Þjóðviljinn - 15.05.1955, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudaguc 15. maí 1955
Aðalfundur
Sambands íslenzkra samvinnufélaga
veró'ur haldinn aö Bifröst í Borgarfirði dagana
22. og 23. júní n.k. og hefst
miövikudaginn 22. júní
kl. 9 árdegis.
Dagskrá samkvæmt samþykktum
Sarnbandsins.
i
Reykjavík, 13. maí 1955
Stjómin
I
■
»»■•■■•■■•■■■■••■■■■■■■■■•■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■"■■■■■■
■
■
Aðeilfundur
■
■
m
Vinnumálasambands Samvinnufélaganna veröur
haldinn aö Bifröst í Borgarfirði fimmtudaginn
23. júní, strax að loknum aöalfundi
Sambandsins
s
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Reykjavík, 13. maí 1955
Stjórnin
Aðalfundur
■ :
: Samvinnutiygginga g.t. verður haldinn aö Bifröst |
1 Borgarfiröi föstudaginn 24. júní og hefst
kl. 10 ^rdegis.
Dagskrá samkvæmt samþykktum
i tryggingarstofnunarinnar
s |
Reykjavík, 13. maí 1955
: •:
: Stjórnin :
■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Aðalfundur
■ ■
■ ■
: :
: Liftryggingafélagsins Andvaka g.t. verður haldinn ■
aö Bifröst í Borgarfiröi föstudaginn 24. júní,
strax að loknum aðalfundi Samvinnutrygginga.
■ ■
m •
Dagskrá samkvœmt samþykktum félagsins.
m ■
■ ■
■ ■
Reykjavík, 13. maí 1955
Stjórnin
m
:
■
■
:
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■•■■■■■■■■■■■■■■■■•■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■'
| Aðalfundur
i
■
i Fasteignalánafélags Samvinnumanna verður haldinn
| að Bifröst í Borgarfiröi föstudaginn 24. júní, strax að
] loknum aðalfundi Líftryggingafélagsins Andvaka.
m
«
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Reykjavík, 13. maí 1955
Stjórnin
!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*
j ÞjóðvjljaRD vantár nngling
■
til blaðburðar í
SKJOLIN
Talio við afgreiðsluna. Sími 7500.
Þegar íallbyssurnar stííluðust af kúlum — Hershöfð-
ingjar borða á Heitt & kalt — Athugasemd til L.R.
MÖNNUM er það enn í fersku
minni þegar floti Atlanzhafs-
bandalagsins ætlaði að fara
að skjóta hér úti fyrir Vest-
f jörðum haustið 1953. Þá skall
á þvílíkt ofsaveður að kúlurn-
ar komust ekki út úr fall-
byssunum nema þeim væri
snúið undan veðri, snjókoman
varð svo þétt að ratsjárnar
urðu blindar, og öldurnar
urðu svo risavaxnar að bylgj-
um sem hófust við Siglunes
og Hornbjarg laust saman á
Húnaflóa, og varð af þvílíkt
bomsaraboms að heyrðist um
allt Island — þrátt fyrir
stormgnýinn. Tóku verndarar
vorir það til ráðs að slaga
undan vindi með stíflaðar fall-
byssur, og hlupu kúlurnar
ekki úr fyrr en komið var
suður undir Spán, enda er
það frægt land fyrir blíðviðri,
en byssurnar látnar snúa upp
í vindinn. Er talið að
floti Atlanzhafsbandalagsins
muni ekki freista þess fram-
ar að skjóta við ísland.
★
NÚ VORU einhverjir fuglar úr
stríðsbandalagi þessu á ferð
hér á landi, og komu loftleið-
is. En það er sjaldan ein bár-
an stök, eins og kerlingin
sagði; og enn blása hvassir
vindar og kaldir á íslandi.
Var það haft í flimtingum á
Lækjartorgi í gær að er gestir
þessir hugðust stíga út úr
bílum sínum við stjórnarráðið
hefði hattur eins þeirra fokið
út í veður og vind, bílhurð
hefði skollið á fingur annars,
í einni stormhviðunni hefði
kolamokari skollið á hinum
þriðja — og er seint að telja
allt það tjón sem Atlanz-
hafsbandalagið verður fyrir
hér á landi. Svo ætlaði utan-
ríkisráðherrann að halda gest-
um sínum veizlu í ráðherra-
bústaðnum við Tjamargötu,
en þá var vatnsæðin biluð í
götunni; þessvegna var sVo
kalt í húsinu að ekki var talið
fært að halda veizluna þar.
