Þjóðviljinn - 12.05.1955, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 12.05.1955, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVIUINN — Fimmtudagur 12. maí 1955 Ræða Einars Olgeirssonar Framhald af 7. síðu. tæki til Þess að skipta bráðinni og á stjórnar- flokkana sem tæki til þess að ná ríkisvaldinu, og þeir sættast venjulega á að skipta bráð- inni til helminga milli hræfugla sinna. Olían, semen’Jið og fleira, öllu er því skipt til helm- inga milli gróðafélaga Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar, til þess að féfletta alþýðuna og at- vinnulífið. Smáíbúðalánin áður, og húsnæðis- lánin nýju nú, lenda í helmingastaðaskiptum þessarar skipulögðu spillingar stjórnarflokk- anna, og þessir flokkar hika heldur ekki við að ræna eignum ríkisins til að svala gróða- þorsta sínum. Veturinn 1952—’53 ætluðu þessir stjómarflokkar samkvæmt ráðleggingum ameríska alþjóðabankans að láta selja einkaaðiljum öll hlutabréf ríkisins í stærsta fyrirtæki þjóðarinnar, áburðarverksmiðjunni, en þau eru sex millj. kr. að nafnverði, og með því átti að gefa skjólstæðingum þeirra þetta mikla fyr- irtæki, sem kostar 130 millj. kr. Sósíalistaflokkurinn kom upp um þetta þá, og það var hætt við það í svip- inn. Þing eftir þing hefur Sósíalistaflokkurinn flutt frumvarp um að tryggja ríkinu sinn fulla eignarrétt á áburðarverksmiðjunni, sem það lögum samkvæmt á, en stjórnarflokkamir svæfa það í sífellu, af því að þeir eru að reyna að ræna þessu fyrirtæki úr eigu ríkisins í eigu hlutafélags, þar sem þeir eiga fultrúa eftir helmingaskiptareglunni. Þannig er ekkert óhult fyrir yfirgangi þessara hrægamma. Það er aðeins, ef þeir rekast á eitthvað, sem hinn aðilinn hefur söls- að undir sig, að illa gengur að ræna rikið. T. . þeg- ar Sjálfstæðisflokkurinn heimtar helmingaskipti um Skipaútgerð ríkisins, þá er komið við kaunin hjá Framsókn. Þess vegna hefur Sklpaútgerðinni ekki verið skipt upp enn. Og þegar þannig lendir í rifildi um bráðina, þá kemur jafnvel fyrir að Framsókn heimti helmingastaðaskipti um saltfiskssöluna, en það þýðir ekkert, því að þá er komið við kvikuna í Sjálf- stæðisflokknum. Manngildi og peningagildi Sú .auðstétt, sem lætur þannig greipar sópa um tekjur verkamannsins og eigur ríkisins, hyggst að grundvalla yfirráð sín til frambúðar með því að breyta manngildi íslenzkra kjósenda í peningagildi. Þess vegna hefur hún nú með Sjálfstæðisflokkinn sem tæki hafið skipulagða skoðanakúgun og sannfær- ingarsölu um land allt, reynt að koma þeirri hug- mynd inn hjá íslendingum að enginn maður nái rétti sínum nema ganga í Sjálfstæðisflokkinn. Þess vegna er erindrekum stjórnarflokkanna falin úthlutun í- búðalánanna, ekki bönkunum. Þess vegna er inn- tökubeiðnum í Sjálfstæðisflokkinn safnað um leið og umsóknum um Bústaðavegshúsin er veitt móttaka. Þess vegna er nú með ærnum kostnaði og manna- haldi skipulagt af Sjálfstæðisflokknum að reyna að kaupa upp sex til sjö kjördæmi í landinu, svo að Sjálfstæðisflokkurinn megi þannig einn öðlast meiri hluta á Alþingi. Þetta heldur flokkur, sem kallar sig Sjálfstæðis- flokk, að sé leiðin til þess að vinna jil íylgif_við sig þjóð Auðar Vésteinsdóttur og Ingjalds frá Her- gilsey. Svona amerískur er skilningur hans á skoð- ana- og persónufrelsi orðinn. Það er nú vegið að lýðræðinu í landinu með öll- um ráðum auðstéttarinar. í Kópavogi er lýðræðislega og löglega kosin hreppsnefnd sett frá með lögum, sem pískuð eru fram á Alþingi undir því yfirskyni að gera Kópavog að kaupstað, bara af því að Sjálf- stæðisflokknum líkar ekki meiri hluti hreppsnefnd- arinnar. Forsætisráðherrann lýsir yfir því á Alþingi að undirskriftir, opinber atkvæðagreiðsla, sýni rétt- ar vilja kjósenda en leynileg, og síðan er reynt að hræða Kópavogsbúa frá þátttöku í leynilegri at- kvæðagreiðslu. Og svo er nú Kópavogsbúum hrundið út í sjöttu kosningarnar á 8 árum, allt til þess að reyna að fella frá völdum þá framfarastjórn und- ir forustu Finnboga Rúts Valdimarssonar, sem unnið hefur stórvirki þar syðra. En Kópavogsbúar hafa sýnt það í atkvæðagreiðslunni 24. apríl, að þeir láta ekki auðstétt Reykjavíkur og útsendara hennar hræða sig, og þeir munu sýna það enn í bæjarstjórnarkosn- ingunum næst. Svo