Þjóðviljinn - 05.12.1954, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 05.12.1954, Blaðsíða 12
'Sjö línubátar frá Eyjuin nú að veiðum Aðeias Ivö af þeim 30 leyfum fyrir vélbálum sem ríkisstjómin úthlulaðí ný- lega, leniu í Vesimannaeyjum og má það teljast furðulega lítið. þar sem Eyj- ar eru iangstærsta vélhátastöð landsins og sú sem nú er í örastri framþróun. ÞlðÐVIIJÍWf Sunnudagur 5. desember 1954 — 19. árg. — 278. tölublað Frá fréttaritara Þjóðviljans í Vestmannaeyjum Það er fremur óvenjulegt að vélbátar hér stundi veiðar að nokkru ráði á þessum tíma. En nú róa héðan sjö vélbátar og fiska á línu. Aílabrögðin mega teljast sæmi- lega og góð eftir atvikum og nema 2—5 lestum í róðri. Um það bil 2/5 hlutar aflans er stór og falleg* ísa. Þeir bátar er veiðar stunda nú eru: Lundinn, Erlingur I, Vinur, Halla (er áður hét Þór), Krist- björg, Sæbjörg og Björgvin (sem allt til þess í haust hét Kap). Mikill vertíðarundirbúningur fer nú fram hér í Eyjum og gera menn sér miklar vonir urn blóm- Frá Æ.F.R. Skrifstofa ÆFR á Þórsgötu 1 er opin í dag frá klukkan 1—12 á miðnætti. Félagar og aðrir eru beðnir að koma og gera lokaskil í liapp- drætti Þjóðviljans. legt atvinnulíf þegar kemur fram yfir nýárið. Það vekur hér mikla athygli og gremju, að einungis tvö leyfi til innflutnings vélbáta af 30, sem alls voru veitt nú fyrir skömrnu, komu liingað til Eyja, en eins og alkunnugt er þá er hér langstærsta útgerðarstöð ís- lenzka vélbátaflotans og jafn- framt sú sem örast hefur vaxið að undanförnu, enda lágu fyrir héðan margar umsóknir, sem ekki var sinnt. Þeir sem leyfi fengu eru Helgi Bergvinsson skipstjóri á m. b. Kára og Rafn Kristjánsson skip- stjóri á m. b. Lagarfossi og í fé- lagi við hann Sveinbjörn Guð- mundsson. Eru þetta allt dug- andi og ágætir sjómenn. Framleiðsla neonliósaskilta hofin hér á iandi Ný iðngrein, gerð neonljósaskilta hefur verið hafin hér á landi. Það er ungur maður, Karl Karlsson, rafmagnsfræðingur sem hafið hefur þessa fram- leiðslu, og kallar fyrirtæki sitt Neon. Hann kynnti sér slíka framleiðslu erlendis, er hann var við framhaldsnám í Danmörku. Eftir að hann kom heim vann hann nokkuð/ að þessu í frí- stundum sínum, en vann annars hjá rafmagnsveitum ríkisins þar til i haust, að hann sneri sér að framleiðslu neonljósaskilta. Hann hefur m. a. framleitt ýmis skilti er flestir bæjarbúar munu hafa séð eins og skærin hjá Vouge á Skólavörðustíg, stafina L. G. L. hjá Lárusi Lúð- víkssyni og CHIC á Vesturgötu o. fl. — Ber að fagna hverju því sem framleitt er hér hei'ma og ekki þarf lengur að sækja til annarra þjóða. SjálístæðisOokkurínn hrifsar völd- in í Norræna félaginu Aðalfundur Norræna félagsins var haldinn í fyrrakvöld og kosin ný stjórn — en sú stjórnarkosning virðist hafa verið skipulögð af Sjálfstæðisflokknum. Fráfarandi formaður, Guðlaug'- ur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri, Barnasýning MÍR HúsmæðradeiJd MIR hefur barnasýning'ii f lesstofunnl Þinglioltsstra'ti 27, ld. 3:30 í dag fyrir börn lélagsmanna og gesti. — Að