Þjóðviljinn - 12.05.1955, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 12.05.1955, Blaðsíða 12
fvopnunartillaga Sovétrikjanna engur langt til móts viS Vesturveldin Stóru skrefi i somkomuiogsott fognoS \ London, A-hondologshershöfÓingi œfur í gær voru birtar í Moskva nýjar tillögur um allsherjar afvopnun, sem fulltnii Sovétríkjanna lagði fram í fyrra- dag í afvopnunarnefnd SÞ. í þeim tillögmn er lagt til að herafli allra ríkja veröi ákveöinn meö samningum og að kjarnorkuvopnum og öör- um múgdrápsvopnum verði úti'ýmt. ___ r gildi bana við kjarnorkuvopn- um og öðrum múgdrápsvopn- Jakob Malik, sendiherra Sovét- ríkjanna í London ög fulltrúi þeirra í afvopnunarnefndinni, lagði tillögurnar fram. Herafli stórveldanna . Sovétríkin leggja til að á næstu tveim árum verði mönnum und- ir vopnum í Bandaríkjunum, Kína og Sovétríkjunum fækkað niður i eina til eina og hólfa milljón og í. Bretlandi og Frakk- landi niður í 650.000. Hlutfallsleg fækkun verði gerð í herafla annarra ríkja. Gert er ráð fyrir að hálf fækk- unin fari fram á hvoru ári og al- þjóðleg eftirlitsstofnun sem SÞ setji á stofn fylgist með fram- kvæmd hennar. Á miðju ári 1957, þegar fækkunin í herjunum hefur verið framkvæmd, að þrem fjórðu hlutum, gangi svo í um. Allar kjarnorku- og vetn- issprengjur verði eyðilagðar og eftirlit haft með að fram- leiðsla þeirra sé ekki hafin á ný. Sovétstjórnin leggur til að þangað til bannið við kjarnorku- vopnum gengur í gildi verði öll- um tilraunum með slík vopn hætt og ríkin skuldbindi sig til að beita ekki kjamorkuvopnum nema Öryggisráð SÞ álykti að árás hafi verið framin. Engin erlend herseta Einnig gerir sovétstjórnin það að tillögu sinni, að alþjóðleg ráð- stefna verði kölluð saman til þess að ganga endanlega frá af- vopnunarsamningi. Þar verði meðal annars um það samið að ekkert riki megi Fræp þýzkur kór heldur hljómleika í Reykjavi í lok næstu viku I kómum eru 44 söngvarar en söngstjóri er Paul Nitsche, sem kom hingað s.L hausf Á fimmtudaginn í næstu viku er einn bezti kór Þýzka- lands væntanlegur hingaö til lands með m.s. Gullfossi. Mun kórinn dveljast 1 rúma viku í Reykjavík og halda a.m.k. þrenna tónleika auk tónleika fyrir nemendur fram- haldsskóla bæjarins. hafa hersetu í landi annars og að allar herstöðvar sem komið hefur verið upp í lönd- um annarra þjóða skuli yfir- gefnar. Sömuleiðis verði gerður samn- ingur um að öll ríki skiptist á upplýsingum um hagnýtingu Framhald á 5. síðu. Forsetinn dvelur á Þingvöllum Forseti ísland verður nú í nokkra daga á Þingvöllum og tekur ekki á móti gestum á Bessastöðum á afmæli sínu 13. maí. Kór þessi, sem nefnist Sing- gemeinschaft des Stádtischen Gymnasium Bergisch Gladbachs er skipaður 44 söngvurum á aldrinum 15-25 ára, piltum og stúlkum. Em þau öll núverandi eða fyrrverandi nemendur við menntaskólann í Bergisch Glad- bach, útborg Kölnar. Stofnaður fyrir 8 árum. Söngvarinn Paul Nitsche stofnaði kórinn fyrir 8 árum og hefur stjórnað honum síðan. Á undanförnum árum hefur kór- inn sungið að staðaldri í þýzka útvarpið Nordwestdeutscher Rundfunk og komið víða fram á opinberum hljómleikum m.a. í Brussel og Róm. Hefur kórinn hvarvetna hlotið hina lofsam- legustu dóma. Kunnur söngstjóri. Söngstjórinn er hámenntaður söngvari og viðurkenndur sér- fræðingur í raddþjálfun, en liann kennir söng við tónlistar- háskólann í Köln. Hann dvald- ist hér í Reykjavík í hálfan mánuð s.l. haust og kenndi á námskeiði, sem Söngkennarafél. Islands og fræðslumálastjórnin efndu til. Þótti öllum er kynnt- ust kennslu hans þá mikið til i koma. Söngför kórsins hingað til lands hefur verið í undirbún- ingi síðan. Fjölbreytt efnisskrá. Fyrstu tónleikar kórsins verða í Austurbæjarbíói á föstudag, síðan aðrir hljómleikar á laug- ardag og sunnudag. Veraldleg tónlist verður flutt á tveim tónleikum með mismunandi efnisskrám og er efnisvalið mjög fjölbrevtt. lög m.a. eftir Hans Leo Hassler, Thomas Morley og fleiri tónskáld, sem uppi voru á 16. og 17. öld — gullöld raddlistarinnar, einnig lög eftir nútímatónskáld m. a. Paul Hindemitb og Bela Bar- tok, auk ffölda bjóðlaga frá ýmsum löndum. Einir hljómleikanna verða kirkjuhljómleikar, þar sem fluttar verða mótettur fyrir tvöfaldan kór og kantata eftir J. S. Bach með aðstoð hljóm- sveitar, en nokkrir söngvaranna leika einnig á hljóðfæri. Sala aðgöngumiða að hljóm- leikum þýzka kórsins hefst í dag. Fjölþætt starfsemi