Þjóðviljinn - 17.04.1955, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 17.04.1955, Qupperneq 3
S) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 17. apríl 1955 ic 1 dafi- er sunnudagurinn 17. apríl. Anicetus. — 107. dagur árs- ins. — Tungl í hásuðrl kl. 9:09. Árdegisháflæði Id. 2:00. Síðdegis- háflæði kl. 14:33. Söfnin eru opin Bæjarbókasafnið Útíán virka daga kL 2-10 síðdegia ILaugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl 5-7. Lesstofan er opin virka daga ,kl. '10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar- caga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga kl. 2-7. N áttúrugripasaf nlð kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á þriðjudögum og fimmtudögum. Þjóðminjasafnið kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15 é þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Þjóðskjalasafnlð & vlrkum dögum kl. 10-12 og 14-19. Landsbókasafnið kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka daga nema laugardaga kl 10-12 cg 13-19. Genrrisskráning: Eaupgengl 1 sterllngspund 45,55 kr 1 Bandaríkjadollar .. 18,26 — 1 Kanadadollar 16,26 — 100 danskar krónur .... 235.60 — 100 norskar krónur .... 227,75 - 100 sænskar krónur .... 814,45 - 100 finnsk mörk ...... 1000 franskir frankar . - 46,48 — 100 belgískir frankar .. 32,65 — 100 svissneskir frankar 873,30 — 100 gyllini ........ 429,70 — 100 tékkneskar krónur 225,72 — 100 vestur-þýzk mörk .. 387.40 — 1000 lírur ........... 28.04 - Út er komið nýtt hefti af Úrvgli, sem flyt ur m. a.: Sið- gæði án trúar (tvö. gthyglis- verð útvarps- erindi, sem vöktu miklar deilur í Bretiandi), Gervihjartað er . orðinn veruleiki, Þúsundkrónaseðillinn (smásaga e. Kelvin Lindemann), Eitt af furðu- verkum heimsins á kvikmynd. Hugleiðingar um hamingju eigin- mannsins eftir Frans Bengtsson, Fæðuöflun úr sjó. Engillinn í Dien Bien Fu Hollráð sem reynzt hef- ur mér happadrýgst í lífinu, Mynd af heiminum í dag, Koddabókin (úr 1000 ára gamalli japanskri dagbók konu), Litla sveitakirkjan, Geta foreldrar ráðið kynferði barna sinna? Sextán fyrir borð, Blóðið segir til, Að þekkja sjálf- an sig er þyngri þrautin, og bók- in: Veturseta á Svalbarða eftir Ghristian Ritter. Xæturvarzla er í Reykjavíkurapóteki, simi 1760. EiTFJABÚÐIB Holts Apótek | Kvöldvarzla til | kl. 8 alla daga Apótek Austur- | nema laugar- bæjar daga til kl. 4. 9.30 Morgunútvarp J — Fréttir og tón- leikar. (10.10 Veð- urfr. (Léttstíg tón- list: a) Forleikur ?,5 óperunni Ástar- skó'inn eftir Mozart. b) Rondó í C-dúr op. 74 eftir Haydn. c) Tveir söngvar úr óperunni Brúðk'aup Fígárós eftir Mozart.' d) Partíta í D-dúr fyrir tvö óbó, tvö horn og fagott eftir Dittersdorf. e) Itaiskir mansöngvar fyrir þrjár söngraddir eftir Mozart. f) Sinfónía í C-dúr eftir Bizet. 11.00 Fermingarguðs- þjónusta í Dómkirkjunni. 12.15 Há- degisútvarp. 13.15 Erindi: Uppeld- ismál- og mannúðarmál (Gisli Jónsson alþingismaður). 