Þjóðviljinn - 02.12.1954, Síða 11

Þjóðviljinn - 02.12.1954, Síða 11
Fimmtudagur 2. desember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11 Erlend tíðindi Framhaíd af 6. síðú. þar verði samþykkt að grípa því aðeins til þess ráðs að Par- ísarsamningarnir verði full- giltir. Grotewohl hefur boðað, að vesturþýzku stjórninni og Vesturveldunum verði gefið enn eitt tækifæri til að ganga til samninga um sameiningu Þýzkalands, Vesturveldin hafa hinsvegar tilkynnt, að þau semji alls ekki um nokkurn skapaðan hlut fyrr en Parísar- samningarnir hafi verið full- giltir. Ep um hva& er þá að semja, þegar byrjað er að her- væða tvo hluta Þýzkalands sinn í hvoru lagi og hvor um sig hefur verið gerður hluti af hernaðarbandalagi nálægra ríkja? Að minnsta kosti einn stjórnmálamaður telur þessa þróun æskilega. Það er Mend- és-France. í ræðu á þingi SÞ um daginn lýsti hann yfir, að hann sæi ekkert athugavert við það að Austur-Evrópuríkin geri með sér hernaðarbandalag með þátttöku Austur-Þýzka- lands, Franski forsætisráðherr- ann gerði að tillögu sinni, að í vor, þegar þessi hernaðar- bandalög verði bæði komin á fót, komi saman ráðstefna um að þau setji með sér griða- sáttmála. iQynd væri að segja, að banda- ^ menn franska forsætisráð- herrans hafi tekið þessari upp- ástungu hans vel. í Washington og London vildu talsmenn ut- anríkisráðuneytanna sem minrist um tillöguna segja. í Bonn urðu menn sárreiðir og sögðu að ræðan bæri vott um að franskir ráðamenn fögnuðu því blátt áfram að Þýzkaland yrði klofið til frambúðar. Adenauer og fylgismenn hans .hafa alltaf, haldið því fram að hervæðing Vestur-Þýzkalands með tilstyrk Vesturveldanna hefði það mark að sameina allt Þýzkaland. Nú er það að koma skýrar og skýrar í ljós, að þarna hafa stjórnendur Vestur- Þýzkalands lofað upp í ermi sína. Um tíma kann þeim og forystumönnum Bandaríkj- anna að hafa komið til hugar að hægt yrði að leggja Austur- Þýzkaland undir stjórnina í Bonn með hótun um valdbeit- ingu, en eins og nú er komið vopriabúnaði stórveldanna, þeg- ar bæði Baadaríkin og Sovét- ríkin ráða yfir vetnisvopnum, er sú hugmynd alger fjarstæða. M. T. Ó. Háteigsprestakall AÐALSAFNAÐAitFUNDUR verður haldinn í hátíða- sal Sjómannaskólans sunnudaginn 5. des. n.k. að aflokinni messu, sem hefst kl. 2 e.h. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. önnur mál. Safnaðarnefndin Nauiungaruppboð verður haldið að Brautarholti 22 hér í,bænum föstudaginn 10. þ.m. kl. 1.30 e.h. og verða seldar eftirtaldar bifreiðar eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík o.fl.: R-22, R-285 (lítið bifhjól), R-452, R-1026, R-1656, R -2213, R-2586, R-2591, R-2813, R-2834, R-3039, R-3289, R-4015, R-4047, R-4058, R-4212, R-5769, R-5955, R-6232 og R-6516. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógetinn í Reykjavík NIÐURSUÐU VÖRUR 100 KISMET rakvélablöi kosta 25 krónúr Sportvöruhús Reykjavíkur Ræða Finnboga R. Valdimarssonar Framhald af 7. síðu. En nú stendur svo á, að Islendingar eru einmitt eina þjóðin á þingi Sameinuðu þjóðanna, sem hefur nokkra þekkingu og reynzlu af ný- lendustjórn Dana. Það á eng- in þjóð fulltrúa hjá Samein- uðu þjóðunum, sem veit betur •um nýlendustjórn Dana held- ur en Islendingar. Við höfum notið þessarar ágætu nýlendu- stjórnar um margar aldir eins og Grænlendingar. Og ef til vill hefur engin þjóð heldur betri aðstöðu utan Dana til þess að vita um ný- lendustjórn Dana á Grænlandi nú síðustu áratugina eða síð- an við Islendingar hættum að njóta þessarar ágætu for- ráða Dana. Og Islendingar gætu líka sagt frá því, að um eitt skeið var það einmitt tillaga og krafa Dana að innlima Is- land, með stjórnarskrárbreyt- ingu, í Danmörku. Og þá hefðu áreiðanlega fundizt ein- hverjir hálfdanskir embættis- menn, jafnvel íslenzkir emb- ættismenn, jafnvel íslenzkir þingmenn, til þess að