Þjóðviljinn - 12.02.1955, Page 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 12. fébrúar 1955
$5*
ÞJÓDLEIKHOSID
Fædd í gær
Sýning í kvöld 'kl. 20.
Óperurnar
Pagliacci
Og
Cavalleria Rusticana
Sýning sunnudag kl. 20.
Síðasta sinn.
Gullna hliðið
Næstu sýningar þriðjudag og
föstudag kl. 20.
Aðgöngumiðasalan opin frá
kl. 13.15—20. Tekið á móti
pöntunum, sími 8-2345, tvær
línur.
Pantanir sækist daginn fyr-
ir sýningardag, annars seldar
öðrum.
Sími 1544
Séra Camillo
snýr aftur
(Le retour de Don Camillo)
Bráðfyndin og skemmtileg
frönsk gamanmynd eftir sögu
G. Guareschis, sem nýlega
hefur komið út í ísl. þýðingu
undir nafninu Nýjar sögur af
Don Camillo. Framhald mynd-
arinnar Séra Camillo og
kommúnistinn.
Aðalhlutverk: FERNANDEL
sem séra Camillo) og GINO
CERVI (sem Peppone borgar-
j stjóri).
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
(ÍAMLA í
Simi 1475.
Söngur
fiskimannsins
'The Toast of New Orleans)
Ný bráðskemmtileg bandarísk
söngmynd í litum. Aðalhlut-
verkin leika og syngja
Mario Ianza og
Kathryn Grayson
m. a. lög úr óp. „La Traviata“,
..Carmen“ og „Madame Butt-
erfly“.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
rr r riri rr
lnpolibio
Sími 1182.
Nótt í stórborg
(Gunman In/The Streets)
Framúrskarandi spennandi,
ný, frönsk sakamálamynd með
ensku tali. Myndin, sem er
lekin í París og fjallar um
f'lótta bandarísks liðhlaupa og
glæpamanns undan Parísar-
iögreglunni, er gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu eftir Jack
Companeez, sem einnig hefur
samið kvikmyndahandritið. —
Aðalhlutverk: Dane Clark,
■Simone Signoret (hin nýja,
íranska stjama), Fernand
Gravet.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð bömum innan 16 ára.
Sala hefst kl. 4.
v HAFNARFIRÐ!
Sími 9184.
Kaupfélag Hafnfirðinga
sýnir kvikmyndina
Viljans merki
fyrir félagsmenn og gesti kl.
2.30, 4, 5, 6, 7, 8, 9 og 10.
Utanfélagsmenn, sem hefðu
hug á að sjá myndina geta
einnig fengið ókeypis miða að
sýningunum afhenta í Bæjar-
bíói eftir k). 3, eftir því sem
húsrúm leyfir.
Á mánudaginn verða sýn-
ingar fyrir börn kl. 4 og 5.
Sími 81936.
Vængjablak næt-
urinnar
(Vingslag i natten)
Mjög áhrifamikil og at-
hyglisverð ný sænsk stór-
mynd. Mynd þessi er mjög
stórbrotin lífslýsing og heill-
andi ástarsaga, er byggð á
sögu eftir hið þekkta skáld
S. E. Salje, sem skrifað hef-
ur „Ketil í Engihlíð" og fleiri
mjög vinsælar sögur. Hún
hefur hvarvetna verið talin
með beztu myndum Nordisk
Tonefilm. — Pia Skoglund,
Lars Ekborg, Edwin Adolh-
son.
Sýnd kl. 7 og 9.
Svarta örin
Afar viðburðarík og spenn-
andi riddaramynd, byggð á
hinni ódauðlegu sögu eftir
Robert L. Stevenson. — Að-
alhlutverk: Louis Heyward.
Sýnd kl. 5.
Bakkabræður
Mynd Óskars Gíslasonar.
Sýnd kl. 3.
Slmi 1384.
Nektardansmærin
(La danseuse nue)
Skemmtileg og djörf, ný,
frönsk dansmynd, byggð á
sjálfsævisögu Colette Andris,
sem er fræg hektardansmær í
París. — Danskur texti. —
Aðalhlutverk: Catherine Er-
ard, Elisa Lamothe.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 2 e. h.
IWLEIKF'ELAGtÉg,
P^REYKJAVfKhy©
Fiænka Charleys
Gamanleikurinn góðkunni.
Sýning í dag kl. 5.
Aðgöngumiðar seldir eftir
kl. 2.
N 6 I
Sjónleikur í 5 sýningum.
Brynjólfur Jóhannesson
í aðalhlutverkinu.
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðasala kl. 4—7
1 dag og eftir ‘kl. 2 á morgun.
Sími 3191.
Sími 6444.
Læknirinn hennar
(Magnificent Obsession)
Stórbrotin og hrifandi ný
amerísk úrvalsmynd, byggð
á skáldsögu eftir Lloyd C.
Douglas. — Sagan kom í
„Familie Journalen" í vetur,
undir nafninu „Den Store
Læge“.
Jane Wyman, Rock Hudson,
Barbara Rush.
Myndin var frumsýnd í
Bandaríkjunum 15. júlí s.l.
Sýnd kl. 7 og 9.
Dularfulla hurðin
(The Strange Door)
Hin æsispennandi og dular-
fulla ameríska kvikmynd eft-
ir sögu R. L. Stevenson. —
Charles Laughton, Boris
Karloff.
