Þjóðviljinn - 12.02.1955, Side 7

Þjóðviljinn - 12.02.1955, Side 7
Laugardagur 12. febrúar 1955 — ÞJÓÐVIUINN — (7. Lagarfoss í Lagarfljóti Svikin í rafmagnsmálunum Eitt er það mál, sem öðrum íremur hefur verið á dagskrá hjá Austfirðingum um mörg ár. í>að eru rafmagnsmál fjórð- ungsins. Hafa þeir hvað eftir annað knúið á dyr ríkisvalds- ins um framkv. en jafnan ár- angurslaust þar til nú, að loks ■er afráðið að ráðast í fram- kvæmdir, en þá með þeim kot- xmgsbrag, að skömm er að og .-svíviröa fyrir Austfirðinga. Enda þótt mál þessi hafi oft -verið rædd hér í blaðinu og saga þeirra rakin, verður ekki lijá því komist að rekja þau í stórum dráttum, en gera verð- ar ráð fyrir, að lesendur blaðs- ins hafi af málinu veruleg jkynni. í>að er nú komið á annan áratug síðan farið var að vinna að rannsókn og mælingum á fallvötnum hér eystra með stóruirkjun fyrir augum. Þá •er rétt að minnast þess, að allt frá því að Lúðvík Jósepsson var fyrst kjörinn á þing 1942, hefur mál þetta hvað eftir annað borið á góma á Alþingi, ■en eitt af fyrstu þingmálum Lúðvíks var virkjun Lagarfoss. Það kom fljótt á daginn, að tilgangurinn með mælingu austfirzkra vatnsfallá var ekki fyrst og fremst sá, að hraða 'byggingu orkuvers á Austur- landi, heldur sá að láta Aust- firðinga halda, að rafvæðing fjórðungsins stæði fyrir dyrum. Eitt árið átti að virkja Lagar- foss, annað árið Fjarðará í Seyðisfirði, þriðja árið Grímsá og fleiri vatnsföll átti að virkja. Þegar ekki voru fleiri vatnsföll upp að telja var byrj- að á lönguvitleysunni aftur: Lagarfoss, Fjarðará, Grímsá o. s. frv. — Er það alveg furðu- legt hve lengi Austfirðingar hafa látið blekkjast af þessari galdraformúlu. En svo kom, að langlundar- geð Austfirðinga þraut. Þeir sendu nefnd manna á vit ríkis- stjórnarinnar og kröfðust að- gerða. Árangur þeirrar sendi- ferðar varð sá, að heitið var að ■ hefja virkjun Lagarfoss þegar árið 1954. En það var svikið. í þess stað var búið að uppgötva þá aðferð, að flytja rafmagn í Múla-sýslur norðan úr~ Þingeyjarþingi. Og raforku- málaráðherra gerði sér það ó- mak að taka sér ferð á hendur með legáta sína til Egilsstaða til að reyna að „sansa“ forystu- menn Austfirðinga. Þessi för, sem farin var í júlímánuði varð hin mesta fýluför. Aust- firðingar kröfðust efnda á fyr- irheitinu um virkjun Lagar- foss, en höfðu megnustu ótrú á „spottanum“. Fór ráðherra við svo búið heim aftur, en áður en hann fór hét hann Austfirðingum því að fullnað- arákvörðun um málið skyldi fekin í þeim mánuði, eða snemma í þeim næsta. Leið svo - og beið. Allur júlímánuður leið, ágústmánuður sömuleiðis, en ekkert heyrðist frá ráðherran- nm. Loks í byrjaðan september fékk rafmagnsnefndin boð frá ráðherra um að koma til fund- ar við sig í höfuðstaðnum á tilteknum degi. Brugðust nefndarmenn vel við og mættu allir á þessum fundi með ráð- herranum og sérfræðingum hans. I Reykjavíkurfundurlnn Enn kom það greinilega í Ijós að tilgangurinn með þessu fundarboði var sá — og sá einn —, að telja Austfirðinga á sjónarmið ráðherra og sér- fræðinganna. En það tókst ekki. Hver einasti nefndar- maður undirritaði ályktun þar sem krafizt var efnda á fyrir- heitinu um virkjun Lagarfoss og