bandaríki Evrópu. Hug-
sjón sín væri að SÞ yrðu sam-
tök svæðabandalaga. Þá gæti
Vestur-Evrópa komið þar fram
sem ein heild, brezka samveldið
sem önnur, Norður-Ameríka
fjórða, Suður-Ameríka fimmta,
Asía sjötta, Afríka sjöunda,
slavnesku löndin áttunda og
Arabaríkin níunda. Æðstu
menn hvers bandalags gætu svo
komið saman, ráðið ráðum sín-
um og sett niður deilur miklu
auðveldlegar en nú er hægt.
fáir, sem höfðu vinnu meira en
100 daga ársins og launin voru
um 1000 lírur (26 ísl. kr.) á dag,
þannig að venjuleg árslaun fóru
ekki langt fram úr 2500 krónum.
Hefur staðið í þrjár vikur ■
Fyrir nokkrum máriúðum höf-'
ust sjálfkrafa verkföll á ýmsúríi
stöðum í fylkinu, og' þegar sáiri-
tök verkafólksins fyrir þrém vik-
um fyrirskipuðu allsherjarverk-
fall, var þeirri skipan hlýtt nærri
því án undantekninga.
Verkfallsleiðtogar handteknir
í fyrradag gerði lögreglan hús-
rannsókn í aðalbækistöðvum
kommúnistaflokksins í Pódalnum
og handtók þar 40 leiðtoga verk-
fallsmanna. Jafnframt var þús-
'uhdum lögreglumanna falið að
vjnna störf landbúnaðarverka-
manna . til að reyna að bjarga
nautgripastofni stórbænda í fylk-
iriu frá algerri tortímingu.
IngSnn smurlingur í
fmlhýsi ðaraéslns
Klstan var gerð lyrir sáí faraés
Kistan í grafhýsi hins nýfundna ókláraða pýramída í
Sakkara hefur verið opnuð. Hún var tóm.
Vonbrigði egypzka fomfræð-
ingsins, dr. Zakaria Goneim,
voru mikil. Hann hafði búizt við
að finna í kistunni smurling
Sanakht faraó, sem uppi var
fyrir 4700 árum. Sanakht var
bróðir og arftaki Zoser faraós,
sem lét byggja annan pýramída
þar í grenndinni.
Getur verið annars staðar
4/’..
Þpð er hugsanlegt, að kista
faraósins, sem lét byggja þennan
pýramída, finnist í öðru grafhýsi,
en ekki verður hægt að halda
uppgreftinum áfram fyrr en í
október.
Var talinn merkasti fornleifa-
fundur í Egyptalandi
Fyrir mánuði, þegar dr. Gon-
eim gægðist í fyrsta sinni inn í
grafhýsið, þar sem þá var talið
að smurlingur faraósins væri,
héldu menn, að þarna hefði verið
gerður merkasti fomleifafundur
í Egyptalandi, enn merkari en
fundur grafar Tut-ank-Amons
árið 1922. Úr því verður nú ekki
skorið með vissu fyrr en í haust.
Kistan var fyrir sálina
í fyrradag skýrði dr. Goneim
frá því, að tekizt hefði að ráða
helgirúnir á steinkistunni og þar
með væri skýring fengin á því,
hvers vegna hún var tóm. Kistan
var nefnilega ætluð sál faraósins.
Dr. Goneim kveðst nú sann-
færður um að Sanakht sé greftr-
aður í þessum pýramída og
smurling hans sé þar einhvers
staðar að finna. Ekki hefur verið
grafinn upp nema lítill hluti af
göngum þeim og hvelfingum,
sem eru undir pýramídanum,
og doktorinn segir að sér muni
ekki koma á óvart þótt það taki
mannsaldur að kanna alla þá
ranghala til fullnustu, því að
öllu verður að fara með mikilii
gát svo að tryggt sé að ekkért
af því sem þarria er að firina,
og orðið ér hárla fornfálegt éftir
nærri fimmtíu alda____geymslu,
fari forgörðum.
“ Það eru ekki mörg ár
í^^,¥#ianisiar -Uðin síðan fyrsta raf-
cindareiknivélin var smíðuð, en þær þykja nú víða ómissandi,
þegar reikna þarf flókin dænii á stuttum tíma. Á myndiuni hér
|að ofan sést ,,heili“ einnar slíkrar vélar. Rafeindaiampana í þt'ss-
'ari vél má stilla þannig, að hún geti margfaldað 13 talna tölur
með 10 talna töiu og deilt með 8 talna tölu í 18 talna, ef á því
’þaxf að halda. I_ún gotur Ieyst 360,000 dæini & klukkuctand og
1
riíar útkomurnar jafnóðum niður á gatakort:
en dó nr sulti
Um daginn var gamall tötrum
klæddur maður fluttur inn á
sjúkrahús í Jóhannesarborg.