Berklavarnar í Hafnarfirði Félagið Berklavörn í Hafnar- firði hefur nú starfað í tvö ár, og hélt uppi allmiklu félagslífi á s.I. ári. Hafði félagið spilakvöld og voru þau mánaðarlega. Þá efndi það til basars til fjáröflun- ar fyrir starfsemi sína og tókst hann vel. Komu inn um 8.000 kr. og verður helmingur þess fjár notaður til styrktar berkla- sjúklingum í Hafnarfiði en hinn hlutinn rennur í Hlífarsjóð í Reykjavík, nem styrkir berkla- sjúklinga. Vill félagið sérstaklega þakka öllum þeim sem studdu að því að efla basarinn með saumaskap og öðrum störfum. Aðalfundur Berklavarnar verð- ur í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði í kvöld kl. 8.30, og eru félags- menn hvattir til að fjölmenna á fundinn. luóomiiN Fimmtudagur 12. maí 1955 — 20. árgangur — 106. tölu’oíað Hin nýja gerð holsteins er Steingerði framleiðir. Sjá frásögn á 3. síðu. — Ljósm. Ingimar Sigurðsson. leinlausar filigur banda háttv irtum kjósendum Nokkrir skoplegir tilburöir þingmanna úr stjómar- flokkunum til aö hressa upp á kjósendafylgi sitt voru viö- hafðir í þinglokin. Fyrir slcömmu fluttu fjórir Framsóknarþingmenn tillögu til þingsályktunar um skipulega leit að fiskimiðum fyrir Norðurlandi og Austurlandi. Þegar tillagan var til siðari umræðu á lokafundi sameinaðs þings í gær, lýsti Ólafur Thors því yfir sem sjávarútvegsmála- ráðherra að tillagan væri mein- laus en gagnslaus, því ríkisstjórn- in hefði þegar heimild til út- gjalda í þessu skyni. Lúðvík Jósefsson benti einnig á, að samþykkt þessarar tillögu væri ekki annað en ítrekun á þingsályktun er gerð var fyrir tveimur árum, en hún var unnin upp úr tillögum er Lúðvík og Pétur Ottesen höfðu ílutt. Kvaðst Lúðvík hafa rætt um framkvæmd þeirrar tillögu við sjávarútvegsmálaráðherra, Davíð Harðir bardagar háðir víða (1111 suðurhluta Yiet Nam Herir bóíaflokks og sértrúarflokks taka höndum saman gegn stjóminni Harðir bardagar voru háöir í gær á ýmsum stööum ekki allfjarri Saigon, höfuðborg suöurhluta Viet Nam. er her ríkisstjórnarinnar hrakti Suðvestur af Saigou, um 110 km frá borginui, sótti um 12.000 manna lið sértrúarflokksins Hoa Hao að setuliði ríkisstjórnax Ngo Dinh Diem í tveim borg- um. Hélt her Hoa Hao uppi stórskotahríð á borgirnar og veitti betur í viðureigninni þeg- ar síðast fréttist. Suðaustur af Saigon hafði liði bófaflokksins Binh Xuven tek- izt að rjúfa veginn frá höfuð- borginn til sjávar. Binh Xuyen réði yfir lögreglunni í Saigon í borginni. / Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Pinay utan- ríkisráðherra Frakklands héldu áfram í París í gær að ræða á- standið í suðurhluta Viet Nam. Segja fréttamenn að þeim beri nú minna á milli en áður. Frakk ar segjast geta sætt sig við að Diem sé áfram forsætisráðherra en Bandaríkjastjórn kveðst ekki muni beita sér gegn því að Bao þangað til fvrir hálfum mánuði, j Dai, skjólstæðingur Frakka, lið flokksins úr st.öðvum sinum hafi áfram þjóðhöfðingjatitil. Ólafsson fiskimálastjóra og dr. Hermann Einarsson fiskifræðing, og hvarvetna fengið góðar undir- tektir, svo mál þetta væri þegar komið á rekspöl. Eysteinn reyndi svolítið að verja sína Framsóknarmenn, en Ólafur Thors kvaðst þá líta svo á að Eysteinn væri að bjóða fram meira fé til þessara rannsókna en nú væri veitt á fjárlögum, og var Eysteinn svo aðþrengdur að hann játaði því! Næst kom til umræðu tillaga frá allsherjarnefnd um ráðstafanir til atvinnuaukningar, — um rannsókn á erfiðleikum þeirra landshluta, sem harðast hafa orð- ið úti vegna vaxandi rányrkju fiskimiðanna. Nú var það Eysteinn sem hopp- aði og lýsti yfir að þessi tillaga væri óþörf, því ríkisstjórnin hefði rætt þetta mál í allan vetur! Varð einn flokksbi'æðra hans, Bernharð Stefánsson að ávíta ráðherrann fyrir ábyrgðarleysi og benda honum á að ráðherrana vantaði svo oft á þingfundi, að þeim veittist örðugt að fylgjast með þingmálum. Báðar tillögurnar voru sam- þykktar með samhljóða atkvæð- um og afgreiddar sem þingsálykt- Tregur afli báta- Hafliði aflar vel Siglufirði. Frá fréttaritax Þjóðviljans. Afli hefur vei'ið mjög tregi hér undanfarið og hafa línubá arnir fiskað svo lítið að þe eru hættir í bili. Togbátarn halda veiðum áfram enn. Togarinn Hafliði er væntai legur í dag með góðan afl; áætluð 300 tonn, mest kari af Grænlandsmiðum. VJndirritið Vínarávarpið í dag - Sendið undirskriftalistana um hæí

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.