Þjóðviljinn - 26.02.1955, Síða 1

Þjóðviljinn - 26.02.1955, Síða 1
Ti Tilraunatogari og rannsókna- ski]> með tveim þilförum 5. síða Niðri í iðrum jarðar 7. síða Óskastundin 9. og 10. síða Viíðskiptamálaráðherra íhaldsins reynir að spilla fyrir samningum Vill ríkisstjórnin láta lækka kaupið iini 1.1 ai' hundraði? Sendir frá sér furSulegt plagg um kaupmátt launa, þar sem reiknaS er m.a. meS þvi aS húsaleiga hafi hœkkaS um 2% slSan 1953! Á sama tíma og atvlnnurekendur og verkamenn sitja við samningaborð og öll þjóðin krefst þess að gengið veröi til samninga um réttlætiskröfur alþýðusamtakanna án þess að til vinnustöðvunar komi virðist ríkisstjómin vera önnum kafin við að spilla fyrir samningum. Viðskipta- málaráðherra íhaldsins, Ingólfur Jónsson, sendi í gær frá sér mikið plagg þessefnis að kaupmáttur Dagsbrún- arlauna hafi hækkað um 1.1% síöan í janúar 1953. Virð- ist tilgangur plaggsins vera sá að benda atvinnurekend- um á að ástæðulaust sé að fallast á nokkra kauphækkun, og jafnvel væri ástæða til að lækka kaupið um 1.1%!! Verkamnnafélag Aknreyrarkanp- staðar nndirbýr nýja samninga Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar hélt fund í' fyrrakvöld til að ganga frá kröfum sínum við væntan- lega samninga. Plagg viðskiptamálaráðherra íhaldsins er mikið mál, fimm vélritaðar síður, og er byggt á útreikningum Ólafs Björnssonar og Klemensar Tryggvasonar. Fer mest mál í að skýra frá því hvernig útreikningunum sé hátt- að og eru þar fyrirvarar og' vafaatriði í annarri hverri línu. Niðurstaðan er hins vegar þessi: ,,I>egar hlutfallið milli kaups og framfærslukostnaðar í jan- úar 1953 annars vegar er borið saman við hlutfallið milli kaups og framfærslukostnaðar í jan- úar 1955 hins vegar, kemur í ljós, að kaupmáttur Dagsbrúnar- kaups hefur aukizt um 1,1% á þessu tímabili. Er þá miðað við kaupgjald í janúar 1955 og við grundvöll Kauplagsnefndar að meðtöldum skatti og útsvari. En ef sleppt er skatti og útsvari, þá hefur kaupmáttur launa rýrnað um 2,9%“. • Hækkun húsaleig- unnar 2% Eins og áður er sagt er út- reikningum þessum hagað á nýj- an hátt, þannig að þeir eru ekki sambærilegir við fyrri útreikn- inga. En til þess að sýna hversu hæpin undirstaðan er má benda á að reiknað er með því að húsaleigan hafi hækkað um 2% á þessu tímabili!! Þeir sem áður borguðu 300 kr. á mánuði eiga samkvæmt því að borga 306 kr. nú; þeir sem áður borguðu 500 kr. eiga nú að borga 510 kr. o. s. frv. Eins og hver einasti maður veit er þetta tóm lok- leysa. Húsaleigan á þessu tíma- biii hefur hækkað um tugi og hundruð % og hækkunin nær til mjög mikils hluta bæjarbúa eftir að húsaleigulögin voru felld úr gildi. Tvöföldun á húsaleigu er mjög algeng, og mjög veru- legur hluti af kjararýrnuninni stafar einmitt af því. Ef ríkis- stjórnin hefði haft einhvern hug á raunhæfri rannsókn hefði það einmitt verið fyrsta verkefnið að athuga húsaleiguna og vöxt hennar á undanförnum árum. • Hvers vegna ianúar 1953? Annað athyglisvert atriði í þessu sambandi er það að miðað skuli vera við janúar 1953. Hvers vegna er sá tími endi- lega valinn? Verkamenn lita sannarlega ekki á lífskjörin þá sem neina fyrirmynd, og þeim er ofar í hug annað ártal: desember 1947. Fyrir nokkrum árum lét Alþýðusamband íslands reikna út breytingar á kaupmætti tímakaups frá því 1938, og tók Ólafur Björnsson þátt í þeim út- reikningum. Kaupmáttur ‘tíma- kaupsins reyndist vera hæstur í desember 1947 og var þá 156 stig miðað við 100 1938. Síðan hefur kaupmátturinn haldið áfram að rýrna jafnt og þétt og mun nú vera nálægt 130. Á sama tíma hafa þjóðartekjumar vaxið ár frá ári, þannig að það hefði verið eðlileg þróun að hækkun sú sem náðst hafði 1947 hefði haldizt og aukizt. Kröfur verklýðsfélaganna nú eru miðað- ar við það sjálfsagða sjónarmið og eru þó lægri en tilefni væri til. • Eftirvinna talin sjálfsögð í útreikningum þeim sem við- skiptamálaráðherra Ihaldsins sendir frá sér er reiknað með Hallvarður, sem er 38 lestir, hafði farið til Breiðafjarðar til að sækja síld, til Stykkishólms o.fl. staða. Um kl. 9 í gærmorgun heyrð- ist í talstöð hans og var hann árskaupi. í því er innifalin eftir- vinna, eins og hún sé sjálfsögð. En það er krafa verklýðssamtak- anna að hægt sé að lifa sæmi- legu lífi af átta stunda dagvinnu; að enginn neyðist til að leggja á sig mikla eftirvinnu til þess að hafa fæði og húsaskjól. Þetta