Þjóðviljinn - 13.01.1955, Síða 3
Fimxntudagur 13. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
isfsiu nema 1 sam-
einast um heimavistaitamaskðla
Þrjú síðastliðin ár hefur verið unnið að hyggingu
barnaskóla að Varmala'ndi í Borgarfirði fyrii' alla hreppa
Mýrasýslu utan Borgarness.
Formaður skólanefndar, séra
Bergur Björnsson í Stafholti,
segir svo um mál þetta:
„Mánudaginn 6. des. s. 1. tók
til' starfa hinn nýi heimavistar-
bamaskóli Mýrarsýslu að
Varmalandi. Vígsla skólans mun
síðar fram fara. í skólanum er
rúm fyrir 40 börn, en mögu-
ieikar á að koma þar fyrir 52
börnum. Skólinn mun starfa í
tveim deildum og er það eldri
deild, sem nú er komin til
náms. Kennslustofur eru þrjár,
rúmgóðar og glæsilegar. Tvær
fullkomnar íbúðir.
20 ára gömul hugmynd
Skólastjóri er Ólafur Ingvars-
son frá Strönd, Rangárv., kenn-
ari Bjarni Andrésson frá Stykk-
ishólmi, ráðskona Jóhanna Olsen.
Það mupu vera rúm 20 ár síð-
an að fyrst var vakið máls á
því að byggja heimavistarbarna-
skóla fyrir Mýrarsýslu á heitum
stað og gerði það Daníel Kristj-
ánsson frá Hreðavatni. Einnig
ritaði séra Björn Magnússon síð-
ar um málið. Ritgerðin birtist
í tímariti Ungmennasambands
Borgarfjarðar, Svanir 1. hefti bls.
82. Leið svo nokkur. tími þann-
ig að ekkert v^r gert, unz þá-
verandi námsstjóri, Bjarni M.
Jónsson (veturinn 1941—’42),
átti viðtöl við skólanefndir um
sameiningu skólahverfa og bygg-
ingu heimavistarskóla fyrir
sveitahreppa Mýrarsýslu. Boðaði
hann til fulltrúafundar í þessu
skyni, þar sem rætt var um að
byggja skólann fyrir fimm eftir-
talda hreppa: Hvítársíðu-, Þver-
árhlíðar-, Norðurárdals-, Staf-
holtstungna- og Borgarhrepp.
Álftaneshreppur- ‘ og Hraun-
hreppur á Mýrum vestur vjldu
helzt standa saman • um skóla-
byggingu. •
Háfizt handa á ný
Entj. liðu mörg ár — eða allt
til yorsins 1951 — unz verulegur
skriður komst á málið. Stefán
Jónsson námsstjóri mætti á
sýslufundi í Borgarnesi 11. maí
1951 og var þar rætt um skóla-
mál sýslunnar og kosið fræðslu-
ráð fyrir Mýrarsýslu. Námsstjór-
inn taldi rétt að sameina alla
hreppa sýslunnar um byggingu
heimavistarskóla við Stafholts-
veggjalaug og sýslunefndin skor-
aði á nýkjörið fræðsluráð að
hefjast þegar handa um skóla-
bygginguna. Að tilhlutan
fræðslumálastjóra, samkv. bréfi
menntamálaráðuneytisins, boðaði
svo Stefán Jónsson námsstjóri til
fundar að Varmalandi 21. júní
1951: Fræðsluráð Mýrasýslu,
Jón Steingrímsson sýslumann í
Borgamesi og oddvita allra
hreppa sýslunnar, auk formanna
skólanefnda.
Bygging ákveðin
Á fundi þessum var endanlega
samþykkt að hefja byggingu
skólans og bygginganefnd kjörin,
en hana skipa: Jón Steingríms-
son sýslum., Andrés Eyjólfsson
alþunaður og séra Bergur Bjöms-
son. — Vinna hófst haustið 1951,
en hlé varð á um veturinn, unz
tekið var til af fullum kraftl
vorið 1952. Síðan hefur verið
unnið ósiitið að byggingu skól-
ans undir stjórn yfirsmiðsins,
Kristjáns Björnssonar hreppstj.
á Steinum. Teikningar að bygg-
ingunni gerði Sigvaldi Thordar-
son arkitekt. Er það samróma
álit allra, að öllu innanhúss sé
mjög smekklega og haganlega
fyrir komið, vinna öll frábær-
lega vel af hendi leyst og skóla-
Gert er ráð fyrir að sund-
kennsla fari fram á staðnum og
voru búningsklefar við sund-
laugina endurbættir s. 1. haust.
I skólanum mun verða mikið
sungið undir stjóm Bjama
Andréssonar kennara, þar mun
væntanlega nám allt verða
stundað af kappi og unnið ó-
sleitilega.
