Þjóðviljinn - 05.02.1955, Síða 5

Þjóðviljinn - 05.02.1955, Síða 5
Laugardagur 5. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Byrjaði með tvær hendur tðmarf vann aldrei ærlegt handtak en átti 160 millj. króna þegar hann vir myrtur Lögregla New York er ráÖþrota gagn- vart morSi Serge Rubinstein Fyrir tuttugu árum brautskráðist Seige Rubinstein úr háskólanum í Cambridge í Englandi með tvær hendur tómar. í síðustu viku var hann myrtur í skrauthýsi sínu í auömannahverfi New York. Þótt hann ynni aldrei ær- legt handtak um dag-ana er talið aö haxm láti eftir sig eignir sem nema um 150 milljónum króna. Morð Rubinsteins hefur vak- ið geysimikla athygli og um hann hafa birzt langar gi'ein- ar í blöðum víða um heim. Hann er talinn einhver slungn- asti klækjarefur sem látið hef- ur til sín taka í fjármálaheimi Evrópu og Ameríku á þessari öld. Kyrktur í svefnherbergi sínu Herbergisþjónn Rubinsteins fann hann liggjandi kyrktan á persnesku teppi fyrir framan rúmstokkinn í svefnherbergi hans á fimmtudagsmorguninn í síðustu viku. Hann var í nátt- fötum og bundinn á höndum og fótum. Heftiplástur hafði verið límdur fyrir vitin og lík- ið var skrámað í andliti. Síð- an hafa 50 leynilögreglumenn snuðrað á hverju kvöldi í næt- urklúbbum New York og yfir- heyrt dýrtseldustu gleðikonur heimsborgarinnar tugum sam- an en eru samt engu nær um það, hvar morðingjans er að leita. Faðirinn ráðgjafi Raspútíns Serge Rubinstein fæddist í Moskva 1909. Faðir hans hét Dmitri, stórauðugur okurkarl, sem var lánardrottinn Nikulás- ar H. Rússakeisara, átti sæti í leyndarráði hans og var f jár- haldslegur ráðunautur munks- ins og loddarans Raspútíns, einkavinar og átrúnaðargoðs keisaradrottningarinnar. Eftir byltinguna 1917 þótti Dmitri ráðlegt að hafa sig sem skjótast á brott úr Rússlandi. Hann fór með fjölskyldu sína Kuldar í USA Miklir og óvenjulegir kuldar eru nú í Bandaríkjunum. í Nýja Englandi og New York ríki mæld- ist sumsstaðar í gær 30 stiga frost. Hudsonfljót lagði bakka á milli og hefur það ekki komið fyrir í 37 ár. Meiri kuldar voru í New York-borg en vitað er til áður og óvenjumikil snjókoma. Enn kaldara var í öðrum hér- uðum Bandaríkjanna og mældist allt að 50 stiga frost. Mendés búið fali Atkvæðagreiðsla um trausts- yfirlýsingu handa stjórn Mend- és-France fyrir stefnu hennar og aðgerðir í málefnum ný- lendna Frakka í Norður-Afríku átti að fara fram í nótt og var í gærkvöld talið nær víst, að stjómin myndi biða ósigur og neyðast til að segja.af sér. til Finnlands og laumaðist hóp- urinn síðan á ísi yfir Hels- ingjabotn og inn í Svíþjóð á laun. Serge sagði siðar að á þessu ferðalagi hafi nærföt sín verið fóðruð með verðbréfum og hann hafi átt erfitt um gang vegna eðalsteina og ann- arra skartgripa, sem foreldr- arnir hengdu á hann innan klæða. Sveik Kínastjóm Dmitri Rubinstein vafð ekki mikið úr þeim leifum auðæfa Serge Rubinstein sinna sem hann kom úr landi á börnum sínum berum. Hann lézt gjaldþrota einhversstaðar á Balkanskaga. André, eldri bróðir Serge, var til þess að kosta skólagöngu hans í Cam- bridge, þar sem hann tók hátt próf í pólitískri hagfræði. Frá Cambridge fór Serge til Frakklands í þjónustu banka sem annaðist viðskipti fyrir stjóm Sjang Kaiséks í Kína. Þar hljóp fyrst á snærið fyrir honum. Hann notaði fjárhæð sem send var frá Kína til að greiða út skuldabréfaflokk til þess að greiða út allt annan flokk, sem orðinn var næstum- verðlaus og hann hafði keypt í stórum stíl fyrir brot af nafn- verði. Upp úr þessu hafði Serge 250.000 krónur. Landrækur