sú krafa studd sterkum rök- um. Og þegar nefndarmenn fóru heim að fundi loknum, þóttust þeir hafa unnið frægan sigur og byggðu það á tvennu. í fyrsta lagi höfðu allir þing- menn að austan undirritað yf- irlýsingu um að þeir styddu eindregið kröfu nefndarinnar um virkjun Lagarfoss og var sú yfirlýsing afhent ráðherra með ályktun nefndarinnar. f öðru lagi hafði Eysteinn Jóns- son sagt nefndarmönnum, að hann gæti fullyrt að farið yrði að kröfu nefndarinnar í virkj- unarmálunum. Þóttust nú nefndarmenn hafa gert góða ferð og héldu heim eftir að hafa þegið góðgerðir hjá fyrir- mönnum og eftir að hafa hlýtt á þann boðskap ráðherra, að fullnaðarákvörðun skyldi rík- isstjómin taka í málinu á morgun eða liinn daginn eða allra næstu daga. Átök í ríkisstjórninni Hófust nú átök um málið í ríkisstjórninni. Kvað Ólafur Thórs kotkarla austræna aldrei skyldu segja sér fyrir verkum og skyldu þeir fá þingeyska spottann eða sitja í myrkri ella. — Varð Eysteinn að lúta húsbóndavaldi Ólafs, en fékk þó leyfi til að láta jafnframt virkja smásprænu eina í kjör- dæmi sínu. Austfirðingar biðu átekta. Morgundagurinn leið og dag- urinn þar á eftir. Allur sept- ember leið, október sömuleið- is og eins nóvember og ekkert heyrðist frá ráðherranum. Þeg- ar nokkrir dagar voru liðnir af desember var rafmagnsnefndin að tilhlutan ríkisstjómarinnar kvödd til fundar að Egilstöð- um. EgUsstaðafundurinn Þessi fundur var kvaddur saman að tilhlutun raforku- málaráðherra að því er manni síðan skildist tij að hlýða á boðskap hans um rafvæðingu Austurlands. Áttu þá sendi- menn ráðherrans að vera mætt- ir á fundinum. En af einhverj- um ástæðum hefur formanni Grein ór „Austur- landi“, málgagni sósí- alista á Austurlandi nefndarinnar, Sveini á Egils- stöðum, þótt ráðlegt að kalla nefndina saman tveim dögum fyrr en ráðherra fór fram á. Sveinn hafði skýrt nefndar- mönnum frá því, að nú væru uppi nýjar ráðagerðir í raf- magnsmálunum, sem sé þær, að gera hvorttveggja: leggja rafstreng frá Laxá til Egilsstaða og reisa 2400 kw. orkuver við Grímsá. Það kom fljótlega á daginn að fundurinn var ekki til þess kvaddur saman, að ráðgast við nefndina um rafmagnsmálin, heldur til þess eins að hlýða boðskap ríkisstjórnarinnar um málið. Síðan var nefndinni ætl- að að leggja blessun sína yfir % fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar og veita þeim þingmönnum, er að þessu stóðu, syndakvittun fyrir svikin. Síðari fundardaginn áttu menn úr nefndinni tal við raf- orkumálaráðherra og lögðu fyrir hann nokkrar spurningar um atriði, er nefndin taldi máli skipta. Ráðherra gat eng- in svör gefið, en vísaði til sérfræðinga sinna og kvaðst þegar í stað senda þá flugleið- is til Egilsstaða. Og þá var ráð- herrann snar í snúningum, leigði stóreflis flugvél til að flytja tvo Briema til Egils- staða. Einnig áttu menn úr nefnd- inn tal við Eystein Jónsson og lagði hann fast að þeim, að fallast á aðgerðir stjórnarinn- ar, eða öllu heldur fyrirætl- anir. Sendimenn ráðherra höfðu þann boðskap að flytja að af- ráðið væri að virkja Grímsá og leggja streng austur frá Laxá. Erindi þeirra austur virt- ist það eitt, að telja nefndinni hughvarf. En það má segja nefndar- mönnum