Þjóðviljinn - 24.10.1954, Blaðsíða 12
Væntanlega veröur byrjað á smíði huss
yfir náttúrugripasafnið á næsta árí
Háskólinn var setfur i gœr —170 nýir
stúdenfar hafa veriS skráSir til náms
Breytingar á kennaraliði
Síðan vék rektor að breyting-
um á stjórn skólans. Eins og
kunnugt er lét dr. Alexander Jó-
hannesson prófessor af embaetti
háskólarektors nú í haust, en
hann hefur gegnt því oftar og
lengur en nokkur annar og nú
síðast 6 ár samfleytt. Flutti hinn
nýi rektor dr. Alexander beztu1
þakkir skólans og samkennara
fyrir unnin störf,
Nokkrar breytingar hafa og
orðið á kennaraliði skólans. Ás-
mundur Guðmundsson vár skip-
aður biskup íslands 1. febr. s. 1.
í stað dr. Sigurgeirs Sigurðsson-
ar, sem andaðist 13. okt. 1953.
Við kennslu Ásmundar tók í
fyrstu séra Guðmundur Sveins-
son og kenndi hann frá 30. jan.
út kennsluárið. Siðan var dós-
entsembætti í guðfræði auglýst
til umsóknar og voru umsækj-
endur tveir: séra Guðmundur
Sveinsson og cand. theol. Þórir
Kr. Þórðarson. Var Þórir skip-
aður í embættið 1. þ. m.
Háskólarektor þakkaði Ás-
mundi Guðmundssyni þiskupi
fyrir unnin störf við Háskólann,
en Ásmundur tók við kennslu
í skólanum árið 1928. Einnig
bauð hann hinn nýja dósent vel-
kominn til starfa.
Nýtt prófessorsembætti
Með 1. gr. 82/1953 var stofnað
nýtt próferssorsembætti í lögfr.
Var Theodór B. Líndal hrl. skip-
aður í það frá 1. júní s. 1. að
Samsæti fyrir
skákmenn í dag í
Sjálfstæðishúsinu
Skáksamband ísalands efnir
kl. 3 í dag til kaffisamsætis í
Sjálfstæðishúsinu fyrir þátttak-
endurna á alþjóðaskákmótinu í
Amsterdam. Aðrir meðlimir
sambandsins og áhugamenn um
skákíþróttina eru einnig vel-
komnir.
Guðmundur Arnlaugsson seg-
ir þarna frá skákmótinu og
sýndar verða á sýniborði nokkr
ar skákir frá keppninni. Gunn-
ar Thoroddsen borgarstjóri
fiytur skákmönnunum ávarp
og þakkir fyrir frammistöðuna
á mótinu.
Háskóli íslands var settur í gær — fyrsta vetrardag —
með viöhöfn í hátíðasal skólans. Viðstaddir voru há-
skólakennarar, stúdentar og ýmsir gestir, þ.á.m. forseti
Islands, ráðherrar, sendimenn erlendra ríkja og fleiri.
Háskólahátíðin 1954 hófst með
því að hljómsveit, kór og Guð-
mund-ur Jónsson óperusöngvari
fluttu Hátíðarkantötu Háskólans
eftir Pál ísólfsson við ljóð eftir
Þorstein Gislason. Stjórnaði höf-
undur flutningi verksins.
Þá tók rektor Háskólans, Þor-
kell Jóhannesson prófessor, til
máls. Minntist hann í upphafi
-.ræðu sinnar dr. Bjarna Aðal-
bjarnarsonar, sem andaðist hinn
1. des, s. 1., en Bjarni var um
margra ára skeið prófdómari við
Háskólann í ísl. bókmenntasög'U
o. fi.
telja, en hann hefur haft á hendi
kennslu í úrlausn raunhæfra
verkefna við lögfræðideildina
siðan 1942. Bauk rektor prófes-
sorinn velkominn til starfa við
Háskólann.
