Þjóðviljinn - 26.02.1955, Page 9

Þjóðviljinn - 26.02.1955, Page 9
4 Gátur og þrautir 1. Hvort er þyngra 1 kg. af blýi eða 1 kg. af fiðri? 2. Hvert fara börnin þegar þau eru orðin tveggja ára? 3. Hversu langt inn í skóginn hleypur hjört- urinn? Talna- þrai&t o o o o o o Settu tölurnar 1, 2, 3, 4, 5 og 6 í staðinn fyrir þessi núll, svo að samtala hverrar hliðar verði 9. Eldspýtnaþraut Tak burtu tvær af þess- um eldspýtum, svo að eft- ir verði tveir jafnhliða þríhyrningar. Kanntu staírófið? Strikaðu undir þá af eftirfarandi bókstöfum, sem í stafrófinu eru á milli H og Ó: KGERBIDLTQ MJNAÐÖOPFÍÚ Lesið eftirfarandi frá- sagnir með athygli. Hvað er athugavert við þær? 1. Það var barið að dyrum hjá séra Bjarna. Dóttir hans kom til dyra. Roskin kona stóð fyrir utan dyrnar og spurði, hvort séra Bjarni væri heima. Dóttir hans kvað það ekki vera, en spurði, hvort hún gæti ekki skil- að neinu. — Jú, svaraði konan, biddu prestinn að líta inn hjá mér einhvern næstu daga. — Hvar er það og hvað heitið þér?, spurði dóttir prestsins. — Presturinn þekkir mig svo vei, sagði konan, og veit hvar ég á heima, að ég þarf ekki að út- skýra það nánar. 2. Maður nokkur lauk Ráðningar á þraut- um í síðas'ta blaði Málshátturinn er: Þeg- ar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Gáturnar: 1. Lykil- skegg. 2. Bergmálið. 3. Til ösku. i Árin 1711 og 1811 í síðasta blaði var spurt að því hvaða for- ustumenn þjóðarinnar hefðu fæðst á ofangreind- um árum. Svar: Skúli Magnússon landfógeti fæddist árið 1711, Jón Sigurðsson forseti fædd- ist árið 1311. sendibréfi til kunningja síns með þessum orðum: . . . en ef þú færð ekki þetta bréf, þá láttu mig bara vita og ég verð að skrifa þér aftur. Þinn Brandur. 3. Maður nokkur vakn- aði um miðja nótt og heyrðist eitthvert þrusk vera fyrir framan hurð- ina. — Er þarna nokkur? kallaði hann. — Nei, var svarað fyr- ir framan. — Það er ágætt, þá get ég sofið rólegur. 4. Bakari sagði við kunningja sinn, sem var að tala um hvað hann seldi ódýrt. — Já, vinur minn, ég sel hvert brauð fyrir laggra verð ,en það kostar mig að baka þau, en vegna þess hvað ég sel mörg, þá græði ég þó nóg handa mér og mínum. (Þegar þið eruð búin að finna hugsunarvillurn- ar í þessu, getið þið að gamni ykkar lagt þetta fyrir aðra). Huldufólk Framh. af 2. síðu. inn til æskuára afa og ömmu, langafa og lang- ömmu. Voru börnin árið 1955 ekki ósköp lík í hugsunarhætti börnunum fyrir 100 árum gagnvart náttúrufyrirbrigðum og hinu óþekkta, sem hver ný kynslóð stendur frammi fyrir? Laugardagur 26. febrúar 1955 — 1. árgangur — 4. tölublað Útgefandi: ÞjóOviljinn — Ritstjóri: Gunnar M. MagmisS — Pósthólf 1063. Samtal við reiðhest Ég vissi ekki fyrr til en ungur gæðingur, spriklandi af fjöri nam staðar við tröppurnar, sem ég stóð á, og hneggj- aði vinalega. Hann hafði komið á spretti austan veginn, en stakk nú við fótum og virtist ekki vilja fara lengra. Þetta var frostkyrran dag í janúar s.l., og hvít gufustrokan stóð úr 'vitum