Þjóðviljinn - 26.02.1955, Side 6

Þjóðviljinn - 26.02.1955, Side 6
$>) — ÞJÓÐVTLJINN — Laugardagur 26. febrúar 1955 :**S*3S* 3® ' gllÓOVIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkuriim. Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.) Préttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Óiafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla. auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrennl; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. v________________________________________________________/ Þréun sem ekki verður stöðvuð Ofsóknir hægri klíkunnar í Alþýðuflokknum gegn vinstri rriönnum flokksins hafa að vonum vakið mikla athygli og um- tal meðal almennings að undanförnu. Þykja vinnubrögð hægri manna að vonum næsta ógæfuleg, þegar þess er gætt að verka- lýðsstéttin og samtök hennar eiga í þýðingarmikilli kjaradeilu við atvinnurekendur og ríkisstjóm og allt veltur á að samstilla kraftana til sigursællar sóknar. Hlutskiptið sem Haraldur Guð- mundsson og nánustu samstarfsmenn hans velja sér við þessar aðstæður er að beita allri orku sinni til skipulegra ofsókna og linnulausrar rógsherferðar á hendur vinstri mönnum í Alþýðu- flokknum. Markmiðið sem haft er í huga leynir sér heldur ekki lengur. Hægri klíkan stefnir að klofningi Alþýðuflokksins. Bannfæring Hannibals Valdimarssonar og brottrekstur Alfreðs Gíslasonar sem koma á til framkvæmda 2. marz n.k. sanna þetta. Hafi einhver verið í vafa um hve gjörsamlega hægri klíkan ! Alþýðuflokknum er slitin úr öllum lífrænunj tengslum við al- þýðuna í landinu ættu þessar starfsaðferðir að hjálpa mönnum til skilningsauka á þeirri staðreynd. Það sem alþýðan um allt land þráir nú framar öllu öðru er að verkalýðsflokkarnir taki höndum saman og hafi forustu um sköpun þeirrar vinstri fylk- ingar er ýtt geti íhaldsöflunum og auðstéttinni til hliðar. Yfir- gangur auðstéttarinnar, ofmetnaður hennar og fjárgræðgi gera þessar kröfur alþýðunnar að brennandi viðfangsefni. Pólkið eem vinnur hörðum höndum að því að framleiða og byggja upp landið á sjálft að njóta ávaxtanna af erfiði sínu og það getur það sannarlega taki það aðeins höndum saman. Það virðist vera fastur ásetningur Haralds Guðmundssonar, Stefáns Jóhanns og Co. að koma hér með öllum ráðum til liðs við auðstéttina og íhaldsöflin. í haust er reynt að halda Alþýðu- sambandinu áfram í hlýðnisafstöðu við auðstéttina og Sjálfstæð- isflokkinn. Öll ráð voru notuð til að koma þessu í framkvæmd og ekki hikað við að reyna að kúga kjörna fulltrúa verkalýðs- félaganna til að svíkja gerðar samþykktir félaga sinna. Þegar þessar áætlanir fóru út um þúfur var gripið til þess að bann- færa forseta Alþýðusambandsins, banna honum að koma fram í nafni flokks síns og sett sérstök nefnd til að undirbúa frekari refsiaðgerðir. Sama ofstækið mætir þeim tilraunum sem gerðar hafa verið til samstöðu íhaldsandstæðinga í bæjarstjórn Reykjavíkur. Of- £óknirnar gegn Alfreð Gíslasyni stafa af því að hann hefur unnið að þessu samstarfi af heilindum og átt þátt í að koma í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn fengi sterkari aðstöðu en honum ber í nefndum og störfum á vegum bæjarstjórnar. Um •leið hefur