Þá er þess að geta að tveir
kennarar Háskólans hafa fengið
leyfi frá kennslu vegna dvalar
erlendis, þeir Leifur Ásgeirsson
próf. og Ármann Snævarr próf.
Við kennslu Leifs í vetur tekur
próf. Bjarni Jónsson, en þeir dr.
Þórður Eyjólfsson hæstaréttar-
dómari og Vilhjálmur Jónsson
cand. jur. munu kenna í stað
próf. Ármanns. Dr. med. Sigurð-
ur Samúelsson mun kenna um
skeið í læknadeildinni í veik-
indaforföllum Jóhanns Sæmunds-
sonar próf.
Sendikennarar við Háskólann
voru á síðasta kennsluári hinir
sömu og áður, nema hvað kenn-
ari í þýzku bættist við seint á
árinu.
Islenzka orðabókin
Þá minntist Þorkell Jóhannes-
son rektor á nokkur önnur störf
Háskólans á liðnu skólaári: All-
margir erlendir fræðimenn fluttu
erindi á vegum Háskólans.'einn-
ig héldu háskólakennarar nokk-
ur erindi fyrir almenning. Há-
skólinn hlutaðist til um útgáfu
nokkurra rita og fræðibóka og
eins og undanfarin ár lagði hann
fram helming þess fjár, sem
varið er til undirbúnings að út-
gáfu hinnar vísindalegu íslenzku
orðabókar Háskólans. Ríkissjóð-
ur leggur til hinn helminginn.
Þorkell gat þess til dæmis um
hvað styrkurinn hefði rýrnað
mikið á síðustu árum að nú
störfuðu aðeins tveir menn allt
árið að bókinni og einn þrjá
mánuði árlega.
f vor voru 10 ár liðin síðan
fyrst var veittur styrkur úr Sátt-
málasjóði til orðabókarinnar, en
á síðasta ári nam styrkurinn 75
þiis. króna. Háskólarektor lagði
áherzlu á að auka þyrfti að
miklum mun fjárveitingu til
orðabókarstarfsins, því að nú
væri sýnt að draga myndi stór-
lega úr því nema fjárframlög
verði aukin að miklum mun.
Breytingar á starfsemi
skólans
Þessu næst gat rektor um
bókasýningu þá sem Háskólinn
gekkst fyrir í júní s. 1. í tilefni
af 10 ára afmæli íslenzka lýð-
veldisins og nefndist íslenzk
fræði 1911—1954. Á þessari sýn-
ingu voru um 1000 bækur og
600 sérprentanir og þótti hún
hafa tekizt allvel og fékk góða
dóma.
Þá skýrði rektor frá því að
háskólaráð hefði í des. s. 1. á-
kveðið að kjósa nefnd til að end-
urskoða og gera tillögur um
breytingar á starfsemi Háskól-
ans. Nefnd þessi hefði unnið all-
mikið að þessari endurskoðun í
vetur en ekki lokið störfum.
Vegna fjarveru tveggja nefndar-
manna, Ármanns Snævarr próf.,
formanns nefndarinnar, og Leifs
Ásgeirssonar próf., yrði nokkurt
hlé á störfum nefndarinnar í
vetur, en vænta mætti að þeim
yrði lokið á næsta háskólaári.
86 luku embættisprófi
í fyrra
Á s. 1. skólaári voru stúdentar
við Háskólann skráðir alls 744,
þar af voru 42 við nám í guð-
fræði, 234 í læknadeild, 120 í
lagadeild, 89 í viðskiptafræði,
221 í heimsspekideild og 37 í
verkfræði. Embættisprófi luku
86 og eru þá meðtaldir þeir
stúdentar, sem luku fyrrihluta-
prófi í verkfræði. Af þessum
kándidötum voru 10 guðfræðing-
ar, 16 læknar, 2 tannlæknar, 29
lögfræðingar, 12 viðskiptafræð-
ingar, 9 luku BA-prófum og 8
fyrri hluta prófi í verkfræði.
