Þjóðviljinn - 20.04.1955, Side 9
Miðvikudagur 20. apríl 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
V
k ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI. FRlMANN HELGASON
r
Skíðamót Islands
Eins og áður hefur verið frá
skýrt fór Skíðamót Islands
f ram á Akureyri um páskana.
íþróttasíðan hefur hitt að
máli reykvíska skíðamenn og
láta þeir mjög vel yfir móti
þessu. Hjálpaðist þar að gott
veður og góð stjórn á mótinu.
— Þingeyingar sýndu enn sem
svo oft áður að þeir hafa yfir-
burði í göngunni. Kemur það
bezt fram í boðgöngunni, þar
sem þeir áttu bæði fyrstu og
aðra sveit í kepphihn^'” eífiP
fremur í 15 km göngunni, þar
sem þeir áttu 5 af 6 fyrstu
mönnum. Það var Oddur Pét-
ursson frá Isafirði sem var í
öðru sæti. Jón Kristjánsson
varð 3 mín. á undan Oddi í
mark.
30 km gangan varð jafnari
milli þeirra. Þar sigraði Oddur
Pétursson frá ísafirði, síðan
kom Þingeyingur, þá Ísfirðingur
og gekk svo til skiptis, þar til
allir 7 sem luku keppni voru
komnir í mark. Hinsvegar var
það almæli að Þingeyingar hafi
verið óheppnir með skíðaáburð
en Isfirðingar ekki. Þingeying-
ar áttu líka fyrsta mann í göngu
drengja 17-19 ára.
CíKSLIT
15. km. ganga
Jón Kristjánsson Þ. 66,06 mín.
Oddur Pétursson í. 69,05 mín.
Matthías Kristjánsson Þ 70.55
min.
Helgi V. Helgason Þ. 71,38 mín.
Getrannaspá
Arsenal-Manch. Utd 1 (x)
Burnley-Sunderland 1 (2)
Cardiff-Portsmouth 2
Chelsea-Sheff.Wedn 1
Everton-Charlton 1
Leicester-Tottenham x
Manch.City-Blackpool 1
Newcastle-Bolton 1
Preston-Aston Villa (1) x
Sheff. Utd-Wolves (x) 2
W.B.A.-Huddersfield 1
Líncoln-Derby 1 (2)
Kerfi 32 raðir.
Enska deildakeppnin
I. deild:
Chelsea 40 19 12 9 77-55 50
Wolves 39 18 10 11 85-62 46
Portsmouth 38 17 10 11 74-53 44
Manch.City 39 17 10 12 79-61 44
Sunderiand 40 13 18 9 60-54 44
Manch.Utd 38 18 6 14 78-68 42
Arsenal 39 17 8 14 65-57 42
Burnley 40 16 9 15 49-47 41
Everton 38 16 8 14 58-60 40
Aston Villa 38 17 6 15 64-71 40
Charlton 38 15 8 15 72-67 38
W. B. A. 39 15 8 16 73-88 38
Huddersfield 38 12 13 13 57-64 37
Preston 39 15 7 17 76-60 37
Newcastle 36 15 6 15 f9-75 36
Bolton 38 12 12 14 61-64 36
Sheff. Utd. 38 15 6 17 61-80 36
Blackpool 39 13 9 17 52-60 35
Tottenham 38 13 '8 17 66-68 34
Cardiff 38 12 10 16 58-68 34
Leicester 38 10 10 18 65-81 30
Sheff.Wedn. 39 9 6 24 64-83 24
II. deild:
Blackburn 40 22 5 13 113-76 49
Leeds Utd. 40 21 7 12 65-53 49
Ipswioh 38 10 4 24 52-88 24
Derby County 40 6 0 25 50-79 21
30 km ganga
Oddur Pétursson I. 2.06,44
Helgi V. Helgason Þ. 2.08,31
Gunnar Pétursson í. 2.10,00
Jón Kristjánsson Þ. 2.10,55
Eysteinn Þórðarson
4X10 km boðganga
A-sveit Þingeyinga 2.34,20
B-sveit Þingeyinga 2.42,58
Sveit Isfirðinga 2.46,21
Beztu tíma náði ívar
Stefánsson 36,39 mín, Jón
Kristjánsson varð annar og náði
beztum tíma í fyrri umferð. Þess
má líka geta að Jón Kristjánss.
hefur sigrað í 15 km göngu á 5
landsmótum, og hlotið mjög svo
eftirsóttan grip: „Skíðabikar Is-
lands“. Guðmundur Guðmunds- i
son Akureyri hefur einnig unn-
ið hann 5 sinnum í röð.
Alpagreinarnar
■
Svigkeppnin var mjög!
skemmtileg og í karlaflokkum
mjög tvísýn og jöfn.
Eysteinn Þórðarson varð þar
lilutskarpastur og sýhdi mikið
öryggi, svo hvergi skeikaði. Hef-
ur Eysteinn sýnt alveg sérstak-
lega góðan árangur í vetur í öll-
um mótum sem hann hefur tek-
ið þátt í. Haukur 0. Sigurðsson,
Stefán Kristjánsson og Ásgeir
Eyjólfsson sem voru næstir í
röðinni duttu, og Stefán varð að
hlaupa til baka.
Einar Valur Kristjánsson frá
ísafirði rann mjög örugglega.
Brautin var 650 m með um
211 m falli. Var hún yfirleitt vel
lögð, þótt segja megi að hún
væri full ,,opin“ og gæfi ekki
keppendum fullkomlega tæki-
færi til að sýna leikni sína.
í kvennaflokknum var Jak-
obína Jakobsdóttir í sérflokki.