Alfreð Gíslason tryggt flokki sínum starfsaðstöðu sem hann átti ekki völ á að öðrum kosti. Pyrir þetta frumkvæði er Alfreð Gíslason rægður, ofsóttur og honum hótað brottrekstri. Svo glórulaust er ofstæki hægri manna Alþýðuflokksins að þeir létu lið sitt fella tillögu Gylfa Þ. Gíslasonar á flokksfund- inum s.I. sunnudag, um að reynt yrði að ná samkomulagi og sáttum og flokksstjórnin kvödd saman í því skyni. I þess stað voru hamraðir í gegn ,,úrslitakostirnir“ frægu sem ekkert mark- mið hafa annað en fá Alfreð Gíslason og aðra vinstri menn . rekna úr Alþýðuflokknum og flokkinn gerðan að fámennri klíku bitlingahirðar og ofstækismanna, sem hlýtur að eiga pólitískt • líf sitt undir náð og velþóknun íhaldsins. Alþýðublaðið fær loksins málið í gær um þetta framferði 'hægri manna en á óhægt um vik til málsvamar sem eðlilegt er, þar sem ritstjóri blaðsins hefur til skamms tíma sjálfur verið meðlimur í samtökum vinstri manna innan flokksins, og var einn þeirra frambjóðenda til fulltrúakjörs á flokksþingið í haust sem Haraldur Guðmundsson og Stefán Jóhann lögðu mesta á- herzlu á að ekki næðu kosingu. Ekki leyna þó tilburðimir sér til að þakka fyrir það sem að honum hefur verið rétt fyrir sýnda samvizkulipurð. En að vonum tekst það allt óhönduglega eins og vænta má þegar verja á vonlausan málstað og sannfær- -ínguna vantar. Þess vegna verður gaspur Helga Sæmundsson- ar gagnslaust og utangama. Það væri þakkarvert ef hægrimenn Alþýðuflokksins gerðu sér það Ijóst sem fyrst að ofsóknimar og brottrekstursæðið sem gripið hefur hug þeirra er þess á engan hátt umkomið að stöðva þá einingaröldu og þann samstarfsvilja sem risin er meðal .verkalýðsins og alþýðunnar. Framtíðin tilheyrir einingu alþýð- unnar, sókn hennar og sigri. Götumynd frá Hanoi, aðsetri lýðveldisstjórnarinnar í norðurhluta Viet Nam. Mynd~ in á húsveggnum til hœgri er af Ho Chi Minh forseta. Bandaríkjastjórn er œvareið yf~ ir að Frakkar hafa tekið upp stjómmálasamband við stjórn hans og eiga við hana verzlunarviðskipti. Innbyrðis deilur Vesturveldanna sefja svip sinn á ráðstefnuna í iangkok Bretar ósammála USA um afsröSuna til Kína, Frakkar um stefnuna i Viet Nam essa dagana stendur yfir í Bangkok, höfuðborg Thai- lands, ráðstefna Suðaustur- Asíubandalags Vesturveldanna. Utanríkisráðherrar Bandaríkj- anna, Bretlands, Ástralíu, Nýja Sjálands, Filippseyja, Thailands og Pakistan sitja fundinn. Frakkland var stjórnlaust þegar ráðstefnan hófst svo þaðan er enginn ráðherra en Henri Bonn- et, til skamms tíma sendiherra Frakklands í Washington, er fulltrúi í Bangkok með fullu umboði til að taka ákvarðanir í nafni frönsku ríkisstjórnarinn- ar. Eins og sjá má er lítill Asíusvipur á þessum samtök- um, af átta bandalagsríkjum eru fimm vestræn nýlenduveldi og fylgiríki þeirra í Asíu eru einungis þrjú. Bandalaginu var komið á lagg- irnar síðastliðið sumar eftir að friður hafði verið saminn í Indó Kína í óþökk Bandaríkja- stjómar. Til þess að reyna að vega upp á móti þeim álits- hnekki sem friðarráðstefnan í Genf hafði orðið fyrir hana beitti Dulles utanríkisráðherra sér fyrir stofnun Suðaustur- Asíubandalagsins. Lýst var yfir að það ætti að hefta útbreiðslu kommúnismans í álfunni