15.00 Mið- degistónleikar: Þættir úr óperunni Brottnámið úr kvennabúrinu eftir Mozart — Rikisóperukórinn og Fílharmoníska hljómsveitin í Vín- arborg fiytja. Stjórnandi: J. Krips. Einsöngvarar: Lipp, Loose, Lud- wig, P. Klein og Koréh. —■ Guð- mundur Jónsson söngvari flytur skýringar. 16.15 Fréttaútvarp til Islendinga eriendis. 17.30 Barna- tími: Baldur Pálmason Gunnfriður Rögnvaldsdóttir segir frá sögu- legum lambarekstri. Bréf til barnatímans, tónleikar o. fl. 18.30 Tónleikar pl.: a) Tríó í aimoll fyrir píanó, fiðlu, og oelló eftir Ravel. (Rubinstein, Heifetz og Piatigorsky leika). b) Gérard Souz&y syngur lög eftir Fauré. c) Sköpun jarðar, hijómsveitar- verk eftir Milhaud (Columbia kammerhijómsveitin leikur; Leon- ard Bernstein stjórnar). 20.20 Upp- lestur: Kafli úr Húsi skáldsins eftir Halldór Kiljan Laxness (Þ. Ö. Stephensen). 20.40 Tónleikar: Petroushka, ballettmúsik eftir Stravinsky (Sinfóníuhljómsveit Lundúna leikur; Coates stjórnar). 21.15 Leikrit: Lausn heimsins eft- ir Áskel. — Leikstj. Ævar Kvar- an. Leikendur: Arndís Björnsdótt- ir, Hildur Kalman, Jón Aðils, Æ. Kvaran, Solveig Jóhannesdóttir og Andrés Indriðason. 22.05 Danslög — 01.00 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun: 13.15 Búnaðarþáttur: . Frá vett- vangi starfsins (Bjarni Arason héraðsráðunautur á Akureyri). 15.30 Miðdegisútvarp — 16,30 Veð- urfregnir. 18.00 Dönskukennsla; I. fl. — 18.30 Enskukennsla; II. I fl. 18.55 Skákþáttur (Guðmundur 1 Arnlaugsson). 19J.0 Þingfréttir. — 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Lög úr kvikmyndum. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpshljómsv.; Þórarinn Guð- mundsson stjórnar: Syrpa af vor- og sumarlögum; Karl O. Runólfs- son bjó í hljómsveitajgbúning. 20.50 Um daginn og veginn (Karl Krist- jánss). 21.10 Einsöngur: N. Gedda syngur pl. 21.40 Útvarpssagan: Jómfrú Barbara eftir Aino Kallas; (Sigurjón Guðjónsson). 0210 Is- ienzkt mál (Bjarni Vilhjálmsson cand. mag.). 22.25 Létt lög: Robert Farnon og hljómsveit leika, og Lys Assia syngur pl. 23.10 Dag- skrárlo'k. Séra L. Murdoch fiytur .erindi í Aðventkirkjunni i dag kl. 5 um efnið: Ef .maðurinn fæðist ekki af vatni og anda. Að erindinu lo'knu verður sýnd kvikmyndin: Hvern kjósið þér. dagur hófninní Prentarar Framhaldsaðalfundur .H.I.P. verð- ur í dag kl. 1.30 e.h. í félagsheim- ili prentara, Hverfisgötu 21. Dagskrá Alþingis mánudaginn 18. apríl 1955, klukk- an 1.30 miðdegis. Efri deild 1 Ríkisreikningurinn 1952. 2 Jarðræktar- og húsagerðar- samþykktir frv. 3 Kaup á Dísastöðum í Breiðdal. 4 Leigubifreiðar í kaupstöðum. Neðri deild 1 Ríkisborgararéttur 2 Fasteignamat. 3 Varnarsamningur milli fslands og Bandaríkjanna. 4 Húsnæðismál. 5 íbúðarhúsabyggingar í kaup- stöðum og kauptúnum. 6 Ibúðarhúsabyggingar i kaup- stöðum og kauptúnum. 7 Landnám, nýbyggðir og endur- byggingar i sveitum. 8 Ræktunarsjóður Islands. 