Þjóðviljinn - 05.12.1954, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 05.12.1954, Blaðsíða 3
Sunnudagur 5. desember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Hvað er komið of nýjumbókum? „Sól í fullu suðri44 Fyrsta íslenzka ferðabókin frá Suður-Ameríku Sól í fullu suðri — ferðasaga frá Suður-Ameríku nefn- ist bók sem er nýkomin út eftir Kjartan Ólafsson hag- fræðing. Þessi bók Kjartans er fyrsta íslenzka ferðasagan sem skrifuð hefur verið frá Suður-Ameriku, en Kjartan er einn mesti ferða- langur sem nú er uppi hérlendis og jafnframt mikill málamaður; „Fyrir kóngsins mekt u Leikrit eftir Sigurð Einarsson Út er komið leikritið „Fyrir kóngsins mekt“ eftir séra Sigurð Einarsson. Leikritið gerist á fslandi og Danmörku á árunum 1655 til 1662, og er þar fjallað um mikla örlagaatburði i sögu landsins. Aðalpersónurnar eru Árni Odds- son lögmaður og fjölskylda hans og Hinrik Bjálki höfuðsmaður. Leikritið er í fjórum þáttum, 200 blaðsíður og kostar kr, 75.00 í shirtingsbandi. Útgefandi er Leiftur. þýddi m. a. ævisögu Gorkís úr rússnesku á sínum tíma. Lönd þau sem Kjartan lýsir í þessari nýju bók eru sveipuð ævintýraljóma í hugum íslend- inga, og fæstir munu fá aðstöðu til að kynnast þeim nema með leiðsögn góðra bóka. Kjartan býður lesendunum með sér i langa ferð, í dans við Suður- hafsmeyjar, viðtöl við milljón- ara, þrælaeigendur og betlara, ferðalög með Indíánum um mesta myrkvið heims, krókódíla- veiðar og fjölmörg önnur nýstár- leg ævintýri. Bókaútgáfan Hrímfell gefur ferðasögu Kjartans út. Verð kr. 85.00 í rexinbandi. Hún er 269 blaðsiður, og prentuð í Eyrún i V estmannaeyj um. Kristófer Kólumbus Út er komin í þýðingu Haralds Jóhannssonar bókin Kristófer Kólumbus, eftir C. Walter Hodges. í bók þessari er rætt um æv- intýri Kólumbusar, þess er fann Ameríku forðum, en það ferða- lag hans verður lengstum vin- sælt lesefni. Bókinni er skipt í 4 kafla: Saga munksms, Saga sjómannsins, Sjómaðurinn held- ur áfram sögu sinni og Kveld- verður i la Rabía. Bókin er 176 bls. og kostar kr. 45.00 í shirtingsbandi. Útgefandi er Akrafjall. Víkingur 50 ára Góótemplarastúkan sem stofnuð var að ‘ tilhlutun Bárufélaganna Hinn 1. désember s.l. voru fimmtíu ár lið'in frá stofnun góötemplarastúkunnar Víkings nr. 104. Lýsing Suður- Þingeyjarsýslu Bókaútgáfan Helgafell hefur gefið út lýsingu Suður-Þingeyj- arsýslu eftir Jón Sigurðsson frá Yztafelli. Er bók þessi hluti af Ritsafni Þingeyinga sem sögunefnd Þingeyinga stendur að og er mikið verk. Er þar að finna landlagslýsingu, veðr- áttu og gróðurfar, lýsingar sveita og einstakra jarða, getið er allra ábúenda sem voru fardagaárið 1948-49 og greint frá komu þeirra að jörðinni og ættar þeirra, rakin er saga jarða osfrv. Bókin er 383 síður í stóru broti, prentuð í Víkingsprenti. Verð kr. 150.00 óbundin. Vænt- anlegt er samskonar rit um Norður-Þingeyjarsýslu, eftir Bjöm Guðmundsson lireppstj. í Lóni í Kelduhverfi. Bók Malmbergs: ICELAND Á þessu ári kom út myndabókin Iceland, með mynd- um er Svíinn Hans Malmberg tók hér á landi. Formála fyrir bókinni (hann er á ensku) skrifaði Helgi P. Briem sendiherra, þar sem hann gerir i stuttu máli grein fyrir íslandi og sögu þjóðarinnar. Myndirnar — 120—130 talsins, eru teknar með hinu glögga auga gestsins og margar hinar ágætustu. Verð bókarinnar er 110 kr. Hún er prentuð og gefin út í Stokkhólmi, en umboð hér hefur ísafold. — Bók þessi er vel fallin til að senda erlendum vinum. fsland — Myndir og minningar TJt er komin ný útgáfa af myndabókinni: ísland, Myndir og minningar. Hefur hún inni að halda um 100 myndir, margar fagrar og ágætar. málum. fslenzka formálann skrif- ar Jón Eyþórsson. Ada Holst Undraheimur undirdjúpanna Bók um ævintýri „froskmanna" Undraheimar undirdjúpanna nefnist bók sem