Þjóðviljinn - 16.01.1955, Síða 3
Sunnudagur 16. janúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Landssmiðjan er 25 ára á morgun, stofnuö 17. jan.
1.930. Á þessum aldarfjórðungi sem Landssmiðjan hefur
jstarfað hefur framleiöslan vaxið úr kr. 190 þús. í 25 millj.
kv. og launagreiðslur úr kr. 75 þús. í 10.5 millj. kr.
Þeir Jóhannes Zoega fram-
ikvæmdastjóri og Pétur Péturs-
son skrifstofustj. skýrðu blaða-
mönnum í gær frá starfsemi
smiðjunnar í tilefni af afmæl-
inu.
Áttundi báturinn
Tuttugu og fimm ára afmæli
Landssmiðjunnar er ekki fyrr en
á morgun, en í gær afhenti
Landssmiðjan 8. bátinn sem hún
hefur smíðað. Er það bátur sem
útgerðarfélagið Barði h. f. á
Flateyri á, en framkvæmdastjóri
þess er Páll Þórðarson, skipstjóri
■verður Björn Ingólfsson.
Ósmíðaðir stálbátar
Framkvæmdastjórinn skýrði
■ennfremur frá því að 1 Vá ár
væri nú liðið frá því að Lands-
smiðjan óskaði eftir því að fá
lóð að sjó, svo að hún gæti
rækt hlutverk sitt sem skipa-
Smíðastöð. Hefði hún fengið lóð-
ina myndi Landssmiðjan þegar
hafa i smíðum fiskibáta úr stáli,
smíðaða eftir teikningu skipa-
verkfræðings smiðjunnar, Hjálm-
ars R. Bárðarsonar.
Stofnun smiðjunnar
Um stofnun smiðjunnar og
störf hennar fórust framkvæmda-
stjóranum orð á þessa leið:
25 ár eru nú liðin síðan Lands-
smiðjan tók til starfa, 17. janúar
1930. Starfssvið smiðjunnar er
ákveðið í lögum nr. 102 frá 23.
júní 1936. Þar segir svo m. a.:
1. gr. Ríkisstjórnin lætur
starfrækja smiðju, er fæst við
viðgerðir skipa, smíði mótora og
annarra véla, og aðra smiði, og
nefnist hún landssmiðja.
2. gr. Landssmiðjan annast
allskonar smíði fyrir einstaklinga
■og félög, er þess kunna að óska,
og auk þess annast hún alla
smiði, sem hún getur tekið að
Æ,
ir
SKIPAUTCCRÐ
RIKISINS
Skjaíirei
vestur um land til Akureyrar
hinn 20. þ.m. Tekið á móti
flutningi til Súgandafjarðar,
Húnaflóahafna, Skagafjarðar-
hafna, Ólafsfjarðar og Dalvík-
oir á morgun. Farseðlar seldir
á miðvikudag.
sér, fyrir þá starf.rækslu, er rík-
ið hefur með höndum, og þær
stofnanir sem eru ríkiseign, svo
sem skipaútgerð, skóla, sjúkra-
hús, vita- og hafnamál, vega-
málaskrifstofur, landssíma og
ríkisútvarp, enda séu vinnubrögð
og verðlag, að dómi ríkisstjóm-
arinnar, ekid óhagstæðari en
annars staðar innanlands.
Landssmiðjan greiddi tekju-
skatt til ríkisins eins og einka-
fyrirtæki til ársins 1945, en síð-
an eins og um hlutafélag væri
að ræða. Útsvar greiðir hún
samkvæmt lögum um aukaút-
svar ríkisstofnana,
Þymir í augum
Forgangsréttur Landssmiðj-
unnar á vinnu fyrir ríkið og
ríkisfyrirtæki, hefur ávallt ver-
ið þymir í augum samkeppnis-
fyrirtækja, en hinsvegar hefur
forráðamönnum Landssmiðjunn-!
ar löngum þótt mikið á skorta, |
að þessu ákvæði væri fylgt, svo
sem skýrslur og bréf um þessi
mál frá fyrstu tíð sýna. Smám
saman hefur þó Landssmiðjan
/
framleiðslan vaxið úr kr. 190.000
í kr. 25.000.000.00, launagreiðsl-
ur úr kr. 75 þús. í kr. 10 millj.
og 500 þús. Þessar tölur gefa
þó auðvitað ekki rétta hugmynd
um vöxt smiðjunnar, þar sem
tímakaup járnsmiða hefur á
sama tíma hækkað úr kr. 1.60
í kr. 18,09 á klst., þ. e. rúmlega
11 faldazt og efnisverð hefur
.einnig hækkað mikið.