9 Meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, .fiV. 10 Hegning&rlög, fiv. 11 Framleiðsluráð landbúnaðarins, o. fl. frv. 12 Síldarverksmiðjur ríkisins, frv. I dag sunnudag, er síðasti dagur mál- verkasýningar Braga Ápgeirssonar í Lista- niannaskálanum — '‘Sýningunni, sem frá upphafi hefur verið vel sótt verður lok- að kl. 11 í lcvöld — 1600 manns hafa séð sýninguna og yfir 30 myndir hafa selzt — — (Myndin hér að ofan nefnist Ungt stúlkuandlit). Islenzkir tónar í sænska útvarpinu Laugardaginn 23. apríl n.k. verða nokkrir þættir úr revýú-kabaretti Islenzkra tóna fluttir í sænska útvarpið. Hefst útvarpið kl. 8 eftir sænskum tíma. — Atriðin, sem flutt verða, eru: Glúntasöngur Ágústs Bjarnasonar og Jakobs Hafsteins, Per svinehyrde sungið af Kristni Hallssyni, If I' Give my Heart to You, sem Ingibjörg •Þorbergs og Tónasystur syngja og loks lagið Papa Loves Mambo, sungið af Jóhanni Möller ,og. Tóna- systrum. 1 dag verða gefin saman á hjónaband í Hallgrimskirkju kl. 2 e.h. ungfrú Málfríður Guð- Mundsdóttir, «Öð- insgötu 25 og Al- bert Sigurgeirsson, sjómaður frá Djúpavogi. Séra Ja.kob Jónsson gefur brúðhjónin saman. Krossgáta nr. 627 Lárétt: 1 töf 6 sérhljóðar 7 á opin- beru plaggi 8 karlmannsnafn 9 átt 11 gróðurreitur (forn rithátt- ur) 12 tveir eins 14 huldumann 15 ríkja. Lóðrétt: 1 hrap 2 farvegur 3 eins 4 nám 5 kyrrð 8 fonfeður 9 tóbak 10 dorma 12 skst 13 fyrir Krist 14 borðhald. Lausn á nr. 626 Lárétt: 2 skökk 7 já 9 Osol 10 Óli 12 KKO 13 níu 14 lón 16 rás 18. apar 21 garri. Lóðrétt: 1 þjóðlag 3 K.O. 4 ösk- ur 5 kok 6 klo^sar 8 ál 11 innar .15 ópa 17 áa 19 RR. Skipaútgerð ríkislns Esja fer frá Akureyri kl. 24 ann- að kvöld til Siglufjarðar og þaðan austur um land til Akureyrar. Eimskip Brúat'foss, Dettifoss, Fjallfoss, Goðafoss, Reykjafoss, Tröllafoss Tungufoss og Katia eru í Rvík. Gullfoss fór frá Leith 15. 4. til K- hafnar. Lagarfoss fer frá Ham- borg 16. þm til Rvíkur. Selfoss fór frá Leith 13. þm til Wismar. Drangajökull fer væntanlega frá NY. á morgun til Rvíkur. Skipadeild SÍS Hvassafell er í Rotterdam. Ai'nar- fell er ií Rvík. Dísarfell er á Ak- ureyri. Helgafell er í Hafnarfirði. Smeralda er í Hvalfirði. Granita fór frá Póllandi 7. þm áleiðis til ísiands. Símar feiini ngai skeyta Rítsimás'tjö'ífnn 'iS' fíéykjáVi'K’ riéh"- ur beðið blaðið að segja vinum og venzlafólki fermipgai'barna frá fermingarskeytum ritsímans — þeir eru 03 og 1020. SKÁKIX Hvítt: Botvinnink Svart:Smisloff 26, Be2—c4 Undil'býr b2—b?, ef svo ber undir, ojf bindur biskupinn á d6 um sinn vegna fráskákarinnar d5—-d6t. 27. . . . Hf8—46 Hér kom mjög til greina Dh3. Sá leikur hefði bundið hvít að nokkru leyti vegna peðsins á f3, svo að ekki er auðvelt að sjá, hvernig hann hefði komizt áleið- ABCDEFGH litli Kláus og stóri Kláus Ævintýri eftir H. C. ANDERSEN Teikningar eftir Helge Kuhn-Nielsen Bóndinn var svangur og át með ■ góðri lyst, en Kláus gat ekki annað en verið að hugsa um steikina ,góðu, fiskinn og kökuna, sem hann vissi, að stóð inni í ofninum. — P.okann með