Þjóðviljinn - 02.04.1955, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.04.1955, Blaðsíða 4
4) _ ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 2. apríl 1955 Övenjulegur svipur á búðargluggum — Misskilin gluggaskreytingastefna — Eflið Lúðrasveit verkalýðsins VERZLUNARGLUGGAR voru !■■•■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■»■■*•■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■»»**• Gamall kennari skrifar: Tll stéttnrbrwðrn I verkfallinu sem nú stendur yfir í Reykjavík, taka þátt uppundir 7000 verkamenn. I’eir leltast vi5 að fá kaup sitt hækkað og bæta næsta léleg lífskjör og afkomu. Öllum er kunnugt, að verkamannastéttin skapar með vinnu sinni megin- ið af öúum efnahagslegum verðmætum, sem þjóðin fram- leiðir og kaupir fyrir lífsnauð- synjar sínar. Ölium er líka jafn kminugt, að engin stétt þjóðfélagsins er ver launuð, hefur óvissari at- vinnu né býr við þrengri hag. Engir lifa í svo ósæmandi húsakynnum sem margir með- limir hennar. Enn vita og aliir hvernig ósk- um hennar og kröfum hefur verið svarað. Gegn þeim standa vinnuveitendur svonefndir — með ríkisstjórnina í fremstu víglínu. I>að er að vísu harla ótrú- legur hlutur, að fjölmennasta vinnustéttin í landinu, sú er skapar mestu verðmæti, skuli eiga hella ríkisstjórn sama lands að ó v i n i. En sannindi þeirrar ályktunar leýnast nú engum lengur. I>að íer heldur ekki dult, hver ætlunin er. Það á að svelta fátækústu, fjölménnústu og afkastamestu vinnustétt Is- lands til uppgjafar. Á framfæri liinna nær 7000 verkamanna eru tugir þúsunda barna, sem eiga líf sitt, vöxt sinn, þroska og framtíð undir afkomu og vinnu foreldra simia. I>að eru þessi börn, sem nú á að svelta, s.verfa svo að lieim- ilum þeh-i-a, að hungurvofan knýi fátækan föður til undan- halds frá kröfum og kjörum um mannsæmandi líf. Það er í rauninni við þau, fátækustu börii þessa bæjar og heimili þeirra, sem stríð rikisstjórnar- innar og atvinnurekenda stend- ur. I>að er þau, sem á að sigra. Kennaras.tétt þessa bæjar er f jölmenn stétt. Þeir munu ef tii vill innan skamnis verða að þola þá raunasjón, að verka- mannabörnin í sltólunum þeirra fari að láta ásjá, verði föl og guggin, beri á sér, í svip og fasi, merki skortsins og fá- tæktarbölsins. Kennararnir eru yfirleitt vin- ir þessara barna og unglinga, Þeir eru og flestir fátækir sjálfir og iUa launaðir. „Ég veit hvað svöngum vetur er. Þú veizt það kaimski líka“. Nýlega hefur verið sett á stofn nefnd til að annast fjár- söfnun tU styrktar verkfalls- mönnum. Vonandi bregðast menn vel og fljótt við til hjálpar svo góðu máU. Sá sem þessar línur ritar snýr sér einkuin tii ykkar, kennarar hér í bæ og um ailt land. Hve það væri ánægju- legt og þarft, að ykkar aðstoð mætti verða almenn, mlkii og myndarleg, ekki síður en ann- arra. Þið standið svo nærri hinni ungu, vanniáttúgu sveit, sem nú á í stríðu við þau stjórnarvöld, sem eiga, sam- kvæmt skyldu og ætlunarverki, að vera forsjá fólks og lands, en liafa brugðizt hvoi-u tveggja á svo sáran og margvíslegan hátt, eins og flestimi er nú ljó.st. Efalaust má treysta því, að fjársöfnun til styrktar fátæk- uni verkfaUsmannaheimilum verði almenn og mikU. Þetta sýnist vera ójafn leikur. Atvinnurekendavaidið og ríkis- stjórnin: þeir ríkustu og valda- mestu gegn þeim fátækus.tu. En við, sem utan við verkfaliið stöndum getum að nokkru jafn- að þau met. Ég veit, að sam- úð kennara er réttu megin sem og aUra sanngjarnra og heiðar- legra manna. Og elnmitt kenn- arar eru í starfi sínu svo tengdir hinum ungu, ósjálf- bjarga þegnum þjóðfélagsins, sem nú á að níðast á. Látum okkar framlög veiða í eins mUriu samræmi við sam- úð