gæðings- ins, þegar hann blés frá sér. Það var hálka á vegum, en gæðingurinn var þó ekki skaflajárn- aður. Hann var i stígvél- um. Og hann var í grænni blússu með hettu fram yfir höfuðið. En það var svo sem engin furða, því að þetta var reyndar enginn annar en hann Gummi litli, þekkt- ur snáði í Bústaðahverf- inu, en nú um stundar- sakir Ijónfjörugur foli. Það var brugðið bandi undir hendur honum og yfir herðarnar með við- festum löngum taumi, sem Bragi vinur hans hélt í. Hann var reiðmað- urinn. — Ég sé, að þið eruð að koma úr ferðalagi, sagði ég við folann. — Ég er reiðhestur, sagði Gummi, — Er það ekki erfitt á svona hálum ‘vegum? — Það er eftir því hvort maður stekkur eða brokkar. Ég brokka, þeg- ar ég þarf að hvíla mig eftir stökksprett. — En keyrir reiðmað- urinn þig ekki áfram harkalega stundum? — Hann ræður ekkert sprettinum, hann tekur bara í taumana og stýrir til hægri eða vinstri og ræður svoleiðis ferðinni. — Og voruð þið að koma úr langri ferð núna? — Nei, nei, við fórum bara í smáspretti upp að stíflu, en stundum för- um við langt. — Hvert? — Stundum austur og oft til Þingvalla. — Það er nú meira ferðalagið. — Nei, nei, ég fer oft í einum stökkspretti til Þingvalla, — Þingvellir eru þarna, sko við lokið á hitaveitustokkinum. Reiðmaðurinn kippti nú' í taumana og folinn tók að ókyrrast. Hann hneggjaði ofurlitið, hristi höfuðið, beygði sig áfram og var allt í einu þotinn af stað í áttina til Þing- valla. Það var . tilþrifamikill Framh. á 3. síðu. Vetrarvísa Ingibjörg Kolbrún Ei- ríksdóttir, 10 ára, sendir Óskastundinni tvær vis- ur, og er önnur svona: Hlusti nú hver sem betm? getur, því horfin er sumarsól. Ég er almennt kallaður vetuí og færi ykkur gleðileg jól. KLIPPIB HÉK! % ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRI. FRtMANN HELGASON —----------------— Heimsmeistarakeppnin í ísknattleik hefst í dag í dag hefst í Vestur-Þýzka- landi heimsmeistarakeppni í ís- knattleik. 16 lönd taka þátt í mótinu, en það fer fram í borgunum Dort- mund, Dússeldorf, Krefeld og Köln. veika „punkta“ á að styrkja sem hægt er. Þeir sovézku telja að hinu leytinu að lið þeirra sé fyrir nokkru búið að ná svipaðri getu og i fyrra. Fari svo að Sovétríkin og Kanada berjist um tvö efstu sæt- in, er víst að baráttan um næstu 3 sætin verður lika gífurlega hörð. Strax í desember var búið að panta upp rúmin á öllum gisti- stöðum í þeim borgum sem mótið á að fara fram í. Þá þegar höfðu verið seldir aðgöngumiðar fyrir á þriðja hundrað þús. krónur. Tugþúsund- Framh. á 10. síðu. ÚrsEifcleikir innanhússknatt- spyrnumótsins annað kvöld Löndum þessum er skipt niður i 2 hópa A og B og það er keppn- in í A-hópnum sem gerir út um heimsmeistaratitilinn. Löndin sem lenda í A-hóp munu vera þessi: Sovétríkin, Kanada, Sví- þjóð, Bandaríkin, Tékkóslóvakía, Sviss, Finnland, Pólland og Þýzkaland. í B-hópnum eru: Frakkland, Holland, Belgía, Ítalía, Ung- verjaland, Austurríki og Júgó- slavía. í löndum sem iðka ísknattleik er