hrosshánni í hafði hann iátið undir borðið; hána hafði hann, svo sem fyrr. er á víkið, ætlað sér að selja 1 borglnni. Grauturinn gat alls ekki smakkazt -hon- um; steig hann þá á poka sinn og Skrjálaði yið það all- hátt í þurri hrosshánni. — Þei! þei‘ sagði litli Kláus við pokann sinn, en steig óðara :á hann aftur, svo að skt'jálaði enn hærra en áður. Sunnudagur 17. apríl 1955 — ÞJÖÐVILJINN — (3 Ríkisstjórnin ætlar að frainlengja kattaeftirgjafir til auðfélaganna s Eysteinn gugnar á skatfheimtunni þegar ríkustu félög landsins eiga í hlut Þrír. alþingismenn, Einar Olgeirsson, Gylfi Þ. Gíslason og Bergur Sigurbjörnsson deildu fast á ríkisstjórnina á fundi neðrideildar í fyrradag, er Eysteimi Jónsson lagði fram frumvarp um framlengingu „bráðabirgðaákvæða.<‘ skattalaganna frá í fyrra, sem m.a. gefa hlutafélögum stórfellda eftirgjöf á sköttum. Einar b.enti á, að yfirlýsing Eysteins um að ekki yrðu sett lög á þessu þingi um skatt- greiðslu félaga þýddi að stjórn- Bslenzkir loftskeytamenn Ijúka námi í siglingafrœði Voru á fjögurra mánaða námskeiði hér heima og í Bandaríkjunum Þrír loftskeytamenn, sem starfa hjá Flugfélagi fslands, þeir Rafn Sigurrínsson, Gunnar Skaftason og Júlíus Jóhannesson, hafa undanfarna fjóra mánuði stundað nám í siglingafræði, fyrst hér heima á námskeiðí, er Loftleiðir efndu til, og síðan í Bandaríkjunum um mánaðartíma. ÁVARP TIL BARNA, FOR- ELDRA OG KENNARA arflokkunum hefði ekki tekizt að semja um þetta atriði. Taldi Einar og einnig talsmenn Al- þýðufiokksins og Þjóðvarnar- flokksins það óhæf vinnubrögð. Stjórnarflokkarnir virðast ó- sammála um það hvernig eigi að skattleggja auðfélögin í Reykjavík, og ætla að iáta fram- lengja bráðabirgðaákvæðið um 20% eftirgjöf af skatti þeirra. En einmitt þar væri hægt að fá fé í rikissjóð, ef Eystein skyldi t. d. vanta eitthvað smávegis vegna fyrirhugaðrar kauphækk- unar opinberra starfsmanna, er verkfallsmenn hafa knúið fram kauphækkun. Minnti Einar á að upplýst hefur verið að 40 ríkustu félög og einstaklingar í Reykjavik ættu í kringum 1000 milijónir króna i í skuldlausri eign, og kæmu þar þó áreiðanlega ekki öll kurl til grafar. Á námskeiðinu, sem haldið var í Reykjavík, kenndi Þórar- inn Jónsson, siglingafræðingur, siglingafræði, Björn Jónsson, yfirflugumferðastjóri, lög og reglur um flug, Jónas Jakobs- son, veðurfræðingur, veðurfræði og Jón Sólmundsson, kennari, logarithma og hornafræði. Var lokið miklu lofsorði vestra á þá undirbúningskennslu Auðmannaklíka íhaldsins Framhald af 1. síðu. flokksins. Þarna birtast annars- vegar hótanirnar í garð hins vinnandi fólks og hins vegar rembingur og stærilæti þeirra manna sem peningarnir „loða við“ og eru af „forsjóninni sett- ir sem fjárhaldsmenn f jöldans". Það er þessi lífsskoðun sem hef- ur mótað og mótar afstöðuna til þjóðmálanna; það bregzt ekki að Sjálfstæðisflokkurinn snýst ævinlega við í samræmi við hana. ^ Öll þjóðin þarí að styðja verkfallsmenn. Þótt