okkar með verkfaUsmanna- heimilunum sem kostur er á og aðstæður leyfa. — Verkfaf fspósturinn .! gær með óvenjulegum hætti. í stað varningsins sem fyllir þá að jafnaði voru þeir nú skreyttir íslenzkum fána, .spjaldi með vængjuðu höfði og túlípönum eða páskaliljum í vasa. En þótt þetta væri innihald þeirra búðarglugga sem ég átti leið hjá í vinn- una, þá var þessu sama inni- haldi raðað á mjög mismun- andi hátt og bar það smekk- vísi viðkomandi verzlunareig- enda mjög mismunandi vitni. Það er ótrúlegt hvað hægt er að koma fána, plakati og blómavasa fyrir á marga ólíka vegu, og það reynir ekki síður á smekk og hugmyndaflug þeirra sem hlut eiga að máli en þótt um miklu fleiri hluti væri að ræða. * Og í ieiðinni verður manni ósjálfrátt hugsað til mismun- arins á búðargluggum virka dagsins. Smekkleysi í útstill- ingum verzlana hefur verið alltof áberandi. Örfáar verzl- anir hafa gengið á undan með góðu fordæmi og hafa smekk- legar og listrænar glúgga- skreytingar. En sú skoðun er alltof almenn meðal kaup- manna að aðalatriðið sé að hrúga sem mestu í glúggana af þeim varningi sem á boð- stólum er 'inni í búðinni. Þetta er alveg misskilin póli- tík. Séu gluggarnir ofhlaðnir fær maður glýju í augun og allt rennur 'saman í einn hrærigraut, ★ LIÍÐRASVEIT verkalýðsins er ungur félagsskapur sem hefur látið talsvert að sér kveða. Við sáum þá 1. maí með rauð- ar og tilkomumiklar húfur og sömuleiðis 17. júní í hópi hinna eldri og grónari lúðra- sveita, og þeir sómdu sér vel. En nú vantar lúðrasveitina fleiri félaga, fleiri áhugasama lúðurþeytara til þess að geta haldið sínu striki sem vaxandi og batnandi lúðra- sveit. Það eru meira að segja til hljóðfæri aflögu handa nýj- um félögum og að undanförnu hefur sveitin haft kennara á sínum vegum, sem veitt hefur félögum kennslu og fræðslu í hornablæstri með góðum ár- angri. Hér er tækifæri fyrir áhugamenn um lúðurþyt sem ekki hafa liaft tækifæri né að- stöðu til að koma sér upp hljóðfæri, til að fá umráð yfir hljóðfæri og leggja um leið fram sinn skerf tii þess að Lúðrasveit verkalýðsins verði voldug og sterk. Þessa dagana ætti að auk- ast skilningur manna á þætti verkalýðsins í athöfnum þjóð- félagsiiis. Á verkfallstímum kemur bezt í ljós hve máttvana borgarastéttin er, þrátt fyrir allt tal um einstaklingsfram- tak og hugvitssemi. Án verka- lýðsins — vinnuaflsins — lamast allt athafnalíf — hjól- in stöðvast — vélarnar þagna — framleiðslan hættir. Hvar er nú framleiðsla ,,framleiðslu- stéttanna“ sem svo nefna sig? Hún er engin því það eruð þið verkamenn sem eruð hinir eiginlegu framleiðendur. Vörur þær sem fylla verzlanir og vöruskemmur eru framleiddar af ykkur og stéttarbræðrum ykkar og systrum í viðskipta- löndum okkar. Hugsið um það næst þegar þið sjáið eða heyr- ið sagt frá samþykkt „fram- leiðenda" um þetta eða hitt. Þá eru það ekki hinir raun- verulegu framleiðendur, sem um er að ræða, heldur aðeins •handhafar fjármagnsins. Fjár- magnið er dautt og einskis megnugt fyrr en vinnan gefur því gildi. Það er vinnan og hugvitið sem skapar verðmæt- in. Fjármagnið er veldissproti sem deyjandi borgarastétt veifar og senn hefur glatað mætti sínum til töfra. PRÓFESSORINN OG HÁLSBINDIN. 