Þjóðviljinn - 05.02.1955, Síða 3
Laugardagur 5. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Ábyrgðarleysi ríkisstíórnarinnar
Framhald af 1. síðu.
isstjóminni um helgina. En hafa
yrði í huga að valdi ríkisstjórn-
arinnar um áhrif á verðlagið
væru takmörk sett, og reynsla
um valdboð á því sviði ekki far-
sæl.
Er skipafélögunum
bannað að semja?
HEumibal Valdimarsson lýsti
því hve róðrabann útgerðar-
manna í Vestmannaeyjum hefði
lamað allt atvínnulíf þar, fjöldi
aðkomufólks reikaði þar um at-
vinnulaus og sjómenn væru að
hverfa þaðan. Ræddi hann einnig
um 'farskipastöðvunina, og taldi
að skipafélögin hefðu sýnt furðu-
lega lltinn samkomulagsvilja, og
svo að grunur léki á að sterk
máttarvöld hefðu bannað þeim
að semja.
Skipulagsbreyting
vegna Mjólkur-
stöðvarinnar
Á bæjarstjórnarfundi í
fyrradag var samþykkt svo-
hljóðandi tillaga frá borgar-
stjóra:
„Bæjarstjóm samþykkir að
heimila borgarstjóra að gefa
Mjólkursamsölunni kost á lóð
milli Brautarholts, Skipholts,
Traðarholts og væntanlegrar
götu er lögð yrði vestan við
lóðimar Brautarholt 16 og
Skipholt 15.
Jafnframt verði Brautarholti
lokað milli Traðarholts og
hinnar nýju götu.“ — Skipu-
lagsbreyting þessi er gerð til
þess að Mjólkursamsalan geti
fengið samfellt athafnasvæði
til viðbótar við það sem Mjólk-
urstöðin hefur nú.
Birtingur
Framhald af 12. siðu.
lofa; og ekki veitir af að sem
flestir leggist á eitt um að létta
af þeim „doða og hugsanaleti
sem hefur heltekið margan á-
gætan mann í seinni tíð.“
Eifni þessa heftis er annars í
höfuðatriðum sem hér segir: Birt
er þýðing Laxnéss á kvæði
Brechts, María Farrar. Hörður
Ágústsson ritar grein um bygg-
ingarlist. Ljóð er eftir Thor Vil-
hjálmsson: Spegill, spegill, herm
þú; einnig ritar hann Þanka um
eitt og annað sem úfar mættu af
rísa. Smásaga er eftir Geir Krist-
jánsson: Dvergurinn, snáðinn,
fallega nafnið og rotturnar. Birt
eru þrjú Ijóð eftir Sigfús Daða-
son. Einar Bragi skrifar: í list-
um liggur engin leið til baka;
ennfremur skrifar hann ritdóma
um Silfurtúnglið og Fólk Jónas-
ar Árnasonar. Þá eru enn þrjú
ljóð eftir Jón Óskar. Hannes Sig-
fússon þýðir úr Sýrenusöng Art-
urs Lundkvists. Þýdd grein eftir
Einstein: Trúarjátning mín.
Tvær skissur eftir Steinar Sig-
urjónsson. Hjörleifur Sigurðsson
skrifar um listsýningar í fyrra.
Birtingur kemur út 4 sinnum á
ári. Þetta fyrsta hefti er 48 síð-
ur í vænu broti og nýstárlegu.
Eins og kunnugt er gaf Einar
Bragí út í fyrra tímarit er Birt-
ingur hét. Það hefur nú verið
lagt niður, en hið nýja rit hefur
erft nafnið og ábyrgðarmanninn.
Ríkisstjórnin ber
ábyrgð á fram-
leiðslustöðvuninni
Karl Guðjónsson taldi að kæru-
leysi ríkisstjórnarinnar um
róðrabannið og lausn vinnudeil-
unnar í Vestmannaeyjum hlyti
að stafa af því að hún hefði ekki
gert sér ljóst hvers eðli's þau
deilumál væru. Hér væri raun-
verulega ekki um kaupdeilu að
ræða, heldur um það hvort sjó-
menn eigi að fá kaup sitt refja-
laust eða ekki, hvort þeir eigi að
fá sinn hluta af bátagjaldeyrin-
um refjalaust.