Hann virtist að dauða kominn
af eymd og sulti. Þrátt fyrir
beztu hjúþrun dó hann að
nokkrum dögum liðnum. Er
hann kom hafði hann einungis
örfáa shillinga á sér. Hann hét
John Celwyn McMillan. Nokkr-
um dögum eftir lát hans kom
í ljós að hann var forríkur.
Hann hafði aldrei sézt í kvik-
Framhald á 11. sjðu.
Óleysanlegt
dœmi á prófi
Eitt af stærðfræðidæmunum
á landsprófinu í Noregi í vor
var óleysanlegt. Margir nem-
endur eyddu miklum hluta
próftímans til að ráða þetta
dæmi og höfðu því nauman
tíma til að ráða hin. Meðan á.
prófinu stóð, uppgötvaðist
skekkjan í dæminu og hrað-
skeyti voru send um allt landið
til að leiðrétta hana. Víða bár-
ust skeytin samt of seint. Próf-
dómendur tóku vægilega á þeim
nemendum, sem höfðu spreytt
sig á hinu óleysanlega dæmi.
gróéi
-Kaupsýslumaður ,einn í Jó-
hannesarborg keypti í fyrra á
uppboði málverlc og greiddi
fyrir það 225 sterlingspund. Nú
hefur belgískur listfræðingur,
Leo van Puyvelde við listasafn
Bruxellesborgar, komizt að því,
að málverkið er eftir ván Dyck
og kallað „Krossinn reistur“.
Málverkið befur verið málað í
uppháfi 17. aldar og það er
metið á 10.000 sterlingspund
(tæpl. Yz millj. kr.).
[láðn ol Ménnini og
rnY1**® til fjór
r 'h lækEaacmaza kauskúpnr kÍRsa
í blómareitum við aðaljárnbrautarstöðina í Alexandríu
eru nú lögreglumenn að grafa eftir líkum manna, sem
garðyrkjustjóri egypzku járnbrautanna hefur játað að
hann hafi myrt.
Fyrir alllöngu fékk lögreglan
nafnlaust bréf, þar sem sagt var,
að garðyrkjustjórinn, sextugur
maður að nafni Mohamed Abdel
Aziz, hefði myrt fjölda manns
og grafið líkin í blómareitum
við járnbrautarstöðina í Alex-
andríu. Hinir myrtu voru nafn-
greindir í bréíinu og kom í ljós,
Jopanskur sf|órn«rfuil;tréi
lýsir ótta þgóðar slnncr vtð
vetnisfiiraunir Bandarikganna
Fulltrúi japönsku ríkisstjórnarinnar á þingi Alþjóöa-
vinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf, Ichiro Nakay-
ama, hefur lýst yfir, að þjóö hans sé uggandi yfir vetnis-
sprengingum Bandaríkjamanna á Kyrrahafi.
Nakayama sagði, að það væri
ekki á valdi þingsins að taka
stjómmálahiið þessa máls til
meðferðar. Hins vegar vildi
hann vekja athygli þingsins á
því, að vetnissprengingamar
hefðu skapað slíkt rótleysi í
Japan, þar sem mönnum væru
enn í fersku minni hörmung-
araar sem dundu yfir Nagasaki
og Hiroshima í kjamorkuárás-
um Bandaríkjamanna í lok
he!msstyrjaldarinnar, að það
setti svip sinn á allt þjóðlífið.
Aulc þess hefðu vetnisspreng-
ingamar va'dið algerum glund-
roða í einum höfuðatvinnuvegi
japönsku þjóðarinnar, fiskveið-
um.
að þeir höfðu verið týndir árum
saman.
Bein fundust
Lögreglan handtók Aziz og hóf
gröft eftir líkunum í blómareit-
unum. Við uppgröftinn fundust
bein i reitunum, en sérfræðingar
sögðu að beinin væru úr kindum,
úlföldum og nautum.
Lik finnast
Garðyrkjustjórinn var þá lát-
inn laus, en nokkru síðar féll
aftur grunur á hann og gröft-
urinn hófst að nýju. Nú var
grafið dýpra en áður og hafa
þegar fundizt leifar af tveim
konum og þrem mönnum. Aziz
hefur viðurkennt, að hann hafi
tekið þátt í morðum margra
manna og lögreglan heldur því
fram, að hann hafi selt lækna-
nemum við Alexandríuháskóla
hauskúpurnar.
;Morð og rán í átta ár
Við nánari rannsókn hefur
komið í ljós, að fimm garðyrkju-
menn, sem séð hafa um blóma-
reitina við aðaljárnbrautarstöð-
ina, hafa í átta ár lagt stund á
morð og rán í félagi.