1 deilum sínum við verkalýð- inn leitar borgarastéttin at- hvarfs hjá hagfræðingum og háskólaspekingum til að sanna verkalýðnum fræðilega að hann kollvarpi efnahagskerf- inu ef hann neytir þess sjálfur sem hann framleiðir. Einn sá hagfræðingur sem er hvað auðsigaðást af f járgæzlumönn um þjóðféiagsins er prófessor Ólafur OBjömson. Hann er æf- inlega reiðubúinn að sanna allt sem eignastéttinni hentar. Nýlega var það upplýst í sambandi við fjárþrotamál stórverzlunar hér í bæ að hún ætti 1 tonn af hálsbindum í fórum sínum. Prófessor Ólafi yrði sjálfsagt ekki skotaskuld úr því að sanna það, að efna- hagskerfi landsins sligaðist við það að kjör verkamanna gerðu þeim kleift að frelsa bindin frá lengri dvöl í þröng- um kjallarageymslúm. VALTÝR OG GIKTIN. Ólatasti skriffinnur eigna- manna — Valtýr Stefánsson ritstjóri birti nýlega viðtal við þekktan kaupsýslumann Pét- ur Þ. J. Gúnnarsson um verzl- unarhætti og kjör verzlunar- manna um s.l. aldamót. Vinnu- tíminn var frá kl. 8 á morgn- ana til kl. 10 á kvöldin. 14 klst. á dag. — Pétri farst svo orð um aðbúnaðinn: „Eri verstur var kuldinn í búðinni því þar var enginn ofn. Dyr voru á báðum stöf- um svo súgurinn stóð að jafnaði í gegnum bygginguna. .... Vegna kuldans hafði ég kuldapolla á öllum hnúum unz ég fékk mér vettlinga við af- greiðsluna, klippti framan af fingravettlingunum svo góm- arnir stóðu fram úr og varð ég glaður við þá umbót. Vætl- aði úr kuldapollunum á hnú- um mér, og Var ég látinn fá blásteinsvatn til þess að verja hendumar slæmsku af sótt- kveikjum.“ Meðan svo var háttað í Sturlubúð reistu þeir bræður sér tvö ramger stórhýsi við Laufásveginn. Það er óþarft að lýsa því hvaða áhrif verkalýðsbarátt- an hefur haft á styttingu vinnutímans og aðbúnað á vinnustöðum. Hverri tilraun vinnandi manna til kjarabar- áttu hefur Morgunblaðið svar- að með fjandskap. Alltaf er sama viðkvæðið. Atvinnuveg- irnir þola ekki styttri vinnu- tíma eða hærra kaupgjald. Sama hefði Valtýr sagt um aldamótin við Pétur Gunnars- son ef hann hefði rætt um stýttingu vinnutímans eða kuldapollana á hnúunum. Tveir minnisvarðar um þetta tímabil eru Sturluhallimar við Laufásveg og giktin sem Val- týr segir að þjái Pétur. Unga verzlunarfólkið sem fagnar „verzlunarfrelsi" í dag ætti að hugleiða að það vom karlarnir í „Báru“ og „Dagsbrún“ sem frelsuðu það frá kuldapollun- um og langa vinnudeginum með forystu í baráttunni, FRJÁLS ÞJÓÐ OG EGG Á LAUGARDAGSKVÖLDUM. Verkamenn 'eiga ekki að taka þátt í niðurlægjandi um- ræðum og bollaleggingum um það á hvaða hungurlús þeir geti skrimt. Jörðin geymir gnótt gæða handa öllum. Það sem vantar er hagkvæmt samfélagsform. Það er ömur- legt að sjá heiðarlega smá- borgara þrútna af hugar- reikningi og heimilismatseðl- um eyða tímanum við vanga- veltur um hvernig hanga megi á horriminni. Einn slíkur lífs- kjaravitringur birtir vikumat- seðil í Frjálsri þjóð s.l. laug- ardag. Þar kemur í liós að hjónum með 3 börn er ætlað að Framhald á 11. síðu. Kaup - Saia Regnfötin, sem spurt er um, eru fram- leidd aðeins í Vopna. Gúmmífatagerðin VOPNI, Aðalstræti 16. Munið kalda borðið að Röðli. — RöðuIL Nýbakaðar kökur með nýlöguðu kaffi. — Röðulsbar. Fyrst til okkar Húsgagnaverzlunin Þórsgötu 1 Munið Kaffisöluna Hafnarstræti 16. U tvarpsviðger ðir Radíó, Veltusundi 1. Sími 80300. Sendibílastöðin Þröstur h.f. Sími 81148 Sendibílastöðin h.f. Ingólfsstræti 11. — Sími 5113. Opið frá kl. 7.30-22.00. Helgi- daga frá kl. 9.00-20.00. Saumavélaviðgerðir Skrifstofuvélaviðgerðir S y 1 g j a. Laufásveg 19, sími 2658. Heimasími: 82035. 1395 Nýja sendibílastöðin Sími 1395 Lj ósmyndastof a rafmagnsmótorum og helmilistækjum. Raftækjavinnustofan Skinfaxl Klapparstíg 30. — Sími 6484. Ragnar ölafsson hæstaréttarlögmaður og lög- giltur endurskoðandi. Lög- fræðistörf, endurskoðun og fasteignasala, Vonarstræti 12, sími 5999 og 80065. •■••■■•■■■•■■•■■•■■■•■■•■■■■■■■■•■■•■•■■■■■••■■■■■■•■■■»■■■■■■■■•■■■■■■•■■•■■•■*•■■»■■ Þjóðvil jann vantar ungling til að bera blaðið til kaupenda í Skipasundi. ÞIÖÐVllIINN, sími7S00

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.