Benti Karl á að útgerðarmenn
hefðu í skjóli ríkisstjómarinnar
þrjóskazt við að greiða sjómönn-
um hlut sinn í bátagjaldeyrin-
um, og hafi sjómenn að þrem
árum liðnum neyðzt til að fara
þá leið að setja fast verð á fisk-
inn, eins og gert var í janúar
1954. Til að fá hlut sinn frá ár-
unum 1951, 1952 og 1953 hafi sjó-
menn orðið að leita til dómstól-
anna.
Þegar sjómenn höfðu fengið
staðfestan rétt sinn, héfði hann
flutt á Alþingi þingsályktunarttl-
lögu um að ríkisstjómin hlut-
aðist til um greiðslu á hluta
sjómanna af bátagjaldeyrinum,
gegn endurkröfurétti til útgerðar-
manna, og væri þannig leyst úr
þessari flækju.
Fulltrúar stjórnarflokkanna
felldu þá tillögu með þeim
rökum að rétt væri að bíða
dóms hæstaréttar. Nú væri
hann upp kveðinn og hefði
staðfest í einu og öllu rétt sjó-
manna. Væri því enginn sem
efaðist um að sjómenn ættu
að fá refjalaust sinn hluta af
bátagjaldeyrinumu
En þegar samið var 1954 töldu
sjómenn að verðið 1,22 kr. væri
nálægt því, sem útgerðarmenn
fengju fyrir fiskinn. Nú hefði
sannazt, að verðið væri 1,38 kr.
— 1,40 kr. eða jafnvel hærra, og
krefðust sjómenn þess að fá
þetta verð á hlut sinn.
Lagði Karl áherzlu á, að nú
væir liðinn einn af fjórum aðal-
framleiðslumánuðunum í Vest-
mannaeyjum, og bæri því kæru-
leysi ríkisstjórnarinnar um lang-
varandi framleiðslustöðvun þar
vott um ófyrirgefanlegt ábyrgð-
arleysi.
Ríkisstjórnin hefði daufheyrzt
við því fyrir ári að leysa deiluna
um bátagjaldeyrisgreiðslurnar til
sjómanna og bæri því ábyrgð á
tjóninu sem þjóðin yrði fyrir.
Annarleg öfl
látin ráða
Einar talaði aftur og lýsti
undrun sinni á því að forsætis-
ráðherra hefði ekki vikið að
róðrarbanninu í Vestmannaeyj-
um. Ríkisstjórnin hefði veitt L.
Í.Ú. rétt til skattlagningar, og nú
risu af því vandræði að útvegs-
menn neituðu að láta sjómenn
hafa hluta af skattlagningunni
sem þeim bæri. Það mál væri síð-
ur en svo óviðkomandi ríkis-
stjóminni.
Um afskipti ríkisstjóma af •
vinnudeilum minnti Einar á að
það væri nýr ósiður að aðhafast
ekkert í þeim málum fyrr en
út í verkfall væri komið. í tíð
nýsköpunarstjórnarinnar hefði
þremur ráðhermm hvað eftir
annað verið falið að miðla mál-
um í vinnudeilum og tekizt það
farsællega. En sú stjóm hefði
miðað að því að halda atvinnu-
vegunum gangandi og bæta kjör
alþýðunnar.
Nú virtust hinsvegar annar-
leg öfl vera látin ráða þvi,
að stórstöðvun framleiðslunn-
ar í Vestmannaeyjum viðgeng-
ist, og farskipunum væri lagt
vegna lagfæringar á kaupi
nokkurra tuga manna. Þetta
\-irtist gert í annarlegum til-
gangi, ef til vill í því skyni
að reyna að fá átyilu til
gengislækkunar.
Vertu ekki
svona hrædd!