Miklar vonir eru tengdar við
Bamaskóla Mýrasýslu að Varma-
landi, sem á að leiða bömin okk-
ar til þroska og frama um ókom-
in ár. Er það einlæg ósk okkar
allra, að mikilvægt starf hans
megi giftusamlega takast.
Frá afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar:
Allir bernámsflokkaniir slógn
skjaliorg ura „éíriiarbffuna 1!
í nokkur ár hefur bæjarstjórnaríhaldiö varið frá 750
þús. til 1 millj. kr. á ári til svonefndra ráðstafana vegna
ófriðarhættu.
1 skjóli þessa framlags hefur
Skólahúsiö að Varvialandi.
húsið glæsilegt, Skóiastjórinn,
Ólafur Ingvarsson, hefur tjáð
mér, að hann telji skólann taka
fram því, sem hann hefur áður
kynnzt, og ómetanlegan ávinn-
ing að íbúðir og heimavist eru
fullkomlega aðskilin. Einnig tek-
ur hann fram að starfsskllvrði
séu hin ákjósanlegustu.
Heildarkostnaður við byggingu
skólans mun verða eitthvað j-íir
3 milljónir.
Á s. 1. hausti voru af svéitar-
stjórnum Mýrasýslu kosnir í
skólanefnd: Anna Brynjólfsdóttir,
frú, Gilsbakka, Daníel Kristjáns-
son, skógarvörður, Hreðavatni,
Leifur Finnbogason, bóndí í Hít-
ardal, Vigdís Jónsdóttir, forstöðu-
kona, Varmalandi. Hinn 30. nóv.
s. 1. svipaði svo menntamálaráð-
herra, Bjarni Benediktsson, séra
Berg Björnsson, Stafholti, for-
mann nefndarinnar".
verið komið upp dýru og um-
faoigsmiklu skrifstofubákni,
svonefnd „loftvamanefnd",
greitt sér góð laun og allmikl-
ar birgðir verið keyptar af lítt
seljanlegum vömm sem ýms
vildarfyrirtæki íhaldsins höfðu
legið með árum saman og ó-
hugsandi var að koma i pen-
inga nema í gegnum „góð sam-
bönd".
Við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar Reykjavíkur fyrir jólin
lögðu sósíalistar til að fellt yrði
niður áætlað 750 þús. kr.
framlag til „ráðstafana vegna
„ófriðarhættu". Sýndu þeir
fram á algjört gagnsleysi þess-
arar fjárveitingar og víttu þá
sóun sem í henni fælist.
Breytingartillagan var felld
með 11 atkv. gegn 4. Allir
heraámsflokkarnir slógu skjald-
borg um eyðsluna í „ófriðar-
hættuna" en fulltrúi Þjóðvárn-
arflokksins greiddi atkv. með
tillögunni ásamt sósíalistum.
■■■■■■■■■■■■■■■■■rB■■■■■■■„BBB. ■■■■■uaar.BBBB ■■■■■■■■■■■■ BBaBaaBI
■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■n
Útsala
Kven- og barnabuxur. Barnahúfur og
vettlingar og margt fleira af ódýrum
vorum.
Tökum fram I dag molskiiuisbúta, 2 litir,
og falleg skyrtuefni, með mjög Iágu verði.
Verzlun Halldórs Eyþórssonar
Laugavegi 126.
•■■■■■■■■■■■■■■«■■■■!
■■•••■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■••#■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»*****nmm?
_'■■•••■•*■■■*■••■■■*•■»■■■■■■■■■■•■•■■■■■■■■•■■!
Fœðingadeildin
á Sólvangi
heíur verið opnuð aítur
SÓLVBNGUR
Hverfa skortir einingarviliann?
Morgunblaðinu í gær finnst
lítið til um „einingarvilia"
vinstri manna í verkalýðshrej’f-
ingunni. Er tilefnið aðalfundur
fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
sl. mánudagskvöld, þar sem ein-
ingarmenn tóku nú við stjórn
á nýjan leik með stuðningi mik-
ils meirihluta fulltrúanna.
1 samræmi við viðurkennda
sannleiksást sína gengur blað-
ið að sjálfsögðu fram hjá þeirri
ómótmælanlegu staðreynd, sem
Alþýðublaðið neyðist þó til að
viðurkenna í gær,
að einingarmenn í fulltrúa-
ráðinu lögðu sig alla fram
ti! þess að fá kjörna sam-
komulagsstjórn, þar sem
minnihlutinu ættí einnig sína
fniitrúa og var alveg sér-
stök áheníla á það lögð að
þeir yrðu úr fulltrúahópl
Sjómannafélags Reykjaviliur
og • verkalrvennaf élagsms
Framsóknar, þ e, stærstu fé-
laganna í bænum, sem enn
lúta forustu hægri manna-
Alþýðubl. viðurkennir lirein-
skilnislega í gær að „fyrir þessu
hafi enginn grandvöllur fengizt
meðal Alþýðuflokksmanna". —
Hér stóð því ekki á „einingar-
vilja kommúnista", svo notað
sé orðalag Morgunblaðsins,
heldur samstarfsvilja samherja
Morgunblaðsins í verkalýðs-
málum. Þeir völdu sjálfir þann
kostinn að eiga enga aðild að
forastu ráðsins og hafa vafa-
laust þannig talið sig þóknast
íhaldinu bezt.