Verkefni Landssmiðjunnar
Verkefni Landssmiðjunnar eru:
Viðgerðir og viðhald skipa, véla
og tækja á sjó og landi svo og
ýmiskonar smíði. Af nýsmíði má
nefna nokkur stærri verkefni
svo sem: Járnbrýr, lýsis- og olíu-
geyma víða um land, breytingar
og endurnýjanir á nokkrum
skipum, t. d. Súðinni, Þyrli, Ægi
o. fl., leiksviðsútbúnaður Þjóð-
leikhússins, fiskibáta úr tré,
vetnisgeymir (12000 rúmm.) og
stálgrindur fyrir Áburðarverk-
smiðjuna, nótabáta úr stáli.
Smám saman, einkum síðan
í stríðslok hefur aukizt fram-
leiðsla Landssmiðjunnar á ýms-
um tækjum og vélum t. d.: Fiski-
mjölsverksmiðjur fyrir 250—1000
kg. mjölvinnslu á klst. samtals
15 stk. auk hluta í verksmiðjur.
/etnisgeymir Áburðarverksmiðjunnar, smíðaður af
Landssmiðjunni.
Brottför
m.s. „GULLFOSS“ frá Reykja-
vík er frestað til miðvikudags-
ins 19. janúar kl. 5 síðdegis.
H.F. EIMSKIPAFÉIAG.
ÍSLANDS.
Hluti
af
málmstejT>u
.i nýja
húsinu.
farið meir og meir inn á þá
braut að keppa við aðrar smiðj-
ur um smíði og viðgerðir á
frjálsum markaði og er nú svo
komið, að hlutur ríkisfyrirtækja
og ríkisstyrktra fyrirtækja (í
viðskiptum við Landssmiðjuna)
nemur aðeins ca. 30% af heild-
arviðskiptum smiðjunnar á s. 1.
ári, en var mest 71% árið 1944.
Úr 28 mönnum í 190
Smiðjan tók til starfa í húsa-
kynnum vegamálastjórnarinnar
við Skúlagötu og hafði þá til
umráða um 150 fermetra gólf-
flöt. Nú er gólfflötur smiðjunn-
ar um 4000 fermetrar, þegar
allir skúrar og krókar eru með-
taldir, en þó hefur lítið bætzt við
húsrými síðustu 10 til 12 árin,
enda er lóð smiðjunnar löngu
orðin of lítil fyrjr starfræksl-
una. í byrjun greindist starf-
semin í eldsmíði, plötusmíði,
vólvirkjun og rennismíði.
Skömmu síðar hófst einnig
skipa- og trésmíði. Síðar hefur
bætzt við málmsteypa, módel-
smíði og rafvirkjun. Starfsmenn
smiðjunnar voru á fyrsta ári að
meðaltali 28. Nú vinna að stað-
aldri um 190 menn í smiðjunni
auk verkfræðinga og skrifstofu-
fólks.
Úr 190 þús. í 25 mlllj.
Á þessum 25 árum hefur
Soðkjarnatæki. Stálgrindarhús
af ýmsum „stærðum. Vatns- og
gufukatlar. Loftblásarar. Dælur.
Hitarar. Vatnsafls- og dieselraf-
stöðvar. Bílavogir. Skjalaskáp-
hurðir o. m. fl.
Reynt hefur verið eftir föng-
um, að minnka hlutfall milli
kostnaðar og framleiðslu með því
að draga úr óarðbærri vinnu
með aukinni framleiðslu, sem
brúar bilið milli óreglulegra við-
gerðarvinnukafla. Jafnframt hef-
ur verið reynt að halda kostnaði
í skefjum. Þannig er árið 1953,
kostnaður, fymingar og tekjuaf-
gangur á rekstrarreikningi 15.4%
af framleiðslu, en var mest 33%
af framleiðsly. Þetta, ásamt bætt-
um vinnuaðferðum og auknum
afköstum starfsmanna, hefur
gert Landssmiðjunni kleift að
lækka verðlag á ýmsum fram-
leiðsluvörum og verkum, og
þannig gert hana samkeppnis-
hæfari.