auðmannaklíkan í Reykjavík horfi ekki í það að sóa hundruðum milljóna fyrir þjóðinni veit hún þó eitt af sárri reynslu: allar slíkar tilraunir hefur verkalýðshreyfingin hrot- ið á bak aftur á undanförnum áratugum. Alþýðusamtökin á íslandi hafa aldrei verið sterk- ari en nú og þau hafa aldrei notið jafn almennrar samúðar og jafn vakandi skilnings hjá þjóðinni og í þessari deilu. En á því þarf líka að halda. Öll þjóðin, alþýðan til sjávar og sveita, þarf að sameinast gegn hinni óþjóðhollu auðmannaklíku og hrekja hana á flótta. Það þarf að margfalda virka aðstoð við þá á öllum sviðum. Það er auðmannaklíka. íhaldsins sem hefur stofnað til stórorustu, og barátta hennar er orðin örvænt- ingarfull, því að hún veit að úr- slitin munu valda miklum hreyt- ingum í íslenzku þjóðlífi. Öll þjóðin þarf að sameinast um að iþær breytingar verði sigur fyr- ír alþýðuna og ósigur fyrir auð- mannavald íhaldsins. sem loftskeytamennirnir is- lenzku höfðu notið hjá kennur- um sínum hér heima. Eins og áður segir var dval- izt við nám í Bandaríkjunum í einn mánuð og síðan gengið undir svonefnt C.A.A. próf í siglingafræði, sem er opinbert próf og fer fram á vegum flug- málastjórnar Bandaríkjanna. Auk loftskeytamannanna þriggja frá Flugfélagi íslands gengu 6 af starfsmönnum Loft- leiða undir prófið samtímis. Stóðust allir íslendingarnir 10 próf þetta með mestu prýði, og eru þeir fyrstu héðan, sem tek- ið hafa slíkt próf vestra. Námið tók þá fjóra mánuði sem fyrr segir, en undir venju- legum kringumstæðum er gert ráð fyrir að það taki allt að níu mánuði. Skömmu áður en Islend- ingarnir fóru í prófið höfðu 10' starfsmenn eins stærsta flugfé- lags Bandaríkjanna gengizt undir það, en aðeins fjórir þeirra stóðust prófið. 'Frá því um áramót hefur staðið yfir námskeið í loft- skeytafræði hjá Flugfélagi ís- lands og taka þátt í því sigl- ingafræðingar og flugmenn fé- lagsins. Jóhann Gíslason, loft- skeytamaður veitir námskeiðinu forstöðu. Þá má geta þess, að nokkrar af flugfreyjum Flugfé- lags íslands hafa að undanfömu sótt námskeið hjá S.A.S. í Kaupmannahöfn, þar sem kennt er ýmislegt, er við kemur þeirra starfi. Mun námskeið þetta standa yfir fram í næsta mánuð. Myndskreytt út- gáfa af Fjallkonu- kvæði Davíðs Komið er út í myndskreyttri útgáfu kvæði það, er Davíð skáld Stefánsson frá Fagra- skógi orti fyrir tíu ára afmæli lýðveldisins, og „fjallkonan'1 las á svölum Alþingishússins 17. júní s.l. Myndirnar hefur Ásgeir Júl- íusson teiknað, en prentun er leyst af hendi í Lithoprent og Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg. Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins hefur á hendi sölu kvæðísins. Austur í Japan er viðtæk hreyfing meðal uppeldisfræðinga um útgáfu alþjóðlegrar landa- fræði, er skráð sé af börnum hvers lands fyrir sig. Verkið á og að túlka daglegt líf og starfs- hætti þjóðarinnar, siði, atvinnu- hætti, leiki barna, landslagslýs- ingar o. s. frv. Einnig er lögð áherzla á að fá teikningar barna Aðalfundur Félags veggfóðrara Aðalfundur Félags veggfóðrara í Reykjavík, var haldinn 3. apríl síðastliðinn. Formaður flutti ýtarlega skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári. í stjórn voru kosnir, formaður SæmundUJ Ky, ..Jóns- son, varaformaður Hallgrímur Finnsson, ritari Halldór Ó. Stef- ánsson, gjaldkeri Einar Þorvarðs- Framhald á 9. síðu. Þjóðdansafélag Reykjavíkur sendir flokk á alþ jóðlegt þjóðdansamót Þjóðdansafélag Reykjavíkur hefur nú starfað í nokkur ár, og hefur þátttaka í námskeiðum þess farið æ vaxandi. í vetur var kennt í 9 flokkum og rúmlega 200 börn og hátt á annað hundrað fullorðnir sóttu æfingarnar. Sérstaklega voru vel sótt byrj- endanámskeið í gömlu dönsun- um. Æfingum barnaflokka lýkur síð- asta vetrardag og mun þá for- eldrum barnanna gefast kostur að horfa á. Kennarar í vetur hafa verið þær Sigríður Valgeirs- dóttir, Ester Kristinsdóttir og Hjördís Þórðardóttir. Sýningarflokkur félagsins hélt sýningu fyrir félaga og styrktar- meðlimi þann 30. marz s.l. í Skátaheimilinu fyrir fullu húsi. Var dönsunum tekið með ágæt- um. Sýndir voru 24 dansar í við- eigandi búningum frá 11 löndum. Félagið hyggst enn auka starf- semi sína næsta vetur eftir því, sem efni og aðstæður leyfa, enda er það áhugamál þess að auka þjóðdansa og glæða áhuga fyrir þeim. Þá má geta þess, að félaginu hafa borizt nokkur boð erlendis frá um að senda dansflokka. Þar á meðal á alþjóðlegt þjóðdansa og þjóðlagamót, sem haldið verð- vorur ur í Osló dagana 29. júní — 5. júlí næstk. Þessháttar mót var haldið í Frakklandi í fyrra, en þá varð ekki úr þátttöku Þjóð- dansafélagsins. Á annað merkilegt þjóðdansa- mót hyggst félagið einnig senda flokk, en það er til Neustadt í Þýzkalandi. Það mót stendur í 9 daga og verður í byrjun ágúst. Mót, sem þessi eru með meiri háttar viðburðum á viðkomandi stöðum, enda má segja að flestar þjóðir hafi þjóðdansa sína meira í hávegum en við íslendingar. Ekki er að efa, að góð land- kynning geti verið af því að senda flokk á slík mót, og mun félagið gera sitt bezta til þess að vel megi takast. Einnig er þetta tilvalið skemmtiferðalag fyrir þá sem fara og í ráði, að „Orlof“ efni til hópferðar með væntanlegum dansflokki. Hafi einhver hug á þátttöku í dansflokkinum, sem enn hefur ekki haft samband við stjórn- ina, ætti hann að gefa sig fram hið fyrsta, eða á aðalfundi fé- lagsins, sem haldinn verður bráðlega, og nánar verður aug- lýst um. og annan listiðnað, ljósmyndir af leikföngum og úr atvinnulífi þjóðanna, tónsmíðar barna o. fl. Japan hefur verið einangrað land um aldir, en nú þrá íbúar þess að gerast virkari meðlimir í samfélagi þjóðanna, kynnast þeim og kynna sig. Útgáfa umgetins verks væri merkileg tilraun til að færa þjóðir heimsins nær hver annarri og tengja þser böndum skilnings og vináttu. Aðilar þeir, sem að þessu verki standa í Japan, hafa hugsað sér að þetta verði 15 binda verk ca. 300 bl. hvert og fylli