Þjóðviljinn - 19.10.1954, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 19. október 1954
I
býður yður mesta fjölbreytni
Þýzkir sendibílar
FORD umboðið
Svelnn Egllsson h.f.
Laugaveg 105. Sími 82950
Pan Americae World Airways
notar aðeins hinar risastóru Douglas DC-6B Clipper á
flugleiðum til og frá íslandi með viðkomu á Keflavíkur-
flugvelli. Á rúmlega 10 klukkustundum getið þér flogið
frá Keflavík til New York og á rúmlega 4 klukkustund-
um til Osló. Vikulegar ferðir til Osló, Stokkhólms og
Helsinki og einnig vestur til New York.
Douglas DC-6B er með loftþrýstibúnum (Pressurized)
farþegaklefa Flugvélin hefur einnig bæði fyrsta og
annað farrými. — Reynið beztu farþegaflugvélar
heimsins.
Aðalumboðsmenn:
G. Helgasoo & Melsted hi.
Hafnarstræti 19. — Sími 80275 — 1644.
ÞJóðvflJiim
ER BLAÐ ÍSLENZKRAR ALÞÝDL — KAUPIÐ
HANN, OG LESIÐ
A ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI. FRtMANN HELGASON
». -----------------------------------------
Haustmófið:
Jafntefli í báðum leikjum suunudags
ins— KR — Þróttur 0:Q og
Fram — Víkingur 1:1
Á sunnudaginn fóru fram
tveir leikir í haustmóti meist-
araflokks. Skilyrði til að leika
góða knattspyrnu voru ákaf-
iega slæm, e. t. v. verri en
■tokkru sinni fyrr á vellinum
ema ef vera kynni er ský-
callið varð í sumar, þegar Fær-
eyingar voru að keppa við Vík-
ing og völlurinn var í kafi af
vatni. I stað vatns var nú þykk
leðja, sem myndazt hafði vegna
þýðunnar, sem var, en frosið
hafði dagana áður. Knötturinn
sat ýmist fastur í leðjunni eða
skoppaði svo að ekki varð
við séð. Þetta truflaði allar til-
raunir til samleiks og eðli-
lega var mjög erfitt að þeysast
áfram eða hlaupa í þessari lím-
leðju. Eigi að síður var sótt
og varizt af kappi miklu enda
var veður mjög gott til keppni.
Leikur KR og Þróttar endaði
flestum óvænt með jafntefli og
gerði hvorugt liðið mark. KR-
ingar höfðu þó nokkur tækifæri
sem þeir misnotuðu og á völl-
urinn sjálfsagt nokkra sök á
því. Sérstaklega lá á Þrótti í
fyrri hálfleik, en Þróttur sótti
sig nokkuð í síðari hálfleik.
Þróttur hefur gert þrjú jafn-
tefli í þessum 3 leikjum á haust
mótinu, sem sagt hvorki KR
né Val tókst að sigra Þrótt-
ara og eru það þó þau liðin
sem fara í úrslit í mótinu. Það
virðist sem Þróttur eigi í fór-
um sínum fjölda góðra mark-
manna, fyrst kom fram Krist-
ján Þórisson, síðan kom hin
ungi Jón Ásgeirsson, en báðir
hafa orðið að hætta a. m. k.
um stundarsakir vegna las-
leika. Þá kemur einn enn Skúli
Rúnar að nafni sem átti sér-
lega góðan leik svo lítið reynd-
ur sem hann er.
Framherjar KR voru kvikir
sérstaklega Þorbjörn, og Hörð-
ur var líka virkur en vörn
Þróttar var e. t. v. sterkari
en nokkru sinni áður, með
þeirri breytingu sem gerð hef-
ur verið á henni. —
Dómari var Halldór Sigurðs-
son.
Leikur Fram og Víkings jafn-
ari en búizt var við.
Eftir leik sinn við KR fyrra
sunnudag var almennt búizt
við því að Framarar myndu
ná í bæði stigin sem leikurinn
gat gefið. Þeir byrjuðu líka
vel með sókn sem gaf tækifæri
en þau misnotuðust og smátt
og smátt tók leikurinn að
verða jafnari. Það fór svo að
Víkingur setti fyrst mark og
var það Bjarni sem það gerði
í byrjun síðari hálfleiks. Þor-
steinn Guðmundsson jafnaði
fyrir Fram um miðjan hálfleik-
in. Bæði liðin áttu tækifæri en
báðir markmenn vörðu vel, sér-
staklega Ólafur Eiríksson. Að-
staðan eins og hún var veldur
því að erfitt er p ð vcga r* rr
meta getu eða getuleysi kapp-
liðanna.