í haust hafa 170 nýir stúdent-
ar verið skráðir við Háskólann:
9 í guðfræðideild, 37 í lækna-
deild, 26 í viðskiptafræði, 77 í
heimspeki og 10 í verkfræði.
Nýtt hús fyrir
læknadeildina?
Rektor minntist þessu næst á
að Háskólinn væri nú orðinn
einn stærsti skóli landsins, enda
væri hið veglega skólahús nú að
verða of lítið. Sérstaklega vant-
aði tilfinnanlega húsnæði fyrir
verklegar æfingar í sambandi við
kennsluna, t. d. í læknadeild.
Taldi rektor að þessi vandamál
yrðu bezt leyst með því að byggt
yrði nýtt hús fyrir læknadeild-
Framhald á 3. síðu.
þJÓÐVlLIIN
Sunnudagur 24. október^ 1954 — 19. árgangur — 242. tölublað
Þing Æskulýðsfylkingarinnar ræðir
vandamál óg verkefni æsknnnar
Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Þing Æskulýðsfylkingarinnar hélt áfram hér í gær og stóðu
úmræður um vandamál og verkefni æskunnar Iengstan tíma
tlags.
Þingfundur hófst aftur kl 10
í gær og hafði Ingi R. Helga-
son framsögu um stjórnmála-
viðhorfið og verkefni ungra
sósíalista, að berjast fyrir sósí-
alisma, leggja verklýðssamtök-
unum lið, berjast gegn banda-
ríska hernáminu og fyrir
heimsfriði í samvinnu við æsku
annarra landa.
Er hann hafði lokið máli sínu
hófust umræður er stóðu lengi
fram eftir degi og tóku margir
til máls og lýstu viðhorfum
sveitaæskunnar,’ vandamálum
æskulýðs í þorpum og bæjum
og ræddu kjör iðnnema og
ungra sjómanna og verka-
manna. Síðla dags var umræð-
um um þetta mál frestað og
lagabreytingar ræddar; einnig
var byrjað að ræða um Land-
nemann. Þingið heldur áfram í
dag.
15-20 |k timmir vantar af beitusíld
Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá yfirvofandi beituskorti
í vetur og samkvæmt upplýsingum L.Í.Ú. í gær vantar
n,ú 15—20 þús. tunnur til þess að verstöðvarnar geti tal-
izt sæmilega byrgar af beitusíld.
Alls hafa veri frystar á land-
inu 70 þúsund tunnur af síld,
en af því magni hafa 15 þús.
tunnur átt að fara til útflutn-
ings upp í pólsku samningana.
Otfiutningsleyfi hefur nú ver-
ið afturkallað af helmingnum
og aðeins 7500 tunnur flutt-
ar út.
1 fyrra voru til 112 þús.
tunnur af frýstri síld og fóru
60-70 þús. í beitu á vertíðinni,
en þess er að gæta að á síðustu
vetrarvertíð var veiði með
þorskanetum meiri en flestar
vertíðir áður, og auk þess voru
góðar loðnugöngur. — Beitu-
síldarbirgðir t»l vertíðarinnar
eru taldar þurfa að vera 70-80
þús. tunnur .
Aðeins 9 bátar stunda enn
Bflaeigendur halda horgara-
lund iiiii ofsköiÉiin oll.
Á laugardaginn voru blaðamenn fræddir um atvinnu-
veg sem raunverulega bæri uppi flesta aðra atvinnuvegi
iandsins og heitir þessi atvinnuvegur: að eiga og starf-
rækja bíl.
Annað kvöld heldur Félag íslenzkra bifreiðaeigenda al-
mennan borgarafund í Breiðfirðingabúð, þar sem það
mun skýra fyrir „ekkibíleigendum“ hvernig búið er að
þessum „undirstöðuatvinnuvegi“ og hann þrautpíndur
af ríkisvaldinu!
