Þjóðviljinn - 02.04.1955, Síða 1
Laugardagur 2. apríl 1955 — 20. árgangur — 77. tölublað
Þátttakendur í verkfallinu
eru beðnir að hafa sam-
band við verkfallsskrif-
stofuna í Alþýðuhúsinu.
Sjóferðapróí vegna strands Jóns Baldvinssonar hófust í gær
Skyggni var ágætt og þoku-
laust er togarinn strandaði
SkipiS sigldi á fullri ferS inn undir Hrafn-
kelsstaSaberg - Dýptarmœlar i lagi
SjóferÖapróf vegna strands togarans Jóns Baldvinssonar
aðfaranótt fimmtudagsins hófust fyrir sjódómi Reykja-
víkur í gær. Voru þá meðal annars teknar skýrslur af skip-
stjóranum og fyrsta stýrimanni, sem var á verði, þegar
togarinn tók niðri.
Sjóprófin hófust kl. 10 í gær-
morgun og gengu greiðlega; voru
skýrslur teknar af 7 skipverj-
anna.
Skýrsla skipstjórans.
Fyrstur kom fyrir dóminn
skipstjórinn, Þórður Hjörleifsson,
52 ára að aldri. Staðfesti hann
skýrslu, sem hann gaf bæjarút-
gerðinni í fyrradag, og er svo-
hljóðandi:
,,Fimmtudagur 31. marz 1955.
Togað á Vesturbanka. Kl.
0,45 trollið tekið inn og stefna
sett fyrir Reykjanes. SV andvari,
ágætt'skyggni. Fararstaður um
Lambafellið, dýpi 78 fm. Stýrt
NTV % V. Vegm. 82.0. Klukkan
urh 3.40 vakti stýrimaður, sem
var á verði, mig og sagði að
við værum farnir að nálgast
Reykjanes, fór síðan upp í brú
aftur, en rétt í því tók skipið
niðri. Sent út neyðarkall, sem
Reykjavíkurstöðin tók á móti.
Ennfremur skotið flugeldum og
gufunni hleypt af katlinum, þar
sem strax kom sjór í vélarúm.
Skömmu seinna sást til manna-
ferða í landi. Var þá skotið línu
í land, en þetta reyndist vera
aðeins einn maður og gat því
ekki aðhafst annað en festa lín-
unni. Kl. um 6,45 kom björg-
unarsveitin í Grindavík á stað-
inn og var þá hafist handa um
björgun, sem gekk vel og kom-
ust allir heilir í land.“
/
Ágætt skyggni.
Sikpstjóri tók það fram, að
um kl. 0.45, er haldið var af
stað, hafi hann verið á stjórn-
palli og ákveðið hvaða stefnu
skyldi sigla, en síðan hafi hann
farið inn til sín. Á verði hafi
verið Indriði Sigurðsson, 1.
stýrimaður.
Skipstjóri kvað skyggni hafa
verið ágætt og hann hafi sagt
við stýrimanninn að Reykjanes-
viti myndi sjást í 15 mílna fjar-
lægð og fcann ætti að láta sig
vita, er þeir nálguðust Reykja-
nesið. Stýrimaður hafi vakið sig
um kl. 3,40 en strandið hafi orð-
ið áður en liann komst upp. Hafi
hann samstundis farið upp á
stjórnpall en skipið þá staðið
fast undir Hrafnkelsstaðabergi,
rétt austan við litla vitann á
Skarfasetri. Hann hafi hringt á
háifa ferð aftur á en skipið
ekki hreyfzt.
Dýptarmælir í lagi — rat-
sjá biluð.
Skipstjórinn skýrði frá því,
að í skipinu hefðu verið tveir
bergmálsdýptarmælar og vissi
haim ekki betur en þeir hefðu
verið í lagi. Hinsvegar hafi
ratsjáin verið biluð.
Þá gat skipstjóri þess, að hann
hafi spurt fyrsta stýrimann, er
hann kom niður, hvort hann
hefði séð vitann og hafi stýri-
maður þá sagst hafa séð hann
góða stund.