með skuldbindingu um sameigin- legar hemaðaraðgerðir. í raun og veru er markmið bandalags- ins fyrst og fremst það að reyna að renna skorðum undir hinar völtu og spilltu ríkis- stjómir í Pakistan, Thailandi og á Filippseyjum. í öllum þessum ríkjum sitja að völd- um stjórnir sem styðjast við fámennar valdaklíkur og hefur til þessa með naumindum tek- izt að halda kúgaðri og féflettri alþýðu í skefjum með gjafa- vopnum frá Bandaríkjunum. Dulles er minnugur þess hvern- ig fór fyrir slíkri stjórn í Kína og sáttmáli Suðaustur-Asíu- bandalagsins er ekkert annað en skálkaskjól til að réttlaéta beina, bandaríska íhlutun ef annað dugir ekki til þess að hindra að Pibun Songgram í Thailandi, Múhameð Alí í Pak- istan og Ramon Magsaysay á f—------------------\ Erlend tíðindi ___________________ Filippseyjum ^hljóti sömu út- reið og sálufélagi þeirra Sjang Kaisék, Jafnvel Dulles er þó ljóst að Bandaríkin ein megna ekki að halda uppi stjórnum þessara manna til lengdar og því fékk hann í lið með sér helztu bandamenn Bandaríkjanna í Vestur-Evrópu og á Kyrrahafi. Stjórnir Bretlands og Frakk- lands létu til leiðast, ekki þó af því að þær hyggi á nein stórræði í Austur-Asíu heldur af fylgispekt við Bandaríkin. Allt gekk slysalaust á stofn- fundi bandalagsins í Manila í sumar en á fundinum sem nú stendur yfir í Bangkok hefur það orðið meginstarf banda- ríska utanríkisráðherrans að svara umkvörtunum brezku og frönsku fulltrúanna vegna stefnu Bandaríkjastjórnar í málum Austur-Asíu. Brezka íhaldsstjómin hefur I lengstu lög reynt að bera í -bætíflák'á fyrír: ' frarrikotftu Bandaríkjastjómar: í málum Kína. Churchill og Eden hafa farið undan í flæmingi þegar Attlee og aðrir. Verkamanna- f lokksf oringj ar hafa krafizt þess að Bandaríkjastjórn sé gert Ijóst að hún megi ekki vænta neins stuðnings frá Bretum ef hún flani út í styrj- öld við Kína. Verkamannaflokk- urinn hefur brezkt almennings- álit á sínu bandi í þessu máli og aðstaða ríkisstjórnarinnar hefur því verið erfið. Eden utanríkisráðherra hefur reynt að fara bil beggja með því að viðurkenna að eyjarnar uppi í landsteinum meginlands Kína sem her Sjang Kaisék heldur séu óumdeilanlega hluti af Kína og Bandaríkjamenn eigi því ekkert með að skipta sér af þeim. Öðru máli gegni um Taivan, hún hafi aldrei verið afhent Kína að lögum. Rétt áður en Dulles lagði af stað til Bangkok gerði hann Eden þann óleik að gefa í skyn að Bandaríkjastjórn myndi láta flota sinn og flugher hjálpa her Sjangs að halda strandeyjun- um Kvimoj og Matsú. Næstum því hvert einasta brezkt blað vítti þessa afstöðu Bandaríkj- anna. Churchill lýsti loks yfir að brezkum herafla yrði ekki beitt til þess að hjálpa Banda- ríkjamönnum gegn Kínverjum og í Bangkok hafa Eden og Dulles setið á löngum fundum og rætt ástandið við Kína- strönd. i Hvað Frakka áhrærir er það afstaðan til stjórnarinnar. í norðurhluta Viet Nam í Indó Kína sem hefur orðið þeim og Bandaríkjamönnum að ágrein- ingsefni. Jean Sainteny, fom- vinur Ho Chi Minh, forseta lýð- véldisstjórnarinnar í nofður- hluta Viet Nam, hefur verið gerður að fulltrúa frönsku stjórnarinnar í Hanoi. Hann Framhald á 10. síðú.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.