Svipuðu máli gégnir með
svigurmæli Morgunblaðsins í
garð Dagsbrúnar. En blaðið
fullyrðir að alla tið síðan
verkamannastjórnin var fyrst
mynduð í Dagsbrún hafi það
„ekki hvarflað að leiðtogum
kommúnista í þessu stærsta
verkalýðsfélagi landsins, að
minnihlutaflokkarair þar ættu
að eiga minnstu hlutdeild í
stjórn félagsins. 1 skjóli meiri-
hluta síns hafa þeir kosið
hreina flokltsstjóra kommún-
ista á hverju ári". Morgunblað-
ið segir síðan að þetta sé „hinn
umbúðalausi sannleikur um
„einingarvilja kommúnistanna".
Þiá miður, fyrir Morgun-
blaðið, er „hinn umbúðalausi
saimleikur" sá, að ekki að-
eins Alþýðuflokksmenn, held-
ur og flokksbundnir Sjálf-
stæðismenn, hafa setíð í
stjórn Dagsbrúnar með
„konunúnistum" á þessu
timabiii. Meðal þeirra er
maður að nafni Sveinbjörn
Hannesson, sem uudi hið
bezta hag sínum í Dagsbrún-
arstjórninni þangað tíl for-
ingjar Sjálfstæðisflokksins
kipptu í spottann og ákváðu
að Ieggja sig alla fram um
að sundra verkamönnum eft-
ir pólitískum flokkum.
Sama er að segja um Al-
þýðuflokksmenn sem setið hafa
í stjóm Dagsbrúnar. Enginn á-
greiningur um málefni félags-
ins réði því að þeir hættu
þátttöku í stjórnarstörfum.
Þeir settu ákvörðun flokksfor-
ustu sinnar um að beita sér
fyrir því að veikja samtökin og
sundra verkamönnum, ofar
hagsmunum félagsins og verka-
mannastéttarinnar. Þannig hafa
flokksmenn beggja valið sjálf
ir hlutskipti áhrifaleysisins en
ekki verið ýtt út af vondum
„kommúnistum".
Morgunblaðið hefur því ekki
við aðra að sakast en sína eig-
in flokksforingja. En skrif þess
sýna ótrúlegt virðingarleysi
fyrir staðreyndum því tæplega
stafa þau af þekkingarskorti ?
Eða heldur Morgunblaðið e.t.v.
að Sveinbjörn Hannesson hafi
verið „kommúnisti" á stjórn-
arárum sínum I Dagsbrún en
„endurfæðst" fyrir áhrifamátt
Ólafs Thórs eða annarra for-
ingja Sjálfstæðisflokksins ?
Iðnsveinafélögin
Framhald af 12. síðu.
sér til varðandi hagsmunamál
iðnaðarmanna, en cins og nú er
máluni háttað, er enginn slíkur
aðili til, utan Landsamband iðn-
aðarmanna, sem næstum ein-
göngu samanstendur af meistur-
um, svo sem iðnlöggjöf íslend-
inga ber ótvírætt vitni um.
Þingið skorar því á alla iðn-
sveina að taka þetta mál til al*
varlegrar athugunar í félögum
sinum hið allra fyrsta, svo und-
inn verði bráður bugur að því að
hrinða þessu nauðsynjamáli í
framkvæmd".
Ýms önnur mál voru tekin fvr-
ir á þinginu, m. a. var samþykkt
að halda uppi eftirliti með ófag-
lærðum, á næsta starfsári, ein9
og að undánförnu, með þeim er
fara inn á verksvið hinna lög-
vemduðu iðngreina, og leiia
nánari samvinnu við lögreglu-
yfirvöld bæjarins á þessu sviði,
þar sem álitið er að hér sé unj
almenna löggæzlu að ræða.
Stjórn sveinasambandsins skipa'
nú: Ólafur Jónsson málari, for-
seti, Guðvarður Sigurðsson múr-
ari, varaforseti, Rafn Krist.iáns-
son pípul.m. gjaldkeri, Matthías
Ólafsson málari, ritari og með-
stjórnandi Kristinn B. Eiríkssóaj
pípul.m.