til verðugs lofs, að þeir létu hvorki ráðherra né sendimenn þeirra hafa áhrif á sig. Þe'ir sáu í hendi sinni hversu mikil fjarstæða þessar fyrirætlanir voru. Þeir sáu, að framtíðarlausn raforkumála Austurlands hlaut að vera Lag- arfoss. — Og ákveðnastur allra í þessari afstöðu var Þorsteinn kaupfélagsstjóri á Reyðarfirði, áhrifamesti stuðningsmaður Eysteins í kjördæminu. — Þetta, að jafn ákveðnir póli- tískir andstæðingar og sæti eiga í nefndinni, skyldu ná fyr- irhafnarlítið einingu í málinu, þrátt fyrir tilraunir sterkra pólitískra afla, sýnir það og sannar, að í augum Austfirð- inga er þetta mál hafið yfir dægurþrasið og pólitísku oln- bogaskotin. Þaö er mál Aust- firðinga sjálfra. — Það er bar- áttan um það hvort Austur- land á að halda áfram að vera mönnum byggt, eða hvort það- á að leggjast í auðn með fá- eina vitaverði sem einu íbúa landsfjórðungsins, auk villi- dýra, hreindýra og refa. — Það er slíkt Austurland sem stefnt er að því að skapa. En við viljum sporna gegn þeirri þróun. Við vitum að hér er hægt að lifa góðu lífi á gæðum lands og sjávar, ef Austfirð- ingar eru látnir njóta jafnrétt- is. Og þýðingarmesta framlag okkar í þessari baráttu er stór- virkjun á Austurlandi, en ekki virkjun einhverra smáspræna, sem að litlum notum getur orð- ið. Og við getum komið í veg fyrir virkjun Grímsár og knú- ið fram virkjun Lagarfoss ef við erum samtaka og sættum okkur ekki við orðinn hlut. Austfirði — Vestfirðir Það skaust upp úr sendi- mönnum ráðherrans, að eitt af því, sem áhrif hefði á ríkis- stjórnina í þessum málum væri það, að ef Austfirðingar fengju stórvirkjun, yrði ekki hjá því komist, að verða við kröfum Vestfirðinga um virkjun Dynj- anda, en afráðið hefur verið að leysa raforkumál þeirra með sama kotungsbrag og Austfirðinga. í rafmagnsmál- unum eiga þessir landshlutar algjöra samstöðu, og sjálf rík- isstjómin hefur tengt hagsmuni þeirra fast saman með því að neita öðrum um viðunandi lausn til að geta gert hinum sem allra smásálarlegasta úr- lausn. — Er nokkuð sjálfsagð- ara en að Austfirðingar og Vestfirðingar taki höndum saman í þessum málum og beri kröfur sínar um viðunandi lausn sameiginlega fram til sigurs? Einkennileg sérfræði Sérfræðingar rikisstjórnar- innar í rafmagnsmálunum hafa farið svo oft í gegnum sjálfa sig og haldið fram svo furðu- legum hlutum um rafmagns- mál Austurlands, að Austfirð- ingar hafa misst allt traust á sérfræði þeirra. Virðist þessi sérfræði meir við það miðuð, að fylgjst með stjórnarstefn- unni en sönn vísindi. Og þessi endalausi þeytingur milli aust- firzkra vatnsfalla og enda- lausar breytingar á útreikning- um og áætlunum er ekki til þess fallinn að vekja traust manna. Ljóst dæmi um „sérfræðina“ er það, að eitt sinn létu hinir sérfróðu það frá sér fara, að í Grímsá væri aðeins 1350 kw. orka. En þegar þar kom að ríkisstjórnin þurfti á ofurlítið stærri sprænu að halda handa Austfirðingum, létu þeir sig ekki muna um að auka orkuna í 2400 kw. Hvað eiga Austfirðingar að gera Eiga Austfirðingar að taka þessum löðrungi þegjandi? Eiga þeir að láta hafa sig fyrir tilraunadýr og hornrek- ur? Framhald á 11. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.