Þjóðviljinn - 17.04.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 17.04.1955, Blaðsíða 9
& ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRI. FRtMANN HELGASON Hafa húsbyggingamál íþróttafélaganna í Reykjavík þróazt í rétta átt? Af því sem áður hefur verið sagt verður dregið í efa, hvað Reykjavík snertir að þessi mál hafi verið rædd í heild þegar í upphafi. Það virðist sem þetta hafi aðeins verið mál hvers einstaks félags og framvindan' yrði ‘að ráðast, en um þetta átti IBR að hafa forustu og það kemur ábyggilega til þeirra kasta að leysa þetta mál fyrr eða síðar, þannig að ekki verði úr því sá hnútur sem skaðar starfsemina á bandalagssvæð- inu, þannig að of mikilli orku og fé verið eytt í byggingarn- ar sem svo stæðu ónotaðar. Hin síðari árin hefur mjög verið kvartað undan því að hús ÍBR við Hálogaland væri orð-| ið of lítið, vissar íþróttagreinar t gætu ekki þroskazt meira fyrr en stærra hús væri komið, sem sagt húsnæðisvandræðin stæðu í vegi fyrir eðlilegum vexti og viðgangi margra íþróttagreina. I Er þetta rétt og allir sammála um það. Við hér á Islandi bú-| um við langan kaldan, dimman og umhleypingasaman vetur. Þess vegna er víst að þróuniri verður sú að við verðum meira og meira að færa okkur inn riieð íþróttaæfingar bæði keppn- ina og undirbúningsþjálfun undir hið stutta sumar. Vegna þessarar erfiðu aðstöðu okkar hér sem aðrar þjóðir eiga ekki við að stríða, hljótum við að vanda sem völ er á til að- stöðunnar inni, og hyggja með tilliti til þeirrar þróunar sem hefur verið síðustu árin og ekkert bendir til að breytist eða stöðvist, síður en svo. Stefnan sem tekin er i því máli er sú að félögunum eru leyfðar Úrslit handknatt- leiksmótanna í kvöld byggingar á húsum sern eru ör- lítið stærri en húsið að Háloga- landi sem allir viðurkenna að sé of lítið eins og að framan hefur verið lýst. I þessum hús- um fara æfingarnar fram, þar venjast leikmenn að fram- kvæma iþróttina við þau skil- yrði, en koma svo í allt önnur til keppni. Að sjálfsögðu er það bót í máli að hafa stærra keppnishús, en framtiðin mun leiða i ljós að menn verði ekki ánægðir með þáð. Kunnugur maður hefur sagt þeim er þetta ritar að sænsk félög hafi fyrir nokkuð löngu tekið að býggja hús af þéirri stærð sém hér er gert nú. En þau lögðu það fljótt niður þar eð stærðin samrýmdist ekki þróuninni. Þeir tóku því að byggja stærri hús. Stjórn ÍBR er ekki þessarar skoðunar, hún hefur lýst yfir að hún líti svo á að ástæðu laust sé fyrir iþróttafélögin að byggja íþróttasvæði sem eru stærri en 5Q0 fermetrar eða um 32x15 m. Áætlanir og samstarf. Það virðist sem sú stefna hefði verið eðlilegri að ÍBR eða íþróttafulltrúi ríkisins með milligöngu ÍBR hefði haft svip- aðar vinnuaðferðir hér í Rvik og hafðar eru úti á landi og eru eðlilegar og sjálfsagðar, þ. e. að gerðar séu áætlanir um samstarf til að koma mann- virkjum upp, ennfremur stærð þeirra og gerð og fyrirkomulag. Það breytir engu hvort hér eru um að ræða 10-15 félög eða þó þau séu ekki nema 3-5. 1 þessum umræðum hefði stjórn IBR átt að beina áhrifum sín- um í þá átt að byggt yrði þó þannig að hægt væri að stækka húöin síðar. Ennfremur hefði átt að gera áætlun um þörfina eins og hún er í dag og áætla eftir því sem hægt er um næstu 1-2 áratugina. 1 slíkum um- ræðum er ekki útilokáð að til meira samstarfs hefði komið milli aðilanna, en nú er; en það er nú ekkert, því að hver otar sínum tota án samráðs við þá aðila sém eiga að sjá um heildar samræmingu þéss- ara mála. Því má skjóta hér inn sem dæmi um það að hér þarf á fleiri sviðum sarriræmingar við til þéss að sólunda ekki því fé sem í starfsemina er lagt. Það mun fullvíst að fjögur frjálsíþróttafélög séu búin eða undirbúi að byggja sér sína hlaupabrautina hvert og full- Framhald á 10. síðu. Sundmeistara- móti íslands Sundmeistarámót Islands verður háð í SundhöHinni ann- að kvöld og þriðjudagskvöld og liefst kl. 8.30 hvort kvöldið. Keppt verður í þessum grein- um: Karlar: 100, 400 og 1500 m skriðsund, 200 og 400 m bringusund, 100 m baksund, 100 m flugsund og 4x200 m skriðsund (boðsund). Konur: 100 m skriðsund, 200 m bringu- sund og 100 m baksund. Auk þess verður keppt í nokkrum unglingagreinuria. Mikil þátttaka er í mótinu