frá Fraklilandi Með þennan feng í vasanum hélt hanh til Englands og slóst i félagi með Martin Harman, enskum braskara sem lenti í fangelsi fyrir klæki sína. Serge náði þá tökum á nokkrum fyr- irtækjum hans og létti ekki fyrr en hann var búinn að ná einu þeirra, gullnámum í Kór- eu, algerlega' undir sjálfán sig og færa allar eignir hinna til þess. Tveir meðeigeiidur í þess- um fyrirtækjum höfðuðu mál gegn Serge áratug síðar og valdi hann þann kost að greiða þeim 32 milljónir króna til þess að þeir létu málið falla niður. Serge var nú aftur kominn til Frakklands en Laval, þáver- andi forsætisráðherra, lét visa honum úr landi fyrir „brask sem er hættulegt gengi frank- ans“. Serge sagði að Laval hefði gengið það til að hann hefði talið sig hættulegan keppinaut um ástir „undurfag- urrar markgreifaynju". Til Bandarikjanna með falsað vegabréf Næstu árin var Serge á ferð og flugi milli ýmissa höfuð- borga Evrópu en bjó lengst í Vlínarborg. Þaðan fór hann 1938 og komst inn í Bandarík- in á portúgölsku vegabréfi. Þegar Bandaríkjastjórn höfð- aði mál 1952 til þess að fá hann dæmdan landrækan lýsti Portúgalsstjórn yfir, að þetta vegabréf hefði verið falsað. I Bandaríkjunum var Serge Rubinstein kominn í sitt rétta umhverfi. Hann braskaði og sveik meira en nokkru sinni fyrr. I málaferlunum út af eignum gullnámufélagsins var sýnt fram á að hann hafði flutt eignir þess milli fjögurra fyrirtækja í Delaware, fjög- urra í New York, þriggja í Texas, fjögurra brezkra og eins japansks eftir slíkum króka- leiðum að engin leið var að greiða úr flækjunni. Felldi gengi jensins Brask Serge Rubinsteins náði Sfldveiðin við Noreg glæðist Síldveiðin við Noreg glæðist með hverjum degi og var ó- venjugóð veiði í gær. Á mið- nætti í fyrrinótt höfðu borizt á land 4,8 millj. hl. af síld og er verðmæti aflans 96,1 millj. n. kr. Á sama tíma í fyrra var síldaraflinn 6,4 millj. hl. Ef gæftir haldast, er talið sennilegt, að veiðin á vertíðinni verði jafnmikil og í fyrra, en það ár var metafli, veiddust 9,6 millj. hl. VarasJóMr aukiBÍr Fjárhagsnefndir beggja deilda Æðstáráðs Sovétríkjanna fjöll- uðu í gæf um fjárlagafrum- varp stjómarinnar og gerðu á því ýmsar breýtingar. Þannig lagði fjárhagsnefnd Sambands- ráðsins til, að ríkistekjurnar yrðu áætlaðar 629 milljón rúblum hærri en gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Þessa auknu" tekna skal afláð með meiri tekjuafgahgi af rekstri rikisfyrirtækja og þeim skal varið til að auka varasjóði rík- isins. til landa í þrem heimsálfum. Hann náði tangarhaldi á fyrir- tækjum í Bretlandi, Frakklandi, Japan, Kóreu, Panama, Bóli- víu, Brasilíu og síðast en ekki sízt Bandaríkjunum og mjólk- aði þau í sinn vasa. Þegar bandarísk yfirvöld á- kærðu Serge fyrir að hafa komið sér undan herþjónustu með prettum stærði hann sig af því að háfa fellt gengi jensins, gjaldmiðils Japans, um fjórðung með gjaldeyrisbraski ári fyrir árásina á Pearl Har- bor. Sat í fangelsi Þrátt fyrir stöðug málaferli út af fjármálaklækjum og braski tókst Serge alltaf að sleppa við sektardóma af þeim sökum. Hinsvegar varð hann að sitja hálft þriðja ár í banda- rísku fangelsi fyrir að skjóta sér undan herþjónustu. Síðan 1952 hefur Bandaríkja- stjórn verið að reyna að fá Serge vísað úr landi fyrir að komast inn * í það á fölskum forsendum. André, eldri bróðir Serge, ákærði hann fj’rir hönd móður þeirra fyrir að hafa farið með róg og illmæli um hana fyrir réttinum. Serge hafði haldið því fram að hann væri launsonur portúgalsks að- alsmanns og ætti því rétt á að bera portúgalskt vegabréf. 