Leikni hennar og mýkt er sér-
stæð. Brunið vann hún líka með
miklum yfirburðum og stórsvig-
ið en þar munaði ekki miklu á
henni og Mörtu Guðmundsdótt-
ur Is. Þær Marta og Arnheiður
Árnadóttir sýndu mikla leikni.
Stórsvigið vann Eysteinn
Þórðarson og var 3,5 ' selc á
undan næsta manni.
I bruni karla varð Haukur Ó.
Sigurðsson fyrstur og tryggði
sér einnig sigur í tvíkeppni á
alpagreinunum, en þar varð
Stefán Kristjánsson annar, og
Eysteinn þriðji. Eins og árang-
ur í hinum ýmsu keppnisgrein-
um ber með sér er munur ekki
mikill á efstu mönnum og oft-
ast nær sömu menn sem eru
6-8 efstu sætum. I alpagreinum
eru það ísfirðingar og Reykvík-
ingar sem hafa jafnbezta menn
þótt góðir einstaklingar séu
bæði á Siglufirði og Akureyri.
ísfirðingarnir bera það með sér
að þeir eru í betri æfingu, eru
öruggari í brautum en Reykvík-
ingar ráða yfir meiri leikni.
CBS LIT
Svig kvenna
Jakobína Jakobsdóttir I. 66.7
Marta B. Guðmundsd. I. 68.4
Arhheiður Árnadóttir R. 70.3
Karolína Guðmundsd. R. 78.4
Brun kvenna
Jakobína Jakobsdóttir I. 61.9
Arnheiður Árnadóttir A 67.2
Marta Guðmundsd. I. 68.7
(Sama röð í alpatvíkeppni).
Svig karla
Eysteinn Þórðarson R. 1.24,8
Haukur Ó. Sigurðsson I. 1.28,8
Stefán Kristjánsson R 1.33.1
Ásgeir Eyjólfsson R 1.35,1
Stórsvig Karla
Eysteinn Þórðarson R 68.6
Magnús Guðmundsson R 72.1
Steinþór Jakobsson I. 72,8
Hjálmar Stefánsson S. 74.7
Jakobína Jakobsdóttir
Brun karla
Haukur Ó. Sigurðsson I. 1.29,7
Stefán Kristjánsson R. 1.30,3
Steinþór Jakobsson I. 1.31,3
Ásgeir Eyjólfsson R 1.35,4
Alpatvíkeppnin
Haukur Ó. Sigurðsson I. 2,3 st.
Stefán Kristjánsson R 4,66 st.
Eysteinn Þórðarson R 7,46 st.
Ásgeir Eyjólfsson R 11,44 st.
Gunnar M. Magnúss: j
Börnm frá Víðigerði
ir þiljur. Farangrinum hafði ægt saman um allf
þilfarið og karlmennirnir unnið af kappi, sveitt-
ir og þreyttir við að koma sínu á góðan stað.
Og kvenfólkið hafði verið uppi á þilfarinu með-
an vært var. Krakkarnir vildu norpa og norpa
fram í rauðan dauðann, þó að sólarlag væri kom-
ið og svalur kaldinn af hafinu léki um skipið.
Þau höfðu margt að athuga. Þarna var fólk saman
komið að norðan, austan, sunnan og vestan og
voru allir með hóp af krökkum með trefla, prjón-
húfur, íslenzka skó, græna og hvítbrydda, og
belgvettlinga með tveimur þumlum og röndum á.
Fólkið leit hvert á annað eins og jafningja
sína, því að þetta var flest fátækt fólk, sem aldrei
hafði átt marga peninga í einu og var í svip-
uðum sparifötum. Sumir voru reyndar í hvers-
dagsfötunum sínum og sögðust’ekki vilja krumpa
og útskíta sparifötin á þessari sjóferð. Það væri
þokkalegra, að hafa einhverja flík hreina, ’til
þess að fara í til kirkju í Ameríku eða á önnur
mannamót, og til þess að verða ekki þjóð sinni
til skammar í sólskininu á götunum í stóru borg-
unum.
En það voru ekki allir, sem hugsuðu svona
langt fram í tímann.
Og margir höfðu kámað og óhreinkað fötin
sín, slitið af sér tölur eða rifið út úr hnappa-
götunum af því að bisa og bjástra við allt skranið.
Það er erfitt fyrir húsbændurna að sjá um
svona ferðalag. Og það er ekki léttara fyrir kon-
urnar með krakkahópinn kringum sig. Því að
þessi fátæku börn, sem nú eru að flytja úr
kaldanum á íslandi, eru mörg föl og kuldaleg og
kirtlaveik. En þau þrjózkast samt við að fara
undir þiljur og verða ennþá fölari með kvöldinu.
Þau eru orðin úrvinda af syfju og sum eru búin
að fá nasakvef.
Meimingartengsl íslands og
Ráðstjórnarríkjanna
i
heldur fund í Gamla bíó kl. 9 n.k. föstudagskvöld í
tilefni af 85 ára afmæli Leníns.
Dagskrá:
1. Þórbergur Þórðarson ritli. flytur ávarp.
2. Brynjólfur Bjarnason alþm. flytur erindi.
3. Ógleymanlega árið 1919 (ný kvikm. í agfalitum)
Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu MlR Þing-
holtsstræti 27 kl. 5—7 föstudag og við innganginn,
ef eitthvað verður óselt.
Stjórn MÍR
Matvöruverzlun |
á góöum staö óskast til kaups.
Má gjarnan vera í úthverfi bæjarins.
Tilboö merkt „Sk. L.“ sendist í pósthólf 361
fyrir 27. þ.m.
i i
....................■■■■■....