sam- þykkja það og bera því vitni, að það væri íslendingum fyrir beztu. Framhald Á morgun koma á bókamarkaðinn tvær nýjar bækur: SÓL í FULLU SUÐRI. '' r.lXif í jif.' Pálmar við suðræna strönd. ferðasaga frá Suður-Ameríku, eftir KJARTAN ÓLAFSSON hagfræðing, en hann er víðförlastur allra ísl. menntamanna og mestur ævintýramaður. Kjartan hefur dvalið langdvölum erlendis, og oft árum saman. Nám sitt stundaði hann við háskóla í mörgum löndum Evrópu, og ni^m fyrstur allra- Islendinga við háskóla á Spáni. Þaðan kom honum færni sú í rómönskum málum, sem varð honum síðar lykill að töfraheimum Suður-Ameríku, sem þessi bók segir frá. — Þegar hann hóf þá för, sem bókin greinir frá, var hann orð- inn þaulvanur ferðamaður, en átti að auki þau kynni af spánskri menningu, sem gerðu þennan framandi ferðamann að sjálfboðnum gesti og skyggnum athug- anda manna og þjóða, sem Islendingar hafa áður haft engin kynni af, en eiga þó í hugum þeirra sinn rómantíska blæ. En Kjartan vildi lifa ævintýrið en lesa það ekki, og þess vegna hefur honum tekist að afla efniviðar í þessa gagn- merku bók, ekki aðeíns á mælikvarða Islendinga, heldur einnig á heimsmæli- kvarða. Það er fjölmargt í þessari bók, sem farandmenn og könnuðir af öðru um þjóðum hafa ekki ratað á og séð, en Kjartan segir frá á sinn góðlátlega og kýmilega hátt. í bók sinni er Kjartan ekki aðeins að segja frá. Hann býður lesandanum að ferðast með, lifa, sjá og njóta, dansa við Suðurhafsmeyjar í góðri gleði ræða við milljónera og þrælaeigenda, ferðast inn í mesta myrkvið veraldar með Indíánum, og veiða krókódíla með þeim, sjá Iguazu, einn af stærstu fossum heims, heimsækja næturklúbb í Boenos Aires, ræða við betlara, læðast yfir sofandi eiturslöngu, eða vera farþegi í flugvél í einu af hinum ægilegu eldingaveðrum yfir frumskógum Brasilíu, þegar himininn logar í eldflóði, svo að eitthvað sé nefnt. SÓL í FULLU SUÐRI er íyrsta íslenzka íerðasagan, sem skrifuð hefur verið frá S-Ameríku. Bókin er prýdd 50 myndum. UNDRAHEIMUR UNDISDJðPANNA eftir kaptein J.Y. Cousteau, höfund og brautryðjanda köfunaraðferð- arinnar með „vatnslunganu", en þessir kafarar eru svokallaðir „Frosk- menn“. Bókin segir frá ævintýrum og svaðilförum höfundarins og fé- lága hans, s.l. 10 ár, niðri í ríki un dirdjúpanna. Bókin hefur vakið meiri athygli en flestar aðrar bækur, sem út hafa komið á þessari öld og er talin ein af hinum mestu heimsviðburðum um langt árabil. Bók- in kemur út á næstum öllum tungumálum í haust, og í þeim löndum, sem hún hefur þegar komið út, erhún stöðugt endurprentuð í þús- undum eintaka. I bókinni eru 45 myndasíður úr ríki undirdjúpanna, þar af 6 síður í eðlilegum litum. — Guðmundur Guðjónsson, hinn eini íslenzki „Froskmaður“, ritar formála fyrir bókinni, og segir þar m.a. að" fáir eða engir „Froskmenn" hsfi ratað í slík ævintýri, sem Cou- steau og félagar hans. „Undraheimur undirdjúpanna er bók vorrar kynslóðar“, segir brezka tímaritið Time and Tide. — New York Tim- es segir: „Kaptein Cousteau segir hvað hann gerði, hvað hann sá, hvernig tilfinningar hans vpru og hvað hann uppgötvaði, og bara það, er nóg til þess að hver, sem kærir sig hið minnsta um sjó og haf, óskar að lesa bók hans“. — Morgenbladet, Noregi segir: „Ein af þeim sjaldgæfu bókum, sem maður harmar að ekki er tvisvar sinnum þykkri*'. Neðansjávarkvikmynd kapt. Cousteau, sem er nákvæmlega sam- hljóða bókinni, verður sýnd liér á landi mjög bráðlega. Bókaútgáfan „Hrímfeir4 Einn hinna áttfættu Miðjarðarhafs- kolltrabba hefur vafið arma sína anum Dumas. ut- ■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■< .■■■■■■«■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■(:■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ •■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■•■■■■■■■■■■■■■/»

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.