Norðurlönd- in eitt. Þeir hafa snúið sér til ís- lenzkra esperantista um aðstoð við útvegun efnis af íslands hálfu og þarf það allt að hafa borizt til Japan í júlí n.k. Væntanlega eiga íslenzk skóla- börn á aldrinum 8—16 ára? marga stíla og teikningar er þau hafa gert í skólum undanfarinn vetur og gæti verið nothæft framlag til þessa. Börn og að- standendur, bregðið vel og skjótt við og gerið hlut íslenzkra barna glæsilegan í þessari merku ný- ung. Þau börn, sem efni verður valið frá, munu fá viðurkenningu frá japönskum jafnöldrum. Hermann Lundholm, Hvera- gerði, og Ólafur S. Magnússon, Hamrahlíð 9, gefa nánari upplýs- ingar og veita efni viðtöku. Þjónusta Eimskips við fólkið úti ó landi bógborin Vörur til Vestmannaeyja fluttar til Reykja- víkur og kjótlað aftur í smábátum! Þjónusta Eimskipafélags íslands við fólkið úti á landi er líkust því þegar Reykvíkingar láta póstsenda áfengi héðan til Vestmannaeyja og flytja það aftur til Reykja- víkur með næsta pósti. Karl Guðjónsson benti á þessa staðreynd á fundi neðri deildar í fyrradag, þegar rætt var um frumvarp Ólafs Thórs um skatt- frelsi Eimskipafélags íslands. Minnti hann á, að Vestmanna- eyingar t. d. yrðu að horfa á hin glæstu skip Eimskipafélagsins sigla fram hjá Eyjunum, allar þangað væru fluttar til Reykjavíkur, og síðan yrði að kjótla þeim aftur til Vestmanna- eyja í smábátum. Af þessu leiddi dýrtíðaraukn- ingu, vegna stóraukins flutnings- kostnaðar. Taldi hann, að flutn- ingsþjónusta Eimskips við fólk úti á landi yrði að batna tii muna, ,ef félagið ætti að geta gert tilkall til þess að því væru veitt sérréttindi og undanþága frá land'slögum um skattgreiðsl- ur. ' Námskeið íiiii alþýðufræðslu á vegum UNESCO-nefnda þriggja Noiður- landa Dagana 5.—25. júní næstkomandi verður haldið nám- skeið á vegum UNESCO-nefnda Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Námskeiðið mun sérstaklega fjalla um alþýðu- íræöslu á Noröurlöndum. Fjórtán þjóðum er boöiö að senda þátttakendur, þrjá frá hverri þjóð. ii# k Námskeiðið mun verða með þeim hætti, að fyrst er fjögurra daga undirbúningsnámskeið & lýðháskóla Danmörku. Síðan verður þátttakendum skipt í þrjá hópa, Mun einn hópurinn ferðast um Danmörku, annar um Noreg og sá þriðji um Sviþjóð. Þessi ferðalög munu taka vikutíma, en að þeim loknum koma allir þátttakendur saman á lýðháskóla í Noregi og dveljast þar frá 16. —25. júní. íslendingum er boðið að senda 3 þátttakendur og verða þeir sjálfir að greiða fargjöld til Kaupmannahafnar og heim aftur frá Osló, ennfremur fargjöld frá Kaupmannahöfn til 'Noregs eða Svíþjóðar. Dvalarkostnað og önnur ferðalög í sambandi við námskeiðið greiða UNESCO- nefndir landanna þriggja. Frekari upplýsingar um nám- skeið þetta veitir menntamála- ráðuneytið, en umsóknir um þátt- töku verða að hafa borizt ráðu- neytinu fyrir 26. þ. m. í um- sóknum skal greina nafn, stöðu og menntun umsækjenda.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.