Annars taldi Einar að nú væri
mun skaplegra hljóðið í Ólafi
Thors en í áramótaboðskapnum
alræmda. Nú væri hótunin um
gengislækkun aðeins orðin að
ótta við gengislækkun. Varðandi
það kvað Einar sig langa til
að segja við ríkisstjómina:
Vertu ekki svona hrædd! Þjóð-
félagið þolir það vel að verka-
menn beri meira úr býtum en
þeir gera nú, ef atvinnulífið fær
að ganga eðlilega, án þess að
annarleg öfl stöðvi framleiðsl-
una og kaupskipaflotann,
★
★ ★
Forseti tilkynnti að umræður
gætu ekki orðið lengri og höfðu
þær tekið allan þingtímann.
Fyrstu áburðarskipin eru farin
í gær létu hér úr höfn tvö skip hlaðin 4 þús. tonnum
af áburði sem fara á til Frakklands. Er það fyrsti út-
flutningurinn af framleiðslu Áburðarverksmiðjunnar.
Forstjóri verksmiðjunnar,
Hjálmar Finnsson, skýrði frá
því í útvarpi í gærkvöldi að á
fyrstu 10 mán. sem verksmiðj-
an hefur starfað hafi hún
framleitt 14000 smálestir af
áburði. Á s.l. ári voru notaðar
hérlendis 2300 smál. af fram-
leiðslu hennar og nú hefúr þeg-
ar nokkuð af áburði verið flutt
á hafnir úti um land. Kvað
hann framleiðsluafköstin hafa
reynzt meiri en talið var að
mætti reikna með.
Þá vék hann að erfiðleikun-
um: of lítilli komastærð og til-
hneigingu til kekkjamyndunar.
Sagði hann að nú hefði tekizt
að auka kornastærðina svo að
í stað þess að áður voru að-
eins 10% af áburðinum er
náðu því að þvermál koma
væri % millimetri, en nú ná
50% framleiðslunnar þessari
stærð. Dufthlutfallið hefur
einnig lækkað úr því að vera
30% niður í 15% eða jafnvel
8%.
Þá tók hann sérstaklega
fram um kristöllun áburðarins,
í stað þess að framleiða kúlur
eða flögur, hefði verið valin
með tilliti til öryggis allra.
Þá kvað forstjórinn í athug-
un framleiðslu fjölbreyttari á-
burða, fosfatáburðar o. fl. á-
samt stækkun verksmiðjunnar,
vera í athugun.
| # |
| Söfnun til ástvina þeirra sem |
fórust með Agli rauða
Erindi okkar við lesendur blaðsins þarf ékki :
margra oröa viö. Alþjóð hefur fagnað mannbjörg :
: þeirri, sem varö, þegar b.v. ,,Egill rauöi“ stranddöi. \
En jafnframt veröur öllum hugsaö til þeirra, sem j
þar sáu á bak ástvinum sínum. Vafalaust er syrgj- :
endum mikils viröi sá góöhugur, sem til þeirra j
stefnir hvaöanœva. — Þrír þeirra sem fórust áttu j
fyrir konu og börnum aö sjá. Ofan á harm kvenna 'i
j og barna bætast efncúxagslegir öröugleikar, sem \
stafa af því aö fyrirvinrmn hefur svo snögglega |
j horfið. Því er von okkar og trú að þeir sem hugsa \
j til fólks þessa meö samúö, vilji einnig fylgja hugs- E
j unum sinum eftir í verki, með því að láta einhvern \
skerf af hendi rakna föðurlausum börnum til j
j styrktar, sérhver eftir efnum og ástæðum. Gœti \
j það hjálpaö þeim aö vinna bug á fyrstu öröug- 5
leikunum, er ekki til einskis unnið. „Beriö hver \
j annars byröar og uppfyUið þannig lögmál Krists“. j
■ — Þeir heimilisfeður sem viö viljum minnast á \
j þenna hátt eru Stefán Einarsson frá Noröfiröi, j
Magnús Guðmundsson frá Fáskrúösfiröi og Sofus
Skoröalíð frá Sandey í Fœreyjum.
