Þjóðviljinn - 13.02.1955, Blaðsíða 3
Sunnudagur 13. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3
AfleiSing lánsfjárbannsins:
Loksð við aðeins 487 nýjczr
íbúðir í Reykjavík á s. 1. ári
Algengt að fólk flytji í ófullgerðar
íbúðir vegna húsnæðiseklunnar
Samkvæmt nýútkominni skýrslu byggingarfulltrúans
í Reykjavík yfir byggingar sem lokið' var við á árinu 1954
kemur í ljós, aö fullgerðar voru 487 nýjar íbúðir í 294
húsum en alls var lokiö við 403 hús hér í bænum á s.l.
Nýja strætisvagnaleiðin
Framhald af 12. síðu.
ári.
Það athyglisverðasta við
skýrsluna er hve íhúðirnar
eru fáar sem tekst að Ijuka
við á árinu, þrátt fyrir þann
mikla fjölda húsa sem í hygg-
ingu eru. Er það augljós af-
leiðing þeirra örðugleika
sem almenninyur á við að
stríða með öflun lánsfjár til
hyggingar íbúðarhúsa.
Til samanburðar má geta
þess að það ár á tímabili ný-
sköpunarstjómarinnar sem
flestar íbúðir voru byggðar
reyndust þær 641. Og samkv.
rannsókn sem framkvæmd
var á húsnæðisástandinu í
bænum fyrir nær áratug síð-
an á vegum hagfræðings
Reykjavíkurbæjar varð nið-
urstaðan sú, að algjört lág-
mark árlegrar aukningarþarf-
ar ibúða væri 600. Síðan hef-
ur íbúum bæjarins fjölgað
Merki fyrir 100 ára af-
mæli frjálsrar verzlunar
á íslandi
Eins og áður hefur verið skýrt
*
frá verður 100 ára afmælis
frjálsrar verzlunar á íslandi
minnzt 1. apríl n.k. og hefur und-
irbúningsnefnd ákveðið að hafa
almenna hugmyndasamkeppni
um merki fyrir afmælið. Þurfa
hugmyndir að berast til Verzlun-
arráðs íslands, pósthólf 514, fyr-
ir 15. þ. m.
Þýzkir náms-
styrkir
Sambandslýðveldið Þýzkaland
hefur, samkvæmt tilkynningu
frá sendiráðinu í Reykjavík, á-
kveðið að veita tveimur ís-
lendingum styrk til háskóla-
náms í Þýzkalandi háskólaár-
ið 1955—1956, og nemur styrk-
urinn 3000 þýzkum mörkum til
hvors miðað við 9 mánaða dvöl
1. nóvember n.k. að telja.
Styrkþegar ráða því sjálfir við
hvaða háskóla þeir nema, inn-
an sambandslýðveldisins eða í
Vestur-Berlín, en skilyrði er, að
þeir kunni vel þýzka tungu og
geti lagt fram sönnunargögn
fyrir hæfileikum sínum til vís-
indastarfa, þ.e. námsvottorð
og meðmæli prófessora sirina.
Auk þess er lögð áherzla á, að
umsækjendur hafi þegar stað-
izt háskólapróf og verið a.m.k.
f jögur misseri við háskólanám.
Að öðru jöfnu ganga þeir fyrir,
sem ætla að búa sig undir að
ljúka doktorsprófi.
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrki þessa, sendi
umsóknir um þá til mennta-
málaráðuneytisins fyrir 1. apríl
n.k.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
stórlega, ibúðabyggingar ver-
ið hindraðar árum saman í
samræmi við marsjallstefn-
una og húsnæðisástandið far-
ið stórlega versnandi af þeim
sökum.
I
257.887 rúmmetrar samtals
Húsin sem lokið var við 1954
skiptast þannig, að 294 eru
íbúðarhús eins og áður segir, 6
verksmiðju- og iðnaðarhús, 5
verzlunar- og skrifstofuhús, 5
vinnustofur, 4 skólar, 1 félags-
hermili, 86 smáhýsi, stækkun
elliheimilisins og heilsuverndar-
stöðin.
íbúðir, sem lokið var við á
árinu, skiptast þannig, að 463
eru í steinhúsum og 24 í timb-
urhúsum. En auk þess eru byggð
41 einstök herbergi á árinu.
Samanlagður fermetrafjöldi
hinna nýju húsa er 39.210.52 en
rúmmetrafjöldi 257.887.