Varð það að lokum úr að ráð-
herrann bauð gestum sínum
inn á Heitt og kalt í Hafnar-
stræti, og fengu þeir þar volga
kássu að borða. Þeir flugu á-
leiðis til Ameríku í nótt, og
munu ekki koma aftur. Er
ekki annað sýnna en veður-
guðimir ætli að gera út af
við bandalag þetta; og er það
þá ekki fyrsta sinni í íslands-
sögunni sem ómildi náttúmnn-
ar leikur okkur grátt hér á
þessum hólma.
★
ADDA Bára Sigfúsdóttir kom
að máli við Bæjarpóstinn út af
bréfi því frá stjórn Leikfélags
Reykjavíkur sem birtist hér í
Póstinum í gær, þar sem segir
að Gunnar Hansen hafi „ráð-
izt til kennslustarfa hjá Kvöld-
skóla alþýðu“ í vetur; og
mátti skilja af bréfinu að þetta
m.a. hefði komið í veg fyrir
að hann starfaði meira hjá
L.R. en raun var á. Ádda Bára
sagði að Gunnar Hansen hefði
sýnt skólanum þá velvild að
kenna í honum 2 tíma á viku,
kl. 5—7 á föstudögum, og
hefði forráðamönnum skólans
ekki komið til hugar að slíkt
gæti komið í veg fyrir að hann
annaðist leikstjórn hjá L.R.
Væri skólinn Gunnari mjög
þakklátur fyrir kennslu hans
— en leitt er til þess að vita
ef tveggja tíma starf á viku
hefur af manni öll önnur störf,
eins og L.R. virðist helzt gefa
í skyn. Og svo er líklega út-
rætt um þetta mál að sinni.
Myndarlegt rit
Gagnfræðaskólans í
Vestmannaeyium
Blik, ársrit Gagnfræðaskólans
í Vestmannaeyjum, hefur borizt
blaðinu. Er það samtals 120 bls.,
og hiff myndarlegasta aff allri
gerff,
Ritið hefst á Hugvelcju, eftir
skólastjórann: Þorsteinn Þ. Víg-
lundsson. Sigurður Finnsson
kennari skrifar greinina: Tíma-
mót í merku starfi. Þorsteinn
Jónsson í Laufási skrifar: Tvenn-
ir tímar. Þá er ýmislegt efni eft-
ir nokk'ra nemendur skólans í
vetur. Björn Sigfússon háskóla-
bókavörður skrifar um Vest-
mannaeyjaklaustur. Þá er hug-
leiðing eftir Árna úr Eyjum:
Gult, grænt og blátt. Sigfús J.
Johnsen kennari skrifar Vor-
þanka. Þá eru birtar skólaskýrsl-
ur, skrá um kennara og nemend-
ur, og margt fleira er í heftinu.
Nokkrir nemendur önnuðust
ritstjórn Bliks, en það er prentað
í Prentsmiðju Þjóðviljans, á.
vandaðan pappír, ogjylgja marg-
ar myndir frá skólanum og öði'-
um stöðum í Vestmannaeyjum.
I
Söngfólk vantar
í kórinn sem fer til Varsjá
í sumar.
Upplýsingar að Þingholts-
stræti 27, II. hæð, kl. 3-5 í
dag.
Alþjóðasamvinnunefnd
ísl. æsku.
Hafið þér lesið greinina
99Kominginii vantar ...?f
í síðasta hefti af
SATT
Grein þessi var gerð upptæk i Reykjavík
á sínum tíma, en varð þó landfræg.
SATT f æst á öllum blaðsölustöðum og
kostar kr. 10/—
■•—■■—■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■—•■■■■■■■■■■■»«■■■■■■■■■■■■■■■■■■• ■■•■■■■■•■I
lifreíiaeigendur
í
GÆR
rann út greiðslufrestur á iðgjaldi fyrir hinar lög-
^boðnu ábyrgðartryggingar (skyldutryggingar) bifreiða.
Eru því þeir bifreiðaeigendur, sem eigi hafa
greitt iðgjöld sín, alvarlega áminntir um að
greiða þau nú þegar.
Bifreiðatryggingafélögin.
MIHUHIHIIIIIUHIIIHimiaiilHHIUIHIIHIHinillUIIHIIIIUIIIIMNiaHIBIIHUII