KR og Valur í úrslitum.
Á sunnudag fara svo fram
síðustu leikir mótsins. KR og
Valur keppa til úrslita. Er
sama hvernig sá leikur fer, úr-
slit verða alltaf. Verði jafntefli
vinnur Valur, sigri KR vinnur
það með 1 stigs mun. Hinn
leikurinn er milli Fram og
Þróttar. Þegar þessi félög
kepptu síðast tapaði Þróttur
með 12:2 og er ekki ómögulegt
að Þróttur selji sig dýrara i
þetta sinn.
í frjálsiþróttakeppninni milli
London og Moskva s.l. miðviku-
dag voru sett þrjú ný heims-
met: 1) Chris Chataway hljóp
5000 metrana á 3.51.8, 2) Kúts
Litúéff
heimsmethafi í 400 m og 440 y
grindahlaupi.
hljóp 3 enskar mílur á 13.27.0
og 3) Lítúéff hljóp 440 yards
grindahlaup á 51,3.
Helztu úrslit keppninnar urðu
annars þessi:
5.000 m: 1) Chataway, Lon-
don 13.51.6 (nýtt heimsmet);
2) Kúts Moskva, 13.51.8 (einn-
ig undir fyrra heimsmeti); 3)
Driver, London, 14.29.2; 4)
Okorokoff, Moskva, 14.50.0.
440 y. grindahlaup: 1) Lítú-
éff, Moskva, 51,3 (nýtt heims-
met); 2) Kane, London, 51,8;
3) Julín, Moskva, 51,9; 4)
Shaw, London, 52.0.
Kringlukast: 1) Matyéff,
Moskva, 52,12; 2) Grigalka,
Moskva, 51.23; 3) Harach,
London, 50.06.
Hástökk: 1) Stepanoff,
Moskva, 1.93.
110 m. grindahlaup: 1) Bul-
antsik, Moskva, 14.7; 2) Hild-
reth, London, 15.2.
Sleggjukast: 1) Krivonop°ff,
Svíi heimsmeist-
ari í nutíma
fimmtarþraut
Heimsmeistarakeppninni í
nútíma fimmtarþraut lauk í
Búdapest um miðja síðustu
viku. Heimsmeistari varð Sví-
inn Björn Thorfelt hlaut sam-
anlagt 4634,5 stig. Annar varð
Vetterli, Sviss, með 4529 stig,
þriðji Szondi, Ungverjal. 4469.5,
fjórði Cerny, Tékkósl., 4426,5,
fimmti Benedek, Ungv. 4316,5.
í keppni milli þjóða sigruðu
Ungverjar, Svisslendingar
komu næstir og Svíar þriðju.
Finnland var í fjórða sæti og
Sovétríkin í fimmta en alls
tóku 10 þjóðir þátt í keppninni.
Moskva, 58.29, 2) Ryedkin,
Moskva, 56.18; 3) Valentine,
London, 54.03.
10 000 m: 1) Norris, Lon-
don, 29.35.4; Sando, London,
29.40.0; 3) Anúfréff, Moskva,
29.44.6.
HM í körfubolta
hefst í Brasilíu á
föstudag
Sovélkeppeitdumir
feugu ekki vegabréfs-
áritun
Heimsmeistarakeppnin í
körfuknattleik hefst í Brasilíu
22. þ.m. og nánar tiltekið í Rio
de Janeiro. Alls hafa 16 þjóð-
ir tilkynnt þátttöku. Líklegast
til sigurs er talið bandaríska
liðið sem heitir Peoria frá
Illinois. Á O.L. í Helsingfors
unnu Bandaríkjamenn í úr-
slitaleik gegn Rússum. Rússar
tilkynntu þátttöku í keppninni
en þar sem Sovétríkin eru ekki
í stjórnmálasambandi við Bras-
ilíu, var þeim neitað um vega-
bréfsáritun, svo þeir urðu að
sitja -heima, en almennt var
gert ráð fyrir að úrslitin yrðu
aftur milli Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna. I stað Sovétríkj-
anna er álitið að Argentína
verði harðasti mótherji Banda-
ríkjanna.
T i 1
> 9
liggnx leiðin
Þrjií heimsmet veru sett í
heppni Lendmi og Moshra