og keppa þar allir beztu súndmenn Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Keflavíkur og Akrariess. íslandsmeistarar í badminton I kvöld er síðasti keppnisdag- ur handknattleiksmótanna. Eru þegar komin úrslit í sumum flokkanria, t.d. í I. fl. karla, þar sém FH hefur borið sigur úr býtum. Eins er KR búið að tryggja sér sigur í meistara- flokki kvénna. I kvöld keppa Fram:lR í III. fl. og er það úr- slitaleikur. IR hefur sýnt góð- an leik í þessum flokki og Fram raunár líka. I II. fl. kvenna keppa Ármann A og KR. I meistarafl. kvenna eru tveir leikir: Fram:FH og Val- ur:Þróttur. Er leikur Þróttar og Vals baráttan um neðstu sætin. I öðrum flokki fóru leikar svo að KR og Valur unnu hvorit sinn riðil og eru þar því hrein úrslit. Bæði liðin eru sterk og má búast við harð- skeyttum leik og snörpum. — Munu verðlaun verða afhent éftir leikina og framkvæmir forseti ÍSÍ það. Frá vinstri: Einar Jónsson, Ragna Hansen, Ebba Lárus- dóttir, Ellen Mogensen og Wagner Valbom. — Ljósm. Rafn Viggósson. ----- Sunnudagur 17. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Gunnar M. Magnúss: j Börnin frá Víðigerði tækifærið. Nú skal ég fara alveg upp að fánan- um.“ „Eg kalla á pabba“, sögðu sum börnin. Þau voru orðin dauðhrædd um að Stjáni kæmist í klípu fyrir þetta eða hann myndi hrapa niður á þilfar eða detta í sjóinn. ,,Hægan, hægan“, sagði Stjáni um leið og hann stökk upp á borðstokkinn og greip í reiðann og byrjaðj að feta sig upp. „Stjáni, Stjáni“, heyrðist í krökkunum, sem þjöppuðu sér saman af hræðslu. Stjáni nam staðar, hvíldi sig og kallaði til þeirra, glottandi: „Það er ykkur að kenna ef illa fer. Þið hafið aldrei trúað mér. Kannske að þið viljið heldur, að ég standi á höfði hérna úti á borðstokknum”. „Nei, nei, komdu bara“, kölluðu krakkarnir. „Eg get það alveg eins vel. Eg hefi staðið á höfðinu á þóttu í smábát á hraðsiglingu.“ Stjáni hélt áfram. Krakkarnir urðu hræddari og hræddari „Gerðu það, Stjáni, komdu. Gerðu það, Stjáni“, sögðu þau einum rómi. En Stjáni veifaði til þeirra hendinni, sleppti öðrum fætinum og réri til í reiðanum. Krakkarnir ætluðu að kikna í hnjáliðunum. Svo hélt^ Stjáni áfram, hægt og hægí og smá kallandi til krakkanna:' „Viljið þið þá trúa á mig eða viljið þið ekki "', Börnin voru nú hætt að anza, en litu með skelf- ingu til Stjána, hissa yfir þessari fífldirfsku hans. „Hann hefur nú gert þetta áður,“ sagði »itt- hvert barnið, „ég hugsa, að öllu sé óhætt“. „En hvað heldurðu, að Englendingarpir segí, ef þeir sjá hann“, sagði annað. Nú var Stjáni kominn upp í efsta þrep reiðans og nam staðar. Svo hóaði hann til krakkanna, tii þess að vekja eftirtekt á sér, síðan smeygði hann sér undir stögin og set'ti fæturna yfir efsta þrepið og steppti svo handtökunum, en hékk á hnésbót- unum einum með höfuðið niður. Krakkarnir lögð- ust niður af hræðslu. * Samþykkir belg- íska þingið baim viðhnelaleikum? I febrúarmánuði sl. lagði eirin af þingmönnum Kristilega jafnaðarmannaflokksins í Belg- iu fram tillögu þess efnis að hnefaleikar yrðu bannaðir með lögum þar í laridi. Laganefnd þingsins leggur einróma til að tillagan verði samþykkt. 1 til- lögu þessari er m.a. gert ráð fyrir að hver sá sem efni til hnefaleikamóta fái fangelsis- dóm og gildir það einnig fyrir þá sern þátt taka í slíku móti. I tillögunni er einnig ákvæði um bann á frjálsum fangbrögð- um. Svar skipaskoðunarstjóra Framhald af 4. siðu. gerð bátsins framkvæmda meðan á verkfallinu stendur. Áð lokum er spurt, hvort rétt sé að annar stýrimaður á Þyrli sé sonur formanns Slysavarnafélags Islands. Ekki er mér kunnugt um ætterni annars stýrimanns, enda mun það tæpast heyra undir slcipáskoðunarstjóra að svara þeirri fyrirspurn. Með þökk fyrir birtinguna. Skipaskoðunar st jó ri. Aðalfundur Félags veggfóðrara Framhald af 3. síðu. son, meðstjórnandi Friðrik S:g- urðsson. Varastjórn: Jens Vig- fússon og Gunnlaugur Jónsson. Endurskoðendur Sveinbjörn Kr. Stefánsson og Guðmundur Krist- jánsson. Ólafur Guðmundsson sem ver- ið hefur formaður félagsins síð- astliðin 9 ár baðst eindregið undan endurkosningu, og þökk- uðu fundarmenn honum vel unn- in störf í þágu félagsins á liðn- um árum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.