Oft flutt í ófullgerð hús
I lok skýrslunnar kemst bygg-
ingarfulltrúi svo að orði:
„Samkvæmt 5. gr. 8. lið bygg-
ingarsamþykktar fyrir Reykja-
vík má ekki taka neitt hús til
afnota fyrr en fengið er vottorð
byggingarfulltrúa um, að það sé
fullgert og fullnægi kröfum
byggingarsamþykktar, en nú er
húsnæðisekla, svo gangur mál-
anna hefur verið sá, að í húsin
er flutt um leið og þess er nokk-
ur kostur, og vill þá oft drag-
ast að þau séu endanlega full-
gerð og endanleg úttekt fari
fram. Mun þar oft ráða féleysi,
enda er sú eina lánastofnun, er
krafðist byggingarvottorða, sem
var veðdeild Landsbankans, nú
í bili að minnsta kosti svo til
hætt að lána fé til nýbygginga,
við samningu skýrslu þessarar
hefur því verið miðað við hvort
meginþorri verðmætis hússins
Skipbrotsmanna-
skýli sokkið í sand
Helgi Eiriksson Fossi á Síðu
hefur farið í umsjónar- og eft- j
litsferð fyrir Slysavamafélag •
íslands í nokkur skýli austur
á Söndum. :
■
í bréfi til félagsins segir :
hann frá aðkomunni að skýl- j
inu á Káifafellsmelum, sem er :
eitt afskekktasta skipsbrots- :
mannaskýlið hér á landí og j
byggt var af Vitamálastjóm- j
inni á sínum tima á sama stað j
og skýli, sem þýzki konsúllinn j
Detlan Thomsen lét byggja rétt :
eftir aldamótin. Segir hann að
nú sé skýlið sokkið í sand svo
aðeins sjái á þak þess og tóm-
ur vatnselgur í kringum það.
Skýlið stóð áður á háum mel-
kambi, sem vatnið hefur skol-
að burtu.
sé í það kominn.
Það skal ennfremur tekið
fram að þau hús, sem byggð
hafa verið án samþykkis bygg-
ingamefndar, svo #sem í Múla-
camp og Blesugróf eru ekki tal-
in í þessari skýrslu, enda er
verðmæti slíkra húsa mjög vafa-
samt“.
5 þús. kr. framlag tll end-
umýjunar á björgunar-
tækjum
Kvennadeild Slysavarnafé-
Iagsins í Neskaupstað hefur
sent Slysavamafélagi íslands 5
þúsund kr. til endumýjunar á
björgunartækjum björgunar-
sveitarinnar á ísafirði. Jafn-
framt sendir kvennadeildin
innilegt þakklæti sitt til allra
þeirra, er á einhvera hátt að-
stoðuðu við björgun skipverja
af Agli rauða.
Aðalfundur pípu-
lagningameístara
Hinn 6. þ.m. var haldinn-
aðalfundur Félags pípulagn-
ingameistara í Reykjavik.
Hina nýju stjóm skipa: Jó-
hann Pálsson, formaður, Karl
Sigurðsson, varaform. Gunnar
Gestsson, ritari, Haraldur Sal-
ómonsson, gjaldkeri, Benóný
Kristjánsson, meðstjómandi.
Björn Baldursson sigraði
á skautamótinu í gær
Skautamót fslands hófst á
tjöminni í Reykjavík í gær og
var þá keppt i 500 og 3000 m
hlaupum. Sigraði Bjöm Bald-
ursson frá Akureyri í báðum
hlaupunum. í 3000 m hlaupinu
setti hann nýtt ísl. met á 5.49.2
mín. 500 m hljóp hann á 50.2.
Birkimel, Fomhaga, Ægissíðu á
argötu, Skothúsveg, Hringbraut,
hringaksturinn við Nesveg og
sömu leið tii baka. — Fyrst um
sinn verður aðeins ekið á tíma-
bilinu kl. 13.30 til 18.30. — Nýju
vagnarnir verða ekki látnir á
þessa leið.
Þáttaskil 1951
í ágúst 1944, þegar bærinn yf-
irtók strætisvagnana, gátu vagn-
arnir flutt 772 farþega, en 1824
nú.
Árið 1951 urðu þáttaskil í sögu
strætisvagnanna, en þá var byrj-
að að nota díselvagna í stað
benzínvagna, en hinir fyrmefndu
eru miklu ódýrari í rekstri. Ár-
ið 1952 var tekinn í notkun
fyrsti frambyggði strætisvagn-
inn hér, er rúmaði 50 farþega,
en þar áður hafði verið byggt
ofan á vörubílsgrindur.
!
ísleuzku yfirbygglnganiar
betri og fegurri
Yfir tvo hinna nýju strætis-
vagna hefur verið byggt í Bíla-
smiðjunni, eftir teikningu Gunn-
ars Björnssonar bílasmiðs. Yfir
einn vagninn hefur verið byggt
í Svíþjóð. Forstjóri Strætisvagn-
anna kvað íslenzku yfirbygging-
arnar bæði betri og fegurri en
þær erlendu, en einnig dýrari.
Nýju vagnarnir eru löggiltir
fyrir 80 farþega. Á þeim eru 3
hurðir, og í þeim er hátalari og
bjöllukerfi. Ennfremur er kort
af leiðinni í einum vagninum,
og mun slíkt verða tekið upp í
fleiri vögnum.
„Ský fyrir sólu“
Forstjórinn kvað rekstur
Strætisvagnanna hafa verið hag-
stæðan s. 1. 3 ár, en fyrir nokkru
hefði „dregið ský fyrir sólu“
þar sem væri launahækkun til
vagnstjóranna að upphæð 800
þús. kr. er gleypti tekjuafgang
fyrirtækisins. — Hjá Strætis-
vögnunum vinna nú um 130
manns þar af ca. 80 vagnstjór-
ar.
