Þjóðviljinn - 26.02.1955, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 26. febrúar 1955
ASalgiffingartimirm
fer i hönd
Brúðarkiólaefni
í mjög f jölbreyttu úrvali
*
Brúðarkjólar
saumaðir eftir máli
— I brúðkaupsferðiría: —
Undirfatnaður — Náttkjólar
Greiðslusloppar
MARKAÐURINN
Haínarstræti 11
Sinfóiimhljómsveitin
Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar á þriðjudaginn
voru nær eingöngu helgaðir
franskri tónlist. Tónleikarnir
hófust á svonefndri Spánar-
Þorvaldui-
Montanari
sinfóníu spánsk-franska tón-
skáidsins Edouards Lalo, sem
hefur víst ekki verið flutt
hér áður á tónleikum. Verk
þetta er samið fyrir einleiks-
fiðlu og hljómsveit og má
kallast fiðlukonsert, þó að
höfundur nefni það sinfóníu.
Einleikshlutverkið annaðist
Þorvaldur Steingrímsson, einn
af fiðluleikurum Sinfóníu-
hljómsveitarinnar sjálfrar.
Aðalkostur Þorvalds sem
.fiðluleikara er ekki mikil til-
þrif, heldur smekkvísi í flutn-
ingi og einkar mjúkur og
fallegur tónn. Hann leysti
þetta vandasama fiðlverk
mjög vel af hendi og hlaut
að launum ágætustu undir-
tektir hlustenda, svo að hann
mátti endurtaka síðasta .þátt
verksins.
i Þessu næst var einsöngur
i með undirleik hljómsveitar-
' innar. ítalski söngvarinn
s Primo Montanari, sem kennir
| £Ú söng við Tónlistarskólann
í Reykjavík, flutti óperulög
eftir Massenet, Bizet, Flotow
og Wagner og sýndi óumdeil-
anlega, að hann er mikill
söngvari og frábær kunnáttu-
maður, og ekki er hann held-
ur neinn viðvaningur á óperu-
sviði. Af hinni björtu og
fögru tenórrödd hans má
nokkuð marka, hversu glæsi-
legur söngmaður Montanari
mun hafa verið á yngri ár-
um, en hann er nú mjög við
aldur.
Hljómleikunum lauk með
hinum gamansama þætti
„Lærisveinn galdrameistar-
ans“ eftir Frakkann Paul
Dukas, sem er eitt af vinsæl-
ustu hljómsveitarverkum nú-
tímatónlistar og mjög að verð-
leikum. Hljómsveitin skilaði
Bóbert A. Ottósson
verkinu með mikilli prýði und-
ir öruggri og vandvirknislegri
stjórn Róberts A. Ottóssonar.
B. F.
Bók um nautaættfræði — Bréf frá ungum manni í
úthverfi — Spennandi bækur á dagskrá
JÁ, það eru margar bækurnar „KÆRI bæjarpóstur. — Ég er
og margt er nú bóka. Og þeg-
ar ættfræðingarnir eru búnir
að rekja allar ættir lands-
manna aftur á bak og áfram
eins langt og sögur herma
og stundum langt fram yfir
það, skal engan veginn stað-
ar numið. Nei, ónei. Það eru
fleiri skepnur ættstórar en
mannskepnan. Og því skal sú
semja nautaættbók, sbr. kvöld
fréttir útvarpsins hinn 24.