bókaútgáfan Hrímfell hefur gefið út. Höfundur bókarinnar er J. K. Cousteau kapteinn, höfundur og brautryðjandi þeirrar að ferðar að kafa með „vatns lungu“. Segir þarna frá æfin- týrum og svaðilförum höfund- arins og félaga hans niðri í ríki undirdjúpanna. I bókinni eru 45 myndasíður, 6 þeirra lit- prentaðar. Gerð hefur verið kvikmynd eftir bókinni og mun hún væntanleg hingað innan skamms. Bókin er 215 síður og kostar kr. 85.00 í skinnbandi. Hún er þýdd af Kjartani Ólafssyni og prentuð hjá Eyrún í Vest mannaeyjum. Allmargt rhynda þessara er af gamalkunnum stöðum, er flestir þekkja en margar sýna einnig staði sem fáum eru kunnir. Flest- ar myndanna eru eftir Þorstein Jósefsson, Pál Jónsson og Hjálm- ar R. Bárðarson, en auk þeirra eiga þarna myndir hópur áhuga- ljósmyndara og atvinnuijósmynd- ara. Frágangur bókarinnar er góður, og hrekur þá fullyrðingu að -ekki þýði að gefa hér út myndabækur. Formáli fylgir bókinni á þrem Bók um Finnland eftir Baldur Bjarnason Nýtt bindi er komið út í Tildrögin að stofnun stúkunnar voru þau, að á fulltrúaþingi Bárufélaganna 1904, sem voru eins og kunnugt er samtök sjó- manna á Suðvesturlandi um og eftir síðustu aldamót, bar Sig- urður Eiríksson regluboði, sem sæti átti á þessu þingi, fram til lögu um aukið bindindisstarf meðal sjónxanna. Var tillögu þess- ari vel tekið af þingheimi og almennt að því hallazt að bezta leiðin til þess að ná árangri í þessu skyni, væri að gera tilraun til stúkustofnunar meðal sjó- manna, var það síðan samþykkt. Sigurður hóf því næst að vinna Sigurður Eiríksson regluboði skrifar formála á dönsku, en Ragnar Stefánsson liðsforingi í bandaríska hernum á ensku. Skrifar hvert um sig út frá eigin brjósti. Bókin er ágætlega fallin til að senda vinum og kunningjum erlendis. Verð hennar er kr. 90.00. Útgefandi er bókaútgáfan Skjald- breið. Sara Barton lærir hjiikruii Sara Barton Iærir hjúkrun, nefnist nýútkomin skáldsaga. Höfundur bókarinnar er Helen safninu „Lönd og lýðir“, sem Dore Boylston, en þýðandi Álf- Bókaútgáfa Menningarsjóðs gef heiður Kjartansdóttir. Bókin ur út. Fjallar það um Finnland og er samið af Baldri Bjarna- syni sagnfræðing. Bókin skiptist í 3 meginkafla, er nefnast Landið, Þjóðin og Einstakir landshlutar og merk- isstaðir. Hún er 112 bls. að stærð og prýdd 53 myndum. Samkvæmt óskum margra fé- lagsmanna verður reynt að hraða útgáfu bókaflokksins Lönd og lýðir. Tvær bækur, Finnland og Bandaríkin, koma út • í ár. Að sjálfsögðu varð að hafa aðra bókina sem auka- félagsbók, þar sem engin leið er að láta félagsmenn hafa meira en fimm bækur fvrir 60 kr. félagsgjald. Minni bókin var valin sem aukabók, svo að fé- lagsmenn þyrftu að greiða sem fjallar um unga stúlku er langar til að læra hjúkrun, og gerir það og kynnist fólki, þ. á. m læknakandídat. Spítalarómantík fellur mörgum ungum stúlkum vel í geð. Bókin er 189 bls., verð kr. 45.00 í shirtingsbandi. Út- gefandi er Akrafjall. Höfðingleg gjöi til Sjúkrahúss Akraness Á síðast liðnu sumri barst Sjúkrahúsi Akraness gjöf að upp- hæð kr. 20 þús. til minningar um Sesselju Jónsdóttur og Jón Þorstelnsson, er lengrst bjuggu að Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd. Var 100. ártíð Sesselju 16. ágúst s.1. og segir gefandinn, „að gjöf þessi sé mjög í tuida hennar, sem öllu vildi líkna og hjálpa-“ Stjórnarnefnd sjúkrahússbis hef- minnst til viðbótar, enda. er fé- j ur samþykkt að eltt herbergi í lagsverð Finnlandsbókarinnar i sjúkrahúslnu skuii bera nafn aðeins kr. 23.00. Sjö bindi eru ™erku, ““ le‘ð 0? , , , hön sendir grefandanum innllegar nú alls komin út í safninu þakkir fyrir gjöf þessa og hugul- Lönd og lýðir. scmi í garð sjúkrahússins. að undii'búningi væntanlegrar stúkustofnunar og naut ágætrar aðstoðar manna eins og Ottós N. Þorlákssonar, Helga