Sýnd kl. 5.
Bönnuð innan 16 ára.
Sími 6485.
Brimaldan Stríða
(The Cruel Sea)
Myndin, sem beðið hefur ver
ið eftir. Aðalhlutverk:: Jack
Hawkins, John Stratton, Vlr-
ginia McKenna.
Þetta er saga um sjó og seltu,
um glímu við Ægi og misk-
unnarlaus morðtól síðustu
heimsstyrjaldar.
Myndin er gerð eftir sam-
nefndri metsölubók, sem kom-
ið hefur út á íslenzku.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.30.
Bönnuð innan 14 ára.
AUGLÝSIÐ
I
WÓÐVILJANUM
| Laugaveg 30 — Siml 82209
Fjölbreytt úrval af steinhringum
— Póstsendum —
^RÚÐULEÍKHÚSÍÐ
aá»aa!9i?íi3a
Gljóir wel A
Drjúcjt
ftrcirvlegt
pceqileqt -
Rauð
AUT
FYRIR
KJÖTVERZLANÍR
Sýning á morgun kl. 3 í Iðnó.
Baldur Georgs sýnir töfra-
brögð í hléinu.
Aðgöngumiðar seldir frá
kl. 11 á sunnudag. — Sími
3191.
i)3Ótu 3, 4iny 60360.
Almenmir dansleikur
mn
SÍMÍ
í kvölð kl. 9
Hljómsveit Svavars Gests
Aðgöngumiöar seldir klukkan 6 til 7
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■
Kröfur sjómanna í Eyjum
Framhald af 4. síðu.
borgun og útvegsmenn (1,15)
og uppbætur, þegar þær koma
á sama hátt og útgerðin, enda
fái sjómenn þá aðstöðu til að
fylgjast með gjaldeyrisverzl-
uninni.
En útgerðarmenn eru ekki
til viðtals um það.
Óhreytt fiskverð er þeirra
höfuð boðorð, þrátt fyrir það
að þeir neita því alls ekki að
fiskverð til sjómanna sé lægra
en útgerðin fær.
Það er hægt að verða við
kröfum sjómanna
Hvað getur útgerðin borg-
að ? Það er spurning sem
sjálfsagt er að gefa fullan
gaum. í umræðum um þessi
mál má oft heyra fullyrðingar
um það að útgerðin þoli ekki
hærra fiskverð til sjómanna.
Ef sú staðhæfing væri
sönn, þá er það af því, að á
henni hvíla ómagar sem hirða
arð hennar. Og það er raunar
-vitað að slíkar afætur eru
hvorki fáar né smátækar.
Bankamir græða stórfé
mest á okurvöxtum af útgerð-
inni. Olíufélögin raka saman
gróða, einnig mest af útgerð-
inni og frystihúsin skila stór-
felldum hagnaði, sem allur
kemur frá útgerðinni.
Siðasta ár, sem reikningar
liggja fyrir um græddi fisk-
vinnslustöð ein í Vestmanna-
eyjum á aðra millj. kr. nettó
eftir að allt hafði verið afskrif-
að sem lög leyfa. Þessi eina
stöð verkar um 40% þess afla
sem til Eyja berst. Það má
því ætla að alls hafi gróði
fiskvinnslustöðvanna numið
um þrem millj. kr. Til saman-
burðar má geta þess að kröfur
þær um hækkað fiskverð, sem
sjómenn gera nú nemi tæpum
tveim millj. króna.
Þetta litla dæmi sannar það
ljóslega, að vel er hægt að
verða við kröfum sjómanna ef
vilji er fyrir hendi.
Það er ábyrgðarleysi að
bolast gegn kröfum sjó-
manna
Það er því fullkomið á-
byrgðarleysi af hálfu útvegs-
manna, hvernig sem á er litið,
að bolast við að greiða full-
virði fyrir hlut sjómanna,
hefja róðrabann gegn kröf-
um þeirra, én láta óátalið
framferði þeirra aðila, sem
þrengja kjör útgerðarinnar
með óhóflegum viðskiptaá-
góða af útflutningi, innflutn-
ingi og bankaviðskiptum
þesaa undirstöðu atvinnuveg-
ar íslenzks þjóðarbúskapar.
Eilend tíðindi
Framhaid af 6. síðu.
hann hefði lagt bann við því
að nokkur ættingi fanganna
fengi vegabréf til að fara úr
landi að heimsækja þá. Vesa-
lings fólkinu var svo smalað
saman og það látið undirrita
yfirlýsingu um að það væri al-
gerlega samþykkt þeirri á-
kvörðun ríkisstjómarinnar að
banna því að heimsækja ást-
vini sína. För Hammarskjölds
hefur því ekki enn borið mik-
inn árangur. Hann er þó ekki
af baki dottinn. Fyrir nokkrum
dögum var skýrt frá því í að-
alstöðvum SÞ að framkvæmda-
stjórinn stæði í sambandi við
kínversku ríkisstjórnina með
milligöngu sænska sendiráðs-
ins í Peking. Eru nú uppi radd-
ir um það að Hammarskjöld
hyggi á aðra Kínaferð til þess
að ræða ástandið við Taivan og
skipti Kína og Bandaríkjanna
frá öllum hliðum við ráðamenn
í Peking.
M. T. Ó.