Borgarafundurinn sem bíla-
eigendur boða til í Breiðfirð-
ingabúð annað kvöld hefst kl.
8.30 og þar munu þeir Sig-
urður Þorsteinsson og Aron
Guðbrandsson flytja framsögu-
ræður um það sem nefna mætti
ofsköttun bílaeigenda.
Stjórn Félags ísl. bifreiðaeig-
enda ræddi við fréttamenn á
laugardagin. Sagði stjórn FlB
við það tækifæri að rekstur bíla
bæri raunverulega uppi bæði
sjávarútveg og landbúnað. —
Skýrðu þeir frá að skattlagn-
ingin á bíleigendur væri sem
hér segir:
1. 100% skattur á alla bíla
og er þessum skatti varið til
að greiða hallann af rekstri
togaranna (og skila einhverj-
um tekjuafgangi). I sambandi
við þetta mótmælir FÍB að jepp-
ar séu undanþegnir slíkum
skatti, sé hann lagður á aðra
bíla, því jeppar séu ekki vinnu-
vélar bændanna heldur séu það
dráttarvélar. Vill FÍB að allir
greiði jafnan bílaskatt.
2. 60% bátagjaldeyrisálag á
alla varahluti til bíla.
3. 35 % dýrtíðarsjóðsgjald til
að greiða niður landbúnaðar-
vörur.
4. Hagnaður af rekstri Ríkis-
útvarpsins er hálfri milljón kr.
hærri fyrir það að bílaeigendur
sem hafa útvarp i bílnum hjá
sér verða að greiða afnotagjald
af tveim viðtækjum. Hinsvegar
mega bíleigendur, sem aðrir,
eiga mörg viðtæki heima hjá
sér án þess að greiða gjald af
nema einu, en festi þeir við-
tæki í bíl sinn skulu þeir greiða
sérstakt gjald af því.
5. 35 aurar eru greiddir í
vegaskatt af hverjum benzín-
lítra — auk tolla og söluskatts.
Framhald á 3. síðu.
reknetaveiðar hér við Faxa-
flóa.
I sambandi við það sem áð-
ur er sagt um pólsku samning-
ana vantar nú 50-60 þús. tunn-
ur af frystri og saltaðri síld
til þess að hægt sé að standa
við gerða samninga.
Báfur me<5 tveim
mönnnm týndur
Níu smálesta bátur, Áfram,
héðan úr Reykjavík, sem á
voru tveir menn, fór í róður
s. 1. fimmtudag og hefur ekk-
ert til hans spurzt síðan. Skip
er beðin liafa verið að svipast
um eftir honum hafa einskis
orðið vísari.
Slysavarnafélagið óskaði
þess í gær að leitað yrði á
fjörum liér við flóann í dag.
Ljósmyndasýnú
ingin var opnuð
í gær
í gær var opnuð í Þjóðminja-
safninu fyrsta ljósmyndasýn-
ing Ljósmyndafélags Reykja-
víkur.
Á sýningunni eru 90 myndír
eftir 39 menn, félagsmenn og
utanfélagsmenn, áhugamenn og
atvinnuljósmyndara.
Hjálmar R. Bárðarson opnaði
sýninguna með ræðu, þar sem
hann sagði m.a. að myndirnar
hefðu fyrst og fremst verið
valdar með það fyrir augum
að þær hefðu myndrænt gildi.
Engan, sem áhuga hefur fyr-
ir myndum mun iðra þess að
sjá sýningu þetta.
Nýr heiðurs-
prófessor
Forseti íslands hefur sam-
kvæmt tillögu menntamálaráð-
herra sæmt Pétur Sigurðsson,
háskólaritara, sem um þessar
mundir hefur gegnt starfi sínu
í 25 ár, prófessorsnafnbót.