þessu sinni verða sýndar: Fréttátmyndir og Bræðurnir. — Sýningin er fyrir stærrl börnln. Greiðið flokksgjöld ykkar skil- víslega í skrifstofu félagsins, Þórsgötu 1. Allir ársfjórðungar eru nú fallnir í gjalddaga. Minningarsjóður íslenzkrar alþýðu um Sigfús Sigurhjartarson Tjarnargata 20 Munið að gera skil á greiðslu- loforðum til sjóðsins. flutti skýrslu um félagsstarfið. Síðan voru teknir inn nýir fé- lagsmenn, og — Gunnar Thor- oddsen borgarstjóri kosinn for- maður. Ásamt honum voru kos- in í stjórn Arnheiður Jónsdótt- ir, Vilhjálmur Þ. Gíslason út- varpsstjóri, Páll ísólfsson tón- skáld, Sveinn Ásgeirsson hag- fræðingúr, Sigurður Magnússon kennari og Thorolf Smith blaða- maður. Guðlaugur Rósinkranz þakk- aði síðan fyrrverandi meðstjórn- armönnum og félagsmönnum samstarfið og óskaði að norræn sanivinna mætti blómgast. Skipun hinnar nýju sfjórnar og frásögn Morgunblaðsins: „Þá voru teknir inn nokkrir nýir fé- lagar“, bendir óneitanlega til þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi undirbúið fyrirfram að hrifsa völdin i félaginu. Fram að þessu hefur norræn samvjnna ekki verið gerð að sérmáli neins flokks, enda hollast þvi málefni að það sé hafið yfir allan flokkadrátt. Ekið á bifreið Um klukkan 5 á föstudaginn var bifreiðin R 658 skilin eftir á Hringbrautinni á móts við Hljómskálagarðinn. Þegar eig- andinn kom að henni aftur kl. 10 í gærmorgun hafði verið ek- ið aftan á bifreiðina og hún skemmd töluvert. Ekki er vitað, hver valdur er að skemmdun- um, en sjá mátti, að bifreið sú, er skemmdunum olli hefur verið dökkgræn. Nú eru það eindreg- in tilmæli lögreglunnar, að þeir sem voru í grænu bifreiðinni, er hún ók aftan á R 658, gefi sig fram, svo og aðrir sjónar- vottar. Leikíélag Hafnarfjarðar: Ást við aðra sýn frumsýnt á þriðjudaginn kemur Leikfélag Hafnarfjarðar hefur vetrarstarf sitt n.k. þriöjudagskvöld, en þá verður frumsýndur gamanleikur- inn „Ást við aðra sýn“ (Love at second sight) eftir brezka leikiitaskáldið Miles Malleson 1 þýðingu frú Ingu Laxness. Miles Malleson er þekktur leikritahöfundur, sem hefur sam- ið mikinn fjölda leikrita, bæði einn og með öðrum. Leikstjórn annast að þessu sinni þýðandinn, frú Inga Lax- Leitarflokkiw Flugbjörgunarsveitarinnar, sem pátt tók í leit að brezkum stúdentum á Vatnajökli. Merkjasösludagur Flugbjörg- unarsveitarinnar er í dag í ráði er að nokkrir félagar fari ulan næsta sumar og læri falihlífarslökk Merkjasala Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík er í dag og rennur allur ágóði af henni til starfsemi sveit- arinnar, sem er orðin allumfangsmikil og kostnaðarsöm, enda þótt allt starf félaganna sé umiið endurgjalds- laust. Sveitinni er nú einna brýnust þörf fyrir fé til kaupa á stórri og fullkominni björgunarbifreið, sem útbúin verður sterkum Ijós- kösturum, aflmikilli Ijósavél og langdrægum talstöðvum. Liggja ýmis þessara tækja hér á hafn- arbakkanum, þar eð sveitina skortir fé til að leysa þau út. Þá er ^ ráði að senda nokkra meðlimi Flugbjörgunarsveitar- innar utan á næsta