Gjöfum veröur veitt viötaka í skrifstofum þeirra :
j blaða, er birta ávarp þettcn og þökkum við fyrir- \
i fram þá vinsemd og þœr gjafir er berast kunna.
i s
j VALBORG BENTSDÓTTIR INGI JÓNSSON
• ;■
húsfrú, Reykjavík. prestur, Norðfirði
JAKOB JÓNSSON
: s
prestur, Reykjavík.
! . í
Sjóprófunum lauk í gær
Sjóprófunum út af strandi Egils rauða fyrra miðviku-
dag lauk loks í gær og höfðu þá staðið yfir í fimm daga.
f gær kom Olavur Joensen,
sem var við stýrið er Egill rauði
tók fyrst niðri, aftur fyrir dóm-
inn. Við yfirheyrsluna í gær kom
fram að hann virtist ekki hafa
gert sér fyllilega grein fyrir því,
hvenær hann yfirgaf stjórnpall-
inn en hélt enn fast við það að
skipið hafi þá setið fast og verið
búið að taka niðri tvisvar eða
þrisvar.
Við réttarhöldin í gær kvaðst
Olavur ekki muna hvort skip-
stjóri hefði getið um skipsljós í
stefnu NA þegar hann gaf skip-
un um siglingu i þá átt. Var
honum þá bent á að i þinghald-
inu s.l. mánudag hafi verið bók-
að eftir honum að skipstjóri hafi
nefnt ljós í þeirri stefnu og sú
bókun hafi verið lesin fyrir hon-
um og hann engum athugasemd-
um hreyft við hana. Kvaðst Ól-
avur þá telja að sú bókun hefði
farið fram hjá sér þegar hún var
lesin upp. Þá sagði hann nú að
hann hefði séð skipsljós á bak-
borða þegar siglingin hófst en
áður en búið var að snúa skipinu
í NA. Þessi ljós hafi hann hins-
vegar ekki séð þegar skipið var
komið í stefnuna NA og engin
ljós úr því.
Vegna ósamræmis í framburði
Olavs Joensen og þess að hann
var illa fyrirkallaður í gær,
töldu dómaramir ekki ástæðu
til að láta hann heitfesta fram-
burðinn að svo stöddu.
Jens Evald Viderö kom einnig
fyrir dóminn. Hélt hann fast við
sín fyrri ummæli að skipstjóri
hefði aðeins gefið skipun um að
sigla i NA eftir kl. 18 en ekki
önnur fyrirmæli., og vann eið
að þessum framburði.
Þá kom fyrsti stýrimaður,
Guðjón Marteinsson, fyrir dóm-
inn. Lýsti hann vaktaskipting*
unni á Agli rauða á sama ve§
og skipstjórinn hafði áður gert,
Þá kvaðst hann ekki hafa orðið
var við aó skipinu væri siglt á
tímabilinu frá kl. 15.30 til 18
stranddaginn.
Átta erlendum
stiidentum boðið
nám í norrænu-
deild
í fjárlögum þessa árs veittl
Alþingi 100 þúsund krónur til
styrktar erlendum námsmönnum
í íslenzkum skólum eftir nánarí
ákvörðun menntamálaráðuneyfj-
isins.
Ráðuneytið hefur í samráði við
háskólarektor boðið átta erlend-
um stúdentum til náms í nor*
rænudeild háskólans næsta vét-
ur, einum frá hverju eftirtalinr.a
landa: Bandaríkjunum, Bret-
landi, Kanada, Danmörku, Hol-
landi, Noregi, Spáni og Þýzka-
landi.
Menntamálaráðuneyti þessara
landa hafa verið beðin að gera
tillögur um hverjum veit skuli
styrkina, allsstaðar nema í
Bandaríkjunum, Þar sér Dart-
mouth College í Hanover ura
val námsmannsins.
(Frá menntamálaráðuneytinu)]
NotiS skíSafæriS
Skíðafæri er nú mjög gott á
Hellisheiði og tilvalið fyrir allt
skíðafólk að nota sér það.
I dag verða ferðir frá af-
greiðslu skíðafélaganna, B.S.R.
í Lækjargötu, bæði kl. 2 e.h»