Björnsson- ar og Þorsteins Egilssonar. Brátt höfðu um sjötíu menn ritað sig á stofnendaskrá. Var þá boðað til almenns fundar um stúkustofn- unina, og var sá fundur háður í Bárunni og var mjög fjölsótt- ur. Meðal þeirra sem þar komu og tóku til máls var þáverandi Stórtemplar Þórður J. Thorodd- sen og séra Ólafur Ólafsson frí- kirkjuprestur, og var ræðu hans einkum viðbrugðið, enda maður sá meðal mestu mælskumanna þjóðarinnar fyrr og síðarr Hvatti séra Ólafur eindregið til þess að hafist væri handa og stúka stofn- uð. Var það siðan gert og stúkan stof-nuð með um 80 félögum. Stofnunina framkvæmdi stór- templar Þórður J. Thoroddsen en stúkan hlaut nafnið Víkingur. Síðar gerðist sér Ólafur fé- lagi Víkings og var um langt skeið forustumaður hennar. Fyrsti æt. Víkings var kjörinn Þorsteinn Egilsson en umboðs- maður Stórtemplars Jón Jóns- son. Frumherjum st. Víkingg var brátt ljóst að ef eitthvað ætti á að vinna fyrir bindindismálið var nauðsyixlegt að fá hina yngri til liðs við málið. Þess vegna var ekki liðið nema rúmt ár frá stofnun Víkings þegar hafist var handa um stofnun unglingastúku í samvinnu við st. Bifröst, þá var stofnuð ung- lingastúkan Unnur nr. 38. Sá sem lengst hefur starfað fyrir þá stúku sem- gæzlumaður var Magnús V. Jóhannesson eða milli 25—30 ár, núverandi gæzlumaður er Ágúst Jóhannes- son og hefur verið það um ára- bil. Eins og að líkum lætur var það fyrst og fremst bindindis- málið, sem var höfuðmál stúk- unnar. En ýms önnur mál lét stúkan sig varða, má í því sam- bandi minna á tillögu Maríu Pétursdóttur, pm iað stúkan samþykki að gangast fyrir því að nefnd yrði skipuð með þátt- töku allra Reykjavíkurstúkn- anna til þess að hrinda í fram- kvæmd stofnun dýraverndunar- félags, en tilraun í þá átt hafði Tryggvi Gunnarsson gert oft- ar en einu sinni, en mistekist. Þessi tillaga var samþykkt og félagið stofnað undir for- mennsku Tryggva en með þátt- töku ýmsra forgöngumanna Reglunnar í stjórn framan af. Dýraverndunarfélagið hefur gengt merku menningarhlutverki í þjóðfélaginu svo sem kunnugt er. Þegar kom til stofnunar Eim- skipafélags íslands á sínum tíma, var það mál mikið rætt á fund- um stúkunnar og menn hvattir til að vinna fyrir málið eftir beztu getu og kaupa hlutabréf. Sjálf keypti stúkan bréf sem hún á enn. Stofnun stúkunnar Víkings var merkur viðburður í sögu Góð- templarareglunnar hér á landr, því þá náði reglan fyrst almennt til sjóinannastéttarinnar, svo nokkru næmi. Stúkan var og þegar i upphafi skipuð dugandi mönnum og kon- um, sem litu á bindindisstarfið sem þjóðarnauðsyn og unnu af alefli og alúð fyrir bindindishug- sjónina. í þessu sambandi minn- ist maður nú á þessum tímamót- um Jóns Guðnasonar núverandi umboðsmanns stúkunnar, þess, eina stofnfélaga sem óslitið frá stofndegi og til þessa dags hefur verið óhvikull starfsmaður í blíðu og striðu, aldrei lagt árar í bát né dregið sig í hlé frá störfum. Meðal félaga st. Víkings hafa verið ýmsir menn og konur, sem verið hafa í forystu Góðtemplará- reglunnar um áratugi, má þar til nefna Jóhann Ögmund Odds- son fyrrv. Stórritara uxu 34 ára skeið, svo og konu hans Sigríði' Halldórsdóttur, ennfremur Jón- ínu Jónatansdóttur sem lands- kunn var bæði af starfsemi sinni fyrir bindindismálið og verklýðshreyfinguna, Pétur Sig- urðsson erindreka og ritstjóra svo fáein nöfn séu nefnd. Enn er Stórritaraembættið skipað Víkingsfélaga nú Jens E. Níels- syni kennara. Núverandi æðstutemplarar eru: Einar Björnsson og Halldór Sig- urðsson. Stúkan Víkingur minnist hálfr- ar aldar afmælis síns með há- tíðafundi í kvöld í Templarahöll- inni og annað kvöld, mánudag, á fundardegi sínum, með afmæl- jshófi kl. 8 í Góðtemplarahúsinu. Otbreiðið Þjóðviljann!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.