Þjóðviljinn - 02.12.1954, Page 4

Þjóðviljinn - 02.12.1954, Page 4
4) — ÞJÓÐVTLJINN — Fimmtudagur 2. desember 1954 f-órbeEgiir í nýju Ijjósi Övenjulegasta bók sem rituð hefur verið jSÁImnrtno um blómið eitir ÞðRBEHG ÞðRÐARSON Þessi bók mun ávttllt standa ein sér, með líkum hœtti og höfundur hennar hefur veriö á margan hátt. Bókin er samtal listamarnisins við barnið og að nokkro leyti eintal hans Þrungin töfrum, einfaldleika og snillifrásagnar Þórbergur Þórðarson er eins og gömlu klassfeku meistaramir, ekkert er fjær honum en að skreyta frásögn sína „stíl“ eða „skáldskap" eða öðru er hann mundi kalla tilgerð. Hið frjóa líf og hin ' litauðuga tunga hans eiga svo marg- breytilega og hljómmikla strengi að allar tilraunir til þess að endurbæta það eru útí hött. Yfirburðir Þórbergs eru í tvennu aðallega, hinu fullkomna valdi er hann hefur náð yfir hugsun og máli og ekki síður hinu hve algerlega hann hefur sigrazt á öllum yfirborðs- hætti og tilraunum til að skreyta frásögn sína á kostnað sannleikans og vísindalegrar nákvæmni í frásögn. En einmitt þetta er jafnframt skýringin á því að Þórbergur Þórðarson skrifar öðrum fremur skemmtilegar bækur, því eins og náttúran, stundum guðs græn, aðra tíma föl og haustleg, ræður yfir óendanlegum lit- brigðum, stemmingum og skáldlegum töfrum, svo er einnig farið mannlegri hugsun og þeirri tungu, sem hefur helgað sig því einu, sem hún finnur réttast og sannast. Ríki hennar er vítt og marg- slungið, ofar öllum „skáldskapar“órum mannaima. Sálnurinn un hlémið er jólabókin í ár HELGAFELLSBÓK Kvartanir um lélega þjónustu — Ekki eingöngu í verzlunum — Annir starísmanna og tímasóun viðskiptavina ið. Ég á bágt með að trúa — enda þótt ég sé ekki sér- fróður í útfyllingu plagga op- inberra stofnana og banka — að ekki megi með hagkvæm- ara skipulagi eitthvað bæta úr því ástandi, sem nú ríkir hjá mörgum þessara stofn- ana. — F.“ <s>- F. HEFUR sent Bæjarpóstin- um eftirfarandi bréf um af- greiðslu í bönkum og opin- berum stofnunum: „A UNDANFÖRNUM árum hefur það nokkrum sinnum komið fyrir, að kvartanir hafa verið látnar í ljós — bæði í blöðum og útvarpi — yfir slæmri þjónustu af hendi af- greiðslufólks í sölubúðum. Ekki er nema gott við því að segja, að bent sé á það, sem betur má fara, og kvartað, þegar ástæða er til. Á hinu furða ég mig, að þessar kvart- anir skuli fremur hafa beinzt að afgreiðslufólki í sölubúð- um en ýmsu öðru afgreiðslu- fólki. Mín reynsla er sú, að af- greiðslu í sölubúðum sé mun síður ábótavant en afgreiðslu I bönkum og opinberum stofn- unum. Eg hygg að ýmsir hafi þá reynslu í bönkum og opin- berum stofnunum að hafa mætt hranalegri afgreiðslu, ef ekki beinlínís ókurteisi. Fólki, sem er óvant að erinda í bönkum, getur komið spænkst fyrir sjónir þau plögg og skýrslur, sem í mörgum tilfellum er nauð- synlegt að útfylla. Heyrt hef ég hranaleg tilsvör, þegar fá- frótt fólk í plaggaútfyllingu þarf að fá upplýsingar um, hvernig útfylla skal. Slíkt er j auðvitað hin mesta óhæfa. , Viðskiptavinir bankanna eiga fulla heimtingu á lipurri og vingjarnlegri afgreiðslu, svo sem yfirleitt tíðkast í sölu- búðum, og það engu síður, þótt sá, sem afgreiðir handan afgreiðsluborðs bankans kunni að vera sérfræðingur í plaggaútfyllingu. Sem betur fer á þetta ekki við um allt afgreiðslufólk í bönkum. En máltækið segir, að ekki þurfi nema einn gikkinn í hverri veiðistöð. Oft stafar slæm afgreiðsla í bönkum vafalaust af of miklum önnum bankastarfs- manna. En manni verður á að spyrja: Er skipulagi ekki eitt hvað ábótavant í þeim stofn- unura, þar sem fólk þarf máske dag eftir dag að bíða hópum saman svo og svo lengi eftir afgreiðslu, stundum svo klukkutímum skiptir. Ef reiknað er með, að fplkið, sem bíður eftir afgreiðslu, ynni ella að nytsömum störfum, þá er slíkt fyrirkomulag, sem alloftast hefur í för með sér langa bið eftir afgreiðslu, talsvert dýrt fyrir þjóðfélag- Miðstöðvar- eldavél er til sölu ásamt ofnum, rörum og fittings. Upplýsingar í sima 80929 eftir kl. 6. Bifreiðar til sölu I! ■ ■ Dodge 49 Chevrolet ’50 Pontiac ’47 Dodge ’47 - Chevrolet ’47 Citroen ’46 Renault ’46 ■ ■ ■ ■ Bílasalan j Klapnarstíg 37. Sími 82032 : : Bifreiða- eigendur Óskum eftir bílum í umboðssölu. Bifreiðasála Hreiðars Jónsson Sími 5187. Rokkur alveg nýr, mjög fallegur, er til sölu. Upplýsingar í síma 80929. I■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■ «■■■■■■«•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! «■■•■•■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Höfum fyrirliggiandi 1 MIKLU ÚRVALI Gardínuefni, húsgagnaáklæði, dívanteppi og dívanadúk. 6. V. Jóhannsson & Co. Hafnarstræti 19. — Sími 2363. ■■■•■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i : Sportvörur Skíði, allskonar, skíðabindingar, skíða- stafir, skíðaáburður, margar gerðir, krokket, spjót, bogar, örvar, skotmörk og fleiri sportvörur. Skíðagerðin Fönn við sœnsk-íslenzka frystihúsið. — Sími 1327. !■■■■■■■■

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.