ríkjandi mikill spenningur um það hvort Sovétríkjunum takist að verja titilinn frá í fyrra, en þá unnu þau mjög óvænt og með meiri yfirburðum en nokkrum datt í hug. Er gert ráð fyrir að Kanadamenn tefli nú ekki á tvær hættur og tefli fram því bezta sem þeir eiga. Munu þeir senda Kanadameistarana frá í fyrra en það eru „Penticton“ V. S. Alla Innanhússknattspyrnumótið hélt áfram á þriðjudagskvöldið. Fóru þá fram tveir leikir í IV. fl. og varð jafntefli milli Þrótt- ar og Fram A 2:2, KR-A vann Fram B 5:3. í II. fl. vann KR- C þrótt með 3 gegn 1 og KR- B tapaði fyrir Fram A með 5:4. í meistarafl. áttust við KR-C og Valur B og vann KR með 4 gegn 1. Síðasta leik kvölds- ins vann A-lið KR — Fram 6:2. Er þetta A-lið KR bezta sveitin í eldri flokkum móts þessa. Kemur leikni þeirra Gunnars Guðmanns, Atla og Sigurgeirs skemmtilega fram, samfara auga fyrir samleik. KR er í úrslitum í öllum flokk- um móts þessa og í I. aldurs- flokki (meistarafl.) eru bæði liðin úr KR sem til úrslita keppa. Á laugardag er ákveðið að Þróttur og Fram geri út um jafnteflið sem varð á þriðju- dag. Þau lið sem fara í úr- slit eru: VI. fl. KR — Fram eða Þróttur. III. fl. KR-B — Fram A. II. fl. KR-C Fram meistara- fl. KR-A — KR-B. — Að svo mörg KR-lið eru í úrslitum má sjálfsagt mjög þakka þeim húsakosti sem KR hefur til æfinga samfara miklu mann- vali. Verður ábyggilega gaman að sjá úrslitaleiki þessa, þar verður hvergi eftir gefið. --— Laugardagur 26. febrúar 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Gunnar M. Magnúss: , Börnin frá Víðigerði IV. Fráfærurnar. Nú fóru yndislegir vordagar í hönd. Sumir bláir, og fullir sólskini, aðrir með ljósum vorskýjum siglandi á himninum, allir bjartir, mildir og blíðir, Fögur vor eru græn og blá og gyllt. Dýrð lífsins flæðir yfir allt og alla og lofsöngun náttúrunnar er fjölraddaður. Vorið kemur með fuglakvakið og kliðinn, tístið og gargið, lækjargutlið, suðið og niðinn, flugnasuð og mýþyt, hávaða og hlátra úti um tún og haga, hundagelt uppi um hlíðar og fjöll, nautabaul og kálfa bö, bö, bö, hestahnegg og folalda hi, hi, hi, kindajarm og lamba me — me —me, sem kveður við sárt, en yndislega úti um alla haga. Fráfærurnar eru sár tími fyrir lömbin litlu og mömmur þeirra, þegar þessar litlu, fjörugu, ynd- islegu og elskulegu verur, sem öll börn vilja: kyssa og margkyssa beint á munninn, eru dregnar og slitnar frá mömmum sínum og úr ástúðlegu og umhyggjufullu samlífinu við þær, til þess að ala önn fyrir sér sjálf eftir það, og fá aldrei framari að þekkja móður sína. Það var mikið að gera fráfærnadaginn í Víðr gerði. Hagarnir voru smalaðir og allar lambæi? reknar heim að rétt. Þegar hópurinn var kominn heim að réttinni, fóru allir, sem vettlingi gátu valdið, úr bæjunum, kvenfólkið og smákrakk- amir, til þess að hjálpa til við innreksturinn. Það var ekki alltaf auðhlaupið að því að koma' lambánum í rétt á vorin. En fólkið var orðið vanl

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.