febr., og skal sú bók koma
út ekki síðar en 1957. Er ekki
að efa að slík bók verður
mörgum fagnaðarefni. En á-
stæðan til að ég minnist á
þetta hér, er að Bæjarpóstur-
inn var að fá í hendurnar
bréf frá Ungum manni í út-
hverfi, sem einmitt gerir
bækur að umtalsefni og tel
ég víst að hann hefði ekki j
látið hjá líða að minnast á
hina fyrirhuguðu nautaætt-
bók, ef fréttin um hana hefði
verið komin fyrir almennings-
eyru þegar hann skrifaði
bréfið. En bréf hans er svo-
hl jóðandi:
ungur maður sem hefur
voðalega gaman af bókmennt-
um. Ég hlusta alltaf á þátt-
inn hans Vilhjálms Þ. út-
varpsstjóra um bækur og
menn. Hann er alltaf ógur-
lega skemmtilegur. Síðast tal-
aði útvarpsstjórinn um Al-
þingistíðindi, og það var svo
svakalega spennandi að ég
hefði aldrei trúað því. Svo
minntist hann á ársrit presta
1 Þórsnesþingi sem mig hefur
alltaf langað svo mikið til að
lesa upphátt fyrir kærustuna
mína, og þar áður talaði hann
um Ættir Austfirðinga. Nú
langar mig að biðja þig kæri
bæjarpóstur minn að spyrja
útvarpsstjórann hvort hann
vilji ekki spjalla næst unt
bók sem allir tala svo mikið
um núna: Markaskrá Vestur-
Isafjarðarsýslu. Ég á nefni-
lega frænda fyrir vestan sem
er svo sniðugur, og mig lang-
ar svo að vita markið hans.
Ég man bara að það er tví-
biti framan vinstra, en svo
veit ég ekki meira. Heldurðu
að hann mundi segja manni
svoleiðis, ef maður skrifaði
þættinum? Og ég er viss um
að það þætti líka mörgum
ganian, ef hann talaði ein-
hvern tíma um Skattskrá Ak-
ureyrarkaupstaðar, því það er
svo leiðinlegt hérna síðan þeir
hættu að gefa út Skattskrána.
Og svo vil ég ekki gleyma
símaskrám, bankabókum,
gestabókum, póesíbókum, ær-
bókum, leiðarbókum, nótna-
bókum, frumbókum og vasa-
bókum sem eiga sívaxandi vin-
sældum að fagna. Já, það er
svo sem af nógu að taka. En
maður má ekki vera of kröfu-
harður — hann getur þó ekki
talað um allar bækur í ver-
öldinni.
Ungur maður í úthverfi.“
HÚSNÆÐI
Þeir, sem kynnu aö vilja fá leigt húsnæði í
Iðnskólahúsinu við Vonaintræti ti!
1. október n.k.
geta fengið upplýsingar í skólanum milli
kl. 10 og 11 f.h. næstu daga.
Skólastjóri
Félagslíf
Aðalfundur K.D.R.
verður haldinn sunnudaginn
6. marz kl. 2.15 í félagsheimili
KR við Kaplaskjólsveg. —
Dagskrá: Venjuleg aðalfund-
arstörf. — Stjórnin.
Verð fiarverandi
um tíma. Lögfræðistörf á meðan annast Einar
Gunnar Einarsson, til viðtals á skrifstofunni milli
kl. 5 og 7 daglega nema laugardaga. — Sími 82207.
r »
■
■
■
:
Ingi R. Helgason
lögfrœðingúr
T I L
LIGGUR LEIÐIN
Uppboð
Samkvæmt kröfu tollstjóra og að undangegnum lög-
tökum, fer fram uppboð 7. marz n.k. á neðantöldum
bifreiðum, til lúkningar greiðslu bifreiðaskatts og fer
uppboðið fram þar sem bifreiðarnar eru geymdar, eins
og hér segir:
Bifreiðin R 1624, við Bifreiðaverkstæði H. Lárussonar,
Kópavogshálsi, kl. 1.30. — R 2334, við Fífuhvammsveg
11, kl. 2 e.h. — R 5673 við Klæðaverksmiðjuna Álafoss,
Mosfellssveit, kl. 3.30 e.h.
Greiðsla við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði, 21. febr. 1955
Guðm. í Guðmundsson
• Gljóir véI
• Prjúqft
■ Hr«ir\legt
• þotgitegl
HÚSMÆÐUR:
Eiginmennirnir hrósa ykkur íyrir,
ráðdeild
EF þið kaupið ALLT í