50 milljónir með einu bragði Gott dæmi um gróðabrall Serge í Bandaríkjunum varð kunnugt árið 1949. Þá var hann sóttur til saka fyrir að hafa með svikum grætt 50 milljónir króna á braski með hlutabréf olíufélagsins Panhandle Co. Hafði hann keypt bréfin ódýrt, margfaldað verð þeirra með því að breiða út ósannau*upplýsing- ar um eignir félagsins og greiða arð sem enginn var til í raun og veru. Áður en hið sanna kom í ljós var Serge búinn að selja hlutabréf sín, sem urðu brátt nær verðlaus. I dóminum var ekki véfengt að rétt væri skýrt frá gróða Serge í ákær- unni en ekki þótti sannað að hann hefði brotið lög með fram- ferði sínu. Reyndi að verja sig með göldrum Sem von var eignaðist Serge Sigur járnbrautarverkamanna, sem kniiðu fram kröfu _sína um 15% kauphækkun með því að hóta verkfalli, hefur orðið mönnum í öðrum starfsgreinum hvöt til að láta ekki sinn hlut eftir liggja. Metgróði atvirinurekenda Brézkir atvinriurekehdur kveina og kvarta eins og þeirrá er von og vísa að kauphækk- anir múni sliga atVinnúlíf- ið, gera brezkar vörur óseljan- legar á erlendum mörkúðum fjölda óvina. Lögreglan í New York sagði eftir morðið að hann hefði næstum því viku- lega kært morðtilraunir, fjár- kúgunartilraunir og árásir á sig. Hann hafnaði þó boði um lífvörð frá lögreglunni, hann myndi hindra sig í að lifa frjálsu einkalífi. Kunningjar Serge segja að hann hafi verið hjátrúarfullur með afbrigðum. Beztu vörnina gegn óvinum sínum taldi hamt vera galdra. Hann hafði kynnt sér vandlega vúdú, galdrakonst- ir sem tíðkast i Vestur-Indíum,. og reyndi að beita því sjálf- ur til að ráða óvini sína af dögum. Bjó í fimm hæða stórhýsi Hús Serge Rubinsteins, þar sem hann var myrtur, er fimnr. hæðir með marmaragólfum, út- skornum bitum í loftunum og dýrum listaverkum á öllum veggjum. Hann bjó þar með fjölmennu þjónustuliði og móð- ur sinni og frænku á áttræðis aldri. Síðasta kvöldið sem Serge lifði var hann á næturklúbbí með einni af mörgum vinkonum sínum og fór síðan með hana heim til sín. Lögreglan í New York er búin að yfirheyra á þriðja tug ungra og fagurra kvenna, söngkonur, dansmeyjar og fatasýningarstúlkur, sem hinn látni hafði náin kynni af. En morð hans er enn óráðia gáta. Pakisíais lýð- veldi Forsætisráðherrar brezku sam- veldislandanna féllust á fundi: sínum í gær á að heimila stjóm Pakistans að lýsa yfir að landi.5 væri lýðveldi. Fær þá Pakistan sömu stöðu innan samveldisins og Indland, hefur eigin forseta en viðurkennir þjóðhöfðing.ia Bretlands sem sameiningartákn. alls samveldisins. Búizt er við því, að egypzka stjórnin muni á sunnudagskvöld segja sig úr Arababandalaginu. Tilraunir hennar til að fá stjóm íraks, sem einnig er í bandalag- inu, til að hætta við fyrirhugafr- an varnarsamning við Tyrkland* hafa komið fyrir ekki. osfrv. Verkamenn taka ekk£ mikið mark á þessum són, þeií benda á ársskýrslur hlutafélag- anna, sem nú eru óðum að birt- ast. Þar kemur í ljós að gróðt atvinnurekenda og greidduc arður til hluthafa er meiri e.x nokkru sinnni fyrr. Verkamena eru staðráðnir í því að fá fulla. hlutdeild í auknum arði vinnir, úínnar. Vélsmiðir í Lancashire, 120' þúsund talsins, hafa krafizt 10% kauphækkunar. Á síðasta, ári fengu vélsmiðir almennt: Framhald á 4. síriu. Fimm milljónir Bretcc krefjcsst hærra kaups Sigar jámbrautarverkamaima er öðrum starfsgreinum hvöt Um fimm milljónir brezkra verkamamia í fjölda starfs- greina hafa nýlega boriö fram kröfur um hækkað kaupv

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.