er ekki aðeins krafa um hækkað kaup, heldur og um mannrétt- indi sem þykja nú orðið sjálf- sögð víða um lönd. Viðskipta- málaráðherra íhaldsins ætti að spyrja yfirboðara sína í banda- riska sendiráðinu hversu langur \dnnutíminn sé í iðnaði Banda- ríkjanna — og hann mun fá þau svör að þar þyki það of langur tími að vinna átta stundir á dag og færi dagvinnan þó góða af- Skorar félagið á fyrrnefnda aðila að stækka fiskveiðitak- mörkin út þannig að dregin verði bein lína úr Rauðnúpi á Sléttu norðan við Grímsey og þaðan í Horn á Ströndum. Nyrðra er þetta talin mjög mikil nauðsyn, sérstaklega með tilliti til þess að friða Grímseyj- arsund. Þá samþykkti fundurinn enn- fremur að reyna að fá nýja kaup- og kjarasamninga við at- vinnurekendur, án uppsagnar. Samningaviðræður hafa þó ekki hafizt enn. Stjórn félagsins er nú þannig skipuð: þá undan Látrabjargi á heim- leið og bjóst við að koma til Súgandafirði kl. 2. Kl. 5 síðdeg- is töldu menn á Þingeyri sig hafa heyrt í talstöð bátsins. Hermóður hóf leit í gærkvöldi. Stjórn félagsins lagði fram til- lögur, sem eru mjög líkar í aðal- atriðum og kröfur verkalýðsfé- laganna i Reykjavík. Að loknum allmiklum umræðum voru þær samþykktar með atkvæðum allra fundarmanna, en einn maður sat hjá. Fundurinn samþykkti einnig Bátarnir þrír sem heima eru hafa róið þegar gefið hefur, og í febrúarmánuði hefur veður verið sæmilega kyrrt öðru hvoru. Afli bátanna fer allur 1 frystihús og hefur þvi verið að þeim nokkur atvinnubót. Þrír bátar fóru héðan til Suð- urlands á vertíð og áhafnir á Lárus Frímannsson formaður, Jón Sigurðsson varaformaður, Eiríkur Líndal fjármálaritari, Valdimar Sigtryggsson ritari, Garðar Björnsson gjaldkeri. einróma að fela trúnaðarráði fé— lagsins að ákveða verkfallsboðun fyrir félagið, ef nauðsynlegt reynist. — Þá fól fundurinn einnig stjórninni að fara með samninga fyrir félagið. Eining heldur aðalfund á morgun og gengur þá frá kröfum sínum við nýja samninga. þá. Auk þess fóru margir menn aðrir svo alls hafa farið héð- an um 100 manns í atvinnuleit, eða svo margir að fá varð 2 aðkomumenn til að geta gert út bátana sem eftir eru heima. Veðurfar hefur verið kalt undanfarnar vikur og er kom- inn mikill snjór. Mjólkurbílar hafa þó getað haldið uppi stöð- ugum ferðum. Bókmenntakynn- ing Landnemans ■ 2 Önnur bókmenntakynn- [ ing Landnemans verður ann- j | að kvöld í Tjarnarkaffi. | Verður þar kynning á • | verkum ungra höfunda. ■ | Tveir þeirra lesa sjálfir en ■ : verk hinna lesa kunnir leik- ! ■ : arar. ■ 5 : Aðgöngumiðar seldir eftir j ■ hádegi í dag í skrifstofu j ■ Æskulýðsfylkingarinnar, : Þórsgötu 1. «-----------------------------------—------’------<s> Verkamenn í Hveragerði semja um hækkað fiskverð til sjómanna Eina félagið utan Vesimannaeyja sem fengið hefur fiskverðið hækkað ♦ i Hveragerði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Samiiingar um fiskverð voru undirritaðir í fyrra- kvöld milli Verkalýðsfélags Hveragerðis og Meitils- ins h.f. Samkvœmt þessum samningum fá sjó- menn í Þorlákshöfn greitt sama verð fyrir fiskinn og sjómenn í Vestmannaeyjum. Sama kvöld voru einnig undirritaðir samningar um kjör landvinnu- manna í Þorláksliöfn. Höfðu þeir verið gerðir alllöngu áður, en undirskrift beið fiskverðssamn- inganna. Verkalýðsfélag Hveragerðis var eina félagið ut- an Vestmannaeyja sem sagði upp fiskverðssamn- ingunum í vetur, og h.f. Meitillinn í Þorlákshöfn er eini atvinnurekandinn utan Véstmannaeyja sem hefur um hœkkað fiskverð til sjómanna. öttast um vb. Halivarð Síðdegis í gær var farið að óttast ujn bátinn Hallvarð frá Súgandafirði sem vœntanlegur var þangað um kl. 2 e.h. í gœr. Ekkert hafði til hans heyrzt síðan í gœrmorg- v.n. Framhald á 3. síðu. Verklýðsfélag Dalvíknr krefst stærri laitdhelp fyrir NorðurMi Dalvík. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Verklýösfélag Dalvíkur hélt aðalfund sinn fyrir nokkru. Samþykkti aðalfundurinn áskorun til Alþingis og ríkis- stjórnar um aö færa út fiskveiðilandhelgina fyrir Norður- landi. 100 Dalvíkingar farnir í at- vinnuleit ó Suðurlandi Dalvík. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Þrír dekkbátar voru keyptir hingaö á s.l. ári. Hafa þeir róið undanfarið og fengið frá 2—7 skippund í róðri. Þrír bátar fóru suður á vertíð og um 100 manns héðan í atvinnuleit.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.