)
Þokulaust, er strandið
varð.
Sikpstjóri tók það fram að
er hann hafi komið upp eftir
strandið hafi hann ekki getað
séð að nokkur þoka væri á þess-
um slóðum: Þannig hafi hann
t. d. séð til ferða mótorbáts nokk-
uð undan að fara fyrir Reykja-
nesið og bergið hafi hann séð
strax og hann vandist birtunni
en myrkur var á. Á meðan björg-
un stóð hafi hinsvegar alltaf
dregið öðru hvoru þoku í berg-
brúnina. *
Loks gat skipstjóri þess, að
dýptarmælir skipsins hafi ver-
ið í gangi, þegar skipið
strandaði, og hafi hann sýnt
um 55 faðma dýpi á að gizka
finim síðustu minúturnar fyr-
ir strandið en síðan hafi allt
í einu snögggrynnt.
Frásögn 1. stýrimanns.
Indriði Sigurðsson, 1. stýrimað-
ur, 33 ára, kom næst fyrir dóm-
inn, en þetta var önnur ferð hans
á Jóni Baldvinssyni sem 1. stýri-
maður; áður hafði hann verið 2.
stýrimaður á skipinu um nokk-
urn tíma.
Stýrimaður skýrði svo frá að
hann hefði komið á vakt um kl.
24 umrædda nótt og rétt á eftir
hafi varpan verið tekin inn og
haldið af stað. Hann kvaðst ekki
hafa vitað um stað skipsins þá,
veður hafi verið gott svo og
skyggni en ekkert hafi hann at-
hugað landmið.
35 mílur að vitanum.
Stýrimaður sagði að skipstjóri
hefði gefið upp stefnu þá, er
stýra skyldi NTV % V. Hafi
hann litið á vegmælinn rétt eft-
ir að skipstjóri fór niður og hafi
hann þá sýnt tæpar 83 mílur.
Þegar skipstjóri gaf honum
stefnuna hafi þeir litið á sjó-
kort en ekki merkt staðinn á
Framhald á 10. síðu.
Formaður í 32. sinn - Skjaldborg geí-
ur verkfaUsmönnum fimm þús. kr.
Félagið Skjaldborg hélt aöalfund í gærkvöldi. Helgi
Þorkelsson var endurkosinn formaður félagsins í þrítug-
asta og annaö sinn. — Félagið samþykkti að styrkja
verkfallsmenn með 5 þús. kr.
með 5 þús. kr. framlagi. Einnig
var samþykkt að hækka fram-
lag til Söngfélags verkalýðs-
samtakanna úr kr. 300 í kr. 500.
Formaður félagsins og aðrir
í stjórn voru sjálfkjörnir. Vara-
formaður var kosinn Haraldur
Guðmundsson, Halldóra Sigfús-
dóttir ritari, Margrét Sigurðar-
dóttir gjaldkeri og Ólöf Valdi- I Iðju-félagar2
marsdóttir meðstjórnandi.
Fundurinn samþykkti ein- Iðja, félag verksmiðju-
róma að styrkja verkfallsmenn I fólks biður karlmenn inn-
an félagsins að gefa sig
nú þegar fram í skrifstofu
þess í Alþýðuhúsinu, til
verkfallsvörzlu.
Ókyrrð í Alsír
Ókyrrð er enn í Alsír og ótt-
ast franska stjórnin að bardag-
ar muni aftur blossa upp i land-
inu. Hún hefur þvi farið fram á
við þingið að það veiti henni
heimild til að lýsa yfir hernaðar-
ástandi í landinu og samþykkti
neðri deildin þá heimild í fyrra-
dag, en utanríkismálanefnd efri
deildarinnar mælti með henni.
Mesti jarðskjáliti hér í 20 ár
Lauslrglr hlutir féUu. grjót hrundi og
sprungur komu í hús í Hveragerði
í gær varð hér snarpasti jarðskjálftakippur sem
komið hefur í 20 ár. Jarðskjálfti þessi mun hafa átt
upptök sín í grennd við Hveragerði, enda féllu þar
lauslegir hlutir í húsum inni og steinveggir munu
hafa sprungið, og grjót féll úr Reykjafjalli.