hatrammur er orðinn yfirgangur Sjálfstæð- isflokksins eftir að hann tók að læra af ameríska auðvaldinu, að jafnvel blindir fá sýn. Framsóknar- flokkurinn hefur nú tíu ára reynslu af samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn um að vernda lýðræðíð, og 2. október s.l. kveður Tíminn upp eftirfarandi dóm, orðrétt, að fenginni þessari reynslu: „Það eru braskarar, sem ráða Sjálfstæðis- flokknum, og þeir mundu noía valdaaðstöðuna án minnstu miskunnar og tillitssemi. íhaldið myndi vissulega misbeita þannig valdinu, ef það fengi það einsamalt, að eftir það yrði ekki til lýðræði á íslandi nema að nafninu tiL, og ekki myndi horft í að þyggja erlenda aðstoð, ef völdin yrðu ekki tryggð með öðrum hætti." Þetta eru orð Tímans um það „alræði braskar- anna,“ en svo heitir þessi ritstjómargrein, — sem bíður vor íslendinga, ef svo er haldið áfram, sem nú er stefnt. Það er verið að undirbúa þetta alræði braskaranna með allri þeirri pólitík, sém rekin hef- ur verið síðustu sjö árin og Framsókn hefur tekið þátt í. Það eru því siðustu forvöð að alþýða íslands faki í taumana, og það er það sem alþýða íslands nú er að gera. Þakjárn Almenna byggingalélagið H.F. Borgartúni 7 — Sími 7490 •■■•■■■■•••••■■■•■■■■■•■•■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■•■■r .■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Uppboð Samkvæmt kröfu Ragnars Jónssonar hrl., og að undangengnu fjárnámi í dag, verða bifreiðarnar R-581 og R-2141 seldar á opinberu uppboði, sem fram fer við smurningsstöðina Sunnu s.f., Kópa- vogshálsi, laugardaginn 21. maí n.k. kl. 10 f.h. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu m\ 11. maí 1955. KRISTINN ÓLAFSSON, fidltrúi. Ferðatöskur Verð frá kr. 120,00. Toledo Fischersundi. Kóreustriðið Framhald af 5. siðu. verulegt stríð. Við höfum varið 172 milljörðum dollara til land- varna okkar undanfarin 5V>> ár og önnur Atlanzbandalagslönd hafa varið 35 milljörðum doll- ara til sinna landvarna á sama tíma. «■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■••■■■■■1 ■ s ■ : verður háldið hjá áhaldahúsi bæjarins við Skúlatún, | föstudaginn 20. maí n.k. kl. 1.30 e.h. og verða seldar eft- | irtaldar bifreiðar eftir kröfu bæjargjaldkerans í Reykja- : vík, tollstjórans í Reykjavík o.fl.: m | R-38, R-187, R-224, R-348, R-366, R-392, R-433. R-542, : R-613, R-630, R-912, R-1095, R-1251, R-1303, R-1577, | . R-1665, R-1722, R-1765, R-1780, R-1918, R-1987, R-2033, [ R-2126, R-2187, R-2299, R-2354, R-2358, R-2380. R-2475, | R-2624, R-2706, R-2834, R-2924, R-2937, R-2979. R-3095, | R-3353, R-3540, R-3555, R-3628, R-3695, R-3732, R-3764, [ R-3835, R-3898, R-4015, R-4'124, R-4174, R-4181. R-4216, { R-4418, R-4466, R-4507, R-4533, R-4537, R-4643, R-4676, 1 R-4690, R-4693, R-4704, R-4766, R-4880, R-4970, R-5922, ! R-5095, R-5212, R-5232, R-5260, R-5283, R-5299, R-5320, | R-5321, R-5333, R-5377, R-5404, R-5420, R-5548, R-5575, R-5703, R-5791, R-5835, R-5904, R-5972, R-5983, R-6053, R-6113, R-6216, R-6250, R-6287, R-6362, R-6416. R-6436, R-6456, R-6470, R-6516, R-6671, R-6711, R-6730. G-117, G-227, G-255, G-518 og D-20. Greiðsla fari fram við hamarshögg 1 . . ; ' ■ _.... ....... Borgarfógetinn í Reykjavík NAUÐUNGARUPPBOl Utanlandsferðir Ferðaskrif stof u ríkisins Ferðaskrifstofan hefur margra ára reynslu að baki við skipulagningu ódýrra og hag kvœmra orlofsferða. VOR OG SUMAR býður hún upp á eftirgreindar ferðir. 2 meginlandsferðir (30 dagar) Frakkland Italía Sviss Þýzkaland Danmörk Skotland Lagt af stað 1. júní. Verð frá kr. 7.500,00. L0ND0N—PAHtS 2 Noiðailandaierðii (23-26 dagar) Danmörk Svíþjóð Noregur Faéreyjar ★ Fyrri ferðin 1. júní. Seinni ferðin tl. júní. Verð frá kr. 5.500,00. 14 daga ferðir til ofangreindra borga og allt það markverðasta skoðað og ferðast um nágrenni þeirra, til Oxford, Stratford on Avon, Versala o. fl. Fyrsta ferð 30. júní. — Verð frá kr. 4.850. <S>------------------------------1----------------------------:----------------------------------------;—<S> Ferðast með M.s. Gullfoss — Gullfaxa, M.s. Heklu og íslenzkura nýtízku langferðabíl — Gjörið svo vel og koraið eða hringið og kynnið yður áætfanir og fyrirkomulag

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.