sumri til að læra falthlífarstökk, þannig að unnt verði að senda björgunar- flokka á slysstaði eins fljótt og Líflótsdómar Sjö menn úr Bræðralagi mú- hameðstrúarmanna voru í gær dæmdir til lífláts í Kaíró. Meðal í þeirra voru Hassan el Hodeiby, leiðtogi bræðralagsins, og mað- ur sá sem framdi banatilræðið við Nasser forsætisráðherra á | dögunum. Síðar í gærkvöld j breytti Byltingarráðið dauða- ! dómi Hodeibys í ævilanga þrælkunarvinnu, en staðfesti : hina dómana. 7 aðrir rnenn voru dæmdir í ævilangt fangelsi, 2 í 15 ára fengelsi, en 3 voru sýknaðir. Margir aðrir úr bræðralaginu bíða dóms. unnt er. Þess má og geta að sveitin hefur hug á að afla sér fullkomins útbúnaðar til fjall- gangna og jöklaferða. Eins og kunnugt er eignaðist Flugbjörgunarsveitin sporhund á s. 1. sumri og mun Hafnfirðing- um og Reykvíkingum gefast kost- ur á að sjá hann i dag. í Hafn- arfirði verður hánn til sýnis fyr- ir hádegi en í Reykjavík kl. 13.30—16 á bílastæðinu á horni Austurstrætis og Aðalstrætis. Séra Emil Björnsson flytur á- varp í útvarpið á vegum Flug- björgunarsveitarinnar eftir há- degið í dag. Mun hann skýra nánar frá störfum sveitarinnar og áætlunum. ness, en hún hefur áður starfað með L. H. bæði sem leikari og leikstjóri. Með hlutverk fara: frú Sólrún Yngvadóttir, frú Margrét Guð- mundsdóttir og frk. Sólveig Jó- hannsdóttir, Sigurður Kristins- son, Friðleifur E. Guðmundsson og Finnbogi F. Arndal. Leiktjöld málaði Lothar Grund, en ljósameistari verður Róbert Bjarnason. Næsta viðfangsefni - félagsins verður ævintýraleikurinn „Hulda gamla“ eftir Willy Kriiger, en hann samdi einnig „Hans og Grétu“, sem L. H. sýndi s. 11. vetur við mikinn fögnuð barn- anna. Þýðingu annaðist Halldór G. Ólafsson. Ævintýraleikurinn „Hulda gamla“ er byggður eftir sam- nefndri sögu í Grimms ævintýr- um, en eins og flestir vita snjóar hér á jörðunni þegar Hulda gamla er að viðra sængurnar sínar í undirheimum. Stjórn Leikfélags Hafnarfjarð- ar skipa nú Sigurður Kristinsson, Friðleifur E. Guðmundsson, Jó- hann Hjaltalín og Snorri Jóns- son. ÆFR Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 8. des. i Baðstofu iðnaðarmanna. Dagskrá: 1. Fréttir frá Alþýðusambands- þingi. 2. Frásöguþáttur frá Ítalíu. 3. Varsjármótið (Guðm. Magg.). 4. Bindindismál. Stjómin. Sýningu Þorsteins lýkur í kvöld Þorsteinn þ>orsteinsson hefur undanfarið haft sýningu á verk- um sínum í Þióðminjasafninu. Hefur aðsókn verlð sæmilega góð og 3 myndir selzt. I dag er síðasti dagur sýning- arinnar, því setja ó upp aðra sýningu í safninu. Sýningin er opin frá kl. 1—10 í kvöld. SilfurtúngliS sýnt fyrir Dagshrún og ISju Þjóðíeilchúsið hefur frá upphaii stundum haft sér- stakar sýningar fyrir félagsmenn Dagsbrúnar, Iðju og annarra verkalýðsfélaga. Hefnr þetta orðið mjög vinsœlt h.já verkamönnum. Næstkomandi laugardag, 11. þ.m. verður sýning í Þjóðleikhúsinu á Silfurtúnglinu fyrir Dagsbrúnarmenu og Iðjufélaga. Aðgöngumiðar verða afgreiddir í skrif- stofufn félaganna í næstu viku.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.