Fréttaritari Þjóðviljans i
Hveragerði símaði í gær það
sem að framan er sagt. Kvað
hann bækur hafa fallið niður
úr hillum í tveggja hæða húsi.
1 gærmorgun hefðu allmargir
vaknað við stærsta kippinn, en
síðdegis hefðu verið margir
smákippir, auk tveggja stórra.
Fréttaritarinn á Selfossi kvað
Upplag Þjóðviljans hefur auk-
izt um 5oo síðan um áramót
7 marzmánuði bœttist
Þjóðviljanum 81 nýr á-
sicrifandi, en síðan um
áramót hafa hátt á ann-
að hundrað nýir áskrif-
endur bætzt í hópinn.
Á sama tíma hefur
lausasala aukizt mjög
mikið og er upplag blaðs-
ins nú 500 eintökum
hœrra en um áramót.
Fyrir skömmu tilkynnti
Sósíalistafélag Reykja-
víkur að ný áskrifenda-
söfnun vœri hafin, og
hefur hún farið mjög vel
af stað. Ættu stuðnings-
menn blaðsins nú að
herða pá sókn til mikilla
muna; sérstök ástœða er
til pess að benda peim
sem kaiLpa blaðið í lausa-
sölu á pað hvort ekki sé
hentugra að fá pað sent
heim.
Áskriftasími
ans er 7500.
Þjóðvilj-
mjög snarpan jarðskjálftakipp
hafa fundizt þar. Kippur þessi
fannst einnig hér í bænum.
Mesti jarðskjálfti í 20 ár.
Eysteinn Tryggvason, for-
stöðumaður jarðskjálftadeildar
Veðurstofunnar kvað þetta vera
mesta jarðskjálftakipp hér á
landi síðan haustið 1935, en sá
jarðskjálfti mun hafa orðið
mestur á Hjalla í Ölvesi. Árið
áður voru jarðskjálftarnir á
Dalvík, en þá skemmdust mörg
hús.
Fyrsti kippurinn í gær varð
kl. 6.36 í gærmorgun, en tveir
stórir kippir síðdegis, kl. 16.26
og 17.42 og var sá fyrri mestur.
— í Hveragerði voru margir
smákippir síðdegis.
Jarðskjálftaár?
Óvenjumikið liefur mælzt af
jarðskjálftum það sem af er
þessu ári, segir Eysteinn
Tryggvason. Hafa þeir verið
bæði norðanlands og sunnan. Á
Norðurlandi í Axarfirði og hér
syðra á Suðurnesjum, Suður-
landsundirlendinu, Borgarnesi
og Laugarvatni, auk jarð-
skjálftakippanna í gær.
Litli Kláus og
stóri Kláus
Síðan framhaldsmynda-
sögunni okkar, Ugluspegli,
lauk á gamlársdag hefur
oft verið spurt hvenær
næsta myndasaga kæmi. Nú
hirtist svarið í verki: • hún
kemur í dag'.
Það er ævintýri H. C.
Andersens, Litli Kláus og
stóri Ivláus, sem nú hefur
orðið danska teiknaranum
Helge Kiihn-Nielsen að við-
fangsefni, en það var ein-
mitt hann sein teiknaði
Skálkinn frá Búkliara og
Ugluspegil. Blaðinu er það
sérstakt ánægjuefni að geta
hafið söguna í dag, á 150
ára afmæli höfundar ævin-
týrsins; er þetta ævintýri
eitt hið kunnasta er meist-
arinn samdi.
Steingrímur Tliorsteinsson
skáld þýddi þetta ævintýri,
ásamt mörgum fleiri, á sín-
um tíina; og förum við hér
eftir þýðingu lians.
Þetta er stutt myndasaga,
tekur um 30 daga. Þjóðvilj-
inn vonar að lesendur hans
njóti eins og til er stofnað.