Framtíðarhorfur
Um framtíðarhorfur er þetta
helzt að segja:
Verkefni járniðnaðarins hér á
landi fara ört vaxandi vegna mik-
illa framkvæmda, aukinnar véla-
notkunar og vaxandi skipastóls
landsmanna. Framkvæmdirnar
ijálfar, svo og viðhald og endur-
nýjanir þessara tækja hafa í för
neð sér aukin verkefni fyrir
•.miðjur þessa lands. Landssmiðj-
m þarfnast nú aukins landrým-
is. Lóð smiðjunnar er nú full-
nýtt. Liggur þar ekki annað fyr-
ir en endurnýja nokkur gömul
hús, en vinnusvæðið stækkar
ekki við það. Á undanförnum
misserum hefur Landssmiðjan
gert undirbúning að smíði báta
og skipa úr stáli auk þeirrar
tréskipasmíði, sern nú er rekin
þar, en þetta er nauðsyn, þar
sem eitt af aðalverkefnum smiðj-
unnar er viðgerðir stálskipa.
Einnig þetta verkefni krefst
landrýmis á hentugum stað. Við-
leitni Landssmiðjunnar til þess
að fá nýja lóð hefur enn engan
árangur borið, en undirtektir for-
sætisráðherra og forráðamanna
ÆFR
Fundur verður haldinn i
Bambandsstjórn Æskulýðs-
fylkingarinnar í dag, sunnud.
16. janúar kl. 2 síðdégis a?
Þingholtsstræti 27, 2. hæð.
Reykjavíkurbæjar gefa góðar
vonir um það, að bráðlega verði
ráðið fram úr þessum vandræð-
um, enda er hér um framtíð fyr-
irtækis að ræða, sem hefur um
225 starfsmenn í þjónustu simii
nú og er í örum vexti. Lands-
smiðjunni er nauðsyn, og öðr-
um atvinnugreinum bráð þörf,
að takist að ráða fram úr þess-
um vanda fyrir næsta sumar.
Annar aðalerfiðleikinn, sem
Landssmiðjan á við að stríða er
rekstursfjárskortur. Önnur fyrir-
tæki hafa að vísu sömú sögu a5
segja, en Landssmiðjunni þykir
þó súrt í broti að hafa minna
fé frá lánsstofnunum nú, en hún
hafði á meðan framleiðsla henn-
ar og rekstur nam aðeins 1/6
hluta af þvi, sem hann er nú.
Ef ekki verður afturkippur í
þróun og tæknilegum framför-
um aðalatvinnuvega vorra, er
ekki ástæða til annars en ætla,
að næg verkefni bíði Lands-
smiðjunnar á komandi árum sem
og annarra fyrirtækja í þessum
iðngreinum.
Gullfaxi fer í alls-
herjar skoðun
Gullfaxi, önnur af millilanda—
flugvélum Flugfélags íslands, fer
n. k. miðvikudag til Kaupmanna-
hafnar, þar sem framkvæmd
verður á henni allsherjar skoð-
un og gagngerar breytingar.
Settir verða nýir stólar í vélina
og farþegaklefanum gerbreytt
þannig að hann á eftir breyting-
arnar að geta rúmað allt að 69
farþega. Meðan Gullfaxi er í
Kaupmannahöfn heldur Sólfaxl
uppi áætlunarferðum hans til
meginlandsins og Bretlandseyja.
Tr
FLOKKSGJÖLD
Grelðið flolcksgjöld ykkar skilvís-
lega. L ársfjórðungur 1985 er fall-
inn í g.jalddaga. Skrtfstofan er op-
in daglega frá kL 19-12 fh. og
1-1 eh.
Kosið í dag frá kl. 2—II
Dragið ekki að kjósa 1 Sjómannafélagi Reykja-
víkur, því senn er kosningum lokið. Fellið stjórn.
hreppstjóra, skífulagningarmeistara, forstjóra,
sútara, skósmiða o.fl.
Kjósið B listann, lista starfandi sjómanna.
LcHidssmlðjan 25 óro á morgun