Þörf 8 nýrra vagna
Strætisvagnar Reykjavíkur
eiga nú 39 gangfæra strætis-
vagna, en forstjórinn kvað þörf
fyrir 6 nýja vagna — er myndu
kosta 2,5 millj. kr. — og auk
þess 2 nýja vagna til endurnýj-
unar eldri vögnum.
Þá kvað hann þurfa að taka
upp 4 nýjar strætisvagnaleiðir,
því fólkinu í úthverfunum væru
„öruggar strætisva’gnaferðir eins
nauðsynlegar og vatn, ljós og
hiti“.
Ennfremur kvað forstjórinn
vanta verkstæði svo og geymslu-
pláss — og enn í dag verða allir
vagnarnir að standa úti í hvaða
veðri sem er vegna þess að ekk-
ert hús er til yfir þá. Þá kvað
hann óhjákvæmilegt að byggja
ný biðskýli á þessu ári.
Nýju vagnarnir þrír
Hjá Volvoumboðinu fengu
blaðamenn m. a. eftirfarandi
upplýsingar um nj'ju vagnana,
sem eru af Volvogerð B-655:
„Vélin er svokölluð pönnu-
kökuvél, sem liggur á hliðinni
undir gólfi vagnsins milli fram-
hjóla og afturhjóla. Þessi stað-
setning vélarinnar eykur far-
þegarýmið í vagninum talsvert
mikið, og gerir ennfremur mögu-
legt, að gengið sé inn í vagn-
inn framan við framhjólin, en
það er skilyrði fyrir því á fram-
byggðum vögnum að vagnstjór-
inn geti jafnframt annazt mót-
töku fargjalda. Vélin er 150
hestafla dieselvél.
Tengsli og skiptikassi er nýj-
ung í almenningsvögnum hér, og
einnig víða í Evrópu. Tengslið
er vökvatengsli, og gerir óþörfi
hin venjulegu plötutengsli, sera
verið hefur mjög stór liður í
viðhaldi strætisvagna og ann-
arra almenningsvagna. Auk þess
útilokar vökvatengslið alla
snögga rykki í vagninum, þegar
honum er ekið af stað. Hemlar
vinna fyrir þjöppuðu lofti. Hand-
hemill vinnur á sérstaka hemil-
skál framan við afturöxul og
er öruggur sem neyðarhemill".
Nýr Norðf jarðartogari?
Framhald af 12. síðu.
bætt með neinni tilfærslu á
skipum milli staða.
Nefndin hefur átt tal við for-
sætis- og sjávarútvegsmálaráð-
herra, Ólaf Thors og fjármála-
ráðherra, Eystein Jónsson, sem
jafnframt er þingmaður Suður-
Múlasýslu, og lagt fram sín
sjónarmið í greinargerðurts
ásamt viðræðunum. Nokkuð hef-
ur verið athugað af tilboðum og
ráðgazt við kunnáttumenn um
þau. Telst nefndinni svo til að
unnt mundi vera að fá nýtízku
dieseltogara með svipuðu burð-
armagni og Egill rauði hafði,
innan eins árs og á skaplegu
verði, 81/2—9 milljónir.
Spurningu blaðamanna um það
hvaðan togarinn yrði fenginn
svöruðu nefndarmenn að athug-
uð yrðu tilboð bæði frá Þjóð-
verjum og Bretum. Mun afhend-
ingarfrestur vera töluveríj
skemmri hjá Þjóðverjum eri
Bretum.
Ætlunin er að leggja fram I
hið nýja skip 2 milljónir, aute
þess sem kynni að fást yfirfært
á það af stofnskuldum Egils
rauða.
Að lokum vill nefndin getá
þess að hún telur sig hafa mætt
velvild og skilningi ráðamanna,
sem rætt hefur verið við.
Nauðungaruppboð
verður haldiö eftir kröfu tollstjórans í Reykjavik
o.fl., á Grandagaröi hér í bænum, föstudaginn 18.
[ þ.m., kl. 2 e.h., og verða þar seldir 2 nótabátar
| tilheyrandi Straumey h.f. Að því loknu verða seld-
! ar 3 snurpinætur og reknetakapall í Netagerö
Þóröar Eiríkissonar, Camp Knox, hér í bænmn.
GreiÖsla fari fram við hamarshögg.
BORGARFÓGETINN .í REYKJAVÍK
Tilboð óskast
■
■
■
■
i neðangreindar bifreiðar:
1. Buick-fólksbifreið
2. Austin-fólksbifreiö
■
3. Nokkrar jeppabifreiöar
Bifreiöamar veröa til sýnis hjá Arastööinni viö
Háteigsveg miðvikudaginn 16. þ.m. kl. 10 til 3. I
Tilboðin veröa opnuö í skrifstofu vorri sama dag :
kl. 4.
Sala setuliðseigna ríkisins